Morgunblaðið - 02.12.2019, Qupperneq 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2019
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞEIR ERU NÆSTUM ÞVÍ MENNSKIR!”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fá hann til að
borða minna af sykri.
„KÆRA SPYRÐU HUNDINN …” „EF ÞÚ ERT SVONA KLÁR,
HVERS VEGNA ÞARF ÞÁ
EINHVER ANNAR AÐ LESA
SPURNINGARNAR FYRIR ÞIG?”
URRR! GÓÐ
SPURNING
HELGA, ÉG ER KOMINN ÚR
VEIÐIFERÐINNI TIL SKOTLANDS!
VEIDDIRÐU
EITTHVAÐ?
ÉG NÁÐI EINUM STÓRUM Í LOCH NESS!
APAR
„OK … ÞÚ MÁTT SNÚA ÞÉR VIÐ – ÉG ER
TILBÚINN AÐ TALA VIÐ ÞIG NÚNA.”
Soffía
Guðrún
Jakobsdóttir
Unnur Tryggvadóttir
húsfreyja á Akureyri, ólst upp frá
frumbernsku hjá föðurbróður
sínum, séra Stefáni Kristinssyni
og Sólveigu Pétursdóttur Eggerz á
Völlum í Svarfaðardal
Stefán
Kristinsson
prestur á
Völlum
Pétur Eggerz Stefánsson kaupsýslumaður og stjórnarráðsfulltrúi
Kristinn Stefánsson læknir
Þorsteinn Sæmundsson
stjörnufræðingur
Sæmundur Stefánsson
stórkaupmaður
Ingibjörg Stefánsdóttir íþróttakennari
Sigríður Thorlacius formaður og þýðandi
Lilja Tryggvadóttir
húsfreyja á Dalvík
Jóhann Antonsson
viðskiptafræðingur
á Dalvík
Jóhann
Tryggvason
tónlistar-
maður í
London
Þórunn Jóhannsdóttir
Ashkenazy píanóleikari
í Sviss
Sigrún
Jóhanns-
dóttir
sjúkraþjálfari
Ólöf Arnalds
tón listar kona
Nanna Arngrímsdóttir
húsfreyja á Dalvík
Arngrímur „málari“ Gíslason
síðast bóndi og listmálari í
Gullbringu í Svarfaðardal
Þórunn Hjörleifsdóttir
ljósmóðir í Gullbringu
Petrína Soffía
Hjörleifsdóttir
prestsfrú á Tjörn
í Svarfaðardal
Þórarinn Kr. Eldjárn bóndi
og kennari á Tjörn
Kristinn Tryggvi Stefánsson
útvegsbóndi á Ystabæ í Hrísey
Kristinn Tryggvi Kristinsson
kennari og organisti í Svarfaðardal og á Siglufi rði, bús. á Dalvík og Siglufi rði
Kristín Hólmfríður Þorvaldsdóttir
húsfreyja á Ystabæ
Snjólaug Guðrún Þorvaldsdóttir
húsfreyja á Laxamýri, S-Þing.Jóhann Sigurjónsson skáld
Tryggvi Jóhannsson
búfræðingur og bóndi á Ytra-Hvarfi í Svarfaðardal
Sólveig Jónsdóttir
húsfreyja á Ytra-Hvarfi
Jóhann Jónsson
bóndi á Ytra-Hvarfi í Svarfaðardal
Úr frændgarði Soffíu Jakobsdóttur
Jakob Tryggvason
organleikari og skólastjóri á Akureyri
Stefán Jónatansson
bóndi á Hæringsstöðum og
Urðum í Svarfaðardal
Guðrún Soffía Stefánsdóttir
húsfreyja á Ytra-Hvarfi
Anna Sigurlaug Jóhannesdóttir
húsfreyja á Hæringsstöðum og Urðum
Kristján Eldjárn
forseti Íslands
Sigurhjörtur
Jóhannesson
bóndi á Urðum
Sigrún
Sigurhjartardóttir
húsfreyja á Tjörn
Ámiðvikudaginn skrifaði DavíðHjálmar í Davíðshaga í Leir-
inn að á Akureyri væri hörkufrost
svo að sjó úr Sandgerðisbót væri
ekki dreift á götur í bili.
Hér er öllum orðið kalt
þótt ullar klæðist fötum.
Dömubindi, saur og salt
saman frýs á götum.
Enn orti hann:
Fáskrúðs- er við –fjörðinn kalt,
fæstar skepnur dafna
nema byggt sé yfir allt;
endur, refi, hrafna.
Þann sama dag skrifaði Sig-
mundur Benediktsson: „Und-
anfarna daga hef ég notið litauðgi
fagurra morgna, sem skreyta ljós-
risið og ekki var það síðra nú í
morgun.“
Myndin fögur merlar frá,
móta bögu kunni.
Litakögur ljómar á
ljósri döguninni.
Ólafur Stefánsson rifjaði upp
gamla vísu:
Rýkur í koti, vindurnn voti
vill á dynja.
Hundur í skoti, fullur af floti,
fer að stynja.
Guðrún Ingibjörg Halldórsdóttir
spurði hvort einhver vissi um höf-
und þessarar vísu:
Þótt þú gistir hærri höll
en hugann nái að dreyma
bíða þín aldrei blárri fjöll
né bjartari nótt en heima.
Guðrún Nellý Sigurðardóttir
upplýsti að höfundurinn væri Karl
Friðriksson. Hann var vegaverk-
stjóri á Akureyri, hress og
skemmtilegur og sópaði að honum.
Þessa vísu skrifaði hann í vísnabók
stúlku, sem ætlaði til Vesturheims
og vænti sér mikils af:
Margur út í leitar lönd
lítið vinnur – tapar.
Stígur aldrei á þá strönd
sem andans hilling skapar.
Það er bjart yfir Hafsteini
Reykjalín Jóhannessyni:
Ástin sem og frelsið fleyga
flýgur um og leikur sér.
Láttu jafnan ljósið eiga,
lífsneista í brjósti þér.
Reir frá Drangsnesi er á gam-
alkunnum slóðum:
Rímnastemmur þuldi þjóð
og þekkti ótal bragi
kvæðamenn enn kveða ljóð
hver með sínu lagi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Við Pollinn og skepnur
í Fáskrúðsfirði