Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 35
Þú finnur upplýsingar um vörurnar okkar og sölustaði inn á www.comfortzone.is
FREE FROM
SILICONES, PARABENS,
MINERAL OILS, ARTIFICIAL COLORS,
ANIMAL DERIVATIVES.
EYKUR SÝNILEGAN
ÁRANGUR Í LÍKAMSRÆKT
BODY ACTIVE
EYKUR SÝNILEGAN ÁRANGUR Í LÍKAMSRÆKT
BODY ACTIVE
gegnum fatnað. Maður þarf ekki alltaf að fara eftir nýjustu
trendunum til að vera í tísku. Ég mæli með að fólk klæði sig í
fatnað sem lætur því líða vel og gefur því sjálfstraust. Það er
tíska fyrir mig.“
Hvaða greinar í viðskiptalífinu heilla þig? „Ég er lærður
markaðsfræðingur svo það er kannski svolítið augljóst hvað mér
finnst heillandi. En allt tengt stafrænni markaðsfræði og neyt-
endahegðun finnst mér rosalega áhugavert. Ég pæli mikið í fólki
og af hverju við gerum hlutina sem við gerum, svo að neytenda-
hegðun er heillandi fyrir mig.“
Hvað finnst þér áhugavert að gera þegar þú ert ekki að vinna?
„Mér finnst ótrúlega gaman að hlaupa og þá sérstaklega í ís-
lenskri náttúru. Það er eitthvað svo róandi við það. Einnig er ég
gríðarlegur matgæðingur og finnst fátt skemmtilegra en að
borða góðan mat og drekka gott rauðvín.“
Hvað getur þú sagt mér um ástina?
„Það er erfitt að svara. En ást fyrir mér er gott rauðvínsglas í
góðum félagsskap.“
Stefnir þú að því að flytja aftur til útlanda?
„Já, alveg klárlega. Ég sakna þess rosalega að búa í stórborg
og allra tækifæranna sem það býður upp á.“
Hvað langar þig að leggja af mörkum hér á Íslandi? „Ísland er
að gera góða hluti þegar kemur að tísku og margt spennandi á
uppleið. Það væri rosa gaman að geta tekið eitthvað af minni
reynslu og miðlað henni á íslenskan tískumarkað.“
Hvað er það heitasta þegar kemur að tískunni?
„Það heitasta í tískunni fyrir haustið að mínu mati er fallegar
yfirhafnir, stórir jakkar, samfestingar, stórir treflar og gróf stíg-
vél. Ég er mjög hrifin af haust- og vetrarfatnaði þar sem maður
getur leyft sér að klæða sig í mörg lög og verið í fallegum yf-
irhöfnum og blandað fatnaðinum við grófa skó. Ég get í það
minnsta sagt að ég sé klárlega tilbúin fyrir haustið.“
Hefur verið dugleg að versla heima
Hvað keyptir þú þér síðast? „Það síðasta sem ég keypti mér
var nú reyndar ekki flík heldur voru það ótrúlega fallegir kaffi-
bollar úr minni uppáhalds húsgagnabúð, Magnolíu á Skólavörðu-
stígnum. Ég var að flytja í íbúð með kærastanum mínum svo öll
mín síðustu kaup hafa verið húsgögn eða eitthvað inn í búið.“
Getur þú lýst stílnum þínum?
„Ég myndi segja að ég væri með mjög stílhreinan fatastíl. Ég
sæki mikið í tímalausar flíkur og kaupi sjaldnast flíkur bara af
því að þær eru í tísku. Ég er veik fyrir fallegum jökkum og skóm
og finnst skemmtilegast að „poppa upp“ einfalt útlit, með stíg-
vélum og jökkum. Einkennisfatnaðurinn minn er stílhreinn bol-
ur við gallabuxur, töffaralegir skór og stór jakki.“
Samfestingasjúk
Hver er uppáhaldsflíkin í fataskápnum?
„Þær eru nokkrar í miklu uppáhaldi hjá mér. Ætli það séu
ekki samfestingarnir mínir frá & Other Stories og Mango. Ég er
samfestingasjúk, enda finnst mér samfestingar svo fullkomin
flík. Hægt er að klæða þá upp og niður og þeir henta fyrir öll til-
efni.“
Hvar verslar þú?
„Ég versla í & Other Stories, AllSaints og Zara sem er í miklu
uppáhaldi. Í þessum verslunum kaupi ég flestallar flíkurnar mín-
ar.“
Hvað ættu allar konur að eiga fyrir veturinn?
„Þær ættu að eiga fallega kápu og töffaralegan jakka.“
Kápa og veski
frá & Other
Stories. Skór
frá Aldo.
Hvítur samfestingur frá
Asos og skór frá Topshop.