Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2019, Blaðsíða 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.11. 2019
Stundum óttast ég að verða gamall og fúllkall sem hefur allt á hornum sér. Fuss-andi og frussandi út í loftið og talandi
helst alltaf um sama hlutinn. Það er þó ekki
útilokað að það hafi þegar gerst, án þess að ég
tæki eftir því.
Ég skrifaði nefnilega pistil um daginn um
það af hverju allar framkvæmdir Reykjavík-
urborgar (og reyndar ríkisins líka til að vera
sanngjarn) þurfa að kosta einhverjar skrillj-
ónir. Þá var ég meira að tala um stærri mál.
Endurbyggingar á húsum og meiriháttar
framkvæmdir.
Svo fæ ég tölvupóst fyrir stuttu um Betri
Reykjavík, sem mér finnst algjörlega frábært
framtak. Að borgarbúar fái að koma hug-
myndum sínum á framfæri um ýmsar smá-
breytingar og lagfæringar í hverfinu sínu og
kjósa svo um þær. Það er náttúrlega bæði fal-
legt og skemmtilegt.
En svo fer maður aðeins að skoða hvað
þetta kostar. Og þá fer Reykjavíkurborg að
minna mann á nýríkan bjána sem eyðir öllu í
einhverja vitleysu og gefur fáránlega mikið
þjórfé.
Ein hugmyndin er til dæmis smábókasafn.
Upphaflega hugmyndin hljómar svona: „Ég
vil láta setja upp litla kassa með loki nálægt
blokkunum eða á leikvöllum þar sem fólk
myndi geta skipst á bókum (bæði fullorðins-
og barnabókum), skilja eftir bækur og fá bæk-
ur lánaðar í staðinn.“
Þetta hljómar vel og getur ekki kostað mik-
ið. En í hagkerfi borgarinnar eru tvær millj-
ónir eðlilegt verð fyrir þetta. Bókaskáp!
Einn bekkur við hornið á Öldugötu á að
kosta eina milljón. Jafnmikið og umferðar-
spegill við gatnamót Hamarsgerðis og Réttar-
holtsvegar eða hjólapumpa við Rauðagerði.
Í öðrum hverfum virðist borgin líka ætla að
haga sér eins og milljónamæringur á fylleríi.
Tvö til þrjú langborð á Klambratúni. Með
fylgir mynd af borðum sem kosta 23 þúsund
krónur í BYKO. Reykjavíkurborg áætlar að
kostnaður við þessi borð sé þrjár milljónir!
Sem er reyndar vel sloppið miðað við það að
merkingar með krúttlegum skiltum við stíg-
ana tvo á Klambratúni eiga að kosta sex millj-
ónir. Sex! Tveir stígar, eigum við að segja
fjögur skilti? Það er ekki nema ein og hálf á
stykkið. Vel sloppið.
Að mála hraðamerkingar á götur í Hlíð-
unum kostar þó ekki nema tvær milljónir.
Jafnmikið og
nokkrar rusla-
tunnur í Frosta-
fold.
Körfubolta-
spjöld og hand-
boltamark í
Breiðholtslaug
kosta þrjár
milljónir. Sama
og niðurgrafið trampólín í Árbænum, nú eða
fótboltamark við Ljósheimaróló. Og þetta eru
bara nokkur dæmi um hluti sem ég skil. Ég
hef til dæmis ekki hugmynd um hvort það er
eðlilegt að borga fimm milljónir fyrir að tyrfa
lítinn sparkvöll eða sex milljónir að setja upp
eitt strætóskýli við Fellsveg.
Mér finnst gott að búa í Reykjavík og
kvarta svo sem ekki oft yfir því að borga
hæsta útsvar landsins. En ég held að það væri
góð hugmynd að starfsmenn borgarinnar
myndu nú setjast aðeins niður og velta því
fyrir sér smástund hvort þeir væru tilbúnir að
borga þessar upphæðir fyrir svona verk ef
peningarnir kæmu úr þeirra eigin vasa. Það
virðist nefnilega alltaf aðeins auðveldara að
vera rausnarlegur þegar sýslað er með ann-
arra manna fé.
’Einn bekkur við hornið áÖldugötu á að kosta einamilljón. Jafnmikið og umferðar-spegill við gatnamót Hamars-
gerðis og Réttarholtsvegar eða
hjólapumpa við Rauðagerði.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Annarra manna fé
Elsku hjartans Ásdís
Halla mín, þú átt af-
mæli þann 6. júlí 1968
eins og þú trúlega veist.
Nú, ef ekki þá lastu það hér.
Þegar þversumman af fæðingar-
tölu þinni og ári er tekin er útkoman
37, sem gerir það að verkum að þú ert
talan 1.
Þessi tala táknar mikla leiðtoga-
hæfileika. En það segir þó ekki endi-
lega að mann-
eskjan sem töluna
beri hafi hátt og
standi hæst. Með
einhverri ólýs-
anlegri seiglu og
þrautseigju tek-
urðu hvert skref í
lífinu sem mikil
fyrirmynd, sem
þú ert svo sann-
arlega og því óhætt að segja að fólk
sem fær að vera þér nærri sé afar
heppið. Þú ert mjög gömul sál og
finnur sterkt á þér hvað er að gerast í
kringum þig. Þú gerir allt þitt besta
til velja réttu púsluspilin í lífinu til að
útkoman verði góð fyrir ekki bara
sjálfa þig heldur alla. Það er hvorki
mont né mikilvægt fyrir sjálfið þitt að
fá mikla athygli. Það hefur einhvern
veginn eins og óvart bara gerst en
ekkert er alveg óvart. Núna ljómar í
kringum þig hin andlega tala sjö, sem
byrjar á að banka hjá þér um það bil
tveimur mánuðum fyrir afmælisdag-
inn þinn. Sumum finnst óþægilegt að
vera á þessari tölu því hún gerir það
að verkum að fólk breytir um hraða í
lífinu.
Þér gæti fundist að það þurfi mikl-
ar breytingar til og að það þurfi að
framkvæma alls konar en það sem þú
þarft að gera er ekki neitt. Vertu bara
sjálf á fjarstýringunni og horfðu á það
sem þér sýnist þegar þér sýnist.
Þetta ár mun leiða þig að betri líðan
og styrkja þig í huga, sál og líkama.
Það að þú hafir blessað og hjálpað
fjölskyldu þinni mun gera hana enn
sterkari og færa hana nær þér en
nokkru sinni á næstunni. Ég segi allt-
af þegar ég er með hópa að ég hefði
þurft að eiga eitt barn sem væri talan
einn, því að þá væri ég ekki með nein-
ar áhyggjur af ellinni. Ásinn hjálpar
nefnilega og styður við foreldra sína,
og lætur þá helst
búa sem næst
sér.
Það er í raun
alveg magnað að
skoða þetta því af
flestum þeim ás-
um sem ég hitti á
þetta nánast allt-
af við. Ásinn á
það meira að
segja til að halda að hann sé einbirni
og að enginn annar muni redda neinu,
svo að það er oft skvetta af stjórn-
semi þarna líka en það orð á að vera
gott og blessað en ekki litið niður til.
Því ekkert myndi gerast ef enginn
stjórnaði neinu.
Á næsta ári er óhætt að segja að
það verði hálfgerð flugeldasýning hjá
þér þegar líður á árið. Þú verður með
sama þrek og þegar þú varst átján
ára, uppfull af hugmyndum og til-
boðum um að breyta heiminum til
hins aðeins betra eins og vanalega.
2022 verður svo árið sem uppfyllir
djúpar óskir þínar. Þó að þú hafir
bara séð fyrir þér að það væri ein
hrísla eða lítið tré sem myndi spretta
fyrir þig á því herrans ári get ég ekki
betur séð en að þarna verðir þú með í
kringum þig skóg með allavega trjám
og mun sá skógur aðeins halda áfram
að vaxa í kringum þig.
Stjörnumerki Ásdísar er krabbi.
Morgunblaðið/Ásdís
ÁSDÍS HALLA BRAGADÓTTIR
06.07.1968
Mikil
fyrirmynd
’Þú verður með samaþrek og þegar þúvarst átján ára, uppfullaf hugmyndum og til-
boðum um að breyta
heiminum til hins aðeins
betra eins og vanalega.
3+1
Þú borgar 3
en færð 4 !
NÓVEMBERTILBOÐ
Hjá Fóðurblöndunni og Bústólpa
SuperClean -sápa, 25lítrar
Tilboðgilda í verslunumFóðurblöndunnarogBústólpaognetverslu
Cid Non P -sýra, 25lítrar