Morgunblaðið - 11.11.2019, Blaðsíða 25
ENGLAND
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Evrópumeistarar Liverpool eru
gjörsamlega óstöðvandi en liðið
skellti Englandsmeisturum Man-
chester City á Anfield í gær 3:1 og er
með átta stiga forskot á Leicester og
Chelsea í toppsæti deildarinnar og er
með níu stigum meira en meist-
ararnir. Liverpool hefur unnið 11
leiki og gert eitt jafntefli og þó svo
enn sé nóvember stefnir allt í „Rauði
herinn“ nái að vinna langþráðan
meistaratitil en á næsta ári eru liðin
30 frá því Liverpool varð síðast
meistari.
Brasilíumaðurinn Fabinho skoraði
fyrsta markið á 6. mínútu með glæsi-
legu þrumuskoti vel fyrir utan teig-
inn. City vildi andartaki áður fá víta-
spyrnu þegar fór í hönd Trent
Alexander-Arnold innan teigs. Mich-
ael Oliver dæmdi ekki neitt og Liver-
pool brunaði upp völlinn sem endaði
með marki Fabinho. Mohamed Salah
tvöfaldaði forskot Liverpool sjö mín-
útum síðar þegar hann skoraði með
skalla eftir frábæra fyrirgjöf Andrew
Robertson. Sadio Mané gerði svo
endanlega út um leikinn á 51. mínútu
þegar hann skoraði með skalla eftir
sendingu frá Jordan Henderson.
Eftir markið stigu leikmenn Liver-
pool af bensíngjöfinni og Bernardo
Silva minnkaði muninn fyrir meist-
arana en nær komust þeir ekki og
það var gríðarlegur fögnuður þegar
Oliver flautaði leikinn af.
Leicester-liðið skemmtilegt
Leicester-menn, undir stjórn
Brendan Rodgers, eru líka frábærir
skemmtikraftar eins og Liverpool en
Leicester vann sannfærandi 2:0-
sigur á Arsenal á King Power-
vellinum. Það kom varla neinum á
óvart að Jamie Vardy skyldi skora
fyrir Leicester en hann hefur nú
skorað níu mörk í níu leikjum sem
hann hefur verið í byrjunarliði Leic-
ester á móti Arsenal. Vardy kom
Leicester yfir á 68. mínútu og besti
maður vallarins, James Maddison,
bætti við öðru marki sjö mínútum
síðar.
Chelsea vann sinn sjötta leik í
röð í deildinni þegar liðið lagði Crys-
tal Palace að velli á Stamford Bridge,
2:0. Strákarnir hans Franks Lamp-
ards höfðu tögl og hagldir gegn Palce
en þurftu að bíða í 52 mínútur til að
brjóta niður varnarmúr gestanna.
Það gerði Tammy Abraham þegar
hann skoraði sitt 10. deildarmark og
er næstmarkahæstur á eftir Vardy,
sem hefur skorað einu marki meira.
Bandaríkjamaðurinn Christian Pul-
isic innsiglaði sigur Chelsea og skor-
aði sitt fimmta mark í síðustu þrem-
ur leikjum. Frammistaða hans
minnir um margt á Eden Hazard en
Pulisic var fenginn til að fylla skarð
Belgans eftir að hann fór til Real Ma-
drid.
Eftir að hafa byrjað á vara-
mannabekk Everton í síðustu fjórum
leikjum kom Gylfi Þór Sigurðsson
aftur inn í byrjunarliðið og hann átti
góðan leik í afar mikilvægum 2:1
sigri á móti Southampton á St. Ma-
rys. Gylfi átti þátt í fyrra marki sinna
manna en eftir hornspyrnu hans
skallaði Mason Holgate boltann til
Tom Davies. Þetta var fyrsti sigur
Everton á útivelli í deildinni á tíma-
bilinu og með sigrinum náði Ever-
ton-liðið að létta pressunni af stjór-
anum Marco Silva.
„Við verðskulduðum þennan sigur
og hann var virkilega nauðsynlegur
fyrir okkur. Vonandi er þetta byrj-
unin á einhverju betra,“ sagði Silva
eftir leikinn.
Manchester United lyfti sér upp
um sjö sæti og er komið upp í 7. sæti
eftir öruggan 3:1-sigur á móti Brig-
hton á Old Trafford í gær. Sigur
United hefði getað orðið miklu stærri
en liðið óð í færum og þá sérstaklega
Marcus Rashford. Honum tókst að
skora þriðja markið en fyrsta markið
skoraði Andreas Pereira og annað
markið var sjálfsmark. Þetta var
stærsti sigur United frá því liðið
vann Chelsea 4:0 í fyrstu umferðinni.
Liverpool skellti meistur-
unum og er að stinga af
Liverpool með átta stiga forskot í toppsætinu United upp um sjö sæti
AFP
Fögnuður Brasilíumaðurinn Fabinho fagnar glæsimarki sínum á Anfield í gær þar sem Liverpool hrósaði 3:1 sigri
gegn Manchester City. Liverpool er þar með komið með átta stiga forskot á toppi deildarinnar.
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2019
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
GLUGGATJÖLD
alnabaer.is
Úrval af gluggatjaldaefnum, þykk, þunn,
blúndur, kappar og allt þar á milli.
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
England
Southampton – Everton.......................... 1:2
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan tímann
með Everton.
Burnley – West Ham ............................... 3:0
Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með
Burnley vegna meiðsla.
Chelsea – Crystal Palace ......................... 2:0
Newcastle – Bournemouth...................... 2:1
Tottenham – Sheffield United ................ 1:1
Leicester – Arsenal .................................. 2:0
Manchester United – Brighton............... 3:1
Wolves – Aston Villa ................................ 2:1
Liverpool – Manchester City .................. 3:1
Staðan:
Liverpool 12 11 1 0 28:10 34
Leicester 12 8 2 2 29:8 26
Chelsea 12 8 2 2 26:17 26
Manch.City 12 8 1 3 35:13 25
Sheffield Utd 12 4 5 3 13:9 17
Arsenal 12 4 5 3 16:17 17
Manch.Utd 12 4 4 4 16:12 16
Wolves 12 3 7 2 16:15 16
Bournemouth 12 4 4 4 15:15 16
Burnley 12 4 3 5 17:18 15
Brighton 12 4 3 5 15:17 15
Crystal Palace 12 4 3 5 10:15 15
Newcastle 12 4 3 5 11:18 15
Tottenham 12 3 5 4 18:17 14
Everton 12 4 2 6 13:18 14
West Ham 12 3 4 5 14:20 13
Aston Villa 12 3 2 7 17:20 11
Watford 12 1 5 6 8:23 8
Southampton 12 2 2 8 11:29 8
Norwich 12 2 1 9 11:28 7
B-deild:
Millwall – Charlton.................................. 2:1
Jón Daði Böðvarsson fór af velli á 78.
mínútu í liði Millwall.
Þýskaland
Paderborn – Augsburg........................... 0:1
Alfreð Finnbogason fór af velli á 90. mín-
útu í liði Augsburg.
B-deild:
Sandhausen – Greuter Fürth................. 3:2
Rúrik Gíslason lék fyrstu 78 mínúturnar
með Sandhausen.
Darmstadt – Jahn Regensburg.............. 2:2
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan tím-
ann með Darmstadt.
Rússland
Rostov – Tambov ..................................... 1:2
Ragnar Sigurðsson lék allan tímann með
Rostov en Björn Bergmann Sigurðarson
lék fyrstu 77 mínúturnar og skoraði mark
liðsins.
Sochi – CSKA Moskva............................. 2:3
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
tímann með CSKA en Arnór Sigurðsson
fór af velli á 71. mínútu.
Rubin Kazan – Dinamo Moskva............. 0:1
Viðar Örn Kjartansson lék allan tímann
með Rubin Kazan.
Lokomotiv Moskva – Krasnodar ........... 2:1
Jón Guðni Fjóluson sat á bekknum hjá
Krasnodar allan tímann.
Belgía
Oostende – Mouscron.............................. 2:2
Ari Freyr Skúlason lék allan tímann með
Oostende og skoraði mark úr vítaspyrnu.
KNATTSPYRNA
Íslandsmeistarar Vals héldu sigur-
göngu sinni áfram í Dominos-deild
kvenna í körfuknattleik um helgina.
Valur sótti Skallagrím heim í Borg-
arnes og fagnaði þar sigri 80:62. Val-
ur hefur þar með unnið alla sjö leiki
sína. Helena Sverrisdóttir og Kiana
Johnson skoruðu 20 stig hvor fyrir
meistarana. Helena tók að auki 14
fráköst og Johnson gaf 11 stoðsend-
ingar. Hjá Skallagrími var Kiera Rob-
inson stigahæst með 29 stig og tók 9
fráköst og Emilie Sofie Hasseldal
skoraði 12 stig.
KR heldur í við Val
KR er tveimur stigum á eftir Val í
öðru sæti deildarinnar en KR-ingar
lögðu Hauka að velli í Frostaskjólinu
70:60. Hildur Björg Kjartansdóttir
skoraði 22 stig fyrir KR og tók 7 frá-
köst, Danielle Victoria Rodriguez
skoraði 18 stig, tók 9 fráköst og gaf 9
stoðsendingar og Sanja Orazovic
skoraði 15 stig og tók 7 fráköst.
Lovísa Björt Henningsdóttir var at-
kvæðamest í liði Haukanna en hún
skoraði 18 stig og tók 4 fráköst og
Þóra Kristín Jónsdóttir skoraði 11
stig, gaf 5 stoðsendingar og tók 4 frá-
köst. Haukar eru í þriðja sæti deild-
arinnar, fjórum stigum á eftir KR.
Í botnslagnum hafði Breiðablik
betur á móti Grindavík 70:64. Þetta
voru fyrstu stig Blikanna í deildinni
en Grindavík situr á botni deild-
arinnar án stiga. Violet Morrow skor-
aði 17 stig fyrir Breiðablik og Björk
Gunnarsdóttir 16 en hjá Grindavík
var Kamilah Tranese Jackson stiga-
hæst með 15 stig og Bríet Sif Hinriks-
dóttir skoraði 14 stig.
Sigurganga Vals
heldur áfram
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Öflug Helena Sverrisdóttir skoraði
20 stig fyrir Val og tók 14 fráköst.