Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 35

Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 35
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 35 Þú finnur upplýsingar um vörurnar okkar og sölustaði inn á www.comfortzone.is FREE FROM SILICONES, PARABENS, MINERAL OILS, ARTIFICIAL COLORS, ANIMAL DERIVATIVES. EYKUR SÝNILEGAN ÁRANGUR Í LÍKAMSRÆKT BODY ACTIVE EYKUR SÝNILEGAN ÁRANGUR Í LÍKAMSRÆKT BODY ACTIVE gegnum fatnað. Maður þarf ekki alltaf að fara eftir nýjustu trendunum til að vera í tísku. Ég mæli með að fólk klæði sig í fatnað sem lætur því líða vel og gefur því sjálfstraust. Það er tíska fyrir mig.“ Hvaða greinar í viðskiptalífinu heilla þig? „Ég er lærður markaðsfræðingur svo það er kannski svolítið augljóst hvað mér finnst heillandi. En allt tengt stafrænni markaðsfræði og neyt- endahegðun finnst mér rosalega áhugavert. Ég pæli mikið í fólki og af hverju við gerum hlutina sem við gerum, svo að neytenda- hegðun er heillandi fyrir mig.“ Hvað finnst þér áhugavert að gera þegar þú ert ekki að vinna? „Mér finnst ótrúlega gaman að hlaupa og þá sérstaklega í ís- lenskri náttúru. Það er eitthvað svo róandi við það. Einnig er ég gríðarlegur matgæðingur og finnst fátt skemmtilegra en að borða góðan mat og drekka gott rauðvín.“ Hvað getur þú sagt mér um ástina? „Það er erfitt að svara. En ást fyrir mér er gott rauðvínsglas í góðum félagsskap.“ Stefnir þú að því að flytja aftur til útlanda? „Já, alveg klárlega. Ég sakna þess rosalega að búa í stórborg og allra tækifæranna sem það býður upp á.“ Hvað langar þig að leggja af mörkum hér á Íslandi? „Ísland er að gera góða hluti þegar kemur að tísku og margt spennandi á uppleið. Það væri rosa gaman að geta tekið eitthvað af minni reynslu og miðlað henni á íslenskan tískumarkað.“ Hvað er það heitasta þegar kemur að tískunni? „Það heitasta í tískunni fyrir haustið að mínu mati er fallegar yfirhafnir, stórir jakkar, samfestingar, stórir treflar og gróf stíg- vél. Ég er mjög hrifin af haust- og vetrarfatnaði þar sem maður getur leyft sér að klæða sig í mörg lög og verið í fallegum yf- irhöfnum og blandað fatnaðinum við grófa skó. Ég get í það minnsta sagt að ég sé klárlega tilbúin fyrir haustið.“ Hefur verið dugleg að versla heima Hvað keyptir þú þér síðast? „Það síðasta sem ég keypti mér var nú reyndar ekki flík heldur voru það ótrúlega fallegir kaffi- bollar úr minni uppáhalds húsgagnabúð, Magnolíu á Skólavörðu- stígnum. Ég var að flytja í íbúð með kærastanum mínum svo öll mín síðustu kaup hafa verið húsgögn eða eitthvað inn í búið.“ Getur þú lýst stílnum þínum? „Ég myndi segja að ég væri með mjög stílhreinan fatastíl. Ég sæki mikið í tímalausar flíkur og kaupi sjaldnast flíkur bara af því að þær eru í tísku. Ég er veik fyrir fallegum jökkum og skóm og finnst skemmtilegast að „poppa upp“ einfalt útlit, með stíg- vélum og jökkum. Einkennisfatnaðurinn minn er stílhreinn bol- ur við gallabuxur, töffaralegir skór og stór jakki.“ Samfestingasjúk Hver er uppáhaldsflíkin í fataskápnum? „Þær eru nokkrar í miklu uppáhaldi hjá mér. Ætli það séu ekki samfestingarnir mínir frá & Other Stories og Mango. Ég er samfestingasjúk, enda finnst mér samfestingar svo fullkomin flík. Hægt er að klæða þá upp og niður og þeir henta fyrir öll til- efni.“ Hvar verslar þú? „Ég versla í & Other Stories, AllSaints og Zara sem er í miklu uppáhaldi. Í þessum verslunum kaupi ég flestallar flíkurnar mín- ar.“ Hvað ættu allar konur að eiga fyrir veturinn? „Þær ættu að eiga fallega kápu og töffaralegan jakka.“ Kápa og veski frá & Other Stories. Skór frá Aldo. Hvítur samfestingur frá Asos og skór frá Topshop.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.