Morgunblaðið - 16.11.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 16.11.2019, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019 Afgreiðslutímar á www.kronan.is Sjá nánar á kronan.is/ jolahlaðborð Þorsteinn Ásgrímsson Magnús Heimir Jónasson Engar útskýringar hafa komið fram á millfærslum upp á samtals 1.600 milljónir króna frá fjárfestingafélag- inu Gnúpi, í tengslum við þátttöku þáverandi forstjóra þess, Þórðar Más Jóhannessonar í félaginu. Aðalmeðferð fór nýlega fram í skaðabótamáli í Héraðsdómi Reykja- víkur þar sem farið var fram á sam- tals 2,3 milljarða króna skaðabætur vegna háttsemi stjórnenda Gnúps ár- ið 2006. Þar kom meðal annars fram í skýrslutökum yfir Þórði Má og Helga Arnarsyni, endurskoðanda Gnúps, að þeir könnuðust ekkert við viðskiptin, en millifærslurnar áttu sér stað degi eftir að Þórður greiddi inn tveggja milljarða hlutafé sitt í félagið. Tölvu- póstsamskipti sýna hins vegar að Helgi þekkti vel til viðskiptanna. Gnúpur var fjárfestingarfélag sem var stofnað árið 2006. Eignarhaldið var á höndum þriggja hópa. Fyrst var það Magnús Kristinsson sem átti ásamt fjölskyldu sinni 46,5% í félag- inu. Þá áttu félög í eigu Kristins Björnssonar og þriggja systra hans 46,4% og Þórður Már Jóhannesson átti 7,1%. Stofnun félagsins var þó öllu flóknari en að þessir aðilar hafi lagt til fjármagn í hlutfalli við eign- arhlutinn og um það snýst m.a. dóms- málið. Stefnandi í málinu er félagið Lyfja- blóm, en það var móðurfélag utan um eignir Kristins Björnssonar og fjöl- skyldu og hét áður Björn Hallgríms- son ehf., í höfuðið á föður systkin- anna. Var félagið í jafnri eign Kristins og systranna þriggja og öll sátu þau í stjórn félagsins. Síðar urðu breytingar á eignarhaldi félagsins. Stofnað fyrir 13 árum Saga Gnúps byrjar á því að félagið AB 36 ehf. var stofnað af Þórði Má fyrri hluta ársins 2006. Strax eftir stofnun var nafni félagsins breytt í Þúfubjarg. Í október 2006 kaupa fé- lögin MK-44 og Suðurey annars veg- ar og SK II og SKE II hins vegar þetta eignalausa félag á 1,6 milljarða af Þórði og eiga því 50% hlut hvort um sig. Fyrrnefndu félögin voru í eigu Magnúsar og fjölskyldu, en hin síð- arnefndu í eigu Kristins og fjöl- skyldu. Greiddu félögin 800 milljónir hvort, en fjölskyldufyrirtæki Kristins fengu þessa upphæð að láni frá Glitni. Lögðu fjölskyldurnar svo eignir sínar í Kaupþingi og FL Group inn í hið nýja félag, en það voru eignir upp á tugi milljarða. Samhliða þessum viðskiptum fær félagið Brekka II, sem var í eigu Þórðar, að kaupa sig inn í nýja félagið (sem átti eftir að verða að Gnúpi) fyr- ir tvo milljarða. Barst sú upphæð í þremur greiðslum inn á reikning fé- lagsins og var Þórður ráðinn forstjóri hins nýja félags. Daginn eftir innborgun hlutafjár Þórðar Más greiðir hins vegar Gnúp- ur samtals 1.600 milljónir til baka til þessara fjögurra félaga sem svo greiða Glitni lánsupphæðina, 800 milljónir frá félögum hvorrar fjöl- skyldu, sem þau notuðu til að kaupa Þúfubjarg ehf af Þórði Má. Hagnaður og hrun Eitt ár líður og eignir Gnúps hækka gríðarlega og félagið skilar 1,9 milljarða hagnaði árið 2006. Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins 2007 var samkvæmt árshlutareikn- ingi 12,7 milljarðar og heildareignir 90,4 milljarðar og 49% eiginfjárhlut- fall. Þegar líður á árið 2007 fara hins vegar óveðursský að hrannast upp og er óskað eftir að eigendur leggi til aukið hlutafé sem innspýtingu vegna lausafjárskorts. Eigendurnir sam- þykktu það, en sjö vikum síðar, í jan- úar 2008, var félagið komið í þrot og gert var samkomulag við lánar- drottna félagsins. Tók bankinn yfir stjórnun Gnúps, en í samkomulaginu er þó ítrekað tekið fram að ekki verði farið fram á gjaldþrot þess. Þá geng- ust þeir Magnús, Kristinn og Þórður í persónulega ábyrgð fyrir að 1,6 milljarða eignir væru í félaginu, þrátt fyrir að um skuldir hlutafélags með takmarkaða ábyrgð væri að ræða. Á móti lýsti Glitnir yfir að bankinn myndi fyrirgera rétti til skaðabóta á hendur stjórnendum Gnúps. Hefur mbl.is áður fjallað ítarlega um þau mál og sögu Gnúps. Bankinn hafði einnig tekið yfir fé- lagið Björn Hallgrímsson og fluttist það yfir í slitabú Glitnis eftir fall bankans. Systursonur Kristins fékk að kaupa félagið og stendur það nú í málaferlunum. Er sjónum sérstak- lega beint að þessum 1.600 milljóna millifærslum, sem í tilfelli fjölskyldu Kristins nema 800 milljónum. Er far- ið fram á Þórður Már og Sólveig Pét- ursdóttir, fyrrverandi ráðherra sem situr í óskiptu búi eftir Kristin, greiði sameiginlega 800 milljónir vegna þeirra. Viðskiptaflétta Í stefnu málsins er viðskiptafléttan sögð hafa verið sett upp til að láta móðurfélagið (Björn Hallgrímsson ehf.) fjármagna hlutafjárframlag Þórðar Más með þeim hætti að eigið fé Þúfubjargs (síðar Gnúps) hafi í raun verið minna en gefið var upp og þetta hafi þynnt hlut annarra eigenda sem nam endurgreiðslunni. Allt hafi þetta verið gert án vitnesku annarra eigenda móðurfélagsins en Kristins. Þá er vísað til þess að 800 milljóna lánveitingin hafi hvorki verið tekin upp í stjórn né bókuð í bókhaldi fé- lagsins. Í annarri dómkröfu stefnunnar er svo farið fram á 1,5 milljarða bætur vegna skorts á upplýsingum í tengslum við hlutafjáraukninguna í lok árs 2007. Segir að Þórður Már, sem þáverandi forstjóri, og Kristinn, sem þáverandi stjórnarformaður fé- lagsins, hafi borið ábyrgð á því að ekki hafi verið veittar réttar upplýs- ingar um fjárhagsstöðu og áhættu Gnúps, meðal annars þar sem ekki var gerð grein fyrir stöðu tugmillj- arða afleiðusamninga. Þessar upplýs- ingar hafi hvorki verið færðar með réttum hætti í ársreikningi ársins 2006 né árshlutareikningi fyrri hluta ársins 2007. Segir í stefnunni að allt fjármagnið sem kom inn í hlutafjár- aukningunni hafi svo farið í allt annað en að bæta lausafjárstöðuna, þ.e. að það hafi farið í að styrkja fjárhag fé- lagsins FL Group. Gátu ekki útskýrt millifærslur Við aðalmeðferð málsins fyrir hér- aðsdómi í lok október sagðist Þórður Már ekki geta útskýrt millifærslurn- ar og sömu sögu er að segja um Helga Arnarson, endurskoðanda KPMG sem var endurskoðandi Gnúps, bæði fyrir og eftir að Glitnir tók félagið yfir. Hafði hann þó skrifað upp á að Þórður Már hefði greitt tveggja milljarða hlutafjárloforð sitt án þess að taka fram að 1.600 millj- ónir hafi farið beint aftur af reikningi Gnúps Í tölvupóstum sem mbl.is hefur undir höndum og eru á milli Helga og bókara Magnúsar Kristinssonar, sem var hinn þátttakandinn í fléttunni, er hins vegar ljóst að Helgi þekkti til þeirrar ráðstöfunar sem áformuð var. „MK og Smáey keyptu 50% hlut í Gnúp af Brekku fyrir 800 millj. kr. og fengu skammtímalán í Glitni. Gnúpur gerði svo lánin upp þegar bú- ið var að ganga frá hlutafjáraukning- unni,“ segir í tölvupósti frá Helga þegar hann útskýrir skammtímalán í bókum MK-44. Krefjast 2,3 milljarða bóta  Skaðabótamál rekið vegna viðskipta með hlutafé fjárfestingarfélagsins Gnúps árin 2006 og 2007 Morgunblaðið/Golli Höfuðstöðvar Kaupþings Fjárfestingarfélagið Gnúpur átti um tíma stóran hlut í bönkunum Kaupþingi og Glitni og einnig yfir 20% hlut í FL Group.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.