Morgunblaðið - 09.12.2019, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | Opið alla virka daga kl. 10-17 | www.rut.is | Ljósmyndir Rutar og Silju
Stúdenta-
myndatö urk
Einstökminning
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hart var tekist á um Hvalárvirkjun
á fjölmennum fundi Íslendinga á
Kanaríeyjum síðastliðinn laugardag
þar sem framtíð Árneshrepps var
umræðuefnið. Tillaga þar sem hvatt
var til uppbyggingar sauðfjár-
ræktar, trilluútgerðar og ferðaþjón-
ustu í stað Hvalárvirkjunar var felld
með fjögurra atkvæða mun.
Margt er til skemmtunar gert og
einnig rætt um alvarleg málefni
þegar Íslendingar á Kanaríeyjum
koma saman. Fundirnir eru tengdir
Framsóknarflokknum enda for-
ystumennirnir virkir í þeim flokki
þó að fundirnir séu öllum opnir.
Guðni Ágústsson, fyrrverandi for-
maður Framsóknarflokksins og
landbúnaðarráðherra, er virkur í
starfinu þegar hann dvelur í sólinni.
Fundurinn á laugardag var hald-
inn á veitingastaðnum El Duke á
Ensku ströndinni. Sturla Þórðarson
fundarstjóri lagði fyrir fundinn að
ræða um framtíð Árneshrepps.
Byggt verði á sauðfé og fiski
„Hér dvelja systkini frá Dröng-
um, Strandamenn og fleiri sem
elska byggðina,“ segir Guðni þegar
hann er spurður út í fundinn. Hann
og Elías S. Kristinsson á Dröngum
lögðu fram tillögu um að skora á
ríkisstjórn og Alþingi að grípa til
aðgerða til að tryggja búsetu og
framtíð Árneshrepps. Þar var eink-
um horft til þess að aðstoða ungt
fólk við að byggja upp 10 jarðir og
vera þar með sauðfjárbúskap og
trilluútgerð sem grundvallaðist á
auðlindum lands og sjávar, sem og
ferðaþjónustu.
Segir Guðni að þetta hafi orðið
átakafundur, ekki síst vegna þess að
í tillögunni kom fram það álit að
Hvalárvirkjun mundi ekki bjarga
byggðinni heldur mundi hún og öll
sú eyðilegging sem henni fylgdi
skaða byggðina og ósnortna náttúru
til framtíðar.
„Þetta urðu alvöruátök, en um-
ræður málefnalegar. Menn komu
með rök með og á móti. Ýmsir
þeirra sem voru á móti tillögu okkar
minntust á að Kárahnjúkavirkjun
og álver á Reyðarfirði hefðu gert
mikið gagn fyrir byggðirnar á Aust-
urlandi. Við töldum aftur á móti að
við þyrftum að velja ósnortið land
því þar væri framtíð fyrir ferðaþjón-
ustu sem menn væru tilbúnir að
borga vel fyrir að njóta,“ segir
Guðni.
Margir sátu hjá
Um 100 manns sóttu fundinn. Um
helmingur þeirra tók ekki afstöðu til
tillögunar sem var felld með 29 at-
kvæðum gegn 25. „Þetta gerist,
maður getur ekki alltaf unnið og
ekki þýðir að gráta það. En ég tel að
hugmyndin að byggja Árneshrepp
aftur upp á grunni auðlindanna sem
þar eru, með sauðfjárbúum og trill-
um, sé athyglisverð,“ segir Guðni.
Virkjanasinnar höfðu sigur
Átök á Kanarí
um Hvalárvirkjun
Ljósmynd/Aðsend
Á fundi Elías S. Kristinsson og Sólveig Kristinsdóttir, systkini frá Dröngum
í Árneshreppi, og Guðni Ágústsson. Guðni og Elías fluttu umdeilda tillögu.Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Gleði og þakklæti í anda aðvent-
unnar lá í loftinu í Lindakirkju í gær
þegar góðgerðarfélagið Bumbuloní
veitti tólf fjölskyldum langveikra
barna styrk upp á 233 þúsund krón-
ur fyrir hverja fjölskyldu. Er þetta í
fimmta skipti sem góðgerðarfélagið
veitir styrkinn en nú hafa samtals 38
fjölskyldur fengið styrk frá félaginu
frá upphafi. Bumbuloní var stofnað
árið 2015 í minningu Björgvins Arn-
ars, þá sex ára, sem lést 2013 úr
sjaldgæfum sjúkdómi. Ásdís Gott-
skálksdóttir, móðir Björgvins og
stofnandi Bumbuloní, segir stundina
hafa verið fallega og hafa einkennst
af miklu þakklæti.
Styrkjunum er safnað árið um
kring, m.a. með sölu á jólakortum og
tækifæriskortum með teikningu eft-
ir Björgvin.
„Maður finnur að þetta er allt
þess virði. Þetta er mjög mikil vinna
og allt unnið í sjálfboðastarfi en svo
uppsker maður fyrir jólin að geta
gefið af sér til þessara fjölskyldna
sem eiga um sárt að binda,“ segir
Ásdís.
„Jólin eru fjárfrekasti mánuður
ársins og það er ekki létt að vera
með langveikt barn. Það er mjög
mikil yfirlega og foreldrar eru að
ganga í gegnum rosalega erfiðleika
og sorg oft á tíðum og þurfa að vera
frá vinnu. Svo venjulega er mikil
þörf á fjármagni, sérstaklega í des-
ember,“ segir hún.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleði Tólf fjölskyldur langveikra barna fengu styrk upp á 233 þúsund krónur
hver við styrkveitingu góðgerðarfélagsins Bumbaloní í Lindakirkju í gær.
Styrktu langveik
börn á aðventunni
Fjölskyldurnar fullar af þakklæti