Morgunblaðið - 16.11.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Sjá nánar á
kronan.is/
jolahlaðborð
Þorsteinn Ásgrímsson
Magnús Heimir Jónasson
Engar útskýringar hafa komið fram
á millfærslum upp á samtals 1.600
milljónir króna frá fjárfestingafélag-
inu Gnúpi, í tengslum við þátttöku
þáverandi forstjóra þess, Þórðar Más
Jóhannessonar í félaginu.
Aðalmeðferð fór nýlega fram í
skaðabótamáli í Héraðsdómi Reykja-
víkur þar sem farið var fram á sam-
tals 2,3 milljarða króna skaðabætur
vegna háttsemi stjórnenda Gnúps ár-
ið 2006. Þar kom meðal annars fram í
skýrslutökum yfir Þórði Má og Helga
Arnarsyni, endurskoðanda Gnúps, að
þeir könnuðust ekkert við viðskiptin,
en millifærslurnar áttu sér stað degi
eftir að Þórður greiddi inn tveggja
milljarða hlutafé sitt í félagið. Tölvu-
póstsamskipti sýna hins vegar að
Helgi þekkti vel til viðskiptanna.
Gnúpur var fjárfestingarfélag sem
var stofnað árið 2006. Eignarhaldið
var á höndum þriggja hópa. Fyrst
var það Magnús Kristinsson sem átti
ásamt fjölskyldu sinni 46,5% í félag-
inu. Þá áttu félög í eigu Kristins
Björnssonar og þriggja systra hans
46,4% og Þórður Már Jóhannesson
átti 7,1%. Stofnun félagsins var þó
öllu flóknari en að þessir aðilar hafi
lagt til fjármagn í hlutfalli við eign-
arhlutinn og um það snýst m.a. dóms-
málið.
Stefnandi í málinu er félagið Lyfja-
blóm, en það var móðurfélag utan um
eignir Kristins Björnssonar og fjöl-
skyldu og hét áður Björn Hallgríms-
son ehf., í höfuðið á föður systkin-
anna. Var félagið í jafnri eign
Kristins og systranna þriggja og öll
sátu þau í stjórn félagsins. Síðar urðu
breytingar á eignarhaldi félagsins.
Stofnað fyrir 13 árum
Saga Gnúps byrjar á því að félagið
AB 36 ehf. var stofnað af Þórði Má
fyrri hluta ársins 2006. Strax eftir
stofnun var nafni félagsins breytt í
Þúfubjarg. Í október 2006 kaupa fé-
lögin MK-44 og Suðurey annars veg-
ar og SK II og SKE II hins vegar
þetta eignalausa félag á 1,6 milljarða
af Þórði og eiga því 50% hlut hvort
um sig.
Fyrrnefndu félögin voru í eigu
Magnúsar og fjölskyldu, en hin síð-
arnefndu í eigu Kristins og fjöl-
skyldu. Greiddu félögin 800 milljónir
hvort, en fjölskyldufyrirtæki Kristins
fengu þessa upphæð að láni frá
Glitni.
Lögðu fjölskyldurnar svo eignir
sínar í Kaupþingi og FL Group inn í
hið nýja félag, en það voru eignir upp
á tugi milljarða.
Samhliða þessum viðskiptum fær
félagið Brekka II, sem var í eigu
Þórðar, að kaupa sig inn í nýja félagið
(sem átti eftir að verða að Gnúpi) fyr-
ir tvo milljarða. Barst sú upphæð í
þremur greiðslum inn á reikning fé-
lagsins og var Þórður ráðinn forstjóri
hins nýja félags.
Daginn eftir innborgun hlutafjár
Þórðar Más greiðir hins vegar Gnúp-
ur samtals 1.600 milljónir til baka til
þessara fjögurra félaga sem svo
greiða Glitni lánsupphæðina, 800
milljónir frá félögum hvorrar fjöl-
skyldu, sem þau notuðu til að kaupa
Þúfubjarg ehf af Þórði Má.
Hagnaður og hrun
Eitt ár líður og eignir Gnúps
hækka gríðarlega og félagið skilar
1,9 milljarða hagnaði árið 2006.
Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins
2007 var samkvæmt árshlutareikn-
ingi 12,7 milljarðar og heildareignir
90,4 milljarðar og 49% eiginfjárhlut-
fall.
Þegar líður á árið 2007 fara hins
vegar óveðursský að hrannast upp og
er óskað eftir að eigendur leggi til
aukið hlutafé sem innspýtingu vegna
lausafjárskorts. Eigendurnir sam-
þykktu það, en sjö vikum síðar, í jan-
úar 2008, var félagið komið í þrot og
gert var samkomulag við lánar-
drottna félagsins. Tók bankinn yfir
stjórnun Gnúps, en í samkomulaginu
er þó ítrekað tekið fram að ekki verði
farið fram á gjaldþrot þess. Þá geng-
ust þeir Magnús, Kristinn og Þórður
í persónulega ábyrgð fyrir að 1,6
milljarða eignir væru í félaginu, þrátt
fyrir að um skuldir hlutafélags með
takmarkaða ábyrgð væri að ræða. Á
móti lýsti Glitnir yfir að bankinn
myndi fyrirgera rétti til skaðabóta á
hendur stjórnendum Gnúps. Hefur
mbl.is áður fjallað ítarlega um þau
mál og sögu Gnúps.
Bankinn hafði einnig tekið yfir fé-
lagið Björn Hallgrímsson og fluttist
það yfir í slitabú Glitnis eftir fall
bankans. Systursonur Kristins fékk
að kaupa félagið og stendur það nú í
málaferlunum. Er sjónum sérstak-
lega beint að þessum 1.600 milljóna
millifærslum, sem í tilfelli fjölskyldu
Kristins nema 800 milljónum. Er far-
ið fram á Þórður Már og Sólveig Pét-
ursdóttir, fyrrverandi ráðherra sem
situr í óskiptu búi eftir Kristin, greiði
sameiginlega 800 milljónir vegna
þeirra.
Viðskiptaflétta
Í stefnu málsins er viðskiptafléttan
sögð hafa verið sett upp til að láta
móðurfélagið (Björn Hallgrímsson
ehf.) fjármagna hlutafjárframlag
Þórðar Más með þeim hætti að eigið
fé Þúfubjargs (síðar Gnúps) hafi í
raun verið minna en gefið var upp og
þetta hafi þynnt hlut annarra eigenda
sem nam endurgreiðslunni. Allt hafi
þetta verið gert án vitnesku annarra
eigenda móðurfélagsins en Kristins.
Þá er vísað til þess að 800 milljóna
lánveitingin hafi hvorki verið tekin
upp í stjórn né bókuð í bókhaldi fé-
lagsins.
Í annarri dómkröfu stefnunnar er
svo farið fram á 1,5 milljarða bætur
vegna skorts á upplýsingum í
tengslum við hlutafjáraukninguna í
lok árs 2007. Segir að Þórður Már,
sem þáverandi forstjóri, og Kristinn,
sem þáverandi stjórnarformaður fé-
lagsins, hafi borið ábyrgð á því að
ekki hafi verið veittar réttar upplýs-
ingar um fjárhagsstöðu og áhættu
Gnúps, meðal annars þar sem ekki
var gerð grein fyrir stöðu tugmillj-
arða afleiðusamninga. Þessar upplýs-
ingar hafi hvorki verið færðar með
réttum hætti í ársreikningi ársins
2006 né árshlutareikningi fyrri hluta
ársins 2007. Segir í stefnunni að allt
fjármagnið sem kom inn í hlutafjár-
aukningunni hafi svo farið í allt annað
en að bæta lausafjárstöðuna, þ.e. að
það hafi farið í að styrkja fjárhag fé-
lagsins FL Group.
Gátu ekki útskýrt millifærslur
Við aðalmeðferð málsins fyrir hér-
aðsdómi í lok október sagðist Þórður
Már ekki geta útskýrt millifærslurn-
ar og sömu sögu er að segja um
Helga Arnarson, endurskoðanda
KPMG sem var endurskoðandi
Gnúps, bæði fyrir og eftir að Glitnir
tók félagið yfir. Hafði hann þó skrifað
upp á að Þórður Már hefði greitt
tveggja milljarða hlutafjárloforð sitt
án þess að taka fram að 1.600 millj-
ónir hafi farið beint aftur af reikningi
Gnúps
Í tölvupóstum sem mbl.is hefur
undir höndum og eru á milli Helga og
bókara Magnúsar Kristinssonar, sem
var hinn þátttakandinn í fléttunni, er
hins vegar ljóst að Helgi þekkti til
þeirrar ráðstöfunar sem áformuð
var. „MK og Smáey keyptu 50% hlut
í Gnúp af Brekku fyrir 800 millj. kr.
og fengu skammtímalán í Glitni.
Gnúpur gerði svo lánin upp þegar bú-
ið var að ganga frá hlutafjáraukning-
unni,“ segir í tölvupósti frá Helga
þegar hann útskýrir skammtímalán í
bókum MK-44.
Krefjast 2,3 milljarða bóta
Skaðabótamál rekið vegna viðskipta með hlutafé fjárfestingarfélagsins Gnúps árin 2006 og 2007
Morgunblaðið/Golli
Höfuðstöðvar Kaupþings Fjárfestingarfélagið Gnúpur átti um tíma stóran hlut í bönkunum Kaupþingi og Glitni og einnig yfir 20% hlut í FL Group.