Morgunblaðið - 09.12.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 09.12.2019, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019 LÉLEG RAFHLAÐA? Við skiptum um rafhlöðu samdægurs Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is Þegar Leppalúði hitti grænlenska tröll- karlinn Oolaorsoq í fyrsta sinn stóðu þeir lengi og horfðu í glyrn- urnar hvor á öðrum. Álengdar fór Grýla hamskiptum og þóttist vera klettur meðan elsti sonur hennar Letihaugur horfði á feður sína, óvitandi hvað hann ætti að hugsa, og beið. Í leyni á bak við þar næsta fjall lá Grínskaði, eldri bróðir Letihaugs, og glóðu í honum glyrnurnar meðan hann beið eftir Tröllkarlaslag. Nokkuð sem gerist sjaldan og yf- irleitt efni í langar og drjúgar sög- ur. Þeir fáu sem fengið hafa að kynn- ast Leppalúða vita að hann er dulur og magnaður tröllkarl og þú dregur ekkert upp úr honum. Hann er þó furðu umburðarlyndur við ofgnótt kjánalegra spurninga, svip- brigðalaus að mestu, en stundum sérðu á annarri augabrún að sjálfs- vöruð ályktun við spurningu var kórrétt: Sumsé, flókinn. Undir kvöld leit annar tröllkarl- inn yfir hafflötinn sunnan við Krísu- víkurbjarg, leit svo á hinn, sem kinkaði kolli. Síðan settust þeir upp í Geitháls og kepptust við að grýta grjóti á borð við Fullsterkan sem lengst á haf út. Með morgninum var Letihaugur sestur fyrir aftan feður sína og taldi skorin. Grínskaði var farinn í fússi norður á Strandir. Þegar Slöpp gamla sagði mér þessi fyrstu kynni manns síns við blóðföður sinn þóttist Letihaugur vera upptekinn við lestur Kletta- frétta, nýbakaðar tröllasmákökur voru með kaffinu, hlýjan í eldhúsi Slappar yljaði túristunum sem utan við tröllahellinn voru að dást að hvernum í Seltúni. Stutt var til jóla. Löngu síðar urðu Oolaorsoq og Grínskaði perluvinir og eru enn, þeir ferðast mikið saman og hafa margar skemmti- og reynslusögur að segja af ferðum sínum. Best er sagan af því þegar fimm ára rúss- nesk stúlka um hávetur – óvitandi, á dymbilvikunni – leiddi í ljós fyrir honum mikilvægi þess að þeir yrðu vinir og samstarfsfélagar. Sagan af því þegar Letihaugur guðaði á gluggann hjá mér um miðja nótt til að vekja mig og bera mig á herðum sér heim í Seltún að hitta föður sinn, sem var kominn í heimsókn til skáfjölskyldu sinnar, hefur verið sögð annars staðar. Að- eins einum jólum fyrr hafði ég spurt í fjallasal, óvitandi að oft er í kletti hlerandi tröll: hvert skyldi vera hlutverk þessa græn- lenska tröllkarls í ís- lensku jólasögunni? Eitt sinn, í heimsókn í hlýjum hellinum hjá Grýlu, spurði ég hvort ég myndi einhvern tíma hitta „gömlu hennar“. Svaraði hún rólega: „Nei, kúturinn minn, hún gamla mín er af gamla skólanum.“ Grýla útskýrði það ekki frekar en ég skildi á augabragði hvers vegna þessi stóra fjölskylda Grýlu og Leppalúða er stolt af þátttöku sinni í því að ís- lensk jól verða ávallt haldin og að börn um gjörvalla veröld læra mik- ilvægi þess að virða uppruna þess sem Þórbergur kallaði „nið ald- anna“ og hvers vegna þroskað fólk veit að það er svo miklu fleira í til- verunni sem skiptir miklu máli en það eitt sem við getum mælt með stikum og skífum. Morgunblaðið birti góðfúslega grein mína „Trúarofsóknir hinna trúlausu“ hinn 19. desember 2016. Þar leitaðist ég við að rökstyðja að aðför sósíalista, í fjölmiðlum, skól- um og í stjórnmálum, að jólahaldi barna og þekkingu þeirra á nið lið- innar frumspeki, er trúarofbeldi, hér rökstyð ég að það sé aðför að frumspekilegri menningu og þar með að öllu því sem við höldum dýr- ast en getum ekki verðlagt. Hvernig mælirðu vináttu eða verðleggur ást? Hvernig útskýrirðu hugtakið virðing; hugtak sem öll spendýr skilja og virða. Eins og Gunnar Gunnarsson rithöfundur reit: „Sá sem heldur að dýrin hafi enga sál hefur aldrei umgengist dýr.“ Það sama á við um jólasvein- inn. Ef þú hefur misst getuna til að sjá hann og þekkja hann muntu seint læra það sem hann vill færa þér, sem er frumspekileg og dýr- mæt gjöf. Hvaða þrjár ómælanlegu frumspekilexíur voru dulkóðaðar í þessari grein? Vona ég að enginn sósíalisti eða guðleysingi hafi móðgast eða upp- lifað særðar tilfinningar við lest- urinn. Virðing var markmiðið, hafi það mistekist voru mistökin mín. Frumspekilegt gildi jólasveinsins Eftir Guðjón E. Hreinberg » Tvær stuttar örsög- ur af því hvers vegna við virðum jóla- sveininn en gleymum stundum hvers vegna eða síðan hvenær. Guðjón E. Hreinberg Höfundur er heimspekingur. gudjonelias@gmail.com Sovét-Ísland, óska- landið, heitir bók Þórs Whitehead er út kom 2010. Stórmerk bók um sögu vinstri- mennskunnar á Ís- landi, einkum á fyrri hluta síðustu aldar, þegar kommúnistar og róttækir vinstri- sinnar gerðu ítrek- aðar tilraunir til bylt- ingar og valdaráns á Íslandi. Með falli Sovétríkjanna 1991 má segja að hafi orðið viss þáttaskil við hugmyndafræðilegt gjaldþrot kommúnismans, en hin bjargfasta alþjóðahyggja þeirra og annarra vinstrimanna helt þó velli og nú undir öðrum formerkjum. Hin skefjalausa alþjóðavæðing, al- þjóðahyggja, glóbalismi og No Borders og tilurð Evrópusam- bandsins á grunni slíkra hugsjóna varð þeim algjör himnasending, því undravert samspil hins al- þjóðlega kapítals og alþjóðahyggju sósíalista kemur nú fram undir handleiðslu Georgs nokkurs Soros, spákaupmanns og verðbréfabrask- ara, sem enn sér ekki fyrir end- ann á. Þar skal þjóðríkinu fórnað á altari galopinna landamæra, frjáls flæðis fólks, fjármagns og vöru og þjónustu. Hvað sem það kostar! Glóbalisminn nær fótfestu á Íslandi Og ekki er að sökum að spyrja; alþjóðasinnaða vinstrið á Íslandi fellur að fótskör glóbalismans, m.a. með því að hefja baráttu fyrir aðild Íslands að ESB, arftaka hins sáluga Sovéts, með allt sitt sov- éska yfirþjóðlega vald og ofur- miðstýringu. Þjóðleg viðhorf og gildi skulu afmáð í anda vinstri- mennskunnar (Soros) enn sem fyrr. Það athyglisverðasta er að þessi þróun á Íslandi er á skjön við þá pólitísku þróun sem nú á sér stað í Evrópu og víðar, sbr. BNA, þar sem almenningur rís upp til varnar þjóð- ríkjum sínum og þjóð- legir stjórnmálaflokk- ar og leiðtogar koma inn á sviðið og hasla sér þar völl. Segja má að hin þjóðlegu borg- aralegu öfl á Íslandi hafi brugðist skyldu sinni á stjórn- málasviðinu við að halda hinni al- þjóðasinnuðu og óþjóðhollu vinstri- mennsku á Íslandi í skefjum. Já orðið utangátta, hreinlega. Myndun núverandi rík- isstjórnar undir forystu sósíalista er besta sönnun þess, svo og þær sósíalísku áherslur sem hún stend- ur fyrir. Og auðvitað ganga vinstrisinnar þar með á lagið, því hvert vígi þjóðlegra borgaralegra gilda og viðhorfa og kristinna fell- ur. Jafnvel biskupinn fær andköf og talar um siðrof! Og er þá mikið sagt! Hvert ruglfrumvarpið á Al- þingi af öðru er samþykkt, sbr. kynrænt sjálfræði sem umturnar íslenskum mannanöfnum, fóstur- dráp allt að 22 vikna meðgöngu í anda marxisma, orkumál Íslands færð til yfirþjóðlegs valds í Bruss- el og nú frumvarp dómsmálaráð- herra um að leyfa skotleyfi á ís- lenska fánann, sameiningartákn Íslendinga. Fyrir utan allt lofts- lagstrúboðið sem virðist eiga að skattleggja þjóðina inn að beini, svo hundruðum milljarða nemur, næstu tvo áratugi, og enginn veit hvernig skal greiða í loftslagshít ESB, því engar líkur eru á að Ís- land standi við hinar óvísindalegu skuldbindingar sínar. Sem er í raun Icesave taka 2. Já svo fátt eitt sé nefnt. Þannig er látlaust ráðist á íslenska þjóðríkið og grunnstoðir þess. Og þannig stækkar djúpið ört milli þings og þjóðar og embættismannaelít- unnar, á meðan stjórnmálaflokk- urinn (XD) sem átti að vera í upp- hafi brjóstvörn þjóðlegra kristinna gilda og viðhorfa en hefur nú gjör- samlega brugðist í faðmi sósíalista og vinstrimennsku, glóbalista, minnkar óðfluga. Glóbalistar og EES ógna þjóðfrelsi og fullveldi Íslands Á þessu ári eru 25 ár frá því að samningurinn um EES tók gildi illu heilli, því í dag er hann orðinn ekkert annað en beint aðildarferli Íslands að ESB, að þjóðinni for- spurðri, með alls kyns tilskipunum og reglugerðafargani sem stand- ast ekki einu sinni stjórnarskrá, fyrir utan gríðarlegan kostnað langt umfram kosti hjá örþjóð sem okkar. Með beinum stuðningi glóbalista innan þings og utan og þeim alvarlega hlut að enn hefur Alþingi ekki borið gæfu til að draga umsókn Íslands að ESB frá árinu 2009 til baka. Allt ber því að sama brunni: Glóbalistar og EES ógna nú þjóðfrelsi og fullveldi Ís- lands sem aldrei fyrr, nú síðast með orkupökkum ESB. Eru þá glóbalistar að yfirtaka Ísland? Vonandi ekki. En til að koma í veg fyrir það verða sannir Íslendingar að losa sig úr fjötrum EES og gera fríverslunarsamninga við flestar þjóðir heims sem frjáls þjóð á jafnréttisgrundvelli, sbr. við vini okkar í vestri, Bandaríkin, og í austri vini okkar Rússa, og aflétta fráleitu viðskiptabanni á þá. Til þess þarf pólitískt þor og stefnufestu! Stjórnmálaflokk sem tekur íslenska þjóðarhagsmuni fram yfir allt annað. Frelsisflokk- urinn er tilbúinn í þá baráttu fái hann til þess stuðning! Þinn stuðning! Áfram frjálst Ísland! Eru glóbalistar að yfirtaka Ísland? Eftir Guðm. Jónas Kristjánsson » Allt ber því að sama brunni. Glóbalistar og EES ógna nú þjóð- frelsi og fullveldi Ís- lands sem aldrei fyrr, nú síðast með orku- pökkum ESB. Guðmundur Jónas Kristjánsson Höfundur er bókhaldari og situr í flokksstjórn Frelsisflokksins. gjk@simnet.is Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.