Fréttablaðið - 14.02.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 14.02.2020, Blaðsíða 2
Eftir tveggja og hálfs dags verkfall félagsmanna Eflingar hjá Reykjavíkur- borg taka við víðtækar lokanir vegna óveðurs. Árvakur braut lög með því að láta blaðamann sem er í VR skrifa fréttir í verk- fallinu. Sogavegi 3 • Höfðabakka 1 • Sími 555 2800 Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok. Approved and OK New proof please DATE: SIGNATURE: /Ingenjörsgatan 7-9 Box 814, 251 08 Helsingborg Tel. vx. 042-24 73 00 info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se 14 0 280 Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina OPIÐLAUGARDAG 10-15 HUMARSÚPA STÓR HUMAR Veður Hvessir í nótt, rok eða ofsaveður 23-30 m/s með morgninum, en fárviðri, yfir 32 m/s, í vind- strengjum S til. Víða slydda eða snjókoma á morgun, úrkomu- mest S- og A-lands. SJÁ SÍÐU 18 Hildur á Hugarflugi Óskarsverðlaunahafinn Hildur Guðnadóttir var fyrirlesari á Hugarf lugsráðstefnu Listaháskóla Íslands í gær. Átti Hildur samtal frá Berlín við ráð- stefnugesti sem fylltu salinn. „Við erum ótrúlega þakklát fyrir að hún gefi sér tíma,“ sagði Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, verkefnastjóri Hugarf lugs, við Fréttablaðið á þriðjudag. Hildur er ein þeirra sem útskrifuðust fyrst af tónsmíðabraut með áherslu á nýmiðla frá skólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SAMFÉLAG „Við tökum fyrir eitt stórt mál og rannsökum hvernig íslenskir fjölmiðlar hafa tæklað það, nú er það Samherjamálið,“ segir dr. Arnar Eggert Thoroddsen, aðjunkt við námsbraut í félagsfræði við Háskóla Íslands og umsjónarmaður grunnnáms í fjölmiðlafræði. Hann kennir meðal annars námskeiðið Fjölmiðlarannsóknir: Álita- og ágreiningsmál, þar sem nemendur eru nú í óðaönn að skoða fjölmiðlaumfjöllun um Samherja- málið. Nemendur námskeiðsins skoða fréttir og umfjallanir sem birst hafa í dagblöðum, á netmiðlum og ljós- vakamiðlum og beita kenningum sem þau hafa lært í námi sínu til að greina umfjöllunina sem málið hefur hlotið. „Ég skipti nemendunum upp í litla hópa, hver með sitt sérsvið og okkur líður dálítið eins og við séum í litlu rannsóknarfyrirtæki,“ segir Arnar og kímir. „Það er svona stemningin sem við reynum að ná upp, að setja smá Mission: Imposs- ible fíling í þetta. Ég geri þau út af örkinni og við gerumst fræðilegir rannsóknarblaðamenn. Við höfum ákveðið margar vikur til að leysa málið, byrjum með tvær hendur tómar en klárum þetta svo með bústnum skýrslum.“ Verkefnið er enn í fullum gangi svo ekki er komin lokaniðurstaða en Arnar segir ýmislegt áhugavert hafa komið fram. „Þetta er auðvitað risastórt mál en við sjáum að í upp- hafi var rosalega mikil umfjöllun, svona sprenging, og síðan minnkar hún eðlilega með tímanum.“ Nemendur hans skoða fjölmiðla- umfjöllun um Samherjamálið frá sem flestum sjónarhornum og beita fjölmiðlafræðikenningum líkt og þema- og innihaldsgreiningu. „Þau hafa til dæmis óneitanlega orðið vör við þá taktkík sem Samherji notar gegn fjölmiðlum,“ rifjar Arnar upp. „Einnig kom það þeim líka á óvart hversu lítill munur var á umfjöllun- um skyldra miðla, eins og til dæmis á fréttastofum RÚV og Bylgjunnar.“ „Í þessum stóru hneykslismálum má í raun alltaf sjá sömu línuna, til dæmis að sá sem liggur undir ámæli fer oftast í samsæriskenningar og ásakanir,“ heldur hann áfram. „Sak- borningar reyna eins og þeir geta að minnka skaðann með því að núa fjölmiðlum því um nasir að þeir hafi einhverjar annarlegar kenndir.“ Aðspurður um mikilvægi þess að nemendur fái að rannsaka raun- veruleg mál í náminu segir Arnar það afar mikilvægt. „Það er nauð- synlegt að þau fari út á akurinn og beiti þessum hugtökum sem þau eru búin að vera að læra á raun- veruleg dæmi og það er í rauninni tilgangurinn með þessu námskeiði,“ segir hann. Í félagsfræðinni hefur Arnar verið þekktur fyrir skemmtilegar kennsluaðferðir. „Það er mikilvægt að örva fólk, nálgast nemendur af virðingu og á hæfilegum jafningja- grundvelli getum við sagt,“ segir hann. „Ef þau finna að kennarinn sjálfur er ástríðufullur og áhuga- samur, ærlegt eintak sem gefur sig að nemendum, þá geta magnaðir hlutir gerst.“ birnadrofn@frettabladid.is Rannsaka umfjallanir um Samherjamálið Nemendur í félagsfræði við Háskóla Íslands rannsaka fjölmiðlaumfjöllun um Samherjamálið í námskeiði í skólanum. Aðjunkt við skólann segir mikilvægt að nemendur kynnist því að vinna að raunverulegum málum í námi sínu. Nemendur í námskeiðinu Fjölmiðlarannsóknir við Háskóla Íslands. Arnar Eggert og samkennari hans, Egill Bjarnason, eru fremstir á myndinni. Sá sem liggur undir ámæli fer oftast í samsæriskenningar og ásakanir. Dr. Arnar Eggert Thoroddsen, aðjunkt við Háskóla Íslands DÓMSMÁL Verktökum sem starfa hjá Morgunblaðinu var heimilt að sinna fréttaskrifum á mbl.is á meðan verkfall félagsmanna í Blaðamannafélagi Íslands stóð 8. nóvember síðastliðinn. Dómur Félagsdóms í máli Blaðamanna- félagsins gegn Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, féll í gær. Þar segir að þar sem þeir verktak- ar sem hafi verið að störfum standi utan stéttarfélaga hafi verkfallsað- gerðirnar ekki tekið til þeirra. Einn- ig telur dómurinn að heimilt hafi verið að birta tímastilltar fréttir á mbl.is sem skrifaðar höfðu verið áður en verkfallið skall á. Hins vegar telst Árvakur hafa brotið gegn lögum um stéttarfélög og vinnudeilur með því að láta blaðamann sem er í VR skrifa frétt- ir í verkfallinu. Þá var gagnkröfu Árvakurs þar sem farið var fram á að verkfallið yrði dæmt ólögmætt hafnað. Dómurinn telur umfang brota Árvakurs ekki nógu mikið til að verða við kröfu um sektargreiðslu. Málskostnaður fellur niður en báðir aðilar fóru fram á að hinn yrði dæmdur til að greiða málskostnað. – sar Blaðamenn og ljósmyndarar á rit- stjórn Fréttablaðsins eru félags- menn í Blaðamannafélaginu. Verktakar máttu vinna Morgunblaðið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA K JARAMÁL Tveggja og hálfs dags verkfalli félagsmanna Eflingar hjá Reykjavíkurborg lauk í gær. Engar viðræður hafa verið boðaðar í kjara- deilu félagsins við borgina. Engar verkfallsaðgerðir voru boðaðar í dag. Stór hluti þeirra sem deilan snýr að starfar á leikskólum borgarinnar sem því áttu að endur- heimta þessa starfskrafta í dag og starfsemin að færast í venjubundið horf. Leikskólarnir verða hins vegar lokaðir í dag vegna slæmrar veður- spár. Verði ekki búið að semja boðar Ef ling ótímabundið verkfall á mánudaginn. Engir fundir eru boð- aðir í deilunni. – gar Engir fundir með Eflingu 1 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.