Morgunblaðið - 09.12.2019, Blaðsíða 11
BAKSVIÐ
Viðar Guðjónsson
vidargudjons@gmail.com
Fyrir sex árum hófu óstýrilátar risaeðlur að
vera með óvænt uppátæki í aðdraganda jóla
á heimili þeirra Óla Arnar Atlasonar og Kar-
enar G. Elísabetardóttur á Rekagranda í
Reykjavík. Að sögn Óla
Arnar hafa risaeðlurnar
verið hluti af lífi þeirra og
barnanna, Helga Júlíusar
11 ára, Sigríðar Kristínar
9 ára og Einars Atla 5 ára,
síðustu árin.
Risaeðlurnar hafa lagt
það í vana sinn að vera
með alls konar uppátæki
þegar heimilisfólk er farið
að sofa. Byrja þær á uppá-
tækjum sínum ár hvert 1. desember en
hætta athæfi sínu 10. desember og er það að
sögn Óla vegna þess að risaeðlurnar eru
hræddar við jólasveinana og þær vilji ekki
vera á stjái á sama tíma og þeir. „Þær eru
alltaf með eitthvert vesen og það er kærkom-
ið þegar þær finna að jólasveinarnir eru að
koma. Fyrst um sinn voru þær svolítið ag-
gressívar og krakkarnir okkar, Helgi og Sig-
ríður, voru fimm og þriggja ára þegar risa-
eðlurnar byrjuðu á þessu. Þau voru pínulítið
hrædd við þær og við heyrðum stundum í
þeim þegar þau báðu risaeðlurnar um að
hætta þessu athæfi sínu,“ segir Óli.
Vildu henda risaeðlunum
Fyrsta árið tóku risaðelurnar upp á því að
brjóta aðventukertin og að sögn Óla vildu
krakkarnir setja þær í búr eða henda þeim.
„Hvað er í gangi, mamma! Ég held að við
verðum bara að henda þessum risaeðlum í
ruslið, þær eru eitthvað brjálaðar,“ sagði
Helgi árið 2013.
„Þegar risaeðlurnar varalituðu sig með
rándýra varalitnum hennar Karenar þá
fannst krökkunum það mjög fyndið en í
hvert skipti sem þær skemmdu eitthvað þá
fannst krökkunum það óþægilegt og voru
jafnvel reið út í þær,“ segir Óli.
Í dag er Helgi orðinn 11 ára. Að sögn Óla
þykir honum alltaf jafn spennandi að koma
fram á morgnana til þess að sjá hverju risa-
eðlurnar hafa tekið upp á.
Meðal þess sem risaeðlurnar hafa gert er
að þekja húsið að innan með klósettpappír.
„Svo þola þær ekki fjölpóst og hafa tekið
hann, rifið hann í tætlur og dreift út um öll
gólf,“ segir Óli. Hann segir að risaeðlurnar
hafi róast í seinni tíð. „Í gær bjuggu þær til
leikvöll og voru að reyna að fá vasapening
fyrir að passa litlu risaeðlurnar,“ segir Óli.
Hann segir að risaeðlurnar séu klárar og
skemmtilegar og þær endutaki sig sjaldan.
Um daginn var Big Lebowski-þema hjá
þeim, en í kvikmyndinni er m.a. frægt keilu-
atriði sem þær léku eftir.
Að sögn Óla er ein risaeðlan Tyr-
annosaurus Rex talsvert meiri kjáni en hinar
eðlurnar. „Hann misskilur allt. Eitt árið fóru
þær í samstarf við bílana og Bubba Byggi og
byggðu piparkökuhús. Þá hélt Rex á teikn-
ingu af Stonehenge. Það er dæmigert fyrir
Rex. Yfirleitt eru allir að vinna vel saman,
nema Rex, hann er alltaf á skjön við hina og
er pínu taktlaus miðað við það sem er í
gangi,“ segir Óli.
Hluti af heimilishaldinu
Hann segir að krakkarnir furði sig ekki á
því hvers vegna aðrir glími ekki við þennan
risaeðluvanda. „Þetta mál hefur aldrei komið
upp. Krökkunum finnst bara eðlilegt að þetta
sé hérna heima. Svo er ýmislegt úr umhverf-
inu sem hefur styrkt þessa sögu, eins og t.d.
leikföngin úr Toy Story. Þau lifnuðu við,“
segir Óli.
Eilíft vesen á risaeðlunum
Kvef Risaeðlurnar þurfa að fara vel með sig.
Þær geta veikst eins og aðrir.
Villibráðarkvöld Risaeðlurnar gerðu eitt sinn
vel við sig og höfðu villibráðarkvöld.
Uppátækjasamar risaeðlur eru orðnar eðlilegur hluti heimilishalds fjölskyldu á Rekagranda í að-
draganda jóla Dreifðu klósettpappír um allt hús og brutu aðventukerti Rex er fremur taktlaus
Óli Örn Atlason
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019
LEIKFÖNG úr silki
Fyrsta silkið!
Naghringur úr tré með
áföstum silkiklút í regnboga-
lit. Litlir fingur ná auðveldlega
taki á hringnum og fær barnið
að upplifa andstæðurnar í
harða trénu og mjúka silkinu.
Leiksilki
Leiksilki fyrir hugmyndaríkan
leik barns er eitt vinsælasta
waldorf leikfangið, notað í
leikskólum og skólum um
allan heim. Silkið er notað í
búninga, til að byggja virki,
sem himinn eða gras og
margt fleira.
Létt og flögrandi leikfang
sem eykur ímyndunaraflið í
skapandi leik.
Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14