Morgunblaðið - 11.11.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.11.2019, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2019 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is ULTRA KATTASANDUR – fyrir dýrin þín ■■■ Sporast lítið ■■■ Lyktarlaus ■■■ Frábær lyktareyðing ■■■ Náttúrulegt hráefni ■■■ 99.9% rykfrír ■■■ Klumpast vel HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Ásvellir: Haukar – Selfoss ................... 19.30 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Fylkishöll: Fylkir – Valur U................ 18.30 Í KVÖLD! Dominos-deild kvenna KR – Haukar......................................... 70:60 Breiðablik – Grindavík......................... 70:64 Skallagrímur – Valur ........................... 60:82 Staðan: Valur 7 7 0 622:428 14 KR 7 6 1 547:475 12 Haukar 7 4 3 468:449 8 Skallagrímur 7 4 3 471:468 8 Keflavík 6 3 3 434:423 6 Snæfell 6 2 4 384:431 4 Breiðablik 7 1 6 415:533 2 Grindavík 7 0 7 433:567 0 1. deild karla Höttur – Vestri ..................................... 82:64 1. deild kvenna Keflavík b – Hamar .............................. 62:58 Fjölnir – Tindastóll .............................. 77:67 Njarðvík – Grindavík b ........................ 78:55 Spánn Zaragoza – Joventut Badalona.......... 90:94  Tryggvi Snær Hlinason skoraði eitt stig fyrir Zaragoza og tók 1 frákast. B-deild: Oviedo – Palencia................................ 66:73  Gunnar Ólafsson lék í 18 mínútur fyrir Oviedo og komst ekki á blað. Þýskaland Bayern München – Alba Berlín ......... 83:80  Martin Hermannsson skoraði 13 stig fyrir Alba Berlín, tók 5 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Rússland UNICS Kazan – Niznij Novgorod...... 89:85  Haukur Helgi Pálsson var ekki í leik- mannahópi UNICS. KÖRFUBOLTI HANDBOLTI Ívar Benediktsson Einar Sigtryggsson Jóhann Ingi Hafþórsson ÍR-ingar bundu enda á þriggja leikja taphrinu þegar fimm marka sigri á vængbrotnum Eyjamönnum í Austurbergi í Olísdeild karla í handbolta gær, 32:27. Þar með færðist ÍR-liðið upp í þriðja sæti deildarinnar með 12 stig og er að- eins tveimur stigum á eftir Haukum og Aftureldingu. Haukar eiga leik til góða við Selfoss í kvöld á heima- velli. Fannar Þór Friðgeirsson og Theodór Sigurbjörnsson léku ekki með ÍBV í gær vegna meiðsla. Fjar- vera þeirra hafði sitt að segja, ekki síst þegar leið á leikinn og þreyta gerði vart við sig. Eyjamenn voru sterkari framan af en ÍR-ingar náðu vopnum sínum þegar á leið fyrri hálfleik og voru með tveggja marka forskot að hon- um loknum, 15:13. Framan af síðari hálfleik var eins og ÍR-liðið vildi halda spennu í leiknum. Talsvert var um einföld mistök í sókninni sem gerði að verkum að Eyjamenn fengu hvað eftir annað kost á að vera í jöfnum leik. Þegar á leið sóttu ÍR-ingar í sig veðrið um leið þeir gáfu sér meiri tíma til leika á yfirvegaðan hátt. Sóknarleikurinn gekk frábær- lega þar sem Björgvin Þór Hólm- geirsson var allt í öllu. Hann skor- aði 11 mörk. Sturla Ásgeirsson var næstur með níu, þar af fullkomna nýtingu, sjö mörk úr sjö vítaköst- um. Hinum megin vallarins varði Sigurður Ingiberg Ólafsson allt hvað af tók, alls 20 skot í leiknum og hafði m.a. stórskyttuna Kristján Örn Kristjánsson nánast í vasanum á löngum köflum í leiknum. Engu að síður skoraði Kristján Örn átta sinnum. Petar Jovankovic varði 17 skot og verður ekki kennt um tap ÍBV-liðsins sem hefur aðeins fengið eitt stig úr síðustu fimm leikjum. KA-menn á siglingu KA-menn lögðu FH í hröðum og spennandi leik á Akureyri í gær. KA var yfir allan leikinn, mest sex mörkum þegar tíu mínútur lifðu leiks. FH gafst ekki upp og átti möguleika á að ná í stig en KA hélt haus og vann að lokum 31:27. KA er ekki lengur með stórskyttuna Tarik Kasumovic innan sinna vébanda og í gær vantaði þeirra helsta varn- armann, Daða Jónsson. Snemma leiks meiddist svo Áki Egilsnes, að- almarkaskorari liðsins, og voru því stór skörð höggvin í liðið. Virtist þetta ekkert há KA-mönnum og minni spámenn komu, hver af öðr- um, inn á völlinn og spiluðu frábær- lega, jafnt í vörn sem sókn. Staðan var 18:14 fyrir KA í hálf- leik en FH var fljótlega búið að minnka muninn í 20:19 eftir tíu mín- útur í þeim seinni. Næstu tíu mín- útur gerðu svo út um leikinn. Þeir gulklæddu hrukku aftur í gang, læstu vörn sinni og FH gerði allt of mörg mistök í sínum sóknum. Það skilaði KA auðveldum mörkum. Heimamenn héldu svo sjó þrátt fyr- ir ágjöf á lokakaflanum. Það sem réð úrslitum í leiknum var fyrst og fremst brjálæðislega kvik og sterk 3-2-1 vörn KA. Jovan Kukobat varði vel en vörnin hirti ógrynni bolta af FH-ingum. Dagur Gautason fór á kostum hjá KA og Jóhann Einarsson kom af bekkn- um og skoraði sjö mörk. Jón Heið- ar Sigurðsson og Daníel Griffin voru líka mjög öflugir en allt liðið á í raun skilið hrós. Hjá FH var fyrrverandi KA-maðurinn, Ás- björn Friðriksson, langbestur og Ágúst Birgisson var drjúgur á lín- unni. Ótrúlegar sveiflur Afturelding vann sex marka sig- ur á Fjölni á útivelli, 31:15. Úrslitin sem slík koma ekki á óvart, en þau segja alls ekki alla söguna. Aftur- elding komst í 9:1 snemma leiks og virtust Mosfellingarnir ætla að valta yfir Fjölnismenn. Heimamenn gáfust hins vegar ekki upp og sýndu gríðarlegan styrk með því að minnka muninn í eitt mark í seinni hálfleik. Staðan var 23:22, þegar skammt var eftir, en Afturelding var mikið sterkari á lokakaflanum. Kári Garðarsson er að gera skemmtilega hluti með Fjölnisliðið sem er byrjað að sparka verulega frá sér. Liðið vann glæsilegan sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum í síðasta leik og hefði með smá heppni getað fengið eitthvað úr leiknum í gær. Það tók hins vegar mikla orku að vinna upp átta marka forskot og að lokum var bensínið hreinlega búið. Afturelding hefur unnið þrjá af síð- ustu fjórum leikjum sínum. Mosfell- ingar eru að sjálfsögðu sáttir með sigurinn, en eflaust svekktir með sjálfa sig að hleypa Fjölni aftur inn í leikinn þegar staðan var orðin gríðarlega vænleg. Birkir Bene- diktsson heldur áfram að raða inn mörkum og Þorsteinn Gauti Hjálm- arssson á bara eftir að verða betri. Haldi Afturelding rétt á spöðunum í vetur eru liðinu allir vegir færir. Þjálfarinn fær falleinkunn Fram og Stjarnan skildu jöfn, 26:26, í ótrúlegum leik í Garða- bænum laugardag. Stjörnumenn voru með þriggja marka forystu þegar mínúta var til leiksloka. Framarar skoruðu þá þrjú mörk og tryggðu sér magnað jafntefli. Rún- ar Sigtryggsson, þjálfari Stjörn- unnar, fær algjöra falleinkunn fyrir lokakafla leiksins. Þegar um 30 sek- úndur voru til leiksloka misstu Stjörnumenn boltann og Framarar skoruðu í autt markið, þar sem Stjörnumenn léku án markmanns, og minnkuðu muninn í 26:25. Rúnar tók leikhlé til að sjá til þess að hans menn myndu nú örugglega halda út. Rúnar ákvað þá aftur að leika án markmanns og auðvitað stálu Framararnir bolt- anum aftur og skoruðu aftur í autt markið. Það er með öllu óskiljan- legt að Rúnar taki þessa ákvörðun, ekki bara einu sinni, heldur tvisvar, þegar hans menn eru með leikinn í sínum höndum og verða þessi úrslit að skrifast á hann. Hann gerði Frömurum auðvelt fyrir í stöðu sem átti að vera vonlaus. Sæti Rúnars hjá Stjörnunni hlýt- ur að vera orðið heitt. Hann er með hvern fyrrverandi atvinnumanninn á eftir öðrum í sínum röðum, en þrátt fyrir það er liðið aðeins með einn sigur í níu leikjum. Stjörnulið- ið hrundi á svipaðan máta gegn KA á dögunum. Rúnar gagnrýndi Ara Magnús Þorgeirsson, leikmann sinn, opinberlega á dögunum en hann ætti frekar að líta í eigin barm. Að sama skapi má aldrei af- skrifa Framara. Þeir eru alltaf til í fæting og sparka vel frá sér. Fram- arar eru með eitt ódýrasta lið deild- arinnar og missa sína bestu leik- menn eftir hvert tímabil. Þrátt fyrir það tekst liðinu alltaf að ná í góð úr- slit reglulega. Guðmundur Helgi Pálsson er að gera virkilega góða hluti þar á bæ. Þriðji sigur Vals í röð Valur vann öruggan sigur gegn HK í Digranesi 31:23 og nýliðar HK eru þar með enn án stiga. Jóhann Birgir Ingvarsson sem kom til HK að láni frá FH á dögunum skoraði 8 mörk fyrir HK og Garðar Svansson 6. Vignir Stefánsson skoraði 8 mörk fyrir Val og Finnur Ingi Stefánsson kom næstur með 7 mörk. Fýluferð FH til Akureyrar  Þriggja leikja taphrina ÍR á enda  Þjálfarinn fær falleinkunn í Garðabæ  Afturelding upp að hlið Hauka  Þriðji sigur Valsmanna í röð eftir vonda byrjun Morgunblaðið/Árni Sæberg Tveir Það þurfti tvo Fjölnismenn til að stöðva för Þorsteins Gauta Hjálmarssonar úr Aftureldingu í gær. Þýskaland Lemgo – Ludwigshafen...................... 27:19  Bjarki Már Elísson skoraði 13 mörk fyr- ir Lemgo. Melsungen – Leipzig ........................... 31:34  Viggó Kristjánsson skoraði 4 mörk fyrir Leipzig. Nordhorn – Füchse Berlín ................. 24:34  Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn. Bensheim-Auerbach – Leverkusen... 27:30  Hildigunnur Einarsdóttir skoraði ekki fyrir Leverkusen. Buxtehuder – Neckarsulmer ............. 29:33  Birna Berg Haraldsdóttir skoraði ekki fyrir Neckarsulmer. 

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.