Morgunblaðið - 02.12.2019, Qupperneq 9
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ártúnsholt Slökkvilið var fljótt á staðinn
og að ráða niðurlögum eldsins í gær.
Betur fór en á horfðist þegar eldur
kom upp í einbýlishúsi við Bröndu-
kvísl í Ártúnsholti í Reykjavík síð-
degis í gær. Fólk var inni í húsinu
þegar þetta gerðist en eldurinn
kviknaði út frá kertaskreytingu.
Skv. upplýsingum frá slökkviliðinu
gat húsráðandi ekkert aðhafst því
slökkvitæki var ekki nærri. Því var
hringt eftir aðstoð og var húsráð-
andi kominn út þegar slökkvilið bar
að. Starf þess gekk greiðlega en
reykræsta þurfti húsið.
Einn var fluttur á slysadeild
vegna gruns um reykeitrun, auk
heldur sem sá hinn sami var með
brunasár á hendi. sbs@mbl.is
Bruni í Bröndukvísl
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2019
Engin tilboð bárust í fjórar atvinnu-
lóðir í Mjódd í Breiðholti, sem
Reykjavíkurborg auglýsti lausar til
umsóknar í haust. Þessar lóðir eru á
góðum stað, rétt við Reykjanesbraut-
ina.
Leitað var eftir tilboðum í allan
byggingarrétt hverrar lóðar fyrir sig.
Aðeins lögaðilar gátu boðið í bygging-
arréttinn. Heimilt var að bjóða í allar
lóðirnar, þ.e. fyrir Álfabakka 2a, 2b,
2c, og 2d, en gera þurfti eitt stakstætt
tilboð í hverja lóð.
Heimilað byggingamagn á lóðun-
um fjórum var 3.800 til 4.500 fermetr-
ar, samtals 17.000 fermetrar. Að auki
mátti byggja bílakjallara, allt að 3,700
fermetrar á hverri lóð.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg hefur ekki verið
tekin ákvörðun um það hvenær lóð-
irnar verða boðnar út að nýju.
Til stóð að bílaumboðið Hekla hf.
myndi byggja nýjar höfuðstöðvar á
lóðunum við Álfabakka og íbúðir yrðu
byggðar á Heklureitnum við Lauga-
veg. Þau áform runnu út í sandinn.
sisi@mbl.is
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Álfabakki Atvinnulóðirnar í Mjódd eru skammt frá Reykjanesbrautinni.
Meðfylgjandi mynd sýnir svæðið. Nú hafa risið þarna íþróttamannvirki ÍR.
Ekkert tilboð barst í
atvinnulóðir í Mjódd
„Þetta er ótrúlega gaman og notaleg
stund fyrir alla fjölskylduna. Það er
gott að geta lagt góðu málefni lið og
notið aðventunnar,“ segir Hulda
Hjálmarsdóttir, formaður Krafts,
stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem
greinst hefur með krabbamein og
aðstandendur, um viðburðinn Perlað
af krafti á aðventunni sem fram fór í
gær á Hótel Natura í Nauthólsvík.
Um 450 komu saman og perluðu
nýtt „Lífið er núna“-armband í til-
efni af 20 ára afmæli Krafts. 1.814
armbönd voru perluð til styrktar
ungu fólki sem greinst hefur með
krabbamein og aðstandendum
þeirra.
„Við erum ótrúlega þakklát fyrir
alla sem hafa lagt málefninu lið því
við náum að styrkja marga sem hafa
greinst með krabbamein og fjöl-
skyldur þeirra með sölu á armbönd-
unum,“ segir Hulda.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Perlað Það var perlað af krafti á
Hótel Natura. Margir njóta góðs af.
450 manns
perluðu
saman
Afraksturinn var
1.814 ný armbönd
Stefnt er að því að íbúar í nýju sam-
einuðu sveitarfélagi á Austurlandi
gangi að kjörborði og velji sér nýja
sveitarstjórn 18. apríl á næsta ári.
Sem kunnugt er samþykktu íbúar á
Borgarfirði eystra, Seyðisfirði,
Fljótsdalshéraði og í Djúpavogs-
hreppi að sameina sveitarfélögin í
atkvæðagreiðslu nú á haustdögum.
Traustur meirihluti var fyrir þeirri
ráðstöfun í öllum sveitarfélögunum
fjórum.
Að mörgu er að hyggja í samein-
ingarferlinu og sett hefur verið á
laggirnar undirbúningsstjórn sem
fundar reglulega um viðfangsefni
sem upp koma. sbs@mbl.is
Kosið verður á Aust-
urlandi 18. apríl