Morgunblaðið - 09.11.2019, Side 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019
kennt allar þessar samverustund-
ir sem við reiknuðum með að yrðu
fleiri. En lífið er hverfult og nú
hefur verið höggvið stórt skarð í
hópinn við fráfall Emma.
Hrafnhildur og Emmi voru
samhent hjón, þau áttu hesta og
fóru saman í hestaferðir. Fyrir
stuttu keyptu þau sér húsbíl sem
til stóð að nota mikið á komandi
árum.
Þrátt fyrir mikinn ferðaáhuga
vildi Emmi ekki ganga á fjöll,
hann sagði að Hrafnhildur hefði
lokkað sig til að ganga á Súlur í til-
hugalífinu en hann léti ekki plata
sig í svoleiðis ferðir oftar. Emmi
vann við ýmislegt, m.a. húsbygg-
ingar. Hann byggði t.d. nokkur
hús fyrir Hrafnhildi sína, það síð-
asta fyrir stuttu þegar þau ætluðu
að minnka við sig, en húsið endaði
samt í 300 m² á einhverjum falleg-
asta stað í bænum.
Emmi var ljúfmenni sem mátti
ekkert aumt sjá. Hann var líka
einstaklega skemmtilegur vinur,
við munum kímnisvipinn, brosið,
gamansögurnar, orðheppnina og
sönginn.
Emmi var hestamaður, trillu-
karl, náttúruunnandi og smiður.
Gleðigjafi sem alltaf gat fengið
hópinn til að hlæja. Þau eru ófá
gullkornin sem frá honum komu
og munu verma okkur um ókomin
ár. Í annarri Frakklandsferðinni
hafði Emmi á orði að næst þegar
við kæmum í Stykkishólm myndi
hann skipuleggja kvöldverð í Búð-
ardal og láta okkur ganga þangað.
Tilefni ummælanna var gönguferð
hópsins í sameiginlegan kvöldverð
í næsta þorp við dvalarstað.
Gönguferð, sem þótt stutt væri
reyndist nokkuð strembin vegna
hita.
Við gátum prísað okkur sæl að
hann stóð ekki við þessi orð sín
þegar við komum síðast á þorra-
blót í Stykkishólmi.
Við sumarbústað einnar okkar
austur á landi plöntuðum við
nokkrum birkitrjám sem tákn um
vináttu okkar. Hríslurnar heita
Birkisystur að tillögu Emma.
Að leiðarlokum þökkum við
Emma fyrir langa vináttu sem
aldrei bar skugga á. Hugur okkar
er hjá Hrafnhildi vinkonu okkar
sem misst hefur eiginmann og
besta vin.
Elsku Hrafnhildur, Dísa,
Bjössi, Dagur, Jón Sindri og fjöl-
skyldur, missir ykkar er mikill, en
minning um góðan dreng lifir. Við
viljum enda þetta með lokaorðum
Rósarinnar eftir Guðmund Hall-
dórsson sem Emmi söng svo oft.
„Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei það er minning þín.“
(Guðmundur G. Halldórsson)
Fyrir hönd A-systra og maka,
Fjóla Höskuldsdóttir.
Í dag kveðjum við góðan vin
minn og litríka karakterinn Emil
Þór.
Honum kynntist ég þegar ég
vann sem nemi á Hárstofunni hjá
Bjarndísi.
Ég man hversu stórundarlegur
mér þótti hann í fyrstu, en hann
kom á hverjum degi á stofuna í
kaffi og spjall, ef hann kom ekki
þá hringdi ég í hann og spurði
hvort hann væri nokkuð búinn að
gleyma okkur.
Eitt sinn sem oftar gekk hann
inn á stofu til okkar, lét renna í
kaffibolla og labbaði út án þess að
yrða á einn eða neinn, og kúnni í
stólnum hjá okkur Dísu spurði
forviða hvort við hefðum ekki tek-
ið eftir manninum sem kom inn?
Jú, við héldum það nú, Dísa tal-
aði bjagað í gegnum hláturinn og
sagði: „Æ, þetta er hann pabbi
minn.“
Ég þakka Emil fyrir fé-
lagsskapinn og allt kaffispjallið,
bíltúrana sem við rétt skruppum í
til þess að forvitnast út í bæ og
vináttuna.
Elsku Hrafnhildur, Dísa,
Bjössi, Dagur, Jón Sindri og fjöl-
skyldur, mínar dýpstu samúðar-
kveðjur, megi guð gefa ykkur
styrk í sorginni.
Rakel Amlin.
✝ Fjóla S. Hann-esdóttir fædd-
ist í Hnífsdal 9. júní
1928. Hún lést á
hjúkrunarheimil-
inu Eyri á Ísafirði,
Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða á Ísa-
firði, 27. október
2019.
Foreldrar henn-
ar voru Hannes
Ólason, f. 24. júlí
1884, d. 16. apríl 1970 og Val-
gerður Björnsdóttir, f. 11. júní
1895, d. 6. apríl 1989. Börn
þeirra: Karólína, Björg (lést á
fyrsta ári), Sigmunda, Björg,
Guðný, Ólöf, Arndís, Jóhannes,
Lilja, Hulda, Hrefna, Beta Guð-
Guðrúnu Hreinsdóttur, börn
þeirra eru Óskar Aðalsteinn,
Ásgerður og Stefán. Óskar var
kvæntur Önnu Rankvist, synir
þeirra eru Dante og Gunnar,
börn hans með Stefaníu Stein-
þórsdóttur eru Jóhanna María
og Benjamín Friðbjörn. Ásgerð-
ur er gift Sveini Jónassyni, börn
þeirra eru Kristófer Máni, sem
Sveinn átti fyrir, Patrekur
Freyr og Ronja Líf. 3) Aðal-
steinn, f. 8. júní 1962, kvæntur
Guðrúnu Hermannsdóttur, dæt-
ur þeirra eru Fjóla og Áslaug. 4)
Indriði, f. 6. ágúst 1967, kvænt-
ur Laufeyju Ólafsdóttur, dóttir
þeirra er Auður. 5) Guðmundur
Páll, f. 1. mars 1969, sambýlis-
kona hans er Gerður Engilrós
Einarsdóttir, börn þeirra eru
Einar Óli, Helgi Hrannar og El-
ísa Guðrún.
Útför Fjólu fer fram frá
Hnífsdalskapellu í dag, 9. nóv-
ember 2019, og hefst athöfnin
kl. 14.
rún, Óli Björn,
Garðar og Ósk. Var
Fjóla sú tíunda af
þeim systkinum og
af þeim eru Beta
Guðrún, Hrefna,
Óli Björn, Garðar
og Ósk enn á lífi.
Fjóla giftist Ósk-
ari Friðbjarnar-
syni, frá Sút-
arabúðum í
Grunnavík 30. mars
1958. Foreldrar hans voru Sól-
veig Pálsdóttir og Friðbjörn
Helgason. Börn Fjólu og Óskar
eru: 1) Hannes, f. 12. desember
1957, sambýliskona hans er Sig-
ríður Jóna Þráinsdóttir. 2) Frið-
björn, f. 14. maí 1959, kvæntur
Elsku amma Fjóla, hvar á ég
að byrja?
Maður er aldrei tilbúinn til að
kveðja en það kemur alltaf að
leiðarlokum. Hér sit ég með tárin
í augunum að rita niður nokkur
minningarorð um svo yndislega,
hjartahlýja og góða konu. Það
þeysast hlýjar minningar í höfð-
inu á mér og það eina sem ég finn
er þakklæti. Ég er svo þakklát
fyrir allt sem þú gerðir fyrir okk-
ur barnabörnin, þú varst alltaf til
staðar, sama hvað var. Ég var svo
lánsöm að búa mjög nálægt þér
alla mína æsku. Þú og afi Óskar
voruð alla tíð stór partur af æsku-
árunum mínum og þannig sköp-
uðust margar góðar minningar.
Amma Fjóla var ótrúlega flink í
höndunum og voru alltaf til nýpr-
jónaðir sokkar eða vettlingar hjá
ömmu. Ef gat kom á einhverja
flík eða þurfti að sauma fyrir
öskudaginn þá tók amma upp
saumavélina og reddaði málun-
um. Ömmu þótti ótrúlega gaman
að spila við okkur barnabörnin og
var mikið spilað ólsen-ólsen og
veiðimaður.
Í eldhúsinu hjá ömmu voru
alltaf til allskonar kræsingar.
Lummur, heimabakað vínar-
brauð, aspasbrauð og ekki má
gleyma vanilluís með niðursoðn-
um jarðarberjum. Alltaf var gott
að leita til ömmu ef eitthvað am-
aði að því amma Fjóla var svo
ráðagóð og margt af því sem hún
kenndi mér hef ég nýtt mér á full-
orðinsárunum.
Elsku amma mín, ég er þér svo
innilega þakklát fyrir allt saman,
nú ertu komin til elsku afa og
hvílið þið hlið við hlið í Hnífsdal
þar sem hugur okkar og hjörtu
eru sem eftir stöndum. Ég kveð
þig nú í hinsta sinn með miklum
söknuði og tár í augum.
Guð geymi þig amma mín,
knúsaðu afa frá mér.
Ég elska þig.
Þín ömmustelpa,
Ásgerður Friðbjarnardóttir
Elsku besta amma okkar, takk
fyrir allar skemmtilegu stundirn-
ar sem við áttum saman.
Minning þín lifir í hjörtum
okkar.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson)
Einar Óli, Helgi Hrannar
og Elísa Guðrún.
Fjóla S.
Hannesdóttir
✝ AðalheiðurLovísa Rögn-
valdsdóttir fæddist
á Siglufirði 18. apr-
íl 1926. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Norðurlands Siglu-
firði 28. október
2019.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Rögnvaldur Guðni
Gottskálksson frá
Dalabæ í Úlfsdölum við Siglu-
fjörð, f. 1893, d. 1981, og Guð-
björg Kristín Aðalbjörnsdóttir
frá Máná í Úlfsdölum við Siglu-
fjörð, f. 1903, d. 1977. Bræður
hennar voru: Jóhann, f. 1922, d.
1994, Gottskálk, f. 1927, d. 2015,
Aðalbjörn, f. 1929, d. 2010, og
Meyvant, f. 1933, d. 1991.
Heiða bjó alla tíð
á Siglufirði. Hún
starfaði við skrif-
stofu- og verslunar-
störf. Hún var um-
boðsmaður HHÍ til
fjölda ára.
Heiða var á sín-
um yngri árum
mikið á skíðum og
tók þátt í mörgum
skíðamótum og
hafði alla tíð mik-
inn áhuga á íþróttum. Einnig
var hún lengi í stjórn SSS. Þá
tók hún mikinn þátt í starfi
Sjálfsbjargar á Siglufirði.
Hún hafði líka mjög gaman af
að spila á harmonikku.
Útför hennar verður gerð frá
Siglufjarðarkirkju í dag, 9. nóv-
ember 2019, klukkan 14.
Við andlát Heiðu er mér efst í
huga þakklæti fyrir allar þær frá-
bæru viðurgerningar sem ég og
við hjónin nutum hjá Heiðu og
Nýju. Þær höfðu rekið verslun
saman og eftir lát Magnúsar, föð-
urbróður míns, Viðars og Magn-
úsar yngri, en þeir létust allir á
sama árinu, hafði Heiða reynst
Nýju ómetanlegur stuðningur og
þær flutt saman í nýja notalega
íbúð á Laugarveginum.
Það var hefð hjá okkur í mörg
ár að fara til berja í Fljótin og
gistum þá ævinlega hjá þeim
stöllum. Það var glatt á hjalla og
ekki höfðum við dvalið lengi þeg-
ar Árni, frændi Heiðu, kom til að
bjóða okkur velkomin og spyrja
frétta. Þetta var alveg einstakt
samfélag. Ekki spillti fyrir þegar
Heiða tók í nikkuna. Hún kom
meira að segja með harmonikku-
félaga sína í heimsókn í Heydal-
inn til mín þegar við vorum að
hefja rekstur. Þá mátti með sanni
segja að þröngt máttu sáttir
„sofa“ en stemmningin var
ógleymanleg.
Mér er sérstaklega í minni
þegar við Pálmi áttum 20 ára
brúðkaupsafmæli. Við vorum að
koma af Landsmóti UMFÍ á Ak-
ureyri og ákváðum að ganga frá
Siglufirði yfir í Héðinsfjörð í ynd-
islegu veðri. Þegar við komum til
baka beið okkar dýrindis veislu-
borð. Já, það var yndislegt að
koma í Siglufjörð. Mjög forvitni-
legt hefur verið að fylgjast með
breytingum bæjarins. Siglufjörð-
ur, sem fyrrum iðaði af síldar-
vinnslu yfir sumarið og aðeins
var hægt að nálgast sjóleiðina yf-
ir veturinn, hefur þróast í bæ sem
fengið hefur nýja, glæsilega
ásjónu og nýtt hlutverk. Þróun
sem ég veit að Heiða gladdist yf-
ir.
Blessuð sé minning Heiðu sem
lét sér annt um svo marga.
Stella
Guðmundsdóttir.
Aðalheiður Lovísa
Rögnvaldsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku Heiða mín.
Þú varst svo góð kona,
bakaðir góðar pönnukökur.
Þú varst mér svo góð og
kenndir mér margt og mik-
ið. Takk fyrir allt gamalt og
gott.
Þinn vinur og frændi,
Árni Heiðar.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN VIBEKA BJARNADÓTTIR
frá Neskaupstað,
áður til heimilis á Barðastöðum 79,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 31. október.
Útförin fer fram frá Fíladelfíukirkju mánudaginn 11. nóvember
klukkan 13.
Viðar Norðfjörð Guðbjartss. Kulrapas Kaewin
Þorleifur Guðbjartsson
Bjarni Geir Guðbjartsson Kristín Ósk Gestsdóttir
Elín Guðbjartsdóttir Marten Ingi Løvdahl
Guðbjartur Guðbjartsson Kazi Kona
Signý Guðbjartsdóttir Sigurður Reynisson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR
frá Brekku í Aðaldal,
lést á Hrafnistu Nesvöllum mánudaginn
4. nóvember. Útförin fer fram frá
Innri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn 11. nóvember klukkan 13.
Guðbjörg Nanna Einarsdóttir
Kristjana Einarsd. Herzog Brian M. Herzog
Jóna Gréta Einarsdóttir Lárus Milan Bulat
barnabörn og langömmubörn
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
HERDÍS GUÐRÚN JÓHANNESDÓTTIR,
Hjúkrunarheimilinu Grund,
áður Kleppsvegi 118, Reykjavík,
lést 3. nóvember.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 14. nóvember klukkan 11.
Gísli Sveinsson Kristín Torfadóttir
Sandra Gísladóttir
Arnar Gíslason
Listamaðurinn
NONNI RAGNARSSON
er látinn.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
F.h. fjölskyldu og vina,
Guðrún Einarsdóttir
Erlingur Einarsson
Elskulegur sonur, eiginmaður, faðir
og bróðir,
HALLDÓR GÍSLI BRIEM,
Grikklandi,
lést á heimili sínu í Aþenu fimmtudaginn
7. nóvember. Jarðsett verður í Aþenu
laugardaginn 9. nóvember.
Zophanía G. Briem
Lida Briem Magnús Dimitri Briem
Svanborg R. Briem Einar Jón Briem
Okkar hjartkæra,
KRISTÍN HELGADÓTTIR,
Sólvöllum,
Eyrarbakka,
lést 3. nóvember.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
föstudaginn 15. nóvember klukkan 14.
Anna Þóra Einarsdóttir Halldór Ingi Guðmundsson
Hildur Einarsdóttir Guðmundur Arnoldsson
Garðar Einarsson Sigríður Dýrfinna Jónsdóttir
Gunnar Einarsson Hulda Gunnlaugsdóttir
Helga Einarsdóttir Sigge Lindkvist
og fjölskyldur