Morgunblaðið - 11.11.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2019
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Dagskrá
Opnunarorð: Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar
Kolbeinn H. Stefánsson, doktor í félagsfræði kynnir skýrslu
um tengsl örorku og heilsufars við tekjur og stöðu á vinnu-
markaði
Önnur mál
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Fundurinn er opinn öllum
félagsmönnum Eflingar.
Efling–stéttarfélag
boðar til félagsfundar
fimmtudaginn 14. nóvember kl. 18:00
í húsnæði Eflingar, Guðrúnartúni 1, 4. hæð.
www.efling.is
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Kosið var til spænska þingsins í gær
og bentu útgönguspár til þess að
Sósíalistaflokkurinn, sem hefur verið
við stjórnvölinn frá því á síðasta ári,
fengi flest sæti, þegar Morgunblaðið
fór í prentun í gærkvöld. Þó höfðu
hægri flokkarnir mest fylgi saman-
lagt og munaði þar mest um fylgis-
aukningu hægri flokksins Vox, en
hann bætti við sig rúmlega fjórum
prósentustigum, úr 10% í 14,8%.
Útgönguspár, eftir talningu 90%
atkvæða, bentu þá til þess að Sósíal-
istaflokkurinn (PSOE) yrði stærstur
en næði þó ekki hreinum meirihluta,
að því er frá greinir á vef spænsku
fréttaveitunnar El País. Hann fengi
120 þingsæti af 350, eða um 34,2%, en
næstflest sæti fengi hinn íhaldssami
Þjóðarflokkur, 87 sæti. Þá stefndi í að
hægri flokkurinn Vox myndi fá 52
sæti, en vinstri flokkurinn Podemos
35 sæti. Þá benti allt til að Vinstri-
flokkur Katalóna fengi 13 sæti og
miðjuhægriflokkurinn Borgaraflokk-
urinn 10 sæti.
Kjörsóknin með lægra móti
Samkvæmt þessum útgönguspám
gæti reynst erfitt fyrir Sósíalista-
flokkinn og Þjóðarflokkinn, hina
hefðbundnu flokka Spánar, að mynda
ríkisstjórn, þar sem hvorugur þeirra
hefði hreinan meirihluta. Því er lík-
legt að flokkarnir þurfi að leita til
smærri flokka og mynda ríkisstjórn
tveggja flokka eða fleiri.
Kjörsókn var 56,8% klukkan 18.00
í gær sem er næstum 4 prósentustig-
um minna en í seinustu kosningum,
þegar hún var 60,7%.
„Við skulum gefa lýðræðinu með-
byr og nýta kosningaréttinn,“ sagði
Pedro Sánchez, forsætisráðherra
Sósíalistaflokksins, á kjörstað á
sunnudagsmorgun.
Meðal sigurvegara kosninganna er
hægri flokkurinn Vox, sem fékk 10%
atkvæða í kosningunum í apríl en
fengi 14,8% samkvæmt fyrrgreind-
um útgönguspám. Allt stefnir því í að
Vox verði þriðji stærsti flokkurinn á
spænska þinginu, og ætti því Þjóð-
arflokkurinn möguleika á að mynda
tveggja flokka stjórn ásamt honum.
Vox er andsnúinn aðskilnaði Kata-
lóníu og Spánar og hefur staðið gegn
mótmælum katalónskra aðskilnaðar-
sinna en flokkurinn nýtur einkum
stuðnings meðal Spánverja utan
Katalóníu. Santiago Abascal, leiðtogi
Vox, hefur að auki talað fyrir hertri
innflytjendastefnu ríkisins.
Seinast kosið í apríl
Spánverjar gengu að kjörborðinu
síðast í apríl síðastliðnum en engin
ríkisstjórn hefur setið þar í landi í
heilt kjörtímabil frá árinu 2015.
Pedro Sánchez varð forsætisráð-
herra í júní í fyrra eftir að van-
trauststillaga var samþykkt gegn
stjórn þáverandi forsætisráðherra úr
Þjóðarflokknum, Mariano Rajoy.
Sánchez hefur til þessa leitt minni-
hlutastjórn spænska Sósíalista-
flokksins.
Nýir stjórnmálaflokkar hafa
streymt á sjónarsviðið á Spáni und-
anfarin misseri, meðal annars vegna
sjálfstæðisbaráttu Katalóna, og hef-
ur það grafið undan stöðugu stjórn-
arfari þar í landi.
Sósíalistar stærstir en
hægri flokkar bæta fylgið
Kosið til þings á Spáni í gær Útgönguspár bentu til þess að Sósíalistaflokk-
urinn fengi flest sæti, þrátt fyrir minna fylgi Hægri flokkurinn Vox sækir á
AFP
Fagnað Stuðningsmenn Vox fagna góðu gengi en flokkurinn bætti við sig.
Fransk-pólski
kvikmyndaleik-
stjórinn Roman
Polanski hyggst
kæra franska
dagblaðið Le
Parisien, vegna
ásakana um
nauðgun. Meint
brot á að hafa
átt sér stað á
áttunda áratugn-
um, gegn Valentine Monnier, ljós-
myndara og fyrrverandi leikkonu.
Polanski var dæmdur fyrir að
nauðga þrettán ára stúlku árið
1977 og hefur áður verið ásakaður
um nokkur önnur kynferðisbrot.
Le Parisien birti opið bréf frá
Monnier ásamt viðtali við hana á
föstudaginn síðastliðinn. Þar er
haft eftir Monnier að Polanski hafi
ráðist á hana, þvingað hana til
kyngja pillu og nauðgað henni við
smáhýsi hans á svissneska skíða-
svæðinu Gstaad árið 1975. Síðar
hafi hann grátbeðið Monnier um að
segja engum frá því sem gerðist og
beðist afsökunar. Þá var Monnier
18 ára gömul.
Kvikmynd Polanski, Ég ásaka,
kemur út á miðvikudag. Lögmaður
Polanski, Herve Temime, segir Pol-
anski mótmæla ásökuninni harð-
lega og hann, ásamt Polanski, und-
irbúi nú málsókn gegn Le Parisien.
Hyggst
kæra Le
Parisien
Roman
Polanski
Roman Polanski
sakaður um nauðgun
Mikil hátíðahöld voru í Berlín, höfuðborg Þýskalands,
þegar þess var minnst á laugardaginn að þrjátíu ár
voru liðin frá falli Berlínarmúrsins.
Var meðal annars efnt til stórglæsilegrar flug-
eldasýningar við Brandenborgarhliðið, eitt helsta
kennileiti borgarinnar.
AFP
Vegleg hátíðahöld vegna múrsins
Evo Morales, hinn vinstrisinnaði for-
seti Bólivíu, sagði af sér í gærkvöldi,
en tíð mótmæli hafa verið í landinu
undanfarnar þrjár vikur eða frá því
að hann vann umdeildar forseta-
kosningar í lok október.
Stjórnarandstæðingar héldu því
fram að stórfelld svik hefðu átt sér
stað við talningu atkvæða og fengu
þeir byr undir báða vængi um
helgina þegar Samtök Ameríkuríkja,
OAS, lýstu því yfir að kosningarnar
hefðu verið gall-
aðar í nær öllum
þáttum. Þannig
hefði tæknin sem
notuð var verið
ófullnægjandi,
ekki hefði verið
gætt að því að
ekki væri hægt að
eiga við kjörkassa
á leiðinni frá kjör-
stað til talningar.
Þrír hafa látist í mótmælum und-
anfarnar vikur og hundruð til viðbót-
ar særst. Morales tilkynnti í gær að
hann hygðist láta kjósa á ný til emb-
ættisins. Þegar álit OAS lá fyrir fjar-
aði hins vegar undan stuðningi við
Morales, og kallaði Williams Kali-
mam, yfirmaður hersveita Bólivíu,
eftir afsögn hans. Stjórnvöld á Kúbu,
sem lengi hafa stutt Morales, for-
dæmdu hins vegar afsögn hans, og
kölluðu hana valdarán hersins.
Sagði af sér vegna mótmæla
Stjórnvöld á Kúbu fordæma „valdarán“ bólivíska hersins
Evo
Morales