Morgunblaðið - 11.11.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2019
EKKIMISSAAF SÝNINGUÁRSINS
Allra síðustu sýningar komnar í sölu
6 Grímuverðlaun
borgarleikhus.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Undirbúningur þess að klífa
hæstu fjöll er að mestu leyti sá að
hafa hugarfarið rétt, enda þó verk-
efnið núna verði mikil þrekraun og
ferðalagið hættileg. Sjálfur hef ég
hins vegar góða þjálfun og í hug-
anum sé sjálfan mig á tindinum.
Þess vegna legg ég óhræddur af
stað,“ segir John Snorri Sigur-
jónsson fjallamaður. Hann stefnir
að því að klífa K2 í Pakistan, sem
er 8.611 metrar að hæð og er ann-
að hæsta fjall heims, næst á eftir
Mont Everest sem er 237 metrum
hærra. Hann heldur utan í byrjun
nýs árs og gefur sér þrjá mánuði í
verkefnið.
Fjórðungur hefur
látist í ferðum á fjallið
K2, sem er á landamærum
Kína og Pakistan, er sennilega það
fjall heimsins sem er erfiðast upp-
göngu. Að vetrarlagi hefur enginn
komist á topp þess þótt margir hafi
reyntog nú ætlar okkar maður að
ná því takmarki. Fyrst var K2 klifið
árið 1954 og alls hafa um 460
manns lagt á brattann, þar á meðal
John Snorri sumarið 2017. Ekki
hefur þó öllum tekist að komast á
hæsta hjalla fjallsins og um fjórð-
ungur þeirra sem lagt hafa til at-
lögu hafa farist í þeim ferðum.
Fleirum en nokkru sinni áður hafa
þó náð takmarkinu síðustu árin.
„Eftir að kynnst fjallinu er ég
tilbúinn að takast á við þetta verk-
efni. Hef legið yfir allskonar upp-
lýsingum, útbúið aðferðafræði og
teiknað þetta upp mjög nákvæm-
lega. Já, ég tel markmiðið vera
raunhæft,“ segir John Snorri sem
ætlar á fjallið með sex öðrum. Þar
fara fremstir með John Snorra þeir
Mingma G frá Nepal og Gao Li frá
Kina, báðir þaulvanir fjallamenn.
„Ég tel okkur alla hafa þann sál-
arstyrk sem þarf í þetta erfiða
ferðalag,“ segir John Snorri. Með
þremenningunum verða svo fjórir
launaðir fylgdarmenn frá Nepal og
Pakistan, sem allir hafa reynslu af
erfiðustu og hæstu fjöllum verald-
arinnar.
Öruggari leið en
aðrir hafa farið
John Snorri flýgur fyrst til Is-
lamabat í Pakistan þar sem hóp-
urinn mætist. Ætla má síðan að um
tíu daga taki að ná að að rótum K2
og í grunnbúðir sem eru í 4.800
metra hæð. Þá tekur við að koma
upp fjórum bækistöðvum í hlíðum
fjallsins, en þær þurfa að vera klár-
ar áður en lagt er í hina eiginlegu
ferð á tindinn.
„Á tindinn höfum við valið
aðra leið og öruggari en aðrir hafa
farið til þessa og bækistöðvar okk-
ar verða þar sem skýlla er fyrir
vindum. Þó er frostið mesta hindr-
unin; það reynir mikið á líkama og
sál þegar frost fer í -40 gráður að
ég tali nú ekki um 60 gráður eins
og búast má við núna. Því ætlum
við til dæmis að leggja af stað dag-
inn, sem farið verður á toppinn,
rétt fyrir sólarupprás til þess að
njóta sólarhita á göngunni og kom-
ast í áfangastað fyrir sólsetur. Til
að vinna gegn súrefnisskorti verð-
um við með loftkúta og ekkert veit-
ir betra skjól fyrir frosti en íslensk
ull; nærföt og peysur,“ segir John
Snorri sem nú bíður eftir svefn-
poka, sérsaumuðum í Litháen, sem
á að duga í allt að 63 gráðu frosti.
Frá grunnbúðunum á topp K2
þarf að fara um brattar skriður,
sprungusvæði, íshrygg, klífa
hundruða metra háan klettavegg,
fara um þekkt snjóflóðasvæði og
fleira slíkt. Um þessar slóðir verð-
ur heldur ekki farið nema veður
leyfi og því gefa leiðangursmenn
sér allt að þrjá mánuði. Munu bíða
ef þess þarf og leggja ekki af stað
nema veðurútlit sé gott nokkra
daga fram í tímann.
„Ég reikna með að í kringum
20. febrúar verðum við búnir að
koma búnaði fyrir í bækistöðvum
okkar í fjallinu. Af tiltækum upp-
lýsingum að dæma má gera ráð
fyrir að hægt sé að klífa toppinn í
um 20. mars. Þetta er þriggja mán-
aða leiðangur og mér sýnist þetta
munu kosta mig um 180 þúsund
dollara eða 22 milljónir króna,“
segir John Snorri sem leitar nú
bakhjarla sem myndu vilja styrkja
þeta verkefni þetta. Hann segir að
lokum:
Erfiðasta verkefni lífsins
„Já, ég veit alveg að fram-
undan er áhættusamt ferðalag. Í
þessu verkefni hef ég hins vegar
fullan stuðning fjölskyldu minnar
og vina. Ef þau styddu mig ekki
ekki færi ég ekki af í þennan leið-
angur, þar sem ég ætla að láta
drauminn rætast í klárlega erf-
iðasta verkefni lífs míns.“
Stefnir á að komast fyrstur manna að vetrarlagi á topp K2 í Pakistan, sem er annað hæsta fjall heims
AFP
Pakistan Tjaldbúðir göngumanna og K2 í baksýn. Fjórðungur þeirra sem reynt hafa við fjallið hefur farist.
Ferðin er þrekraun og áhætta
John Snorri Sigurjónsson er
fæddur 1973. Er menntaður
vélfræðingur, stýrimaður, raf-
virki og viðskiptafræðingur.
Einnig menntaður í verk-
efnastjórnun og sjúkraflutn-
ingum og hefur starfað í björg-
unarsveitum. Vann á
olíuborpalli við Noregs-
strendur, hefur verið til sjós og
sinnt viðskiptum. Trúlofaður,
sex barna faðir í Garðabæ.
Með mikla reynslu í fjalla-
mennsku og hefur klifið nokkur
erfiðustu og hættulegustu fjöll
heims, svo sem K2, Lhotse í
Nepal, Broad Peak í Pakistan
og Manaslu í Nepal.
Hver er hann?
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjallamaður Erfiðasta verkefni lífs míns, segir John Snorri Sigurjónsson.
Lögreglan fór hvorki út fyrir vald-
heimildir sínar þegar kona var hand-
tekin í Gleðigöngunni í sumar né
þegar piparúða var beitt á mótmæl-
endur á Austurvelli 11. mars sl.
Þetta er niðurstaða nefndar um eft-
irlit með lögreglu (NEL).
Í fyrrnefndu máli, þar sem Elín-
borg H. Önundardóttir var handtek-
inn í Gleðigöngunni, þótti NEL ekki
ástæða til að aðhafast meira vegna
málsins þar sem vísbendingar um að
lögreglumenn hefðu sýnt af sér
ónauðsynlega valdbeitingu væru
ekki til staðar.
Í síðargreindu máli var piparúða
beitt og tveir mótmælendur úr hópi
Refugees in Iceland handteknir eftir
að til stympinga kom í kjölfarið á því
að lögreglumenn fjarlægðu tvö tjöld
mótmælenda.
Morgunblaðið/Hari
Við Austurvöll Lögregla fór ekki út
fyrir valdheimildir sínar í málunum.
Valdbeit-
ing ekki
úr hófi
NEL hefur úr-
skurðað um tvö mál
„Þetta mun nýt-
ast inn í vinnuna
sem er í gangi,“
sagði Dagur B.
Eggertsson í
gærkvöld, um til-
mæli sem um-
boðsmaður borg-
arbúa sendi
Reykjavíkurborg.
Sendi umboðs-
maður tilmæli til
borgarinnar vegna framkvæmda í
miðborginni og á öðrum við-
kvæmum svæðum, þar sem því er
m.a. beint til borgaryfirvalda að
hefja „skilvirkt og raunverulegt“
samráð við hagsmunaaðila og fram-
kvæmdaaðila með því að kalla alla
saman til fundar áður en verk hefst,
með eins góðum fyrirvara og unnt
er.
Segir Dagur að vinna sem miðar
að þessu sé þegar í gangi hjá um-
hverfis- og skipulagssviði Reykja-
víkurborgar og tilmælin verði skoð-
uð af sviðinu.
Tilmælin í takt við
vinnu sviðsins
Dagur B.
Eggertsson