Morgunblaðið - 11.11.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2019
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐ
ÞÉR AÐ
KOSTNAÐAR-LAUSU
Grikkland
OFI Krít – PAOK ..................................... 0:1
Sverrir Ingi Ingason lék allan tímann
með PAOK.
Kasakstan
Astana – Irtysh Pavlodar ....................... 0:2
Rúnar Már Sigurjónsson lék ekki með
Astana vegna meiðsla.
Búlgaría
Botev Plodiv – Levski Sofia ................... 1:0
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan tímann
með Levski Sofia.
Hvíta-Rússland
Vitebsk – BATE Borisov......................... 1:2
Willum Þór Willumsson kom inná á 72.
mínútu í liði BATE.
Danmörk
Bröndby – Esbjerg .................................. 2:1
Hjörtur Hermannsson lék allan tímann
með Bröndby.
AGF – SönderjyskE................................. 4:2
Jón Dagur Þorsteinsson fór af velli á 66.
mínútu í liði AGF en hann skoraði fyrsta
markið.
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan tím-
ann með SönderjyskE og Ísak Óli Ólafsson
síðustu sex mínúturnar.
Midtjylland – FC Köbenhavn ................. 4:1
Mikael Anderson lék fyrstu 70. mínút-
urnar fyrir Midtjylland.
Svíþjóð
Bikarkeppnin, 2. umferð:
Enskede – AIK ......................................... 0:7
Kolbeinn Sigþórsson lék allan tímann
fyrir AIK og klúðraði vítaspyrnu sem hann
fékk sjálfur.
Värnamo – Malmö ................................... 0:2
Arnór Ingvi Traustason fór af velli á 69.
mínútu í liði Malmö.
Umspil, seinni leikur:
Kalmar – Brage ....................................... 2:2
Bjarni Mark Antonsson fór af velli á 67.
mínútu í liði Brage.
Kalmar vann, 4:2 samanlagt.
Noregur
Tromsö – Vålerenga ............................... 0:0
Matthías Vilhjálmsson lék allan tímann
með Vålerenga.
Haugesund – Viking................................ 1:0
Samúel Kári Friðjónsson lék allan tím-
ann með Viking. Axel ÓskarAndrésson er
frá keppni vegna meiðsla.
Lilleström – Stabæk................................ 1:3
Arnór Smárason lék allan tímann með
Lilleström.
B-deild:
Aalesund – Sandefjord ........................... 3:1
Daníel Leó Grétarsson lék allan tímann
með Aalesund, Hólmbert Aron Friðjónsson
kom inná á 62. mínútu, Davíð Kristján
Ólafsson sat á bekknum og Aron Elís
Þrándarson var ekki í hópnum.
Emil Pálsson lék allan tímann með
Sandefjord en Viðar Ari Jónsson var ekki í
hópnum.
KNATTSPYRNA
SUND
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Ég er fyrst og fremst hissa eftir
þennan árangur,“ sagði Ingibjörg
Kristín Jónsdóttir en sundkonan úr
SH fór á kostum á Íslandsmeist-
aramóti Sundsambands Íslands í 25
metra laug sem haldið var í Ásvalla-
laug í Hafnarfirði um helgina. Ingi-
björg vann til fimm gullverðlauna á
mótinu, í 50 metra baksundi, 50
metra flugsundi, 4x100 metra boð-
sundi, 4x50 metra skriðsundi og
4x100 metra fjórsundi. Þá fékk hún
silfurverðlaun í 4x50 metra skrið-
sundi en Ingibjörg náði einnig lág-
mörkum fyrir Evrópumeistaramótið
í Glasgow sem fram fer í næsta mán-
uði í 50 metra skriðsundi, 50 metra
flugsundi og 50 metra baksundi.
„Ég er búin að æfa Crossfit frá
árinu 2017 og í janúar á þessu byrj-
aði ég að æfa með keppnishópnum
og þar æfum við tvisvar til þrisvar á
dag. Ég vissi því, komandi inn í mót-
ið, að ég væri í frábæru formi. Þessi
árangur kom mér engu að síður
mjög mikið á óvart og ég var alltaf
jafn hissa eftir hvert sundið á fætur
öðru. Markmiðið fyrir mót var fyrst
og fremst að ná lágmarki fyrir Evr-
ópumeistaramótið í Glasgow. Ég
vissi að ég myndi ná því í 50 metra
baksundi sem hefur alltaf verið mín
sterkasta grein en ég átti ekki von á
því að bæta minn besta árangur frá
því að ég var í mínu besta sundformi.
Að ná lágmarkinu í þremur greinum
kom skemmtilega á óvart og eftir á
að hyggja er það hálffáránlegt.“
Ingibjörg lagði sundhettuna á hill-
una árið 2017 eftir EM en henni hef-
ur gengið illa að halda sig frá sund-
inu.
Dreymir stóra drauma
„Ég hætti fyrst eftir EM 2017 og
þá steig ég formlega fram og til-
kynnti þá ákvörðun mína. Eftir það
byrjaði ég í Mjölni og svo byrjaði ég
aftur að synda í október á síðasta ári
og komst inn á heimsmeistaramótið í
25 metra laug sem fram fór í Kína í
desember. Að því loknu byrjaði ég
að́ð æfa með keppnishópnum í
Mjölni og þegar að ég fór að synda
aftur í október á þessu ári var ég allt
í einu orðin hraðskreiðari en fyrir
HM 2018. Ég ákvað því að taka slag-
inn á Íslandsmeistaramótinu en ég
skal alveg viðurkenna það að það er
mjög erfitt að sleppa takinu á sund-
inu og það togar alltaf í mig enda eitt
það skemmtilegasta sem ég geri.“
Ingibjörg er nú á leið til Glasgow í
næsta mánuði en viðurkennir að hún
sé með augun á stærri draumi.
„Ég hef æft sund frá því að ég var
átta ára og ég kann hreinlega ekki
að lifa lífinu án þess að vera í ein-
hverri keppnisíþrótt og ætli það sé
ekki ástæðan fyrir því að ég fór
beint í crossfit eftir að ég ákvað að
hætta árið 2017. Næsta skref hjá
mér er hins vegar að standa mig vel
á EM í Glasgow og eftir það mun ég
taka stöðuna. Eina mótið sem ég hef
aldrei farið á eru Ólympíuleikarnir
og það er draumur allra íþrótta-
manna að komast þangað. Það er
ekkert öðruvísi hjá mér þegar kem-
ur að Ólympíuleikunum og við sjáum
til hvað gerist eftir EM en ég við-
urkenni það fúslega að það væri ekki
leiðinlegt að fara til Tókýó í Japan á
næsta ári,“ sagði Ingibjörg í samtali
við Morgunblaðið.
Erfitt að sleppa
takinu á sundinu
Fimm gullverðlaun og þrjú EM-lágmörk
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurvegari Ingibjörg Kristín náði frábærum árangri um helgina.
Argentínski snillingurinn Lionel
Messi lét ljós sitt skína í 4:1 sigri
Barcelona gegn Celta Vigo í
spænsku 1. deildinni í fótbolta.
Messi skoraði þrennu og jafnaði þar
með Cristiano Ronaldo en báðir
hafa þeir skorað 34 þrennur í
spænsku deildinni. Barcelona er í
toppsæti deildarinnar með jafn-
mörg stig og Real Madrid sem
skellti Eibar 4:0. Karim Benzema
skoraði tvö af mörkum Real Madrid
og er markahæstur í deildinni með
9 mörk en Messi hefur skorað 8.
gummih@mbl.is
Messi jafnaði Ro-
naldo í þrennum
AFP
Snillingur Lionel Messi skoraði sína
34. þrennu í spænsku deildinni.
Erik Hamrén, þjálfari karlalands-
liðsins í knattspyrnu, hefur gert
tvær breytingar á landsliðshópnum
fyrir leikina á móti Tyrklandi og
Moldóvu í undankeppni EM sem
fram fara í vikunni. Markvörðurinn
Rúnar Alex Rúnarsson og Rúnar
Már Sigurjónsson þurftu að draga
sig út úr hópnum sökum meiðsla og
valdi Hamrén þá Ingvar Jónsson og
Hólmar Örn Eyjólfsson í þeirra
stað.
Ísland mætir Tyrklandi á
fimmtudaginn og Moldóvu á sunnu-
daginn. gummih@mbl.is
Hólmar og Ingvar
í landsliðið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landsliðið Hólmar Örn Eyjólfsson
hefur verið kallaður inn í landsliðið.
Íslandsmeistarinn Guðmundur
Ágúst Kristjánsson úr GR og
Andri Þór Björnsson úr GR eru
komnir áfram á lokastig úrtöku-
mótanna fyrir Evrópumótaröð
karla í golfi. Þeir tryggðu sig báð-
ir inn á lokastig úrtökumótanna í
gær þegar lokahringur 2. stigs úr-
tökumótsins kláraðist á Desert
Springs-vellinum í Almería á
Spáni.
Alls voru leiknir fjórir hringir
en Guðmundur hafnaði í 9.-11. sæti
á samtals tveimur höggum undir
pari. Andri Þór endaði í 11.-15.
sæti á pari en tuttugu efstu kylf-
ingarnir komust áfram á lokastig
úrtökumótsins. Rúnar Arnórsson
lék á sama velli og þeir Andri og
Guðmundur en Rúnar hafnaði í 52.
sæti og er úr leik. Haraldur Frank-
lín Magnús og Bjarki Pétursson
ljúka leik í dag en þeir leika á Al-
enda-vellinum á Alicante en eru
hvorugur á meðal efstu manna.
Á lokastigi úrtökumótanna
verða leiknir sex hringir og munu
25 efstu kylfingarnir öðlast fullan
keppnisrétt á Evrópumótaröðinni.
bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meistari Guðmundur Ágúst Kristjánsson er kominn áfram á lokastigið.
Tveir Íslendingar
komnir áfram