Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2019, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.11. 2019
LÍFSSTÍLL
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum? Stíllinn minn fer eftir skapi.Í léttum orðum myndi ég lýsa honum sem einföldum og háværum.Ég klæðist helst svörtum klæðum. Leður og föðurland eru í uppá-
haldi.
Hvað heillar þig við tísku? Tíska er tíðarandinn. Fyrir mér er munur á
tísku og „trendi“. Tíska er list og „trend“ er „hype“. Ég dáist að persónu-
legum stíl í stað þess að elta „trend“ og fylgja öðrum en sjálfum sér.
Hvað er á óskalistanum þessa stundina? Skór frá Eyts sem heita „the
Halo sneakers“. Síðan er Eygló að koma með Halo-fatalínu. Þar er kjóll sem
ég er að deyja yfir.
Hvar kaupirðu helst föt? Ég kaupi varla.
Panta örsjaldan á netinu og versla mest í búð-
um með notuð föt.
Ég tek ofan fyrir búðum eins og Spúúútnik
og Aftur. Mér finnst Rauði krossinn mjög kúl.
Áttu þér uppáhaldsflík eða -fylgihlut? Allt
sem ég á, en samfestingur frá Ambush er
miklu uppáhaldi. Súper þægilegur og mér líð-
ur eins og ég sé óklædd þegar ég klæðist hon-
um!
Hvaða þekkta andlit finnst þér með flott-
an stíl? Grace Jones var alveg fáránlega nett
og Michèle Lamy. Ég fíla aðallega þegar fólk
kemur á óvart!
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönn-
uð? Alexander McQueen heitinn var minn
uppáhaldsfatahönnuður.
Hvað hefurðu helst í huga þegar
þú velur föt? Ást við fyrstu sýn og
notagildi.
Hver er þín uppáhaldsárstíð varð-
andi tísku og hvers vegna? Sumar,
vetur, vor og haust. Engin árstíð fram
yfir aðra. Munurinn á þeim er ekki
mikill hér á landi!
Hvaða tískutímaritum, -bloggum
eða -áhrifavöldum fylgist þú með?
Ég fylgist meðal annars með @Lotta-
volkova, @Gupmagazine, @Viviane-
sassenstudio, @Iamcardib, @Harley-
weir, @Olaviagrims … Ég gæti lengi
haldið áfram!
Hvaða álit hefur þú á tískuheim-
inum í dag? Ég skil ekki hvað er í
gangi í heiminum í dag varðandi „fast
fashion“ eða hraðtísku.
Ég sá um daginn flíkur á 100 krónur
í H&M og velti fyrir mér: hvernig er það hægt?
Það skiptir máli að efla vitund neytenda um
framleiðsluaðferðir hraðtískurisanna
sem eru að verða æ stórtækari á ís-
lenskum fatamarkaði. Siðferðis-
þröskuldurinn er afar lágur og
vinnuskilyrði í fataverskmiðjum
skelfileg.
Í sumar gerði ég ljósmyndaverk sem ber
titilinn „Fast fashion“ eða „Hröð tíska“.
Verkið útfærði ég með flíkum sem ég fann í ruslinu, brenndi þær og myndaði
þær verða að engu. Mig langar að varpa ljósi á nútímaneytandann í kapítal-
ískum heimi. Um fjórðungi af þeim fötum sem eru framleidd er kastað í rusl-
ið eða brennd.
Anna Maggý klæðist helst
svörtum klæðum. Leður og
föðurland eru í uppáhaldi.
Ljósmynd/Anna Maggý
Einfaldur og hávær fatastíll
Anna Maggý ljósmyndari sérhæfir sig í listrænni ljósmyndun. Hún er með einstakan stíl en reynir þó að kaupa afar sjaldan nýjan
fatnað. Anna segir miklu máli skipta að efla vitund neytenda um framleiðsluaðferðir hraðtískurisanna.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Instagramreikningurinn
Vivianesassenstudio er með-
al þeirra fjölmörgu sem Anna
Maggý fylgist reglulega með.
„The HALO sneakers“ frá
EYTS eru á óskalistanum.
Ljósmyndaverkið „Fast fashion“ eftir Önnu Maggý er ádeila á hraðtískurisana.
Grace Jones kemur alltaf á óvart.