Morgunblaðið - 16.11.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.11.2019, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti íslensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni 2020 með þetta að markmiði. Skilafrestur umsókna er til kl. 20, 2. desember 2019. Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið avs@byggdastofnun. is og bréflega á póstfangið Byggðastofnun v/AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Ártorgi 1, 550 Sauðárkrókur. Vakin er athygli á því að umsóknum þarf bæði að skila rafrænt og bréflega. Styrkir sem sjóðurinn veitir falla undir tvo flokka: a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þróunar- verkefna, sem falla að markmiðum sjóðsins. Veittur er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera grein fyrir verkþáttum og fjármögnun. Hver styrkur getur numið allt að tólf milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verk- efna (framhaldsverkefna), sem unnin eru á lengri tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um styrk á hverju ári. Hafi verkefnið áður verið styrkt, þarf að gera grein fyrir framvindu þess áður en styrkumsókn er afgreidd. b. Smá- eða forverkefni Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða til að undirbúa stærri verkefni á sviði rannsókna og/eða þróunar. Styrkupphæð getur numið allt að þremur milljónum króna og skal verkefnið unnið innan tólf mánaða. Um alla styrki gildir að framlag sjóðsins má ekki fara fram yfir 50% af heildarkostnaði og sjóðurinn tekur ekki þátt í að styrkja fjárfestingar Nánari upplýsingar og umsóknarblað er að finna á heimasíðu sjóðsins www.avs.is AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi ∙ Ártorgi 1 ∙ 550 Sauðárkrókur ∙ sími 455 5400 ∙ www.avs.is AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi starfar á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi auglýsir eftir umsóknum 16. nóvember 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.53 125.13 124.83 Sterlingspund 160.1 160.88 160.49 Kanadadalur 93.84 94.38 94.11 Dönsk króna 18.321 18.429 18.375 Norsk króna 13.533 13.613 13.573 Sænsk króna 12.803 12.879 12.841 Svissn. franki 125.91 126.61 126.26 Japanskt jen 1.1455 1.1523 1.1489 SDR 170.86 171.88 171.37 Evra 136.92 137.68 137.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.9708 Hrávöruverð Gull 1467.65 ($/únsa) Ál 1755.5 ($/tonn) LME Hráolía 62.61 ($/fatið) Brent ● Hagfræðideild Landsbankans spáir óbreyttu gildi vísitölu neysluverðs, VNV, milli mánaða, í fréttabréfi sínu Hagsjá. Þar segir einnig að Hag- stofan muni birta nóvembermælingu vísitölunnar mið- vikudaginn 27. nóvember nk. „Gangi spáin eftir lækkar verðbólgan úr 2,8% í 2,5%. VNV hækkaði um 0,36% milli mánaða í október,“ segir í Hagsjánni. Þar segir einnig að það sé nokkuð meiri hækkun en deildin hafi átt von á, en spáð hafi verið hækkun upp á 0,2%. „Skýrðist hækkunin umfram spá okkar nær eingöngu af að reikn- uð húsaleiga hækkaði mun meira milli mánaða en við áttum von á.“ Hagfræðideildin á von á að flug- fargjöld lækki minna milli mánaða nú en síðustu tvö ár. „Gangi spá okkar eftir verður um 6% dýrara að fljúga til útlanda en fyrir ári.“ Spá óbreyttu gildi vísitölu neysluverðs Flug LÍ spáir minni lækkun miðaverðs. STUTT magna lífeyrissjóðakerfi sín með álagningu skatta eða trygginga- gjalda. Við samanburð á hlutfalli skatta og tryggingagjalda sem hlut- falli af landsframleiðslu þarf að taka tillit til þessa. Samanburður án þessa þáttar, þ.e. tryggingagjaldsins, sýnir enda nokkuð aðra mynd,“ segir Gunnar Axel í samtali við Morgun- blaðið. Sé litið til nágrannalandanna sést að Ísland er töluvert fyrir neðan skattgreiðsluhlutfall þeirra. Hlutfall skattgreiðslna og félagslegra fram- laga nam 45,9% af vergri landsfram- leiðslu í Danmörku, 44,4% í Svíþjóð og 40,2% í Noregi. Myndin allt önnur Að sögn Gunnars Axels er myndin þó allt önnur þegar eingöngu eru bornir saman skattar að frátöldu tryggingagjaldinu, sem hlutfall af landsframleiðslu. Þá er Ísland í þriðja efsta sæti og nokkuð fyrir ofan meðaltal Evrópusambandsins. Þar nemur skattgreiðsluhlutfall Íslands tæplega 34%, og aðeins Danir, rúm- lega 40% og Svíar, um 45%, með hærra hlutfall. Engu að síður hefur skattbyrðin á Íslandi verið lægri en á öðrum Norðurlöndum undanfarin ár að því er fram kemur í svari fjár- málaráðuneytisins til Morgunblaðs- ins „en þó í hærri kantinum miðað við Evrópuríkin almennt“. Ísland er raunar á meðal þeirra landa innan Evrópska efnahagssvæðisins alls þar sem skattbyrðin lækkar hvað mest á milli ára, eða um 0,7%, á meðan skattbyrðin í Noregi hækkaði á frá 2017 og 2018 um 1,1%. Skattbyrði nokkuð minni hér en í Skandinavíu Hlutfall skatta og félagslegra framlaga í Evrópu 2018 Hlutfall af vergri landsframleiðslu (VLF) 50% 40% 30% 20% 10% 0% Fr ak kl an d D an m ör k B el gí a Sv íþ jó ð Au st ur rík i Fi nn la nd Íta lía G rik kl an d Ev ru sv æ ði ð Þý sk al an d Lú xe m bo rg N or eg ur ES B H ol la nd Kr óa tía Sl óv en ía U ng ve rja l. Po rt úg al Ís la nd Pó lla nd Té kk la nd B re tla nd Sp án n Sl óv ak ía Ký pu r Ei st la nd M al ta Le tt la nd Li th áe n B úl ga ría Sv is s Rú m en ía Ír la nd Tryggingagjald Skattar á tekjur og eignir Skattar á vörur og þjónustu Heimild: Hagstofa Íslands  Tölur um skattbyrði frá Hagstofu ESB skekkjast vegna skilgreininga BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Hlutfall skattgreiðslna af vergri landsframleiðslu (VLF), nam 40,3% að meðaltali í löndum Evrópusam- bandsins árið 2018 og hækkar lítil- lega frá því sem var árið á undan er talan stóð í 40,2%. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Evrópusam- bandsins. Tölurnar byggjast á sam- anlögðum skattgreiðslum og fé- lagslegum framlögum, eða tryggingagjöldum, (e. sum of taxes and net social contributions). Ísland er töluvert fyrir neðan meðaltal Evr- ópusambandsríkja og stóð hlutfallið á Íslandi í 36,9% á árinu 2018. Ástæð- una má rekja til þess að stærstur hluti framlaga í lífeyrissjóði sem greidd eru hér á landi fellur ekki undir tryggingagjöld samkvæmt hin- um evrópska þjóðhagsreikninga- staðli, að sögn Gunnars Axels Axels- sonar, deildarstjóra deildar þjóðhagsreikninga og opinberra fjár- mála hjá Hagstofu Íslands. Skyldu- bundin iðgjöld launþega og launa- greiðenda í lífeyrissjóði eru því ekki inni í þessum tölum þar sem lífeyr- issjóðirnir eru ekki opinberir aðilar og hið opinbera ábyrgist almennt ekki réttindi þeirra sem í þá greiða. „Á Íslandi er stærstur hluti lífeyriskerfisins fjármagnaður með iðgjöldum sem ekki eru skilgreind sem skattar eða tryggingagjald sam- kvæmt alþjóðlegum þjóðhagsreikn- ingastöðlum á meðan mörg ríki sem við berum okkur saman við fjár- Íslenski hluta- bréfamarkaður- inn mun eignast fulltrúa í norrænu „VINX Bench- mark“ vísitölunni þegar Marel verð- ur tekið inn í hana frá og með 2. des- ember nk. sam- kvæmt tilkynn- ingu frá vísitöludeild Nas- daq. Í VINX-vísitöluna eru valin stærstu félögin á öllum norræna markaðnum og þau félög sem hafa mestan seljanleika innan sinnar at- vinnugreinar. Samsetning vísitöl- unnar er endurskoðuð tvisvar á ári. VINX-vísitölurnar voru settar á lagg- irnar árið 2006 og eru fyrirtæki sem skráð eru í kauphöllum Nasdaq á Norðurlöndunum og í Osló Börs með í útreikningum. Vísitölurnar eru reiknaðar í öllum norrænum gjald- miðlum, þar með talið ISK. Tilgangur þeirra er að endurspegla verðþróun hlutabréfa á Norðurlöndunum með áreiðanlegum hætti og efla sýnileika þeirra fyrirtækja sem skráð eru á mörkuðum á Norðurlöndunum. Markaðsvirði Marel, sem einnig er skráð í kauphöllina í Amsterdam nemur tæpum 455 milljörðum kr. Marel inn í VINX- vísitöluna  Einnig horft til seljanleika bréfa Vísitala Marel verður hluti af VINX. Veiði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.