Morgunblaðið - 09.11.2019, Síða 46

Morgunblaðið - 09.11.2019, Síða 46
SUND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Ingibjörg Kristín Jónsdóttir, SH, hafði betur gegn Eygló Ósk Gústafs- dóttur, ÍBR, í úrslitum í 50 metra baksundi kvenna á Íslandsmeistara- mótinu í sundi í 25 metra laug sem hófst í Ásvallalaug í Hafnarfirði í gær. Ingibjörg synti á tímanum 27,97 sekúndum en Eygló Ósk, sem á Ís- landsmetið í greininni, synti á 28,19 sekúndum. Ingibjörg bætti tíma sinn úr und- anrásunum í gær um átta hundraðs- hluta úr sekúndu í úrslitunum en hún náði lágmarki fyrir Evrópumeist- aramótið í Glasgow sem fram fer í næsta mánuði í gærmorgun. Árang- urinn er afar athyglisverður í ljósi þess að Ingibjörg lagði sundhettuna á hilluna á síðasta ári en ákvað að snúa aftur á dögunum. Kristinn Þórarinsson, ÍBV, kór- ónaði frábæran dag hjá sér með sigri í 100 metra fjórsundi karla en hann bætti þrettán ára gamalt Íslandsmet Arnar Arnarssonar í undanrásum í gærmorgun. Hann synti á tímanum 53,85 sekúndum en Íslandsmet Arn- ar var 54,30 sekúndur. Kristinn náði jafnframt lágmarki fyrir EM í und- anrásum en hann kom í mark í úrslit- um á tímanum 53,96 og var tæpum þremur sekúndum á undan Kolbeini Hrafnkelssyni sem kom næstur í mark. Þá eru Dadó Fenrir Jasminuson Jóhanna Elín Guðmundsdóttir úr SH Íslandsmeistarar í 50 metra skrið- sundi karla og kvenna. Dadó Fenrir kom í mark á 22,45 sekúndum í úr- slitum en hann á Íslandsmetið í greininni. Jóhanna Elín kom í mark á tímanum 25,6 og var tæpri sekúndu á undan Steingerði Hauksdóttur sem hafnaði í öðru sæti. Dadó Fenrir og Jóhanna Elín náðu bæði lágmörkum fyrir EM í Glasgow í undanrásum í gærmorgun og því hafa nú sjö íslenskir sundmenn náð lágmarki fyrir Evrópumeistaramótið eins og sakir standa. Fyrir höfðu þau Anton Sveinn McKee, Eygló Ósk Gústafsdóttir og Snæfríður Sól Jór- unnardóttir náð lágmörkum fyrir mótið. Ótrúleg endurkoma Ingibjargar  Kristinn bætti þrettán ára gam- alt Íslandsmet Morgunblaðið/Árni Sæberg Meistari Ingibjörg Kristín Jónsdóttir lagði sundhettuna á hilluna á síðasta ári en snéri aftur til keppni í gær. 46 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: TM-höllin: Stjarnan – Fram............. L20.15 Austurberg: ÍR – ÍBV ....................... S16.30 KA-heimilið: KA – FH............................ S17 Dalhús: Fjölnir – Afturelding ................ S18 Kórinn: HK – Valur ........................... S19.30 Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Framhús: Fram – KA/Þór ..................... L14 Varmá: Afturelding – ÍBV..................... L14 TM-höllin: Stjarnan – Haukar .............. L18 Origo-höllin: Valur – HK........................ S17 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Kórinn: HK U – Grótta...................... S14.30 Dalhús: Fjölnir – Stjarnan U................. S16 Hleðsluhöllin: Selfoss – FH .............. S19.30 Enski boltinn á Síminn Sport Chelsea – Crystal Palace .................. L12.30 Leicester – Arsenal ........................... L17.30 Manchester United – Brighton ............. S14 Liverpool – Manchester City ............ S16.30 UM HELGINA! Liverpool getur náð níu stiga forskoti á toppi ensku úr- valsdeildarinnar í knattspyrnu á morgun þegar Man- chester City kemur í heimsókn á Anfield. Liverpool er með 31 stig í efsta sæti deildarinnar en City er í öðru sætinu með 25 stig. Liverpool hefur ekki ennþá tapað leik á tímabilinu og hafa sumir gengið svo langt að segja að ef Liverpool fagnar sigri, þá sé titillinn á leið á An- field. Tölfræðin er með Liverpool í liði fyrir leik morg- undagsins en frá því að Pep Guardiola tók við City, sum- arið 2016, hafa liðin mæst níu sinnum í öllum keppnum. Liverpool hefur fjórum sinnum fagnað sigri, City tvisvar og þrívegis hafa liðin gert jafntefli í venjulegum leik- tíma. Þá er orðið ansi langt síðan City vann knattspyrnuleik á Anfield, en það gerðist síðast í maí 2003. City-mönnum hefur heldur ekki gengið neitt sérstaklega vel að skora á Anfield en til marks um það er vert að nefna að Sergio Agüero, langmarkahæsti leikmaður City í ensku úrvalsdeildinni frá upphafi, hefur aldrei skorað á Anfield í tíu tilraunum. bjarnih@mbl.is Aldrei skorað á Anfield Jürgen Klopp Landsliðsmaðurinn Gísli Þorgeir Kristjánsson verður frá keppni í að minnsta kosti átta vikur eftir að hafa farið úr axlarlið í stórleik Kiel og Löwen í þýsku 1. deildinni í hand- bolta í fyrrakvöld. Þetta kemur fram á heimasíðu Kiel en þar með er ljóst að Gísli spilar ekki meira á árinu 2019. Ekki er hægt að útiloka að hann verði búinn að ná sér fyrir EM sem hefst 10. janúar en ljóst er að meiðslin setja að minnsta kosti stórt strik í reikninginn um möguleika Gísla á að komast á mótið. Tvísýnt með EM hjá Gísla AFP Óvissa Gísli Þorgeir Kristjánsson glímir við meiðsli í öxl. Sundkappinn Már Gunnarsson gerði sér lítið fyrir og synti á tímanum 2:34,57 mínútum á Íslandsmóti Íþróttasambands fatlaðra í gær en mótið, sem er hluti af Íslandsmeist- aramóti Sundsambands Íslands, fer fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Tími Más var undir gildandi heimsmeti í fötlunarflokki S11 í 25 metra laug en metið hefur ekki verið formlega staðfest. Már hefur átt frá- bært keppnisár en hann vann meðal annars til bronsverðlauna á HM í London í sumar í 100 metra bak- sundi. bjarnih@mbl.is Synti undir gild- andi heimsmeti Ljósmynd/ÍF Stórhuga Már Gunnarsson ætlar sér stóra hluti á Paralympics 2020. Arnar Þór Viðarsson, þjálfari U21 árs landsliðs karla í knattspyrnu, tilkynnti í gær hvaða leikmenn mæta Ítalíu í undankeppni EM 2020 á Paolo Mazza-vellinum í Ferrara á Ítalíu hinn 16. nóvember næstkom- andi. Þá tilkynnti hann einnig hvaða leikmenn verða í U20 ára landsliðinu sem mætir Englandi í vináttulandsleik þremur dögum síðar, 19. nóvember. Alls eru átta leikmenn sem leika með erlendum félagsliðum í U21 árs landsliðinu en hópana má sjá í heild sinni inn á sport.is/efstadeild. bjarnih@mbl.is Þjálfarinn valdi tvo landsliðshópa Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þjálfari Arnar Þór Viðarsson stýrir íslenska U21 árs landsliði Íslands. HANDBOLTI Grill 66 deild karla Þór Ak. – KA U..................................... 30:28 Fjölnir U – Valur U.............................. 25:26 Haukar U – Þróttur ............................. 22:22 Grótta – Stjarnan U ............................. 33:31 Staðan: Þór Ak. 7 5 2 0 211:193 12 Valur U 7 4 1 2 208:205 9 Haukar U 7 4 1 2 199:172 9 FH U 7 4 0 3 207:199 8 Grótta 7 4 0 3 201:203 8 Þróttur 7 3 2 2 218:201 8 KA U 7 3 0 4 224:208 6 Víkingur 7 2 1 4 180:189 5 Stjarnan U 7 1 1 5 175:226 3 Fjölnir U 7 1 0 6 177:204 2 Grill 66 deild kvenna ÍR – Fram U ......................................... 20:30 Staða efstu liða: Fram U 8 8 0 0 267:187 16 FH 7 6 0 1 197:160 12 Selfoss 7 6 0 1 167:148 12 ÍR 8 5 0 3 198:192 10 Grótta 7 5 0 2 174:154 10 Frakkland Toulon – Besancon .............................. 21:31  Mariam Eradze var ekki í leikmanna- hópi Toulon. B-deild: Strasbourg – Cesson-Rennes ............. 23:17  Geir Guðmundsson skoraði 2 mörk fyrir Cesson-Rennes. Svíþjóð Skuru – Lugi ........................................ 35:29  Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 3 mörk fyrir Skuru. Austurríki Schwaz – West Wien ........................... 35:24  Guðmundur Hólmar Helgason var ekki í leikmannahópi West Wien.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.