Morgunblaðið - 16.11.2019, Síða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2019
Myndlistarmennirnir
Sigurður Þórir Sigurðsson
og Sigurður Magnússon
opna málverkasýningu á
Laugavegi 74 í dag kl. 15.
„Sýna þeir u.þ.b. 25 nýlegar
myndir. Sigurður Þórir sýn-
ir geómetrískar abstrakt-
myndir með björtum og þétt-
um litum, hreint
afmörkuðum formum og
þrívíddargöldrum. Sigurður
Magnússon sýnir express-
jónísk abstraktmálverk,
litanotkunin opin og vísa form og litir til náttúrunnar.
Báðir luku listnámi frá MHÍ á sínum tíma og bættu við sig námi erlendis;
Sigurður Þórir í Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn og Sigurður
Magnússon í Goldsmith og St. Central Saint Martins í London,“ segir í til-
kynningu. Þar kemur fram að báðir myndlistarmennirnir hafi nýlega fagnað
70 ára afmæli og rifjað upp að rúm hálf öld sé síðan þeir bundust vináttu-
böndum í Gagnfræðaskóla Austurbæjar á Skólavörðuholtinu. Sýningin, sem
stendur til 8. desember, er opin miðvikudaga til sunnudaga kl. 12- 18.
Vinirnir Sigurður og Sigurður sýna saman
Geometría Verk eftir Sigurð Þóri Sigurðsson.
Gustur um goluengi er yfirskrift tónleika sem haldnir
verða í Hömrum í menningarhúsinu Hofi á Akureyri á
morgun, sunnudag, kl. 20.30. Yfirskriftin er fengin úr
texta Sverris Páls Erlendssonar.
„Gustur um goluengi er lýsandi fyrir tónlistarval
þeirra Elvýjar G. Hreinsdóttur og Eyþórs Inga Jóns-
sonar. Vísna- og þjóðlagatónlist í lágstemmdum skand-
inavískum stíl. Þau hjónin hafa haldið fjölmarga tón-
leika saman á undanförnum árum. Auk þjóðlegu
tónlistarinnar flytja þau afslappaða dægurtónlist af
ýmsum gerðum,“ segir í tilkynningu. Hljómsveitina
skipa, auk söngkonunnar Elvýjar og hljómborðsleikarans Eyþórs Inga,
þeir Birkir Blær Óðinsson á gítar, Stefán Gunnarsson á bassa og Haukur
Pálmason á slagverk. Miðar fást á tix.is, mak.is og í miðasölu Hofs.
Gustur um goluengi í Hofi annað kvöld
Eyþór Ingi og Elvý.
Eitur nefnist leikrit eftirhollenska leikskáldið LotVekemans sem Borgar-leikhúsið frumsýndi á
allrasálnamessu – daginn sem helg-
aður er þeim sem okkur eru kær en
fallin eru frá. Val á frumsýningar-
degi var afar viðeigandi í ljósi þess
að leikritið fjallar í stuttu máli um
karl og konu sem elskuðu hvort ann-
að en misstu barnið sitt og glötuðu
við missinn fyrst sjálfum sér og síð-
an hvort öðru.
Að missa barnið sitt er eitt það
allra erfiðasta sem komið getur fyrir
nokkra manneskju. Eðlilega viljum
við fæst hugsa þá hugsun til enda
hvernig við myndum bregðast við ef
við stæðum í sporum foreldranna í
Eitri sem Vekemans nefnir bara
hann og hún. Hvernig er hægt að
komast yfir þá sorg sem fylgir
barnsmissi? Er nokkurn tímann
hægt að líta glaðan dag aftur? Hvert
er hægt að beina reiðinni yfir órétt-
læti lífsins? Er hægt að læra að lifa
með sorginni og sætta sig við orðinn
hlut? Hvernig er hægt að finna ham-
ingjuna aftur? Og má það? Þetta er
meðal þeirra spurninga sem
Vekemans skoðar í verðlaunaleikriti
sínu sem þýtt hefur verið á yfir tutt-
ugu tungumál og leikið víða um lönd
frá því það var frumsýnt í Gent í
Belgíu í árslok 2009.
Það skal ekki undra að verk
Vekemans hafi notið vinsælda og
mikill fengur að Eitur hafi ratað til
Íslands í vandaðri þýðingu Rögnu
Sigurðardóttur. Vekemans skrifar
af nákvæmni skurðlæknis, með
innsæi sálfræðings og listfengi tón-
skálds. Tungutak persónanna
tveggja er gagnort sem endur-
speglar það rof sem orðið hefur í
samskiptum þeirra og undirstrikar
um leið hversu margt er ósagt þeirra
á milli. Hrynjandi textans í samspili
við þagnir minnir einna helst á tón-
verk sem smýgur inn í hjartað og
framkallar auðveldlega tár.
Í upphafi sýningar virðist henni
og honum hafa verið stefnt af starfs-
manni í kapellu við kirkjugarðinn
þar sem Jacob, sonur þeirra, liggur
grafinn, en þrátt fyrir fyrirheit um
annað bólar ekkert á umræddum
starfsmanni. Það gefur honum og
henni tækifæri til að ræða saman í
fyrsta sinn síðan hann yfirgaf hana á
gamlársdag tíu árum áður stuttu eft-
ir að keyrt var á son þeirra með
þeim afleiðingum að hann lést. Til að
byrja með eru samskiptin kurteisleg
og varfærnisleg, en fljótlega bresta
flóðgáttir og niðurbæld sorg og reiði
fá útrás með tilheyrandi hápunkti
áður en rólegri eftirleikur tekur við.
Þrátt fyrir erfitt umfjöllunarefni er
merkilega stutt í hláturinn hjá per-
sónum verksins, enda hefur löngum
verið sagt að sorgin og gleðin séu
systur tvær. Í anda umfjöllunarefn-
isins býður verkið eðli málsins sam-
kvæmt ekki upp á neinar auðveldar
skyndilausnir þó að vissulega örli á
vonarglætu áður en yfir lýkur.
Óhætt er að segja að í samtalinu,
raunverulegri hlustun og vilja til að
skilja aðra manneskju felist viss
lækningamáttur og von.
Við fyrstu sýn mætti taka undir
þá lýsingu leikskáldsins í leikskránni
að persónurnar tvær standi bak í
bak í verkinu og horfi í gagnstæðar
átti þar sem hún horfir til baka og
hann fram á veginn. Við fyrstu sýn
mætti líka halda að dregin væri upp
ákveðin staðalmynd af kynjunum
þar sem hún stjórnast fyrst og
fremst af tilfinningum meðan hann
vill taka á málum með rökhyggjuna
að vopni. En þegar nánar er að gætt
eru hlutirnir ekki svo einfaldir. Þó
að hann hafi yfirgefið heimabæinn
og reynt að skapa sér nýtt líf í öðru
landi leynir sér ekki að þótt hægt sé
að flýja stað og stund fær mann-
eskjan aldrei flúið sjálfa sig.
Sjónræn umgjörð verksins er lát-
laus en áhrifarík. Kapellan úr smiðju
Barkar Jónssonar einkennist af
gráum og hráum steinsteypuveggj-
um. Eina sjónræna lífið í sviðs-
umgjörðinni birtist í litlu laufguðu
tré handan við gler. Búningar Þór-
unnar Maríu Jónsdóttur eru í demp-
uðum jarðarlitum sem hvorki draga
athyglina frá persónum né gefa
áhorfendum vísbendingar um þjóð-
félagsstöðu þeirra. Lýsing Björns
Bergsteins Guðmundssonar og
hljóðmynd Garðars Borgþórssonar
styðja vel við dramatíska framvindu
verksins og undirstrika stemn-
inguna hverju sinni.
Kristín Jóhannesdóttir hefur
margsinnis sýnt það og sannað gegn-
um tíðina hversu frábær leikstjóri
hún er. Hún hefur einstaklega næmt
auga fyrir hinu sjónræna og skapar
iðulegar bæði fallegar og spennandi
myndir á sviðinu. Hún vinnur líka
skemmtilega með þá yfirnáttúrulegu
undirtóna sem í verkinu leynast. Það
leynir sér ekki í samleik Hilmis
Snæs Guðnasonar og Nínu Daggar
Filippusdóttur hversu nostrað hefur
verið við leikinn og persónusköpun.
Vekemans er fremur sparsöm í vís-
unum sínum út fyrir leikrýmið og því
hafa leikarar ekki úr alltof miklu að
moða, en bæði Nínu Dögg og Hilmi
Snæ tekst engu að síður að skapa
heildstæðar persónur sem fanga
áhuga og samkennd áhorfenda.
Þeim tekst líka afar vel að miðla
þeirri sterku taug og undirliggjandi
væntumþykju sem batt manneskj-
urnar tvær saman tuttugu árum fyr-
ir endurfundinn í kapellunni og hefði
getað hjálpað þeim að takast saman
á við sorgina í stað þess að hún
sundraði þeim og eitraði sambandið.
Örlítið óöryggi gerði vart við sig á
frumsýningunni sem birtist í tauga-
veiklunarlegum hreyfingum hennar
og þvingaðri raddbeitingu hans í blá-
byrjun sýningar en eftir því sem á
sýninguna leið náðu Nína Dögg og
Hilmir Snær hins vegar að hvíla full-
komlega áreynslulaust í tilfinningum
persóna sinna með tilheyrandi
áhrifamætti. Sennilega var ekki
þurrt auga í salnum áður en yfir
lauk, enda býður Eitur áhorfendum
upp á mikla tilfinningalega útrás
þær 90 mínútur sem sýningin tekur
og sem betur fer var framvindan
ekki rofin með hléi.
Þó að ekkert okkar komist í gegn-
um lífið án þess að upplifa sorg af
einhverju tagi virðist það okkur afar
tamt að reyna að ýta nístandi sárs-
aukanum sem lengst frá okkur.
Sennilega skýrist það að stórum
hluta af ákveðinni sjálfsbjargar-
viðleitni því leiðin til baka getur
reynst torveld ef við týnumst í sorg-
inni. Þrátt fyrir erfitt umfjöllunar-
efni er Eitur vönduð og áhrifarík
sýning sem óhætt er að mæla með.
Hvernig má halda áfram?
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Borgarleikhúsið
Eitur bbbbn
Eftir Lot Vekemans. Íslensk þýðing:
Ragna Sigurðardóttir. Leikstjórn: Kristín
Jóhannesdóttir. Leikmynd: Börkur Jóns-
son. Búningar: Þórunn María Jónsdóttir.
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson.
Tónlist og hljóðmynd: Garðar Borgþórs-
son. Leikgervi: Elín Sigríður Gísladóttir.
Leikarar: Hilmir Snær Guðnason og Nína
Dögg Filippusdóttir. Frumsýning á Litla
sviði Borgarleikhússins laugardaginn 2.
nóvember 2019.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST Von „Þrátt fyrir erfitt
umfjöllunarefni er
Eitur vönduð og
áhrifarík sýning sem
óhætt er að mæla
með,“ segir í rýni.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt