Morgunblaðið - 16.11.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 16.11.2019, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Tungumál eruheillandi fyrir- bæri og stórbrotin, jafn ólík og þau eru mörg. Tungumál kvikna og þau deyja út. Latínan hvarf og þó var hún tungumál heimsveldis, sameiginlegur samskiptamiðill manna með mörg móðurmál og þó nokkur mál sprottin af hennar meiði. Jafnt og þétt fækkar þeim málum sem töluð eru í veröld- inni. Fjöldi tungumála hefur sogast niður í hringiðu tímans og mörg eru við það að hverfa. Þeirrar tilhneigingar gætir að segja að íslenskan sé komin á tæpasta vað. Ýmislegt má tína til því til stuðnings. Í miðbæ Reykjavíkur er enska orðin æði aðgangshörð á skilt- um, auglýsingum og í heitum öldurhúsa og verslana. Íslenskan á ekki tryggan sess í heimi snjalltækjanna og spurt er hvaða afleiðingar það muni hafa þegar fram í sækir. Þorri tölvuleikja er á ensku og þeg- ar þeir eru til um- ræðu fara samtöl barna iðulega fram á ensku. Á hinn bóginn verður ekki annað sagt en að íslenskan sé full af þrótti og krafti þessa dagana. Útgáfa er sem aldrei fyrr, ljósvakamiðlar iða af efni, ekki bara þeir stóru, heldur einnig í rótinni. Ef til vill glatast skilningur á göml- um orð- og hugtökum, en ný taka við og bera því vitni að það er ekki bara lífsmark með íslenskunni, hún er sprelllif- andi. Dagur íslenskrar tungu er í dag. Það var við hæfi að halda hann á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Um leið og þessi dagur gefur tilefni til þess að gefa gaum að stöðu tungunnar og hvernig megi efla hana, má ekki gleyma því að dagur íslenskrar tungu er á hverjum degi. Sótt er að íslensk- unni úr ýmsum átt- um, en um leið iðar hún af lífi} Staða íslenskunnar Hvenær erhringtorghringtorg og hvenær er hringtorg ekki hringtorg? Þessi spurning hefur þvælst fyrir borg- arkerfinu og svör- in ekki traustvekjandi. Tilefnið er framkvæmdir við Hagatorg á Melunum. Torgið er eitt það stærsta á landinu og blasa af því við Þjóðarbókhlaðan, Hótel Saga, Háskólabíó, Hagaskóli, Neskirkja og Melaskóli. Fram- kvæmdirnar lúta að því að þrengja götuna. Þar hafa einn- ig verið settar hraðahindranir auk þess sem komið hefur ver- ið fyrir strætóstoppistöð. Þar vandast málið. Í gömlu umferðarlögunum frá 1987 kemur orðið hringtorg aðeins fyrir einu sinni, í 28. grein. Þar segir að eigi megi stöðva öku- tæki eða leggja því á hring- torgi. Ný umferðarlög voru sam- þykkt í sumar og taka þau gildi um áramótin. Þar er öllu meira að finna um hringtorg, meðal annars svohljóðandi skilgrein- ingu: „Vegamót þar sem hring- laga svæði er í miðjunni með akbraut umhverfis.“ Í nýju lögunum eru skilgreiningar á því hvernig eigi að aka í hring- torgi og hver eigi réttinn. Ákvæðið í gömlu lögunum er síðan óbreytt. Áfram gildir að eigi megi stöðva ökutæki eða leggja því á hringtorgi. Það er því ljóst að stoppi- stöðvar eiga ekki heima í hringtorgum. Fyr- irhuguð stoppistöð á Hagatorgi er ekki eina dæmið. Um árabil hefur verið stoppistöð á hringtorgi í Há- degismóum. Árni Frið- leifsson, aðalvarðstjóri í um- ferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði lagagreinina alveg skýra og enga undanþágu heimila í sam- tali við Morgunblaðið á fimmtudag. „Menn geta ekki leyft sér að búa til þær að- stæður að ökumenn fái sekt vegna þess að vagnstjórar þurfa að stoppa. Bílstjórinn fær jú sektina en ekki veghald- ari sem í þessu tilviki er Reykjavíkurborg.“ Borgin lítur þetta öðrum augum. „Þetta er ekki hring- torg, heldur akbraut. Þetta er vissulega torg, en ekki endi- lega hringtorg þó að það liggi í hring,“ var haft eftir Bjarna Brynjólfssyni, upplýsinga- stjóra Reykjavíkurborgar, í Morgunblaðinu í gær. Frekar en að fjarlægja stoppistöðina vegna þess að hún samræmist ekki lögum bregður borgin á það ráð að endurskilgreina torgið. Þetta eru vitaskuld ekkert annað en undanbrögð, en ættu ekki að koma á óvart. Í tíð núverandi meirihluta virðist aldrei koma til greina að rétta kúrsinn, að- eins er boðið upp á undan- brögð og þrotlausar vífilengj- ur. „Þetta er ekki hring- torg, heldur akbraut. Þetta er vissulega torg, en ekki endi- lega hringtorg þó að það liggi í hring.“} Hringavitleysa Á sakanir á hendur sjávarútvegsfyr- irtækinu Samherja vekja sorg og reiði. Fyrirtækið virðist hafa beitt mútum til að komast yfir veiði- heimildir fátækra þróunarríkja með veika innviði. Í samvinnu við spillta heima- menn er Samherjasamsteypan grunuð um að hindra bláfátækt heimafólk í Afríkulöndum í að njóta afraksturs af þeim auðlindum sem þetta fólk á með réttu. Síðan virðist Samherji hafa flutt hagnaðinn burt úr þessum löndum og komið honum í skattaskjól. Vissulega er það svo að enginn skal úrskurð- aður sekur fyrr en rannsókn hefur farið fram og dómar kveðnir upp. Augljóst er að Samherji þarf að útskýra og sanna bæði margt og mikið ef takast á að hreinsa nafn og orðstír fyrirtækisins og stjórnenda þess. En meira liggur þó undir. Samherji er fjölþjóða fyrirtæki með starfsemi í mörgum löndum, svo sem í Bretlandi og Þýskalandi og í Noregi og Færeyjum. Auk þess er það eitt stærsta sjávarútvegsfyr- irtæki Íslands og á eignarítök í margvíslegum öðrum rekstri hér á landi. Hugsanleg afbrot og misbeiting á veg- um þessa fyrirtækis er ekkert einkamál eigenda þess. Þetta varðar alla íslensku þjóðina. Orðspor okkar á al- þjóða vettvangi er í húfi. Stjórnvöld verða nú að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að bjarga því sem bjargað verður fari allt á versta veg. Þar skipta heilindi og hugs- anleg hagsmuna- og vinatengsl máli. Sjávarútvegs- ráðherra þarf að meta stöðu sína. Samherjahneykslið er hið síðasta í langri röð ömurlegra mála sem orða má við alvarlega spillingu. Hrunið 2008 með öllum þeim ljótleika sem þar kom fram og eyðilagði líf þúsunda saklausra Íslendinga. Panama-skjölin og Wintris-mál núverandi formanns Miðflokksins sem kostaði hann forsætisráðherrastólinn. Djöflamessa Miðflokksins á Klaustri fyrir ári hvar opinber- aðist hvernig flokkar hafa notað sendiherra- stöður sem skiptimynt í valdabitlingum. Gjald- þrot WOW-flugfélagsins þar sem öll kurl eru vart komin til grafar. Grái listinn. Og nú Sam- herjamálið. Öll þessi dæmi hafa orðið tilefni fjölmiðlaumfjöllunar og hneykslunar á alþjóða vettvangi þar sem orðspor Íslands og Íslend- inga hefur beðið hnekki. Ég er búin að fá nóg af þessum síendur- teknu uppákomum þar sem við venjulegir Íslendingar horfum ofan í ógeðslegan pott spillingar sem við eigum enga sök á. Það er eitthvað mikið að í okkar samfélagi. Kvótakerfið olli siðrofi: Frjálst framsal aflaheimilda, græðgi og misskipting þjóðarauðs þar sem örlítill hluti þjóðarinnar fékk gríðarleg auðæfi á silfurfati sem þau hafa fénýtt af miskunnarleysi í garð samborgara sinna, og velt- ast nú um í vellystingum meðan stærstur hluti lands- manna býr við basl og örbirgð. Við þurfum endurreisn; – siðbót í atvinnu- og stjórn- málalífi, nýja vendi og nýjar leikreglur við stjórn þjóð- félagsins okkar. Flokkur fólksins er reiðubúinn að taka þátt í slíku starfi. Inga Sæland Pistill Spillingarmælirinn er fullur Höfundur er þingmaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegaframkvæmdirnar semlagt er til að unnar verðisem samvinnuverkefni rík-is og einkaaðila eru afar mismunandi að stærð og gerð og eiga fátt sameiginlegt annað en að vera samgöngumannvirki. Þannig gæti Sundabraut með tilheyrandi göngum kostað 60 til 74 milljarða en Axarveg- ur kostar ekki nema fjóra milljarða. Samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðuneytið hefur kynnt drög að frumvarpi Sigurðar Inga Jóhanns- sonar samgönguráðherra um sam- vinnuverkefni um vegaframkvæmdir í samráðsgátt stjórnvalda og gefið kost á umsögnum. Með samvinnu- verkefni, öðru nafni einkafram- kvæmd eða verkefnafjármögnun, er átt við að einkaaðili annast fjár- mögnun í heild eða á móti ríkinu og annist áætlanagerð, hönnun, upp- byggingu mannvirkja, viðhald og rekstur mannvirkisins í tiltekinn tíma, til dæmis 15 til 30 ár. Umrætt fyrirtæki fái jafnframt heimild til að innheimta gjald af umferðinni til að standa undir þessum kostnaði að hluta eða öllu leyti. Gjaldtaka er þó ekki heimil fyrr en framkvæmd lýkur og mannvirkið hefur verið opnað fyr- ir almenna umferð. Hugmyndin er að í sumum framkvæmdanna sem til- teknar eru verði farin blönduð leið. Ríkið leggi til ákveðið fjármagn auk þess fjár sem gert er ráð fyrir að öku- menn greiði. Tilgangurinn er að flýta góðum samgöngubótum sem full þörf er á enda hefur umferð aukist mjög, með- al annars vegna fjölgunar ferða- manna, og álag á vegina í sama hlut- falli. Fjármagn sem ríkið leggur í samgöngur dugar engan veginn til að fullnægja þörfinni. Sem dæmi um það má nefna að í samráðsgáttinni kemur fram að Vegagerðin telur nauðsynlegt að fara í um 200 verkefni á næsta aldarfjórðungi sem áætlað er að kosti yfir 400 milljarða króna. Veggjöld eða blönduð leið Starfshópur samgönguráðherra sem fjallaði um forgangsröðun fram- kvæmda og nýjar leiðir til fjármögn- unar þeirra lagði til að efnt yrði til samvinnuverkefna um stórar og vel skilgreindar nýframkvæmdir. Sundabraut og Hvalfjarðargöng voru nefnd sem dæmi um það. Í frum- varpsdrögum ráðherra er fjórum minni verkefnum bætt við. Það eru Hringvegur norðaustan við Selfoss með brú á Ölfusá, Hringvegur um Hornafjarðarfljót, Axarvegur sem liggur á milli Skriðdals á Fljótsdals- héraði og Berufjarðar og Hringvegur um Mýrdal með jarðgöngum í Reyn- isfjalli. Í öllum tilvikum hafa vegfar- endur aðra leið til að velja, eins og talið er æskilegt þar sem gjaldtöku er krafist, og allar hafa framkvæmd- irnar í för með sér aukið umferðar- öryggi. Undirbúningur er mislangt á veg kominn og í einu tilviki eru undir- búningsframkvæmdir hafnar, það er að segja við veginn um Hornafjarðar- fljót. Sundabraut dýrust Sundabraut er langmesta fram- kvæmdin. Áætlað er að kostnaður við hana verði 60 til 74 milljarðar króna. Tvöföldun Hvalfjarðarganga er einn- ig dýr framkvæmd; áætlað er að hún kosti tæpa 22 milljarða. Ný brú á Ölf- usá við Selfoss og vegir beggja vegna kostar rúma sex milljarða. Hring- vegur um Mýrdal með jarðgöng í Reynisfjalli gæti kostað 6,5-8 milljarða. Hringvegur um Hornafjarðarfljót kostar tæpa fimm milljarða, samkvæmt áætlun, og Axarvegur fjóra milljarða. Opnað á samvinnu um sex ólík verkefni Tekið er fram í athugasemdum með frumvarpsdrögunum að samgönguráðuneytið kannar nú, í samvinnu við Vegagerðina, for- sendur fyrir því að áformuð jarð- gangauppbygging á Austurlandi muni fara fram í samvinnu við einkaaðila. Verði þetta frumvarp að lögum mun ráðherra leggja til við Alþingi að bæta nýjum fram- kvæmdum við, eins og þessum jarðgöngum. Í drögum að endur- skoðaðri samgönguáætlun er gert ráð fyrir að framkvæmdir við Fjarðarheiðargöng til Seyðis- fjarðar hefjist á árinu 2022 og í framhaldi af þeim verði síðan ráð- ist í gerð jarðganga á milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar (Seyðis- fjarðargöng) og Mjóa- fjarðar og Fannardals (Mjóafjarð- argöng). Sama aðferð við jarðgöng? SAMGÖNGURÁÐUNEYTI Sigurður Ingi Jóhannsson Samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir Hringvegur norðaustan Selfoss og brú á Ölfusá Axarvegur Sundabraut Tvöföldun Hvalfjarðarganga Samkvæmt drögum að frumvarpi um samvinnu opinberra aðila við einkaaðila um vegaframkvæmdir og gjaldtöku vegna þeirra Hringvegur um Mýrdal og jarðgöng í Reynisfjalli Hringvegur um Hornafjarðarfl jót

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.