Morgunblaðið - 11.11.2019, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2019
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
HANDBOLTI
Olísdeild karla
Stjarnan – Fram................................... 26:26
ÍR – ÍBV................................................ 32:27
KA – FH................................................ 31:27
Fjölnir – Afturelding............................ 25:31
HK – Valur............................................ 23:31
Staðan:
Haukar 8 6 2 0 207:193 14
Afturelding 9 7 0 2 243:225 14
ÍR 9 6 0 3 267:244 12
Selfoss 8 5 1 2 244:242 11
FH 9 5 1 3 248:243 11
ÍBV 9 4 1 4 243:238 9
KA 9 4 1 4 256:251 9
Valur 9 4 1 4 228:209 9
Fram 9 3 1 5 223:223 7
Stjarnan 9 1 3 5 226:245 5
Fjölnir 9 2 1 6 230:261 5
HK 9 0 0 9 216:257 0
Olísdeild kvenna
Fram – KA/Þór..................................... 43:18
Afturelding – ÍBV ................................ 23:31
Stjarnan – Haukar ............................... 22:22
Valur – HK............................................ 24:31
Staðan:
Fram 8 7 0 1 257:166 14
Valur 8 6 1 1 224:170 13
Stjarnan 8 4 3 1 196:174 11
KA/Þór 8 4 0 4 195:226 8
HK 8 3 2 3 209:218 8
Haukar 8 2 1 5 165:198 5
ÍBV 8 2 1 5 159:196 5
Afturelding 8 0 0 8 146:203 0
Grill 66 deild kvenna
HK U – Grótta ...................................... 24:28
Fjölnir – Stjarnan U ............................ 22:28
Selfoss – FH.......................................... 18:18
Meistaradeild karla
Pick Szeged – Elverum....................... 32:24
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 1
mark fyrir Pick Szeged.
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 2
mörk fyrir Elverum.
Aalborg – Barcelona........................... 30:34
Janus Daði Smárason skoraði 4 mörk
fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon er
frá vegna meiðsla.
Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir
Barcelona.
Sävehof – Cocks....................................28:22
Ágúst Elí Björgvinsson varði 15 skot í
marki Sävehof.
GOG – Kristianstad ............................. 37:37
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 1 mark
fyrir GOG en Arnar Freyr Arnarsson ekk-
ert. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 9 skot.
Ólafur Guðmundsson skoraði 4 mörk
fyrir Kristianstad og Teitur Einarsson 7.
Danmörk
SönderjyskE – Holstebro ................... 25:25
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 1
mark fyrir SönderjyskE en Sveinn Jó-
hannsson ekkert.
Frakkland
París SG – Aix...................................... 36:23
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 2 mörk
fyrir PSG.
HANDBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
HK gerði sér lítið fyrir og vann
magnaðan 31:24-útisigur á Íslands-
meisturum Vals í Olísdeild kvenna í
handbolta í gær. HK var með 17:14-
forystu í hálfleik, en Valskonur kom-
ust yfir í seinni hálfleik. Bjuggust þá
flestir við að meistararnir myndu
sigla heim góðum sigri, en HK-ingar
voru á öðru máli og tryggðu sér
glæsilegan sigur með ótrúlega góðum
lokakafla. Er um fyrsta tap Vals í
deildinni á leiktíðinni að ræða og er
liðið búið að missa efsta sæti deild-
arinnar til Framara. HK hefur komið
mikið á óvart og er liðið komið upp að
hlið KA/Þórs í fjórða sæti. HK getur
alveg barist um sæti í úrslita-
keppninni. Umræðan síðustu vikur
hefur verið á þá leið að Valur og
Fram séu ósnertanleg í kvenna-
handboltanum hér á landi. HK er á
öðru máli.
Allt annað að sjá Hauka
Þann 12. október síðastliðinn var
Stjarnan með fullt hús stiga og Hauk-
ar án stiga. Síðan þá hefur Stjarnan
ekki unnið leik á meðan Haukar hafa
nælt í tvo sigra. Uppgangur Hauka
sást vel á laugardag því liðin gerðu
jafntefli, 22:22, í Garðabæ. Bæði lið
eru sennilega frekar svekkt. Stjörnu-
konur fengu fjölmörg færi til að koma
sér í góða stöðu, en Tinna Húnbjörg
Einarsdóttir í marki Hauka varði oft
á tíðum stórkostlega úr dauðafærum.
Þá fengu Haukar fínt tækifæri til að
skora sigurmarkið, en það gekk ekki
eftir.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir hefur
verið lykillinn að góðu gengi Stjörn-
unnar til þessa, en hún náði sér ekki
almennilega á strik og skoraði aðeins
tvö mörk utan af velli. Þórhildur
Gunnarsdóttir átti þess í stað mjög
góðan leik og var gaman að fylgjast
með henni. Þórhildur getur spilað all-
ar stöður á handboltavellinum og á
milli þess sem hún var á línunni stökk
hún fyrir utan og skoraði eftir
skemmtileg gegnumbrot.
Haukar eru með góða leikmenn
sem geta valdið usla. Guðrún Erla
Bjarnadóttir stendur alltaf fyrir sínu
og sömuleiðis Berta Rut Harðar-
dóttir. Þórhildur Braga Þórðardóttir
átti svo afskaplega góðan seinni hálf-
leik og var óheppin að missa boltann í
síðustu sókn Hauka í leiknum, þar
sem var augljóslega brotið á henni.
Bæði þessi lið ætla sér í úrslita-
keppnina. Reikna má með að Valur
og Fram séu of sterk til að þau geti
barist við þau, en baráttan um þriðja
og fjórða sætið verður spennandi.
Þar má alls ekki útiloka Hauka, þrátt
fyrir erfiða byrjun.
Fram fór afar illa með KA/Þór á
heimavelli. Jafnræði var með liðunum
rétt í upphafi en eftir því sem leið á
leikinn náði Fram undirtökunum.
Staðan í hálfleik var 21:10 og Fram
hélt áfram að keyra út allan leikinn
og vann að lokum 25 marka sigur,
43:18. Þórey Rósa Stefánsdóttir skor-
aði ellefu mörk fyrir Fram sem er
komið upp í toppsætið eftir tapið hjá
Val. KA/Þór er í fjórða sæti með átta
stig, en Martina Corkovic skoraði sjö
mörk fyrir Akureyrarliðið.
ÍBV vann mikilvægan 32:23-
sigur á útivelli gegn Aftureldingu í
fallslag. Fyrir leik var ÍBV með þrjú
stig í sjöunda sæti og Afturelding án
stiga. Staðan í hálfleik var 11:10 Aft-
ureldingu í vil en ÍBV var mikið
sterkari aðilinn í seinni hálfleik. Ásta
Björt Júlíusdóttir átti glæsilegan leik
fyrir ÍBV og skoraði tólf mörk. Þóra
María Sigurjónsdóttir gerði átta fyrir
Aftureldingu.
HK-ingar hlógu
að spámönnum
Ótrúlegur sigur HK á Valskonum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Glíma Þórhildur Gunnarsdóttir var besti leikmaður Stjörnunnar.
ÍR-ingurinn Hynur Andrésson vann
til silfurverðlauna á Norður-
landamótinu í víðavangshlaupi sem
fram fór í Vierumaki í Finnlandi í
Finnlandi í gær. Hlynur hljóp kíló-
metrana 9 á 27,09 mínútum og varð
tveimur sekúndum á eftir Svíanum
David Nilsson. Þríþrautarkonan
Guðlaug Edda Hannesdóttir varð í
12. sæti í kvennaflokki á tímanum
27,21 mínútu en konurnar hlupu 7,5
km.
Hlynur Ólason hafnaði 19. sæti í
ungmennaflokki á tímanum 20.12
mín en þeir hlupu 6 km.
Hlynur fékk silfur
á NM í Finnlandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Góður Hlynur Andrésson gerði það
gott á Norðurlandamótinu.
Sundkappinn Már Gunnarsson
gerði sér lítið fyrir og synti undir
gildandi heimsmeti í þremur grein-
um á Íslandsmóti Íþróttasambands
fatlaðra í 25 metra laug um helgina
en mótið, sem var hluti af Íslands-
meistaramóti Sundsambands Ís-
lands, fór fram í Ásvallalaug í Hafn-
arfirði. Már synti á tímanum
1:11,85 í 100 metra baksundi, kom í
mark á tímanum 33,17 í 50 metra
baksundi og þá synti hann á tím-
anum 2:34,57 í 200 metra baksundi.
Már keppir í fötlunarflokki S11,
flokki blindra. bjarnih@mbl.is
Ótrúleg helgi hjá
Má í Ásvallalaug
Ljósmynd/ÍF
Afrek Már Gunnarsson synti undir
þremur gildandi heimsmetum.
Pólverjinn Robert Lewandowski heldur áfram að raða
inn mörkunum fyrir Bayern München í þýsku 1. deild-
inni í knattspyrnu. Þjálfaralausir Bæjarar pökkuðu Bo-
russia Dortmund saman í stórleik deildarinnar um
helgina en þýsku meistararnir unnu 4:0 sigur þar sem
Lewandowski skoraði tvö mörk.
Pólverjinn hefur þar með skorað 16 mörk í fyrstu 11
leikjum Bæjara í deildinni og Karl-Heinz Rummenigge,
forseti félagsins, telur að Lewandowski geti slegið 48
ára gamalt markamet í deildinni. Það á Gerd Müller en
hann skoraði 40 mörk fyrir Bayern München tímabilið
1971-72.
„Ég hélt að met Gerds myndi standa að eilífu og yrði aldrei slegið en ég
held að Lewandowski sé sá fyrsti til að geta gert það. Það er magnað að sjá
hann skora hvert markið á fætur öðru,“ sagði Rummenigge við fréttamenn
eftir leikinn. gummih@mbl.is
Lewandowski óstöðvandi
Robert
Lewandowski
Arnar Davíð Jónsson úr Keilufélagi
Reykjavíkur varð í gær fyrsti Íslend-
ingurinn til þess að bera sigur úr
býtum á Evrópumótaröðinni í keilu.
Arnar endaði efstur á Opna Ála-
borgarmótinu um helgina en mótið
var hluti af Evrópumótaröðinni og
með sigrinum tryggði hann sér efsta
sætið.
Arnar var fyrir mótið í efsta sæti
stigalista Evrópumótaraðarinnar en
þetta var hans annar sigur á Evrópu-
mótaröðinni á tímabilinu og hans
þriðji á ferlinum. bjarnih@mbl.is
Fyrsti sigur
Íslendings
Fyrstur Arnar Davíð Jónsson braut
blað í keilusögu Íslands í gær.