Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2019, Síða 32
SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 2019
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
* Taxfree tilboðið gildir af öllum vörum nema vörum frá
IITTALA og SKOVBY og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði.
Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
Allar vörur á
taxfree tilboði*
TAX
FREE
LÝKUR Á
M
ORGUN
M
ÁNUDAG
28
OKT.
.
www.husgagnahollin.is
V E
F V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN
Liverpool tekur á móti Tottenham Hotspur á heimavelli
sínum Anfield í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu kl.
16.30 í dag, sunnudag. Heimamenn hafa komið sér mak-
indalega fyrir á toppi deildarinnar með 25 stig af 27
mögulegum en gengi Tottenham hefur verið undir vænt-
ingum; liðið er í sjöunda sæti með aðeins 12 stig. Harry
Kane og félagar hrukku þó í gang í Meistaradeild Evr-
ópu í vikunni og eru ólíklegir til að leggjast niður og
deyja í leik dagsins.
Svo skemmtilega vill til að þessi sömu lið áttust við í
fyrstu beinu útsendingunni frá knattspyrnuleik í ís-
lensku sjónvarpi; þegar þau glímdu um deildarbikarinn,
eða Mjólkurbikarinn eins og hann hét þá, á Wembley-
leikvanginum í Lundúnum 13. mars 1982. Jafnt var eftir
venjulegan leiktíma, 1:1; Steve Archibald kom Totten-
ham yfir snemma leiks en Ronnie Whelan jafnaði undir
lokin. Það kom svo í hlut Bjarna Felixsonar, íþrótta-
fréttamanns emeritus, að hryggbrjóta þjóðina með þeim
tíðindum að Ríkissjónvarpið hefði ekki aðgang að gervi-
hnettinum lengur og gæti fyrir vikið ekki sýnt framleng-
inguna. Þar tryggðu téður Whelan og Ian Rush Liver-
pool bikarinn með tveimur mörkum sem sparkelskir
urðu að bíða í heila viku eftir að sjá í sjónvarpinu.
Löngu seinna, eða 3. maí 1997, þurfti Bjarni einnig að
rjúfa leik sömu liða í úrvalsdeildinni á Anfield, um miðj-
an seinni hálfleik. Þá var gervihnötturinn að vísu enn þá
til taks en leikurinn skaraðist aðeins við dálæti þjóðar-
innar, Júróvisjón, þar sem Páll Óskar og Minn hinsti
dans voru í eldlínunni, og varð að víkja. Litlar líkur verða
að teljast á því að klippt verði á útsendinguna í dag.
Mohamed Salah var á skotskónum með Liverpool í vikunni.
AFP
Verður klippt á útsendinguna?
Það var Harry Kane einnig fyrir Tottenham Hotspur.
AFP
Liverpool og Tottenham mætast í stórleik sunnudagsins í ensku knattspyrn-
unni. Sömu lið mættust í fyrstu beinu útsendingunni á Íslandi frá kappleik.
„Og nú ætla þeir að sýna í sjón-
varpinu og flytja í útvarpinu nýtt
leikrit, um ránmorðið á Natan
langafa mínum, og aftökuna á
ógæfufólkinu, sem varð honum
að bana. Jafnvel hálshöggva
tuskudúkku, svo ekki er mann-
úðin mikil þegar kemur að til-
finningum annarra. Já, mikið
vinnur maðurinn til að verða
stór, og græða peninga.“
Með þessum orðum hófst bréf
frá Hannesi nokkrum Jónssyni,
sem birt var í Morgunblaðinu 26.
október 1969 undir yfirskriftinni
Ég mótmæli.
„Það væri sök sér, ef þetta
væru kommúnistar, því það illa
ýtir þeim áfram. En þetta þykj-
ast vera góðir menn og guð-
hræddir, og gera allt fyrir listina.
Þeim dettur ekki í hug, að Al-
vizkan hafi látið hryllings-
viðburðina koma fram, þátttak-
endum og öðrum til kennslu,“
hélt Hannes áfram. Og enn
fremur: „Mér þætti undur vænt
um, að hætt yrði við að sýna
leikritið. Og ég vil biðja sem
flesta, að hugsa hlýlega til látins
fólks, hvort það er þetta löngu
liðna fólk, eða hinir, sem nýlega
eru farnir.“
GAMLA FRÉTTIN
Jafnvel
hálshöggva
tuskudúkku
Natan og Agnes hafa orðið mörgum að yrkisefni. Hér eru Baltasar Kor-
mákur og María Ellingsen í kvikmynd Egils Eðvarðssonar, Agnes, frá 1995.
Kvikmyndavefurinn
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Meg Ryan
kvikmyndaleikkona
Lilja Sigurðardóttir
rithöfundur
Björg Þórhallsdóttir
söngkona