Morgunblaðið - 09.11.2019, Síða 44
ið þegar ég steig niður. Ég hélt
fyrst að þetta væri kannski krampi
eða eitthvað slíkt en svo gat ég ekki
hlaupið og fór út af. Ég fór í mynda-
töku næsta dag og þá kom í ljós að
rifa kom í lærvöðvann að fram-
anverðu. Læknirinn talaði um að ég
gæti líklega ekki tekið þátt í leikjum
í fjórar vikur. Ég er því í meðhöndl-
un og held því áfram. Ég er að
byrja að styrkja mig en hef verið í
nuddi og rafmagni síðan þetta gerð-
ist. Þetta lítur bara vel út, þannig
að ég ætti að geta spilað eftir þrjár
vikur,“ sagði Arnór og miðað við
þessar lýsingar virðist hann ekki
óttast að missa af EM í janúar
vegna meiðsla. Arnór átti besta
stórmót sitt með landsliðinu hingað
til á HM í Þýskalandi í janúar þegar
hann raðaði inn mörkunum.
„Nei, ég óttast það ekki. Ég er
bara jákvæður og held áfram í
endurhæfingunni og bind vonir við
að ég verði orðinn góður eftir tvær
og hálfa til þrjár vikur,“ sagði Arn-
ór Þór Gunnarsson þegar Morgun-
blaðið hringdi í hann þegar hann lá
á bekknum hjá sjúkraþjálfaranum
hjá Bergischer.
Liðið er í 10. sæti deildarinnar
með 11 stig eftir tólf leiki. Liðið hef-
ur unnið fjóra leiki og gert þrjú
jafntefli en með Bergischer leikur
einnig örvhenta skyttan Ragnar Jó-
hannsson.
Arnór Þór verður frá
keppni næstu vikurnar
EM ætti þó ekki að vera í hættu Hefur farið í tvær myndatökur vegna meiðsla
Morgunblaðið/Eggert
Þýskaland Arnór Þór Gunnarsson og félagar í Bergischer eru í tíunda sæti af átján liðum í deildinni.
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Arnór Þór Gunnarsson, landsliðs-
maður í handknattleik, hefur farið í
tvær myndatökur að undanförnu
vegna meiðsla. Hann leikur ekki á
næstunni með liði sínu Bergischer í
Þýskalandi en á von á því að verða
leikfær eftir þrjár vikur eða svo.
Arnór var ekki með landsliðinu í
vináttuleikjunum gegn Svíum í Sví-
þjóð á dögunum. Hann var þá orð-
inn slæmur í baki og vildi skilj-
anlega láta athuga málið.
„Ég hafði verið slæmur í baki og
var með verki eftir hverja einustu
æfingu. Var þetta orðið virkilega
slæmt og var verst eftir leiki. Ég
hafði farið þetta á hörkunni en gafst
upp á því og sagði við sjúkraþjálf-
arann að ég þyrfti meðhöndlun. Ég
fór í myndatöku og ræddi við lækni
í framhaldinu. Hann sá bara bólgur
í bakinu og ég fór í sjúkraþjálfun
vegna þeirra. Það virkaði ágætlega
og síðustu eina og hálfa vikuna hef
ég verið nokkuð ferskur í bakinu.
Sjúkraþjálfunin og styrktaræfing-
arnar hafa gert mér gott og ég finn
mikinn mun á mér,“ sagði Arnór en
þá tók ekki betra við.
Rifa í lærvöðva
Arnór var í leik með Bergischer í
síðustu viku gegn Ludwigshafen í
þýsku deildinni þegar hann meidd-
ist í læri. Eins og áður segir eru
meiðslin ekki alvarleg til lengri tíma
litið en þó er ljóst að hornamað-
urinn verður á sjúkralistanum á
næstunni.
„Ég var að spila á móti Ludwigs-
hafen Friesenheim á útivelli þegar
ég fékk sting í lærið á 38. mínútu.
Ég ætlaði bara að loka á horna-
manninn og fékk sting framan í lær-
44 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019
Vandaðar vörur þurfa umbúðir til að
komast ferskar í hendur kröfuharðra
kaupenda. Hver sem varan þín er þá
höfum við umbúðirnar sem henta henni.
Áralöng reynsla og sérþekking okkar
tryggir að við finnum bestu lausnina
sem hentar fyrir þinn rekstur, hratt
og örugglega. Við bjóðum breitt úrval
umbúða frá traustum og öflugum
samstarfsaðilum. Þannig getum við
tryggt þér lausnir sem auka árangur
þinn í rekstri, í sátt við umhverfi
og náttúru.
Ef þú hefur spurningar varðandi
umbúðir þá höfum við svörin. Hafðu
samband eða kíktu í kaffi og leyfðu
okkur að hjálpa þér að finna
lausnirnar sem henta þínum þörfum.
Spjöllum um umbúðir.
UmBúÐiR eRu oKkAr fAg
kassagerd.is kassagerd@kassagerd.is Klettháls 1, 110 Reykjavík +354 545 2800
Wolfsburg, lið Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, er í ágætri
stöðu til að komast í sinn fimmta úrslitaleik á átta árum í
Meistaradeild kvenna í knattspyrnu. Í gær var dregið til
átta liða úrslitanna og Sara Björk og samherjar hennar
drógust þar gegn Skotlandsmeisturum Glasgow City.
Sigurliðið úr þeirri viðureign mætir öðru hvoru
spænsku félaganna Atlético Madrid eða Barcelona, sem
drógust saman í átta liða úrslitum. Glasgow er búið að
slá út Brøndby frá Danmörku og Tsjertanovo frá Rúss-
landi.
Wolfsburg hefur tvisvar tapað fyrir Lyon í úrslitaleik
Meistaradeildarinnar á síðustu fjórum árum, og var
slegið út af franska liðinu í átta liða úrslitum keppninnar síðasta vor. Lyon
dróst gegn Bayern München í átta liða úrslitum og sigurliðið þar mætir
Arsenal eða París SG í undanúrslitum. Líkurnar á enn einum slag Lyon og
Wolfsburg í úrslitaleiknum í Vínarborg 24. maí 2020 eru því talsverðar.
Átta liða úrslit keppninnar fara fram í lok mars og byrjun apríl, undan-
úrslitin í lok apríl og byrjun maí. vs@mbl.is
Stórveldaslagur í Vínarborg?
Sara Björk
Gunnarsdóttir
Jón Guðni Fjóluson, landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu,
gæti verið á förum frá rússneska úrvalsdeildarliðinu
Krasnodar en það er rússneski fjölmiðillinn Championat
sem greinir frá þessu. Championat greinir frá því að Kras-
nodar ætli sér að losa sig við fjóra leikmenn þegar jan-
úarglugginn verður opnaður en leikmennirnir sem um-
ræðir eru þeir Younes Namli, Kaio Pantaleao, Cristian
Ramíerz og Jón Guðni.
Jón Guðni skrifaði undir þriggja ára samning við Kras-
nodar í ágúst 2018 en hann kom til félagsins frá sænska
úrvalsdeildarfélaginu Norrköping. Jón Guðni hefur ekki
átt fast sæti í byrjunarliði Krasnodar á þessari leiktíð en
hann hefur verið á meðal varamanna í síðustu tveimur leikjum liðsins.
Krasnodar er í fjórða sæti deildarinnar með 29 stig eftir fyrstu fimmtán
umferðirnar í Rússlandi, fjórum stigum minna en topplið Zenit.
bjarnih@mbl.is
Landsliðsmaður á förum?
Jón Guðni
Fjóluson
England
Norwich – Watford................................... 0:2
Staða neðstu liða:
West Ham 11 3 4 4 14:17 13
Burnley 11 3 3 5 14:18 12
Newcastle 11 3 3 5 9:17 12
Aston Villa 11 3 2 6 16:18 11
Everton 11 3 2 6 11:17 11
Watford 12 1 5 6 8:23 8
Southampton 11 2 2 7 10:27 8
Norwich 12 2 1 9 11:28 7
Pólland
Piast Gliwice – Jagiellonia ..................... 3:1
Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn fyr-
ir Jagiellonia.
Belgía
B-deild:
Lommel – Beerschot ............................... 1:0
Kolbeinn Þórðarson kom inn á sem vara-
maður hjá Lommel á 90. mínútu.
Roeselare – Lokeren ............................... 2:1
Arnar Grétarsson þjálfar Roeselare.
Frakkland
B-deild:
Le Mans – Grenoble................................. 0:0
Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á
sem varamaður hjá Grenoble á 76. mínútu.
Holland
B-deild:
Excelsior – Eindhoven............................ 5:4
Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
fyrir Excelsior og skoraði tvívegis.
Danmörk
B-deild:
Viborg – Næstved.................................... 2:1
Ingvar Jónsson varði mark Viborg í
leiknum.
Spánn
Real Sociedad – Leganés......................... 1:1
Þýskaland
Köln – Hoffenheim ................................... 1:2
Undankeppni EM kvenna
F-RIÐILL:
Slóvakía – Ungverjaland ......................... 0:0
Staðan:
Svíþjóð 3 3 0 0 16:1 9
Ísland 3 3 0 0 11:1 9
Slóvakía 4 1 1 2 2:9 4
Ungverjaland 3 0 1 2 1:9 1
Lettland 3 0 0 3 2:12 0
A-RIÐILL:
Tyrkland – Holland .................................. 0:8
B-RIÐILL:
Ítalía – Georgía......................................... 6:0
C-RIÐILL:
Noregur – Norður-Írland........................ 6:0
E-RIÐLL:
Albanía – Skotland ................................... 0:5
G-RIÐILL:
Norður-Makedónía – Austurríki ............ 0:3
H-RIÐILL:
Rúmenía – Litháen................................... 3:0
Króatía – Belgía........................................ 1:4
KNATTSPYRNA