Morgunblaðið - 16.11.2019, Side 37

Morgunblaðið - 16.11.2019, Side 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019 Þegar ég fékk símtal 27. október þar sem Sólveig sagði mér að Steini hefði látist þá um morguninn get ég ekki sagt að það hafi komið á óvart þar sem ég hafði verið í sambandi við þau í gegnum veik- indastríð hans. Fyrstu kynni okkar voru þeg- ar ég flutti á Kirkjuveginn 1953 eða 1954 en Steini átti þá heima hinum megin við götuna. Fáum árum seinna fluttum við báðir í hinn enda bæjarins sem þá var kallað að flytja upp á hæð en þar ólumst við upp að mestu leyti í nágrenni hafnarinnar. Seinna fluttum við svo báðir til Hafnar- fjarðar og alla tíð síðan héldum við sambandi þegar báðir voru á sama svæði. Á þessu bryggjurölti kynnt- umst við mörgum sjómönnum og áhugi okkar á bátum og öllu sem viðkom sjávarútvegi kviknaði sem varð til þess að stór hluti af þeim vinahópi sem þarna mynd- aðist starfaði seinna við sjávar- útveg. Ungur fór Steini á sjó og var á ýmsum fiskibátum. Fyrstu árin man ég eftir honum á Sigurpáli, Manna, Árna Þorkelssyni, Kefl- víkingi og Viðey. Alltaf talaði hann af virðingu um þá skipstjóra og skipsfélaga sem hann var með á fiskibátum. Hluti af þessu öllu var mikil viðvera um borð í Eld- ingu sem varð til þess að Steini fór seinna á sjó með Hafsteini. Síðan fóru þeir vinirnir hann og Árni Vikarsson báðir í Stýri- mannaskólann og að því loknu ákvað Steini að fara til starfa hjá Landhelgisgæslunni. Hjá Gæslunni starfaði hann svo í 50 ár og allan þann tíma Sigurður Steinar Ketilsson ✝ Sigurður Stein-ar Ketilsson fæddist 3. mars 1948. Hann lést 27. október 2019. Útför Sigurðar Steinars fór fram 5. nóvember 2019. slakaði hann aldrei á varðandi áhuga sinn á öllu sem við- kom sjómennsku, hann kunni sögu skipa og skipstjóra við fiskveiðar aftur á bak og áfram ásamt því að kunna deili á nánast öllum sjóslysum a.m.k frá árinu 1900. Ásamt mörgum áhugamálum, s.s. ferðalögum innan lands og utan, sundi og allri hreyfingu og félagsstarfi í þágu sjómanna, þá var áhugi hans og þekking í ættfræði með ólík- indum. Alveg frá bernsku var Steini algjört snyrtimenni og minnist ég þess að einhvern tíma keyptum við okkur báðir hvít föt og vorum eins og tvíburar sem oft voru klæddir eins og í öllu okkar brasi á þessum tíma þá sást aldrei blettur á þessum hvítu fötum hans en þessi snyrtimennska ein- kenndi hann alla ævi. Steini kynntist Sólveigu eigin- konu sinni á síldarárunum á Norðfirði og einkenndist þeirra samband af allri þeirra reglu- semi, snyrtimennsku og mann- gæsku sem þau voru mjög sam- taka í. Við skrif á minningarorðum koma endalaust upp atvik og minningar sem vert er að minn- ast en það sem helst stendur upp úr með Steina er reglusemin, ag- inn og það sem ég vil kalla ábyggilegheit og góða sjálfsvirð- ingu, hann var alla tíð trúr og hreinskiptinn og kom alltaf fram af virðingu við annað fólk, sýndi öðru fólki alltaf áhuga og byrjaði þá venjulega á ættfræðinni. Að lokum get ég aðeins sagt að þín verður sárt saknað og er það undarlegt að þú og Árni séuð báðir farnir, en kannske hittist þið á öðru tilverustigi. Ég sendi ykkur, Sólveig, Bald- ur, Hildur og Ketill ásamt barna- börnum, samúðarkveðjur. Gunnar Alexandersson. Núna er góður vinur fallinn frá og langar mig að skrifa nokkur orð um okk- ar vináttu. Við byrjuðum að vinna saman á bæjarskrifstof- unni 1. júní 1981 og unnum sam- an þar þangað til Tryggvi hætti störfum 2018. Tryggvi var alltaf virkilega duglegur að aðstoða mig í vinnunni, hvort sem það var þegar ég var sjálfur í vinnu eða sjá um verkin mín þegar ég þurfti að vera frá vinnu. Við brölluðum ýmislegt saman í gegnum árin. Sérstaklega er mér minnisstætt þegar hann átti afmæli eitt árið og ég gaf honum bleikan smekk þar sem hann var þekktur fyrir það að sulla mikið framan á sig. Tryggva þótti þetta mjög skemmtilegt og hló mikið þótt liturinn hafi ekki ver- ið hans uppáhalds. Einnig er mér mjög ofarlega í huga þegar ég setti mjög stóra mynd af Ólafi Ragnari forseta á tölvuna hjá honum, þá var mikið hlegið. Það var öruggt að þegar Tryggvi var á kaffistofunni þá flugu gull- Tryggvi Brandr Jóhannsson ✝ TryggviBrandr Jó- hannsson fæddist 10. apríl 1949. Hann lést 28. ágúst 2019. Útför Tryggva fór 7. september 2019. kornin upp úr hon- um og gladdi það alla mikið. Tryggvi var mjög traustur en stríðinn vinur sem alltaf var hægt að leita til. Hvíldu í friði kæri vinur og takk fyrir góða vin- áttu öll þessi ár. Þín verður sárt saknað. Í morgun sastu hér undir meiði sólarinnar og hlustaðir á fuglana hátt uppí geislunum minn gamli vinur en veist nú í kvöld hvernig vegirnir enda hvernig orðin nema staðar og stjörnurnar slokkna (Hannes Pétursson) Þinn vinur, Kristbjörn Óskarsson. HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GRÉTA JÓNSDÓTTIR, Reynimel 50, Reykjavík, lést sunnudaginn 3. nóvember á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 18. nóvember klukkan 13. Sigurður Erling Baldursson Þuríður Ellisif Baldursdóttir Jóhann S. Erlendsson Ingi Þór Vöggsson Baldur og Freyr Jónssynir Baldur Erling, Margeir Jón, María Sif og Hulda Hrönn Sigurðarbörn Arnar Páll og Jóhann Baldur Jóhannssynir og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og tengdasonur, GUNNAR TRYGGVI REYNISSON, Andrésbrunni 2, Reykjavík, lést á Landspítala við Hringbraut miðvikudaginn 6. nóvember. Útförin verður gerð frá Guðríðarkirkju mánudaginn 25. nóvember klukkan 13. Ingibjörg S. Frostadóttir Björg Valdís Gunnarsdóttir Ísak Logi Gunnarsson Tristan Freyr Gunnarsson Björg Rósa Thomassen Reynir Ásgeirsson Björg Valdís Hansdóttir Frosti Gunnarsson Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SUMARRÓS GARÐARSDÓTTIR, Rósa, prestsfrú frá Akureyri, lést mánudaginn 11. nóvember. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 18. nóvember klukkan 13.30. Jóhanna Erla, Birgir Snæbjörn og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, EVA KOLFINNA ÞÓRÓLFSDÓTTIR, Víkurhópi 25, Grindavík, lést miðvikudaginn 6. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Alma S. Guðmundsdóttir Kári Guðmundsson Axel R. Guðmundsson Sigríður L. Tómasdóttir Anton K. Guðmundsson Rebekka Ó. Friðriksdóttir Kristinn B. Þórólfsson og barnabörn Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, JÓN EMIL ÁRNASON, aðalvarðstjóri slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli, lést á Landspítalanum við Hringbraut 6. nóvember. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 22. nóvember klukkan 11. Elín Kjartansdóttir Hulda Kristín Jónsdóttir Magda María Jónsdóttir Bjarni Jónsson barnabörn og aðrir aðstandendur Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN KRISTINSDÓTTIR, áður til heimilis á Mávabraut 10b, Keflavík, lést á Hrafnistu Nesvöllum þriðjudaginn 12. nóvember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 21. nóvember klukkan 13. Hilmar Pétursson Kristinn Hilmarsson Sara Bertha Þorsteinsdóttir Aðalheiður Héðinsdóttir Hörður Hilmarsson Guðrún Finnsdóttir ömmu- og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN MAGNÚS EINARSSON bifreiðastjóri, lést á líknardeild Landspítalans 29. október. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Gyða Sigríður Siggeirsdóttir Freyja Magnúsdóttir Pétur Þór Jónasson Jóna Magnea Magnúsdóttir Sigurður Óli Sumarliðason Sigrún Inga Magnúsdóttir Sigurður Þór Sigurðsson Einar Bjarni Magnússon Elsa Theódóra Bjarnadóttir Soffía Magnúsdóttir Sveinn Pálsson Siggeir Magnússon Guðný Gunnsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Faðir okkar, GUNNAR GUNNARSSON, Höfða, Akranesi, lést sunnudaginn 3. nóvember. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Gunnar H. Gunnarsson Ragnar Gunnarsson Elsku strákurinn okkar, GABRÍEL JAELON SKARPAAS CULVER, lést 9. nóvember. Útförin fer fram frá Langholtskirkju 22. nóvember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Píeta-samtökin. Eva Skarpaas Þórólfur Ingi Þórsson og fjölskylda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Sigurður Bjarni Jónsson umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Listamaðurinn NONNI RAGNARSSON verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 19. nóvember klukkan 16. Aðstandendur og vinir NONNA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.