Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 31
MESSUR 31á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019
AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
er Guðmundur Guðmundsson. Halla Ólöf Jóns-
dóttir og Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir
syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Tekið
verður við samskotum fyrir vinasöfnuð okkar í
Kapkoris í Keníu. Sunnudagskóli í Safn-
aðarheimilinu kl. 11. Umsjón Tinna Her-
mannsdóttir og Sigríður Hulda Arnardóttir.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl.
14. Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn
Kristínar Jóhannesdóttur. Brúðuleikrit, Biblíu-
saga og söngur. Markús Bjarnason leikur á flyg-
ilinn. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, Ingunn
Björk Jónsdóttir djákni og Anna Sigríður Helga-
dóttir þjóna. Djús og kaffi eftir stundina.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sig-
urður Jónsson sóknarprestur þjónar fyrir altari
og prédikar. Jóhanna María Eyjólfsdóttir
djáknakandídat og Inga Steinunn Hennings-
dóttir annast samverustund sunnudagaskól-
ans. Félagar úr Kór Áskirkju leiða sönginn.
Orgelleikari er Bjartur Logi Guðnason. Nytja-
markaður og jólabasar Safnaðarfélags Áskirkju
í Ási, efri safnaðarsal kirkjunnar, kl. 12. Kaffi
og vöfflur til sölu til styrktar starfi Safn-
aðarfélagsins.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í
Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stundinni
hafa Sigrún Ósk, Þórarinn og Guðmundur Jens.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
er Sighvatur Karlsson. Kór Breiðholtskirkju
syngur undir stjórn Arnar Magnússonar org-
anista. Samskot tekin í lok messu. Þau ganga
til Sambands íslenskra kristniboðsfélaga. Veit-
ingar eftir messu. Sunnudagaskólinn kl. 11.
Steinunn Þorbergsdóttir djákni og Steinunn
Leifsdóttir sjá um stundina. Alþjóðlegi söfn-
uðurinn, the International Congregation, kl. 14.
Prestur er Toshiki Toma. Barnastarf undir hand-
leiðslu Steinunnar Þorbergsdóttur.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf í Grens-
áskirkju kl. 11. Barnakórarnir syngja undir
stjórn Þórdísar Sævarsdóttur. Daníel Ágúst,
Sóley Adda og Jónas Þórir. Hressing eftir stund-
ina. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bústaðakirkju
undir stjórn kantors Jónasar Þóris. Messuþjón-
ar og sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjóna.
Hressing eftir messuna.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau.
kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa og barnastarf kl. 11.
Prestar eru Sveinn Valgeirsson og Elínborg
Sturludóttir. Dómkórinn og Kári Þormar dóm-
organisti. Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra
sérstaklega velkomin.
FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson
þjónar. Arnhildur Valgarðsdóttir leiðir tónlistina
og Svana Karólína Hrafnsdóttir leikur á píanó.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli
kl. 11. Á sama tíma verður útvarpað á RÚV
guðsþjónustu frá kirkjunni sem tekin var upp í
vikunni. Guðsþjónusta á Sólvangi kl. 15. Kór
Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Arnar Arn-
arsonar.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Í guðsþjónustu dagsins verður feðrum gert
hátt undir höfði. Séra Sigurvin Láus Jónsson
leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og Söng-
hópurinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt
Gunnari Gunnarssyni organista. Fermingarbörn
og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta.
GLERÁRKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20 sunnu-
dag. Sr. Hildur Sigurðardóttir þjónar. Kór Gler-
árkirkju leiðir söng undir stjórn Petru Bjarkar
Pálsdóttur organista. Einsöngur: Sigrún Her-
mannsdóttir.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa og afmæl-
ishátíð kl. 11. Kristján Björnsson vígslubiskup
vísiterar og sr. Vigfús Þór Árnason prédikar.
Prestar safnaðarins þjóna, kór kirkjunnar leiðir
söng og Hákon Leifsson er organisti. Þá verður
boðið upp á tvö erindi, annað um sögu safn-
aðarins og hitt um framtíðarsýn. Að lokinni
messu er boðið upp á afmæliskaffi. Sunnu-
dagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11. Um-
sjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólm-
fríður Frostadóttir. Undirleikari er Stefán
Birkisson.
GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG |
Selmessa kl. 13. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir
prédikar og þjónar. Organisti er Hilmar Örn Agn-
arsson og Vox Populi leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Fjölskyldu stöðvamessa
kl. 11. Lögregluþjónn kíkir í heimsókn, sr. Eva
Björk og Daníel Ágúst þjóna ásamt fermingar-
börnum. Barnakórar Fossvogsprestakalls
syngja undir stjórn Þórdísar Sævarsdóttur og
Ásta Haraldsdóttir spilar á orgel og píanó.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjón-
usta og barnastarf kl. 11. Prestur er Karl V.
Matthíasson, organisti er Hrönn Helgadóttir og
kór Guðríðarkirkju syngur. Barn verður skírt í
messunni. Sunnudagaskóli í safnaðarheim-
ilinu í umsjá Péturs Ragnhildarsonar og kemur
leynigestur. Kirkjuvörður er Lovísa Guðmunds-
dóttir og meðhjálpari er Guðný Aradóttir. Kaffi-
sopi í boði eftir messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Barna- og unglingakórar kirkj-
unnar syngja. Hljómsveit leikur. Sunnudaga-
skólinn tekur þátt í stundinni. Eftir stundina
verður formlega tekinn í notkun salur fyrir
barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar. Veitingar.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Ása
Laufey Sæmundsdóttir þjónar fyrir altari. Org-
anisti er Guðný Einarsdóttir og Kór Kordíu syng-
ur.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sunnudagaskól-
inn kl. 11. Feðradagsmessa á sama tíma í
Digraneskirkju. Sr. Karen Lind Ólafsdóttir þjón-
ar fyrir altari. Gunnar Böðvarsson og Vinir
Digraneskirkju sjá um tónlistina. Guðsþjón-
ustan er sameiginleg fyrir Hjalla- og Digranes-
sókn.
HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa | Guðsþjón-
usta kl. 13.30. Prestur er Ninna Sif Svav-
arsdóttir. Söngkór Villingaholts - og Hraungerð-
issókna syngur og leiðir safnaðarsöng undir
stjórn Guðmundar Eiríkssonar organista. Að
guðsþjónustu lokinni verður messukaffi í Þing-
borg þar sem Ingi Heiðmar Jónsson, fyrrum org-
anisti, verður kvaddur og honum þakkað fyrir
vel unnin störf.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Service. Translation into English.
Samkoma á spænsku kl. 13. Reuniónes en
español.
Samkoma á ensku kl. 14. English speaking
service. Samkoma Fíló+ kl. 20.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam-
koma, lofgjörð, fyrirbænir og barnastarf kl. 13.
Edda Swan prédikar. Samfélag og heitt á könn-
unni eftir stundina.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl. 11. Kór
Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs org-
anista. Hjónin Stefán Jónsson og Guðrún Há-
konardóttir eru messuþjónar. Sunnudagaskóli
með söng, biblíusögu og bæn er í höndum Jó-
hönnu, Inga Þórs og Helgu. Ásmundur Frið-
riksson og fermingarforeldrar reiða fram súpu
og brauð. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar.
KIRKJA heyrnarlausra | Messa í Grens-
áskirkju 10. nóvember kl. 14.
Prestur er Kristín Pálsdóttir. Táknmálskórinn
syngur undir stjórn Eyrúnar Ólafsdóttur. Kaffi
og kaka eftir messuna.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson
leiðir guðsþjónustuna ásamt sunnudaga-
skólaleiðtogum. Drengir úr 5.-7. bekk Kárs-
nesskóla syngja undir stjórn Sunnu Karenar
Einarsdóttur.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir setur sr. Aldísi Rut
Gísladóttur inn í embætti prests við Langholts-
sókn. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar auk
sr. Helgu Soffíu og sr. Aldísi Rut. Fílharmónían
syngur og organisti er Magnús Ragnarsson.
Sunnudagaskóli undir stjórn Söru Grímsdóttur.
Léttur hádegisverður að lokinni messu.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
og 6-9 ára starf kl. 11. Sr. Guðni Már og sunnu-
dagaskólakennararnir. Guðsþjónusta kl. 20.
Við minnumst þeirra sem kvatt hafa þetta líf.
Flutt verða ljóð, sálmar og tónlist sem hafa
reynst fólki huggun á erfiðum tímum. Sýnd
verða listaverk og myndir sem miðla von og
hjálpa í sorgarúrvinnslu. Hægt verður að
kveikja á kertum í minningu ástvina. Sr. Guðni
Már Harðarson flytur hugvekju. Kór Lindakirkju
undir stjórn Óskars Einarssonar. Kaffi og kon-
fekt eftir stundina.
NESKIRKJA | Messa, barnastarf og opnun
listsýningar Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur kl. 11.
Félagar í Kór Neskirkju syngja undir stjórn
Steingríms Þórhallssonar organista. Fjallað
verður um sýningu Önnu Júlíu, Ég hef misst
sjónar á þér, í prédikun. Prestur er Skúli S.
Ólafsson. Sunnudagskóli. Umsjón Margrét
Heba Atladóttir, Gunnar Th. Guðnason og Ari
Agnarsson. Sýningaropnun, samfélag og kaffi-
veitingar á Torginu eftir messu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Messa kl. 14,
minnst verður látinna. Sr. Pétur Þorsteinsson
þjónar. Kristján Hrannar sér um tónlist og kór.
Barnastarf, maul eftir messu. Ólafur Krist-
jánsson tekur á móti kirkjugestum.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós | Minning látinna
í messu kl. 14. Stund fyrir öll sem misst hafa
ástvini. Arna Grétarsdóttir sóknarprestur leiðir
stundina ásamt Guðmundi Ómari Óskarssyni
organista og kirkjukór Reynivallaprestakalls.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í
Kristniboðssalnum 58-60, 3. hæð. Ræðumað-
ur: Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar. Barnastarf. Túlkað á
ensku. Kaffisala Kristniboðsfélags karla frá kl.
14.
SELFOSSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11.
Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Edit
Molnár, umsjón með stundinni hafa einnig Jó-
hanna Ýr og Ninna Sif. Súpa í safnaðarheim-
ilinu gegn vægu gjaldi að messu lokinni.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11, söng-
ur, Biblíusaga og brúðuleikhús. Guðsþjónusta
kl. 14, sr. Ragnar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Kristniboðssambandsins, pré-
dikar en Kristniboðssambandið er 90 ára á
þessu ári. Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar fyrir
altari og Kór Seljakirkju syngur undir stjórn
Tómasar Guðna Eggertssonar. Tekið verður á
móti framlögum til Kristniboðssambandsins í
lokin.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg-
unn kl. 10. 30 ár liðin frá falli Berlínarmúrsins.
Marie Luise von Halen, fyrrverandi þingkona í
Brandenburg, talar á íslensku. Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sig-
urvinsson þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er
organisti. Sveinn Bjarki og leiðtogar sjá um
sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkór Sel-
tjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar og sam-
félag eftir athöfn í safnaðarheimilinu.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Séra Skírnir Garðarsson þjónar fyrir altari og
prédikar. Organisti er Jón Bjarnason.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir altari ásamt
messuþjónum. Félagar í Kór Vídalínskirkju
syngja og organisti er Jóhann Baldvinsson.
Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálp-
arstarfs kirkjunnar, prédikar. Sunnudagaskóli á
sama tíma sem Matthildur Bjarnadóttir æsku-
lýðsleiðtogi stýrir. Messukaffi.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fjöl-
skylduhátíð kl. 11. Börn úr Lúðrasveit Víð-
istaðskóla
leika undir stjórn Vigdísar Klöru Aradóttur. Um-
sjón hafa Margrét Lilja og Helga Þórdís. Hress-
ing í safnaðarsal á eftir.
ORÐ DAGSINS:
Konungsmaðurinn
(Jóh. 4)
Morgunblaðið/SverrirGrafarvogskirkja.
Á dögunum skrifaði
Björn Bjarnason
langa grein og heldur
sundurlausa þar sem
hann tvinnaði saman
útleggingu sína á
kosningaúrslitum í
þýska sambandsland-
inu Thüringen og ný-
legar umræður á Al-
þingi um stækkun
Nató. Ástæða þess að
dómsmálaráðherrann
fyrrverandi kýs í greininni að leggja
lykkju á leið sína alla leið suður til
Þýskalands virðist helst vera sú að
tengja afstöðu Vinstri grænna til
Nató við þýska flokkinn Die Linke.
Nærtækari samanburður hefði þó
verið að benda á róttækir vinstri-
flokkar á öllum Norðurlöndunum
átta eru andvígir Nató-aðild.
Það voru umræður og atkvæða-
greiðsla um aðild Norður-Makedón-
íu að Nató sem urðu kveikjan að
skrifum Björns og leiddu hann að
þeirri niðurstöðu að VG sé úreltur
flokkur og tímaskekkja. Tilefnið var
að allir þingmenn Vinstri grænna
og nokkrir úr þingflokki Pírata sátu
hjá í atkvæðagreiðslu um stækk-
unina. Afstaða Vinstri grænna var í
samræmi við fyrri afgreiðslur á
sambærilegum málum, nú síðast
þegar Svartfellingum var veitt aðild
að bandalaginu vorið 2016. Þá sem
nú áréttaði VG þá skoðun sína að
einhver stærstu mistök seinni tíma
á sviði alþjóðamála hefðu verið að
nýta ekki tækifærið við lok kalda
stríðsins til að leggja niður Atlants-
hafsbandalagið.
Björn hnýtir sérstaklega í félaga
minn, Steinunni Þóru Árnadóttur,
fyrir að benda á hið augljósa: að
hagsmunir hergagnaframleiðenda
séu að miklu leyti drifkrafturinn að
baki útþenslu og viðhaldi Nató.
Nató-aðildin er sú svipa sem Banda-
ríkjastjórn notar á bandalagsríki sín
til að þrýsta á þau að auka framlög
sín til vígbúnaðarmála. Hagsmun-
irnir sem þar liggja að baki eru
gríðarlegir, eins og ekki ætti að
þurfa að útskýra fyrir jafnmiklum
áhugamanni um vígvæðingu og
Birni Bjarnasyni.
Björn telur að andstæðingar
Nató í dag séu fastir í köldu stríði,
en kýs sjálfur að líta fram hjá þeim
breytingum sem orðið hafa á Atl-
antshafsbandalaginu frá lokum
kalda stríðsins. Til að skapa sér
hlutverk hefur bandalagið í vaxandi
mæli breytt sér í árásargjarnt hern-
aðarbandalag sem þvælir sér í hver
hernaðarátökin á fætur öðrum utan
landamæra sinna. Nató er flækt í
endalausu stríði í Afganistan sem
hefur leitt til ómældra þjáninga
þessa stríðshrjáða lands. Nató
stofnaði til stríðs í Líbíu sem lagði
innviði þess lands í rúst
og stuðlaði að flótta-
mannabylgju til Evr-
ópu sem enn sér ekki
fyrir endann á. Nató á í
nánu hernaðarsam-
starfi við Sádi-Arabíu
og Ísrael sem hvort í
sínu lagi standa fyrir
stórfelldum mannrétt-
indabrotum í Jemen og
Palestínu. Um Natórík-
ið Tyrkland þarf svo
fæst orð að hafa. Að
ræða Nató árið 2019 en
horfast ekki í augu við þennan veru-
leika er í besta falli veruleikafirring.
Nató er sömuleiðis kjarn-
orkuvopnabandalag, sem áskilur sér
rétt til beitingar kjarnavopna að
fyrra bragði. Aðildarríki bandalags-
ins hafa sameiginlega staðið gegn
metnaðarfullum afvopnunarsamn-
ingum á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna eins og sáttmálanum um bann
við kjarnavopnum. Á sama tíma
hafa helstu forysturíki Nató grafið
undan mikilvægum sáttmálum á
borð við samninginn um bann við
gagneldflaugakerfum og samning-
inn um bann við meðaldrægum
kjarnaflaugum. Nýjustu fregnir frá
Bandaríkjunum benda til að Trump
forseti hyggist setja endurnýjun
SALT-samninganna í uppnám.
Aðild Norður-Makedóníu að Nató
var samþykkt með þorra atkvæða á
dögunum. Umræðurnar um málið
voru frjóar og áhugaverðar. Alltof
sjaldan gerist það að þingmenn
ræði af alvöru grundvallaratriði á
sviði varnar- og öryggismála. Sá
málaflokkur er því miður alltof oft
tekinn út fyrir sviga þegar kemur
að pólitískri umræðu. Þetta er
óæskileg þróun, eins og Björn
Bjarnason ætti að geta verið sam-
mála mér um – þótt líklega deilum
við fáum öðrum skoðunum í þessum
málaflokki. Í því skyni vil ég benda
á frumvarp mitt sem miðar einmitt
að því að auka aðkomu Alþingis að
ákvörðunum um hernaðartengd
málaefni, sem gerir ráð fyrir að Al-
þingi þurfi að samþykkja allar
meiriháttar hernaðarframkvæmdir
og viðauka við varnarsamninginn
við Bandaríkin. Það er í takt við
eðlilega kröfu samtímans um lýð-
ræðislega umræðu, en ekki þau úr-
eltu viðhorf til hernaðarbandalags
sem því miður einkenna málflutning
Björns.
Úrelt viðhorf Björns
Eftir Kolbein
Óttarsson Proppé
Kolbeinn Óttarsson
Proppé
» Að ræða Nató árið
2019 en horfast ekki
í augu við þennan veru-
leika er í besta falli
veruleikafirring.
Höfundur er þingmaður.
kolbeinnp@althingi.is
Hver vill ekki vera réttum megin
við kynslóðabilið þegar kemur að
því að kljást við tæknina? Hrista af
sér tölvuskrekkinn og fylgja
straumnum. Kaupa nýjustu græj-
urnar þótt þær séu svo flóknar og
fjölhæfar að það hálfa væri nóg.
Nýtingin því kannski í slakara lagi,
en hver veit nema einhver slæðist
til að kenna þeim kaupglaða ný
trikk.
Það er nefnilega það nýstárlega
við upplýsingatæknina að gamla
spakmælið „ungur nemur gamall
temur“ hefur snúist við og það er
unga fólkið og alveg niður í börn
sem koma þeim eldri til hjálpar
þegar takkarnir og möguleikarnir á
nýju tækjunum eru orðnir helst til
margir.
Fyrir nokkrum árum var stund-
um verið að auglýsa byrjenda-
námskeið fyrir tölvunotendur.
Langt síðan slíkt hefur sést.
Kannski allir orðnir stautfærir á
tölvur og síma nema hörðustu anti-
tölvistar.
En alltaf má bæta sig og græj-
urnar verða sífellt margbrotnari.
Væri það ekki ágæt viðbót við fé-
lagsstarf 60+, í aðfarandi sam-
drætti, að hressa upp á tölvukunn-
áttuna? Kaffi og lummur í hléinu.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Að þverskera núið
Tækni Gamla ritvélin þótti mikið
tækniundur á sínum tíma.
Ljósmynd/Colourbox.dk
Kristniboðsdagurinn
10. nóvember 2019
Kristniboðsdagur þjóðkirkjunnar er á morgun:
Kaffisala Kristniboðsfélags karla verður í Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58-60 kl. 14-16:30. Samkoma í Kristniboðssalnum kl. 17.
Bjarni Gíslason kristniboði flytur hugvekju.
Tekið er við gjöfum til kristniboðsins í kirkjum landsins.
Gjafareikningur 0117-26-002800. Kennitala 550269-4149.
Basarinn, nytjamarkaður Kristniboðssambandsins í Austurveri, Háa-
leitisbraut 68, er opinn virka daga kl. 11-18 og laugardaga kl. 13-16.
Samband íslenskra kristniboðsfélaga sik.is
...í trú, von og kærleika
Þjóðkirkjan - kærleiksþjónustusvið