Morgunblaðið - 09.12.2019, Page 6

Morgunblaðið - 09.12.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019 Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður Erum með samning við júkratryggingar íslands arðandi sérsmíðaða skó og fleira Komdu strax í dag Við erum hér til að aðstoða þig! - s - Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Lýðheilsumál taka til flestra þátta samfélagsins og inntakið að skapa umhverfi sem gerir fólki kleift að blómstrar í leik og starfi,“ segir Guðrún Magnús- dóttir lýðheilsu- og hjúkrunar- fræðingur sem nýlega var ráðin sérfræðingur Reykjanesbæjar í lýðheilsumálum. Í samstarfs- samningi þeirra stjórnmálaafla sem nú mynda meirihluta í bæj- arstjórn Reykjanesbæjar var stofnað sérstakt lýðheilsuráð og er hlutverk þess að efla heilsu íbúa með forvörnum, heilsuefl- ingu og snemmtækri íhlutun. Um þessar mundir er svo verið að móta sérstaka lýðheilsustefnu fyrir Reykjanesbæ er annað sveit- arfélagið á landinu til að fara í slíka stefnumörkun. Hitt er Kópa- vogsbær. Heilbrigði er vellíðan „Hér í bæ á að taka þessi mál af miklum kappi og mér finnst heiður að taka þátt í starfinu. Skipulagsmál, skólastarf, sam- göngur, velferð og umhverfi; í öll- um þessum verkefnum sveitarfé- laga og fleirum þarf að hafa sjónarmið um lýðheilsu í huga og vitundin fyrir slíku er að aukast,“ segir Guðrún. „Heilbrigði er and- leg, líkamleg og félagsleg vellíðan en ekki bara að vera laus við sjúk- dóma og örorku. Það skiptir til dæmis hvert fólk sækir þjónstu og hvort hana megi sækja fótgang- andi eða eða hvort þar þurfi á bæði. Í því samhengi skipta sam- göngur máli eða hvort fólk þurfi að fara um svæði þar sem mikil mengun er. Gott framboð af holl- um mat skiptir líka máli, rétt eins og hreinlæti.“ Stuðst við leiðarvísa Velferðarráðuneytið gaf út lýðheilsustefnu og aðgerðaáætlun í september 2016 þar sem sér- staklega var horft til málefna barna og ungmenna að 18 ára aldri. Þar er lögð áhersla á að við áætlanagerð stjórnvalda sé gætt að áhrifum á heilsu og líðan íbúa í samfélaginu. Stefnan gildir til ársloka 2019. Þetta hefur gefið tóninn og lýðheilsumál í sinni breiðustu merkingu hafa öðlast þyngd og væri, svo sem í Reykja- nesbæ Fulltrúar sveitarfélagsins skrifuðu fyrir nokkrum árum undir samning við Embætti land- læknis um Heilsueflandi sam- félag. Í krafti þess er unnið heild- stætt með áhrifaþætti heilbrigðis sem svo fléttast saman við Heims- markmið Sameinuðu þjóðanna - þar sem sjálfbærni er algjört lyk- ilatriði. Í stefnumótun í lýðheilsu- málum er mikilvægt, segir Guð- rún, að styðjast við leiðarvísa, mælikvarða og upplýsinga úr gagnagrunnum. Má þar nefna lýðheilsuvísa Landlæknis, sem ná til hvers heilbrigðisumdæmis landsins. Hvað Suðurnesin varðar kemur þar fram að notkun þung- lyndislyfja er hvergi á landinu minni og fullorðnir á svæðinu telja sig hamingjusamari en margir aðrir. Meðal neikvæðra þátt má má nefna hátt hlutfall mæðra undir tvítugu, stuttur næt- ursvefn fullorðinna og hvergi á landinu er þátttaka kvenna í skimun fyrir leghálskrabbameini minni en á Suðurnesjum. Fjórðungur bæjarbúa af erlendum uppruna „Þá ber einnig að nefna Framfaravogina sem mælir fé- lagslegar framfarir sveitafélaga og sem er algjör gullkista töl- fræðilegra gagna. Vogin er stjórntæki eða einskonar vegvísir sem hjálpar sveitarfélögum að byggja upp umhverfi og innviði sem stuðla að félagslegu öryggi, heilbrigðum lífsháttum og sam- félagslegri þátttöku allra íbúa,“ segir Guðrún og að síðustu: „Al- menn þátttaka er annars forsenda þess að vel takist til í lýðheilsu- málum. Svo verður að halda því til haga að samfélagið í Reykja- nesbæ er flóknara en mörg önnur sveitarfélög fyrir þær sakir að um fjórðungur bæjarbúa er af erlend- um uppruna sem margir eru ekki mjög virkir í samfélaginu. Okkur er í mun að ná til þess hóps líka; slíkt er klárlega í anda lýðheilsu- stefnu.“ Lýðheilsuráð í Reykjanesbæ og stefnan nær til allra sviða Morgunblaðið/Árni Sæberg Lífsgæði Skapa umhverfi sem gerir fólki kleift að blómstra í leik og starfi,“ segir Guðrún Magnúsdóttir. Heilsan og hamingjan  Guðrún Magnúsdóttir er fædd 1989. Hjúkrunarfræð- ingur ásamt því að hafa meist- aragráðu í lýðheilsuvísindum frá læknadeild Háskóla Íslands. Hefur lengi unnið á Landspít- alanum; geðsviði, bráða- móttöku barna og við heilsu- skóla Barnaspítala Hringsins síðastliðin ár.  Tók fyrr í haust við starfi sérfræðings í lýðheilsumálum hjá Reykjanesbæ. Hver er hún? Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég fagna þessum breytingum. Allt smátt hjálpar,“ segir Þorgerður María Þorbjarnardóttir, gjaldkeri félagsins Ungir umhverfissinnar. Fjölmörg íslensk framleiðslufyr- irtæki hafa á liðnum vikum og mán- uðum tilkynnt að þau hafi eða ætli sér að skipta yfir í umhverfisvænni umbúðir um vörur sínar. Í síðustu viku var greint frá því að Emmessís ætli sér að skipta út plastísboxum og selja ísinn í staðinn í pappaum- búðum. Stærri umbúðir hjá fyrir- tækinu verða með plastinnsigli og því er farið frá að notast við 100% plast yfir í 83% pappa. Mjólkurvinnsl- an Arna kynnti fyrir skemmstu umhverfisvænni umbúðir um ab- mjólk, pappamál sem innihalda 85% minna plast en áður. Morgunblaðið hefur nýlega greint frá því að bæði Ölgerðin og CCEP á Íslandi ætli að skipta yfir í umhverf- isvænni gosflöskur sem verða að stórum hluta gerðar úr endurunnu plasti. Þá hefur blaðið einnig greint frá því að stórum hluta af bókum í jóla- bókaflóðinu í ár er ekki pakkað í plast og munar um minna. Svari kröfum um breytingar Þorgerður María segir að hvert skref skipti máli og til að árangur náist þurfi hugarfarsbreytingu hjá almenningi og fyrirtækjum að öllu leyti. „Við sem neytendur þurfum að setja þá pressu á fyrirtækin að þau svari kröfu fólksins um breytingar.“ Sem kunnugt er hefur ríkisstjórn- in ákveðið að leggja áherslu á að- gerðir gegn plastmengun og eflingu hringrásarhagkerfisins. Hefur stjórnin kynnt áform um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Markmiðið verður að draga úr áhrifum plasts á umhverfið og heilsu fólks. Jafnframt að hreinsa plast úr umhverfinu, vekja neytendur til umhugsunar um neyslu og umhverfisáhrif plasts, draga úr notkun einnota plastvara og styðja við notkun fjölnota vara. Sífellt fleiri skipta út plastinu  Framleiðendur skipta yfir í umhverfisvænar umbúðir  „Svara kröfu fólksins“ Nýtt útlit Emmessís fæst nú í pappaumbúðum í stað plastboxa. Þorgerður María Þorbjarnardóttir Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Sagnfræðilegar heimildir benda til þess að sjálfstæðishetjan Jón Sig- urðsson hafi verið undir áhrifum þýskra ríkisvísinda fremur en frjáls- lyndisstefnu og þannig verið fylgj- andi auknum ríkisafskiptum. Þetta segir Sveinn Máni Jóhannesson, ný- doktor í sagnfræði, en hann færir rök fyrir þessu í grein sinni Far- sældarríki Jóns Sigurðssonar, sem birtist í nýjasta hefti tímaritsins Sögu. Ríkisvísindi eru að sögn Sveins akademískt fag sem Jón til- einkaði sér í Kaupmannahafnarhá- skóla og snerist um það hvernig stýra ætti ríkjum með skilvirkum hætti með sérstakri áherslu á að hið opinbera bæri ábyrgð á að efla ham- ingju, velferð og farsæld þegnanna. Telur Sveinn að skortur á rann- sóknum á stjórnmálahugmyndum frá samtíma Jóns og erlendu sam- hengi þeirra vera ástæðuna fyrir því að lítið er vitað um hugmyndafræði hans. Hann segir jafnframt að mikil tilhneiging sé til þess í íslensku fræðasamfélagi að flokka flestar hugmyndir undir frjálslyndisstefnu og þjóðernishyggju. Telur hann að hugmyndafræði Jóns Sigurðssonar hafi verið flóknari en svo. Ríkisvaldið mikilvægt „Hann taldi að ríkisvald ætti mik- ilvægu hlutverki að gegna til að snúa því sem kalla mætti óheillaþróun Ís- landssögunnar; mikilli fátækt og niðurníðslu, við,“ segir Sveinn í sam- tali við Morgunblaðið. Hann segir Jón hafa notað hugmyndir ríkisvís- inda meðal annars til að gagnrýna Danakonung fyrir að skipta sér of lítið af Íslandi og að hann hafi talið það vera ástæðuna fyrir því hversu illa þjóðin var sett. „Hann taldi lausnina meðal ann- ars felast í því að það yrði að vera innlend landstjórn og hann notaði hugmyndir frá ríkisvísindum til þess að færa rök fyrir því af hverju Ísland ætti að fá aukna sjálfstjórn. Þetta var sú pólitíska orðræða sem honum fannst líklegust til árangurs í sjálf- stæðisbaráttunni,“ segir Sveinn. Aðspurður hvort Sveinn telji Ís- lendinga hafa raunsæja mynd af Jóni Sigurðssyni neitar hann. „Ég myndi segja að hún væri svo- lítið langt frá því enn þá. Og ekki bara í sambandi við Jón heldur alla frumkvöðla sjálfstæðisbaráttunnar. Ég held að við séum svolítið að varpa okkar hugmyndum á þá. Ég held að við áttum okkur ekki á því hversu langt í burtu þeir voru í raun og veru frá okkar hugmyndaheimi. Þeir tilheyrðu dálítið öðrum hug- myndaheimi en við gerum okkur grein fyrir,“ segir Sveinn. Jón fylgjandi ríkisafskiptum  Taldi Dani skipta sér of lítið af Íslandi Forseti Jón var líklega ekki mikill frjálslyndismaður í nútímaskilningi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.