Morgunblaðið - 16.11.2019, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.11.2019, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019 Stjórn RÚV auglýsir laust starf útvarpsstjóra. Útvarpsstjóri hefur það hlutverk að framfylgja stefnu Ríkisútvarpsins og gæta hagsmuna þess í hvívetna. Leitað er að öflugum og reyndum leiðtoga til að stýra RÚV inn í nýja tíma miðlunar. Útvarpsstjóri starfar í umboði stjórnar. Ráðið verður í stöðuna til fimm ára og skal viðkomandi uppfylla hæfnisskilyrði skv. 5. mgr. 9.gr. laga um Ríkisútvarpið nr. 23/2013. RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla. Öflugt og samhent starfsfólk RÚV skoðar samfélagið með gagnrýnum hætti, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar. Útvarpsstjóri Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsjón með ráðningunni hafa Hilmar Garðar Hjaltason (hilmar.hjaltason@capacent. is) og Auður Bjarnadóttir (audur.bjarnadottir@ capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Reynsla af stjórnun og rekstri. • Leiðtogahæfileikar og góð hæfni í mannlegum samskiptum. • Skilningur og áhugi á nýjum miðlum. • Reynsla af stefnumótunarvinnu, nýsköpun og innleiðingu stefnu. • Þekking og reynsla af fjölmiðlun, menningar- og samfélagsmálum. • Góð tungumálakunnátta og góð hæfni til tjáningar í ræðu og riti. Starfssvið • Dagleg stjórnun og ábyrgð á rekstri félagsins. • Yfirumsjón og ábyrgð allrar dagskrárgerðar. • Stefnumótun og markmiðasetning. • Samskipti við hagaðila. • Alþjóðlegt samstarf. Umsóknarfrestur er til og með 2. desember nk. Sótt er um starfið á vef Capacent www.capacent.is capacent.is         – erum við með réttu manneskjuna Ráðgjafar okkar búa                  

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.