Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2019, Blaðsíða 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.11. 2019
Það er augljóst hvað það ersem stýrir heiminum.Hagnaðarknúinn kapítal-
ismi heitir vélin. Bílstjórarnir
heita Trump og Pompeo, Merkel
og Macron. Hjálparsveina og
-meyjar er svo víða að finna. Það
lið stendur okkur nær.
Sjaldan hefur komið eins vel í
ljós og nú nýlega hvernig hags-
munir stýra för þegar stórveldin
eru annars vegar.
Trump hafði lofað kjósendum
sínum að draga bandarískt herlið
frá Mið-Austurlöndum. Hann
kvaðst vilja standa við það loforð.
En hvað með loforð gefin Kúrd-
um, var þá spurt, hafa Banda-
ríkjamenn ekki sagst ætla að
vernda þá, hörðustu andstæðinga
ISIS-óværunnar?
Við höfum engar sérstakar
skuldbindingar gagnvart Kúrdum,
svaraði Trump staffírugur, að
bragði, eða hvar voru Kúrdar þeg-
ar innrásin var gerð í Normandí í
heimsstyrjöldinni síðari?
Ha? Við þessu átti að sjálfsögðu
enginn svar. Svo var náttúrlega
rifjað upp að Bandaríkjamenn
höfðu stutt ISIS og skylda hópa í
Sýrlandi og einnig Írak þegar það
var talið henta eða þar til þeir
fóru að ná olíulindum á sitt vald,
þá fyrst var snúið við blaðinu.
Skýringin á þessum viðsnúningi
var svarta gullið, olían, eldsneyti
kapítalismans. Herveldi hefur
skipt um gír af minna tilefni! Og
nákvæmlega það var gert og
meira að segja urðu nú örar gíra-
skiptingar. Eftir að Bandaríkja-
forseti hafði lýst yfir heimkvaðn-
ingu hermanna frá
Norður-Sýrlandi, við nokkur mót-
mæli innan úr hagsmunagæsluvél-
inni, bætti forsetinn því nú snar-
lega við að áfram yrði
bandarískur hervörður við olíu-
lindirnar, að sjálfsögðu! Og nú
urðu allir glaðir í stóru olíu-
fyrirtækjunum og ríkisstjórnum
þeirra í Washington og fylgiríkj-
unum í NATÓ.
Eftir er hins vegar ýmsum
spurningum ósvarað. Hvernig al-
menningi í Norður-Sýrlandi muni
reiða af með grimman innrásarher
Tyrkja yfir sér og allt um kring?
Hann hefur verið sakaður um að
beita efnavopnum. Fáir sýna slík-
um ásökunum áhuga.
Eða hvað? Er það ekki þetta
sem almenningur vill fá að vita?
Hefur ekki hinn almenni maður
áhuga á að réttlæti sé framfylgt í
heiminum?
Þótt gangvirki kapítalismans
stýri nú heiminum þá má breyta
því. Ástæðan fyrir ofsóknunum á
hendur Julian Assange, stofnanda
Wikileaks, er einmitt þessi: Með
því að afhjúpa stríðsglæpi stór-
velda, eins og Wikileaks hefur
gert, má sveigja heiminn inn á
farsælli brautir og réttlátari.
Til þess þarf mikla öldu fjölda-
hreyfingar. Og til að koma henni
af stað þarf gerendur, fólk sem
hreyfir við okkur með orðum sín-
um og gjörðum. Þetta tvennt –
orð og athafnir – verður að fylgj-
ast að. Og einu má ekki gleyma,
eldmóði og verkum þarf að fylgja
staðfesta – óendanleg staðfesta.
Þess vegna kallaði ég þau upp í
fyrirsögn þau Svein Rúnar
Hauksson og Björk Vilhelms-
dóttur. Þau þarf ekki að kynna á
annan hátt en að minna á að í ára-
tugi hafa þau sameinað þetta allt í
baráttu sinni fyrir mannréttindum
í Palestínu. Þar hafa farið saman,
orðin, gjörðirnar og staðfestan.
Öðru hvoru bregður þeim fyrir í
fréttum. Boðskapurinn alltaf sá
sami, að vekja okkar til vitundar
um nauðsyn þess að rísa upp gegn
ranglæti þar sem það viðgengst,
þar sem mannréttindin eru fótum
toðin.
Um leið og við þökkum fyrir
okkar Sveina og Bjarkir þurfum
við að horfa víðar. Við eigum ekki
að láta það gerast með þegjandi
þögninni að stofnandi fréttaveit-
unnar, sem upplýsti um stríðs-
glæpina í Írak, Afganistan og Líb-
íu og enn víðar, verði framseldur
til Bandaríkjanna frá Bretlandi og
dæmdur þar til 175 ára fangels-
isvistar. Upp á það hljóðar ákær-
an á hendur Julian Assange.
Fylgjumst með hans máli því
hans mál er mál okkar allra.
Sveinn og Björk
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
’ Þess vegna kallaði égþau upp í fyrirsögnþau Svein Rúnar Hauks-son og Björk Vilhelms-
dóttur. Þau þarf ekki að
kynna á annan hátt en að
minna á að í áratugi hafa
þau sameinað þetta allt í
baráttu sinni fyrir mann-
réttindum í Palestínu.
Þar hafa farið saman,
orðin, gjörðirnar og
staðfestan.
Eggert
Dolorin
Hita- og verkjastillandi paracetamól
Á HAGSTÆÐUVERÐI!
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
Lesiðvandlegaupplýsingarnaráumbúðumogfylgiseðli
fyrir notkun lyfsins.
Leitið til lækniseða lyfjafræðingsséþörfá frekari
upplýsingumumáhættuogaukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
Þú færð
Dolorin í næsta
apóteki
Dolorin500mg
paracetamól töflur -
20stkog30stk
TÆKNI
FYRIR H
ATVINNUMANNSIN
EI ILI
www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi
LauraStar
er létt og
meðfærilegt og
þú ert fljótari
að strauja en
nokkru sinni
fyrr.