Morgunblaðið - 02.12.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 02.12.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2019 2. desember 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.67 121.25 120.96 Sterlingspund 155.59 156.35 155.97 Kanadadalur 90.74 91.28 91.01 Dönsk króna 17.763 17.867 17.815 Norsk króna 13.123 13.201 13.162 Sænsk króna 12.636 12.71 12.673 Svissn. franki 120.68 121.36 121.02 Japanskt jen 1.101 1.1074 1.1042 SDR 165.51 166.49 166.0 Evra 132.73 133.47 133.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.1736 Hrávöruverð Gull 1457.55 ($/únsa) Ál 1764.5 ($/tonn) LME Hráolía 63.77 ($/fatið) Brent ● Nýja íslenska flugfélagið Play birti til- kynningu á facebooksíðu sinni á laug- ardag þar sem beðist er afsökunar á að tafir hafi orðið á opnun vefsíðu og byrj- un miðasölu hjá félaginu. Í tilkynningunni segir að ætlunin hafi verið að hefja miðasölu í nóvember en því miður hafi þurft að fresta því. „Þar sem við erum sprotafyrirtæki getur stundum tekið lengri tíma en að var stefnt að gera hlutina að veruleika,“ segir flugfélagið. Á vefsíðu flugfélagsins, FlyPlay.com, geta áhugasamir skráð nafn sitt, tölvu- póstfang og búsetuland til að fá tilkynn- ingu strax og bókunarkerfið fer í loftið. Þar segir jafnframt að flugfélagið hygg- ist gefa 1.000 flugmiða. ai@mbl.is Play biðst afsökunar á miðasölutöfum STUTT VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Tímaritið The Economist birti í síðustu viku áhugaverða umfjöllun um ýmsa annmarka sem komið hafa í ljós í útreikningum á ójöfn- uði. Sagt var frá þessu á mbl.is og kom þar fram að með vandaðri reikniaðferðum hafi m.a. komið í ljós að hlutfallslegur skerfur rík- asta 1% íbúa Bandaríkjanna af auði þjóðar- innar hafi hér um bil staðið í stað í um 60 ár en ekki snarauk- ist eins og áður hafði verið talið. Þá hafi það skekkt mælingar á meðaltekjum heimila í neðri tekjuþrepum að hugtakið heimili og aðrir lýðfræðilegir þættir hafa þróast, s.s. með breyttri hjúskap- artíðni, og það birst í tölunum sem lækkun tekna. Helgi Tómasson, prófessor í töl- fræði og hagrannsóknum, skrifaði grein í Vísbendingu í nóvember 2017 þar sem hann tæpti á mörg- um þeim atriðum sem The Econ- omist tók saman og rakti ýmsar bábiljur sem skjóta reglulega upp kollinum í umræðunni um tekju- og eignadreifingu og ójöfnuð. Fáir standa í stað Helgi segir m.a. að mælingar á þessu sviði hafi þann annmarka að sýna ekki hvernig fólk færist á milli tekju- og eignahópa yfir æv- ina og að gögnin séu iðulega rang- túlkuð með þeim hætti að sam- félagið skiptist í tvo hópa þar sem annar býr við skort en hinn við allsnægtir: „Fólk situr yfirleitt ekki fast á sama stað og í dag eru t.d. margir sem velja að vera tekjulausir eða tekjulitlir í mörg ár á meðan þeir sækja sér mennt- un til að verða betur launaðir sér- fræðingar seinna á ævinni,“ segir Helgi og nefnir dæmi um náms- mann sem situr á skólabekk í fimm ár eða lengur og kemur út á vinnumarkaðinn eignalítill og með há námslán en er fljótlega kominn með háar tekjur og ágæta eigna- stöðu. „Það er engin ástæða til að halda að það sama gildi ekki hér og t.d. í Bandaríkjunum, en þar skrifaði m.a. hagfræðingurinn Thomas Sowell um hvernig mikill meirihluti þeirra sem tilheyrðu hópi tekjulægstu 20% íbúa lands- ins árið 1974 var kominn í hóp þeirra 20% tekjuhæstu tveimur áratugum síðar.“ Bendir Helgi á, rétt eins og t.d. nóbelsverðlaunahafinn Angus Dea- ton, að þegar ójöfnuður er skoð- aður í þessu ljósi geti hann hrein- lega virst æskilegur, enda afleiðing ákvarðana sem fólk tekur Ójöfnuður sem gæti verið æskilegur Morgunblaðið/Golli Auður Flestum þykir okkur ólíðandi að aðrir búi við skort og misskiptingu en fara þarf varlega í að draga of miklar ályktanir af ójafnaðartölfræði.  Bent hefur verið á galla í fyrri útreikningum á ójöfnuði og ný mynd að koma í ljós  Rangt væri að líta svo á að samfélagið skiptist í tvo aðskilda eigna- og tekjuhópa vitandi vits til að bæta hag sinn seinna á lífsleiðinni. „Hin hliðin á þróuninni er svo að með æ lengri lífslíkum má reikna með að sífellt stærra hlutfall landsmanna sé eldri borgarar sem hafa það alveg ágætt þótt þeir hafi færst frá því eigna- og tekjuhámarki sem þeir náðu fyrr á lífsleiðinni.“ Verðum ekki södd af að éta þá ríku Segir Helgi að vissulega sé ákveðinn hópur fólks sem búi við þröngan kost, s.s. vegna sjúkdóma eða fötlunar, og eðlilegt að vilja gera sem mest til að bæta kjör þeirra, en að allir þeir sem séu færir um að vinna eigi að geta haft bærilegar tekjur og vegnað ágæt- lega á lífsleiðinni. Hann bætir við að þær tillögur sem heyra má s.s. frá breska verkamannaflokknum og mörgum forsetaframbjóðendum demókrata, um að hækka álögur á þá allra ríkustu í nafni jafnaðar, séu vanhugsaðar: „Þeir sem eru með ofboðslega háar tekjur, eða eiga gríðarlega miklar eignir, eru svo fáir að jafn- vel þótt við tækjum af þeim hverja einustu krónu myndi það duga skammt til að leysa vandamál sam- félagsins,“ segir hann og bætir við að slík skattastefna væri auk þess ekki sjálfbær, enda einskiptis- tekjur fyrir hið opinbera. „Hækk- aðir skattar á næstu hópa fyrir neðan allra hæstu toppana munu síðan að öllum líkindum leita beint út í verðlagið á þjónustu sérfræð- inga eins og lækna og lögfræðinga, sem svo aftur bitnar á hinum al- menna borgara. Í Danmörku er einmitt umdeildur hátekjuskattur, topskatten, og eitt árið voru læknar 68% þeirra sem greiddu hann. Áhrifin verða þá þau að gera danska heilbrigðiskerfið dýrara.“ Helgi Tómasson Tölur frá seljendum benda til að bandarískir neytendur hafi verið dug- legir að nýta sér afsláttartilboð á net- inu í lok síðustu viku. Samkvæmt mælingum Adeobe Analytics jókst sala hjá netverslunum á svartaföstu- dag um 19,6% milli ára og nam sam- anlagt 7,4 milljörðum dala, að því er Reuters greinir frá. Sala netverslana á sjálfan þakkargjörðardaginn jókst um 14,5% og nam 4,2 milljörðum dala. Á sama tíma virðist hafa dregið úr komu fólks í verslanir á svartaföstu- dag um 6,2% frá árinu á undan, en aftur á móti fjölgaði viðskiptavinum um 2,3% á þakkargjörðardag. Bráða- birgðamælingar markaðsgreiningar- fyrirtækisins RetailNext benda til að um 1,6% samdráttur hafi orðið í sölu hjá hefðbundnum bandarískum versl- unum á svartaföstudag. ai@mbl.is AFP Kostakjör Viðskiptavinur skoðar tilboðin hjá Best Buy á föstudag. Netverslun jókst á svarta- föstudag Meðal þess sem kann að lita mælingar á ójöfnuði á Íslandi undanfarin ár er hvað húsnæði myndar stóran hluta af eignum landsmanna. Fasteignaverð hef- ur verið á hraðri uppleið og bendir Helgi á ýmsa ókosti sem því fylgja. Þannig hafi engin ný verðmæti eða nýjar tekjur orðið til en skattstofn heimila og fyr- irtækja hækkað svo að fjöl- skyldur þurfi að ganga á ráð- stöfunarfé sitt og fyrirtæki að beina hækkuðum fasteigna- gjöldum út í vöruverð. Orðar hann ástandið þannig að verið sé að skattleggja lottóvinning sem skattgreiðendur hafi þó ekki innleyst, og verulegt óhag- ræði að því fyrir almenning og fyrirtæki að sveiflur á fast- eignamörkuðum geti valdið því að skattbyrði þeirra breytist með ófyrirsjáanlegum hætti. „Það er sóun á mannauði að láta fjölda gáfaðra opinberra starfs- manna vera sífellt að hringla með skattstofna. Hliðstæð sóun á sér einnig stað í atvinnulífinu þar sem duglegt fólk þarf að eyða miklum tíma í varnir og viðbrögð gegn hringli stjórn- valda,“ segir hann. „Danir gripu til þess ráðs, þegar þeir sáu að lækkun vaxta myndi leiða til hækkaðs fast- eignaverðs, að frysta skattstofn húsnæðis miðað við verðlag árs- ins 2001 og þannig koma í veg fyrir að skattlagningin færi út í algjöra vitleysu. Svíar nota ein- faldlega fasta krónutölu á hvert einbýlishús sem grundvöll í fast- eignaskatti til sveitarfélaga.“ Verð og gjöld á miklu flökti EIGNAVANDI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.