Morgunblaðið - 16.11.2019, Side 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
60 ára Guðbjörg er
Reykvíkingur, ólst upp í
Árbæjarhverfi en býr í
Hólunum í Breiðholti.
Hún er tækniteiknari
að mennt frá Iðnskól-
anum í Hafnarfirði og
vinnur við félagsstarfið
á Hrafnistu í Reykjavík. Hún er einnig
handverkskona.
Maki: Olgeir Karlsson, f. 1956, vinnur hjá
Sorpu við Jafnasel.
Börn: Eva Björk, f. 1978, Jóhanna Dögg,
f. 1982, og Jón Alfreð, f. 1987. Barna-
börnin eru orðin fjögur.
Foreldrar: Jón Hassing, f. 1934, d. 2017,
kennari í Sjómannaskólanum, og Gerða
Hassing, f. 1941, fv. ritari í Hólabrekku-
skóla. Hún er bús. í Kópavogi.
Guðbjörg
Hassing
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Peningar flæða til þín úr öllum
áttum, líka óvæntum. Ekki hafa áhyggjur
þó að þú lendir milli tannanna á fólki. Þú
hefur breitt bak.
20. apríl - 20. maí
Naut Sambönd eru ekki svo flókin þegar
þú veltir þeim fyrir þér. Kærleikurinn er
þar í aðalhlutverki. Þú finnur það sem þú
leitar að.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vináttan verður að virka í báðar
áttir. Þú ert með öll tromp á hendi í erf-
iðum viðræðum við ættingja. Einhver
kemst að leyndarmáli þínu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þig langar ekki sérstaklega til
þess að vinna í dag. Gefðu þér tíma til að
skoða samskipti þín við þína nánustu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er svo lítið sem þarf til þess að
setja allar áætlanir úr skorðum. Hafðu
þitt á hreinu og talaðu skýrt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er allt í lagi að bregða fyrir
sig spaugi en farðu varlega gagnvart
þeim sem kunna ekki alltaf að taka gríni.
Leyfðu listrænum hæfileikum þínum að
njóta sín.
23. sept. - 22. okt.
Vog Talaðu við aðra um þær stóru hug-
myndir sem þú hefur. Leitið og þér munið
finna á vel við þennan dag.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú finnur fyrir ævintýraþrá
og ættir að reyna að finna upp á ein-
hverju óvenjulegu í dag. Þú þarft samt að
sníða þér stakk eftir vexti.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þar sem þér virðast nokkrar
leiðir færar þarftu að gaumgæfa þær
vandlega áður en þú velur þá réttu.
Gullna reglan er að þú komir fram við
aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við
þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þið þurfið að leggja hart að
ykkur til þess að halda góðu sambandi
við aðra. Mundu því að sýna öllum virð-
ingu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hlustaðu vandlega á það sem
aðrir segja. Ekki láta fjölskyldumeðlim
spilla góðum degi með nöldri eða fýlu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú skaltu bretta upp ermarnar og
taka til hendinni heima hjá þér. Það er
ágætt að klára jólahreingerninguna í dag.
mörg á lífsleiðinni; stangveiði,
ferðalög og nú síðast golf þó að ár-
angur á því sviði sé nú ekki í hlut-
falli við erfiðið.“ Jón er staddur
nyrst í Argentínu þessa dagana þar
sem er 38-40 stiga hiti. „Þetta er
ótrúlegt land með alla möguleika.
fékk en það var fyrir laxveiðimynd
á ferskvatnamyndahátíð í Frakk-
landi og þá vegna þess að ekki
tókst betur til en svo að eintakið af
myndinni týndist sem og verð-
launin.
Áhugamál mín hafa verið all-
J
ón Hermannsson fæddist
16. nóvember 1939 í
Reykjavík og ólst upp
fyrst á Melunum og flutti
síðan á Ægisíðu rétt fyrir
fermingu. „Á æskuárum fór ég í
sveit eins og gilti um marga félaga
mína og var á Reynivöllum í Kjós
og í Reykjarfirði við Djúp og lauk
sveitaferlinum sem hjálparsveinn á
litlu býli við Stokkseyri. Æskuárin
voru skemmtilegur tími, fótbolti,
kýló og skíðaferðir.“
Skólaganga Jóns hófst í Mela-
skólanum að hætti Vesturbæinga
og þá tók við Gaggó við Hring-
braut. Þá lá leiðin austur á Alþýðu-
skólann á Eiðum og svo tók við
nám í Sjómannaskólanum og síðar
nám í tæknifræði við Norwood
Technical í London.
Á námsárunum starfaði Jón sem
loftskeytamaður hjá Landhelgis-
gæslunni í fyrsta þorskastríðinu og
á togurum meðan hann var við nám
á Englandi. „Veruleg straumhvörf
urðu þegar ég var ráðinn til sjón-
varpsins og var sendur til danska
sjónvarpsins í starfsnám ásamt
öðrum til undirbúnings fyrir út-
sendingar hér heima. Ég starfaði
svo sem deildarstjóri hjá sjónvarp-
inu fram til 1974 en hóf þá að gera
kvikmyndir af ýmsum toga og hef
starfað við það síðan.“
Jón tók þátt í íslenska kvik-
myndavorinu og framleiddi fyrst
myndina Land og syni eftir sögu
Indriða Þorsteinssonar. „Þar sem
hún gerði nokkra lukku framleiddi
ég myndina Útlagann eftir Gísla
sögu Súrssonar. Þá tóku við
gamanmyndir í léttum dúr, Nýtt
líf, Dalalíf o.s.frv. Eftir það sneri
ég mér að ýmiss konar fræðslu- og
heimildarmyndum. Mesta átakið á
því sviði var jarðfræðimyndaröðin
Hin rámu regindjúp, sem ég fram-
leiddi með Guðmundi heitnum Sig-
valdasyni, en Regindjúpin hafa ver-
ið sýnd um allan heim. Ætli hafi þó
ekki farið fyrir mér eins og enskir
segja: „Jack of many trades and
master of none.“
Margt er minnisstætt frá þessum
kvikmyndagerðarárum en líklega
ber hæst fyrstu verðlaunin sem ég
Ég er að kynna mér sykur-, papp-
írs- og alkóhólframleiðslu hérna
samfara sykurreyrnum. Svo ekki sé
minnst á nautgriparæktunina, en
nautgripirnir ganga hérna sjálfala
um eins og sauðkindin okkar.“
Fjölskylda
Eiginkona Jóns var Kolbrún Jó-
hannesdóttir, f. 22.4. 1940, d. 18.6.
2002, verslunarstjóri. Foreldrar
hennar voru hjónin Jóhann Bjarna-
son, f. 17.6. 1909, d. 17.2. 1978, for-
Jón Hermannsson kvikmyndagerðarmaður – 80 ára
Með móður og systkinum Frá vinstri: Jón, Auður Auðuns, Árni, Margrét og Einar.
Íslenska kvikmyndavorið og fleira
Tveir á spjalli Jón og Dan Rather, fyrrverandi fréttamaður hjá CBS.
Morgunblaðið/Þorkell
Afmælisbarnið Jón Hermannsson.
50 ára Jón Benjamín
ólst upp í Neskaupstað
en býr í Reykjavík.
Hann er félags-
fræðingur og húsa-
smiður að mennt og
vinnur við eignaum-
sjón hjá Félagsstofnun
stúdenta. Hann er formaður Leikfélagsins
Peðsins og aðalleikritahöfundur félagsins.
Maki: Björk Þorleifsdóttir, f. 1974, sagn-
fræðingur og fræðslustjóri hjá Grasagörð-
um Reykjavíkur.
Systkini samfeðra: Karl, f. 1975, og Jón-
ína, f. 1980.
Foreldrar: Einar Jónsson, f. 1944, lög-
fræðingur, bús. í Reykjavík, og Hlín Aðal-
steinsdóttir, f. 1946, lífeindafræðingur,
bús. í Neskaupstað.
Jón Benjamín
Einarsson
Til hamingju með daginn
Kópavogur Árný Jökla Hákonardóttir
fæddist 10. desember 2018 kl. 17.28.
Hún vó 3.410 g og var 52 cm löng. For-
eldrar hennar eru Sandra Ýr Andrés-
dóttir og Hákon Þór Árnason.
Nýr borgari
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6