Morgunblaðið - 16.11.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
Hugsaðu vel um
húðina þína – alltaf
Bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir
andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan.
Í nýjum umgengnisreglum í Þing-
vallakirkju verður ekki heimilt að
dreifa hrísgrjónum, confetti, rós-
arblöðum eða öðru svipuðu í kirkj-
unni eða fyrir utan hana. Allar
skreytingar í eða við kirkjuna verða
óheimilar nema með samþykki þjóð-
garðsvarðar eða sóknarprests.
Óheimilt verður að kveikja á kertum
innandyra nema á altari og óheimilt
að tendra á kerti utandyra og öll
neysla veitinga bönnuð í kirkjunni.
Nýjar reglur um athafnir í kirkj-
unni voru samþykktar í Þingvalla-
nefnd á miðvikudag en þær eru sett-
ar í kjölfar atviks sem varð í
Þingvallakirkju í byrjun október
þegar eldur úr skreytingu, sem sett
hafði verið upp af gestum í kirkj-
unni, komst í gest við brúðkaups-
athöfn. Eldurinn var snarlega
slökktur af presti í athöfninni án
mikils skaða.
Fram til þessa atviks hafa ekki
verið formfastar reglur um um-
gengni í Þingvallakirkju og verklag
þjóðgarðsins falist í að gera kirkjuna
tilbúna fyrir athöfn, þrífa hana og
opna og taka á móti presti. Starfs-
maður hefur hins vegar verið fyrir
utan kirkjuna til að stýra umferð
ferðamanna en oft er mjög mikill
ágangur þeirra við kirkju meðan á
athöfn stendur, m.a. reynt að fara
inn í kirkju og legið á gluggum, segir
á heimasíðu þjóðgarðsins.
Þar segir einnig að þegar umrætt
atvik átti sér stað hafi starfsmaður
þjóðgarðsins fylgt eldra verklagi í
einu og öllu og ekki verið inni í kirkj-
unni. Hann hafi því ekki borið
ábyrgð á þessu atviki að nokkru
leyti. Eftirliti með nýjum umgengn-
isreglum verður bætt inn í verklag
starfsmanna sem verða við Þing-
vallakirkju eftirleiðis. aij@mbl.is
Banna hrísgrjón, rósarblöð,
confetti og kerti á Þingvöllum
Nýjar reglur Kerti og skreytingar
verða bönnuð í Þingvallakirkju.
Umfangsmikil steypuvinna í
grunni nýja Landsbankans við
Austurbakka 2, við Hörpu, hófst í
nótt hjá starfsmönnum ÞG-
verktaka. Í botnplötu bygging-
arinnar fara um 1.500 rúmmetrar
af steypu og í verkið verða not-
aðir 50 steypubílar frá BM Vallá,
sem munu fara 190 ferðir í grunn-
inn.
Vegna framkvæmdanna hefur
verktakinn fengið heimild Reykja-
víkurborgar til að loka hægri ak-
grein Kalkofnsvegar í átt að
Lækjargötu. Einnig verður mynd-
uð tvístefna á um 100 metra kafla
við gatnamót Kalkofnsvegar og
Geirsgötu. Til stóð að hefja
steypuvinnuna klukkan fjögur í
nótt og reiknað er með hún standi
yfir til miðnættis í kvöld. Það er
því vissara fyrir ökumenn að velja
sér aðrar leiðir um miðbæinn.
190 ferðir
steypubíla
og umferð
takmörkuð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Botnplata nýja Landsbankans á Austurbakka steypt í dag
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég hef hugrekki til að ráðast á
garðinn þar sem hann er hæstur,“
segir Eysteinn Arason lyfjafræð-
ingur.
Eysteinn opnar á næstu dögum
nýtt apótek við Efstaleiti 27b, í
hverfinu sem er að rísa á RÚV-
reitnum við Efstaleiti. Apótekið hef-
ur fengið nafnið Efstaleitis Apótek
og er undirbúningur á lokametr-
unum. Eysteinn nýtur liðsinnis gam-
alla samstarfsmanna.
Á besta stað í nýju hverfi
„Við erum stórhuga fólk og ætlum
að keppa við þessa stóru risa á
markaðinum. Við vorum svo heppin
að við fundum húsnæði á góðum
stað, við hlið heilsugæslunnar og í
miðju þessa nýja hverfis sem þó er
inni í rótgrónu hverfi. Hér í kring er
margt miðaldra og eldra fólk sem er
stærsti kúnnahópur okkar,“ segir
Eysteinn, sem hefur lengi starfað
sem apótekari.
„Ég útskrifaðist úr HÍ árið 1988
og var með Nesapótek á Eiðistorgi í
fjögur eða fimm ár. Svo starfaði ég
hjá Lyfjum og heilsu í ein 16 ár, þar
af 12 ár í Austurveri, þar til ég fékk
nóg af því samstarfi í mars. Ég
ákvað að taka slaginn sjálfur – ég
vildi ekki verða fúll yfir því seinna og
naga mig í handarbökin að hafa ekki
gert það.“
Myndar traust við kúnnana
Eysteinn segir að lyfsalan gangi
út á persónulega þjónustu, að mynda
traust við kúnnann. „Við erum með
stóran kúnnahóp sem fylgir okkur.
Þegar ég gekk út úr Austurveri í
mars sagði ég við alla að ég myndi
opna eigið apótek og ég hef verið
mikið spurður um hvenær af því
yrði.“
Hann segir að fyrst um sinn verði
þrír starfsmenn með sér í Efstaleit-
inu, allt konur sem hafa lengi starfað
með honum. Þær eru Priyanka
Thapa lyfjafræðingur, sem er frá
Nepal og vakti nokkra athygli þegar
hún fékk dvalarleyfi af mannúðar-
ástæðum hér á landi fyrir nokkrum
árum, Hansína Jóhannesdóttir Stöð-
firðingur og Stefanía Eysteinsdóttir,
dóttir apótekarans, sem starfaði sem
fyrirsæta víða um heim en hefur
langa reynslu af afgreiðslu í apótek-
um.
„Við verðum fjögur til að byrja
með en vonandi miklu fleiri þegar
fram líða stundir,“ segir Eysteinn
Arason.
Ætla að keppa við risana á markaði
Eysteinn Arason opnar nýtt apótek í Háaleitishverfi Rak apótekið í Austurveri um langt árabil
Á traustan kúnnahóp sem hann telur að fylgi honum í Efstaleiti Stefnt á að opna á næstu dögum
Morgunblaðið/Eggert
Nýtt apótek Eysteinn Arason ásamt þeim Stefaníu Eysteinsdóttur, Priyönku Thapa og Hansínu Jóhannesdóttur.