Fréttablaðið - 14.02.2020, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 14.02.2020, Blaðsíða 32
HIÐ STÓRA FRAMLAG GUNNARS TIL ÍSLENSKRAR LJÓSMYNDUNAR ERU MARGS KONAR ÆFINGAR MEÐ ABSTRAKT FORMIÐ OG HIN EILÍFA GLÍMA VIÐ LJÓS OG SKUGGA. Yfirlitssýning á verkum og ævistarfi Gunnars Péturssonar stendur nú yfir í Þjóðminja-safni Íslands. Yfirskrift sýningarinnar er Í ljós- málinu. Blaðamaður hitti Lindu Ásdísar- dóttur, verkefnisstjóra hjá Þjóð- minjasafni Íslands, og forvitnaðist um sýninguna. „Hér er kynntur til sögunnar ljósmyndari sem fæstir hafa heyrt nefndan en á stóran sess í íslenskri ljósmyndasögu. Gunnar fæddist árið 1928 og dó 2012. Hann starfaði lengi sem skrifari hjá Eim- skip og seinni hluta ævinnar vann hann í prentsmiðju. Hans lífsköllun var áhugaljósmyndun og hann myndaði frá því að hann ánetjaðist ljósmyndun um 1950 og alla ævi. Hann var ógiftur og barnlaus en eftir lát hans gáfu ættingjar hans Þjóðminjasafninu filmusafn hans, sem geymir um 54.000 myndir,“ segir Linda. „Steinar Örn Erluson heimspekingur gegndi rannsóknar- stöðu Kristjáns Eldjárn við Þjóð- minjasafnið á árunum 2018-2019 og rannsakaði þetta safn Gunnars og tók ásamt Ívari Brynjólfssyni og Ingu Láru Baldvinsdóttur viðtöl við samferðafólk hans. Þá bættist enn ein viðbótin við safneignina sem eru 800 frummyndir unnar af Gunnari sjálfum sem höfðu legið óséðar í áratugi en voru í fórum ætt- ingja Gunnars. Miðað við umfang þessa safns er ótrúlegt hversu sjald- an Gunnar sýndi verk sín. Það má sannarlega kalla hann huldumann í íslenskri ljósmyndasögu.“ Glíma við ljós og skugga Á sýningunni í Þjóðminjasafninu eru á annað hundrað mynda. „Ívar Brynjólfsson, ljósmyndari og sýn- ingarhöfundur, lagði mikla áherslu á að sýna sem mest af frumkópíum frá Gunnari sjálfum. Gestir eru svo heppnir að sjá þarna myndir með handbragði frá sjötta áratug síðustu aldar,“ segir Linda. Spurð hvaða myndefni haf i Huldumaður í íslenskri ljósmyndasögu Í Þjóðminjasafni Íslands er yfirlits- sýning á verkum Gunnars Péturs- sonar. Filmusafn hans geymir um 54.000 myndir. Náttúrusýnin í myndum hans þótti framúrstefnuleg á sínum tíma. Gunnar Péturs- son í Þórsmörk. MYND/INGIBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR Linda Ásdísardóttir, verkefnisstjóri hjá Þjóðminjasafninu, segir Gunnar Pétursson eiga stóran sess í íslenskri ljósmyndasögu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Mynd Gunnars Péturssonar frá 1967 af gluggum Skálholtskirkju. helst fangað huga Gunnars segir hún: „Hið stóra framlag Gunnars til íslenskrar ljósmyndunar eru margs konar æfingar með abstrakt formið og hin eilífa glíma við ljós og skugga. Gunnar var mikill ferða- garpur og ferða- og náttúrumyndir eru stór hluti af safni hans en þar er líka verið að gera margs konar æfingar. Það voru tvær ástríður í lífi Gunnars: ljósmyndun og úti- vist. Hann byrjaði á því að vera ákafur og atkvæðamikill áhuga- ljósmyndari í borginni. Hann var í áhugamannafélögum ljósmyndara, sýndi nokkuð á sjötta áratugnum og myndir hans fóru víða og vöktu athygli. Síðan hvarf hann snögglega af þessum vettvangi. Það má segja að hann hafi horfið til fjalla. Besti ferðafélagi hans og lífsförunautur var Ingibjörg Ólafsdóttir áhugaljós- myndari og þau eyddu tíma sínum á fjöllum. Hann var dulur maður og þeir sem þekktu hann sögðu að hann hefði verið hæverskur prívat- maður.“ Bók á leiðinni Um náttúruljósmyndir Gunn- ars segir Linda: „Í safni hans eru margar náttúruljósmyndir sem eru mjög mínímalískar og form- fagrar og margar alveg abstrakt. Náttúrusýnin í myndum hans var framúrstefnuleg á sínum tíma en varð vinsæl og viðtekin seinna meir. Myndirnar á sýningunni sýna vel hvernig hann hugsar alltaf í formum, flötum og hreyfingum.“ Sýningin stendur fram í lok ágúst. Í tengslum við hana er væntanleg bók um Gunnar og ljósmyndir hans eftir Steinar Örn Erluson. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is 1 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.