Morgunblaðið - 09.12.2019, Síða 17

Morgunblaðið - 09.12.2019, Síða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019 Prófessor Rögnvald- ur Hannesson, sem kalla má einn af guð- feðrum íslenska afla- marksismans, sagði í aðdragandanum þessa gullvægu setningu: „Það er ekki hægt að ofveiða botnlægar fisk- tegundir líffræðilega, það er eingöngu hægt að ofveiða þær hag- fræðilega.“ Þessi setning er að öllum líkindum rétt en gallinn við hana er að hún segir bara hálfan sannleikann. Til að skilja hvað ég á við skulum við skipta út orðinu veiða fyrir orðið vernda og viti menn, setningin er ennþá sönn og rétt. Það er ekki hægt að ofvernda botnlægar fisktegundir líffræðilega, það er eingöngu hægt að ofvernda þær hagfræðilega. Ef eitt- hvað er er seinni útgáfan öruggari en sú fyrri því í henni er ekki fólgin óvissan um hvort hægt sé að veiða síðasta fisk tegundar. Seinni útgáfan hefur það líka umfram þá fyrri að hún gildir um allar lífverutegundir en ekki bara um botnlægar fisktegundir, þ.e. lífríkið getur komist af án mann- legra afskipta. Sá sem skilur þetta eðli lífríkisins mun síður falla í þá gryfju að ímynda sér að hægt sé að ávaxta fjármuni endalaust í hafinu. Hann hlýtur að skilja að við aukna vernd vex lífsbar- áttan og orkan sem í hana fer verður ekki notuð til vaxtar. Vísindamenn viðurkenna þetta óbeint með notkun setninga eins og að stofn sé í jafnvægi og er það orðatiltæki bæði haft um veiddar og óveiddar tegundir. Til að geta nýtt lífríkið af einhverju viti þurfa menn því bæði að gera sér grein fyrir breytilegu þoli tegund- anna við veiði og vernd og áhrifum þeirra hverrar á aðra, sem er líklega erfiðara viðfangsefni en vísindamenn ráða við. Ofurfrjósamir sjálfráns- fiskistofnar þola veiðar betur en margir aðrir stofnar en misskilin vernd getur auðveldlega leitt til orku- skorts sem þeir leysa að sjálfsögðu með sjálfráni þegar skortur er orðinn á öðru fæði og rými. Frá því að Íslendingar tóku að tak- marka þorskveiðar 1984 í kjölfar svartra skýrslna eru liðin 35 ár sem er helmingur ævi minnar. Hinn helm- ing ævi minnar var sóknin meira og minna frjáls og þá var heildarþorskaflinn, með afla útlendinga, að með- altali meira en helmingi meiri en hann varð að meðaltali síðan 1984. Þar sem hér er um að ræða mun sem orðinn er marg- faldur heildarstofnþungi þorskstofnsins hvenær sem er á tímabilinu, hljóta menn að velta því fyrir sér hvort veiðiálagið hafi undanfarið verið nóg til að skapa rými fyrir vöxt og nýliðun stofnsins. Ég tel svo ekki vera. Vissu- lega gat stundum verið fyrirhöfn að ná þessum afla og vinna hann en sú fyrirhöfn var vinna sjómanna og verkafólks sem voru íbúar sjáv- arþorpa landsins, sem mörg hafa nú verið dæmd úr leik. Áætlunarbúskapur fjármagnsins og vísindanna, aflamarksisminn, er ekki fyrsti isminn sem skilar annarri niðurstöðu en til var ætlast og lætur sér fólk, þorp og orkusóun lífríkisins í léttu rúmi liggja. Þar á bæ er ein- göngu hugsað um að ávaxta fé sem hraðast og með sem minnstri fyr- irhöfn og til þess þurfa heimildirnar að vera takmarkaðar og sóknin lítil. Það er ekki lengur talið arðbært að tína arfann úr óræktinni eða grisja fyrir vexti og því er uppskeran rétt rúmur helmingur þess sem hún hefði getað orðið. Þeir sem vilja nýta líf- ríkið á auðveldan máta nota gjarnan hið gildishlaðna orð sjálfbærni. Orðið hefur lítið gildi annað en að vera mannfjandsamlegt nema tekið sé tillit til allra þátta, þ.e. sköpunar, eyðingar, mögulegs vaxtarrýmis og tiltækrar orku. Það er hvorki mannúðlegt né skynsamlegt að setja of margar rollur á ofbeitta hlíð. Er það ekki sameig- inlegur skilningur okkar allra? Lifið heil. Aflamarksisminn – Um veiði og vernd Eftir Sveinbjörn Jónsson »Áætlunarbúskapur fjármagnsins og vís- indanna, aflamarksism- inn, er ekki fyrsti isminn sem skilar annarri nið- urstöðu en til var ætlast. Höfundur er sjómaður og ellilífeyrisþegi. svennij@simnet.is Sveinbjörn Jónsson Í nýlegri úttekt á rekstri eftirlitsstofnana ríkisins kom fram að árið 2018 hefðu 115 manns unnið á Um- hverfisstofnun og út- gjöld þar á bæ numið 2,161 milljarði. Útgjöld Skipulagsstofnunar komust þarna ekki í hálfkvisti, en þau voru einungis 326,5 milljónir og starfsmenn 26. Í þessari úttekt var ekkert á það minnst í hverju þessi stærðarmunur væri fólginn, en báðar þessar stofn- anir hafa eftirlit með notkun og nýt- ingu Íslands. Það rifjaðist hins vegar upp fyrir mér að þegar ég vann hjá Skipulagi ríkisins fyrir mörgum árum þá skipulagði sú stofnun allt þéttbýli á Íslandi (að Reykjavík undanskil- inni) við fjórða mann. Hér má nú á milli vera og þá var Umhverf- isstofnun heldur ekki til. Samt er ekki annað að sjá en að ríkisstjórn og ráð- herra skipulagsmála séu sátt við þess þróun og stöðu. Öll stefnumótun og ákvarðanataka á þessu sviði skiptir okkur miklu og ekki síst hvað viðvíkur nokkuð fyrir- sjáanlegri hlýnun jarðar; hvernig við tökumst á við framtíð- ina, mótum okkur stefnu viðvíkjandi öllum þeim flóknu málum sem krefjast úrlausnar, fylgjum henni eftir og hvernig við verjum til þess takmörkuðu fé og mannafla. Í þessu sam- bandi hefur nýmæli í skipulagi, Hverf- isskipulag Reykjavíkur, sem borgin hefur ný- lega bryddað upp á ekki hlotið verðskuldaða at- hygli og umræðu, en vinna við þetta hverfisskipulag hófst árið 2013. Þótt þetta sé kallað skipulag þá er hér samt að verulegu leyti um að ræða hönnunarforskrift fyrir alla Reykjavík, sem ákveður fyrir heilu hverfin hvað megi og megi ekki gera. Nú kann vel að vera að nauðsynlegt sé að skóla hönnuði upp í góðri hönn- un, auk þess sem það kanna að flýta eitthvað fyrir afgreiðslu umsókna, en á hitt er líka að líta hvort akkúrat þetta sé það mikilvægasta sem við getum gert í skipulagsmálum borg- arinnar á þessum tímapunkti? Ein- faldari og jákvæðari leið til að auka gæði hönnunar og umhverfis gæti líka verið sú að gera meiri kröfur til menntunar hönnuða og starfsreynslu heldur en að njörva alla hönnun fyr- irfram niður í smæstu atriði. Á sama hátt væri hægt að gera þá sjálfsögðu kröfu til þeirra sem sýsla við skipulag að þeir hefðu a.m.k. lokið lágmarks- prófi í skipulagsfræðum og hefðu að auki tilskilda starfsreynslu. Ekki síður virðist ástæða til að kanna orsakir flótta fyrirtækja og fólks úr borginni – félagslegar og hagfræðilegar breytingar sem hafa átt sér stað í kjölfar þéttingar byggð- ar og hver sé æskileg framtíðarstefna borgarinnar í heild til næstu áratuga, sem líka nær til framtíðarskipulags hafnarinnar sem hafnarstjóri sagði nýverið í Morgunblaðinu að væri ekki til. Í sjálfu sér er ekki ónýtt að op- inberir starfsmenn bendi hönnuðum á að „góð nýting byggist að miklu leyti á góðri hönnun og útsjónarsemi“ og að „við greiningu hverfa borg- arinnar hefur komið í ljós að þörf er á að fjölga íbúðum og þá sérstaklega minni íbúðum“. Var samt virkilega nauðsynlegt að greina hverfi borg- arinnar til að komast að þessu? Aðrar kvaðir eru líka torskildar eins og hvers vegna sólarrafhlöður mega ekki þekja meira en 1/3 þakflatar. Er það líka ekki svolítið metnaðarlaus uppgjöf að: „Atvinnuhúsnæði, bíla- geymslu eða geymsluhúsnæði sem ekki er lengur not fyrir má breyta í íbúðir að uppfylltum skilyrðum“? Auðvitað er samt fróðlegt að fá að vita að í Árbæ „er náttúruvá vegna flóða talin lítil í skilmálaeiningunni“. Maður er líka litlu nær eftir að hafa lesið skilgreiningu á „byggða- mynstri“ enda minnir hún talsvert á skilgreiningu kirkjunnar á því að guðdómurinn sé bæði einn og þríeinn. Auk þess er bent á að „hægt sé að setja hverfisvernd á byggðar- mynstur, götumyndir eða annað sem þykir eftirtektarvert og einkennandi fyrir hverfið eða einingar innan þess“. Einnig geta götuhliðar líka fengið sérstaka vernd – en fyrir hverjum? Með þessu hverfisskipulagi fylgir 20 síðna rit um „þakbreyt- ingar“ og þar er ýmislegt fróðlegt að finna. Tekið er fram að leiðbeiningarnar séu ekki tengdar einstökum hverfum eða skilmálaeiningum heldur séu þær algildar fyrir öll hverfi borgarinnar. Í hverfasjá (sja.hvsk.is) má sjá þau hverfi þar sem hverfisskipulagi er lokið; þar sem skipulag er í vinnslu og þau hverfi sem eftir er að „hverfis- skipuleggja“. Fróðlegt væri samt fyrir Reykvík- inga að fá upplýst hvaða til þess bær- ir sérfræðingar bera faglega ábyrgð á þessari vinnu. Mikið skortir líka á að gerð sé grein fyrir því hvaða önnur vandamál sé verið að reyna að leysa með þessu hverfisskipulagi og hvaða árangri menn ætla sér að ná og innan hvaða tímaramma, þannig að hægt sé að breyta um stefnu ef tilskilinn ár- angur er ekki að nást. Nú er það einu sinni svo að aldrei er hægt að sjá fyrir allar óskir og langanir manna um ókomna framtíð og þaðan af síður æskilegt að reyna að njörva þær allar niður í ákveðið form um ókomna tíð. Mannlífið er fjölbreytt og síbreytilegt fyrirbrigði og mikill ábyrgðarhluti og ekkert gamanmál hvernig þessari þróun er stjórnað þótt menn vilji vera vinir vina sinna. Form, fegurðarsmekkur og gildismat núverandi kynslóðar, mikilvægt þótt það kunni að vera, ætti ekki að njörva þessa þróun niður eða setja henni órýmilegar skorður. Eftir Gest Ólafsson »Miklu skiptir hvernig við verjum mannafla og takmörk- uðu fé til að skipuleggja framtíðarþróun Íslands Gestur Ólafsson Höfundur er arkitekt og skipulagsfræðingur. skipark@skipark.is Skipulag skipulagsins Við vitnum til orða þinna í Mogg- anum um daginn um umferðarruglið í höfuðborginni. Við köllum hana Sæluborg eins og Bjössi á Ósi. Við vitum hvernig staðan er í Nýju Delí, Peking og Tókýó. Hvarvetna um heimsbyggðina. Burtséð frá allri loftslagsumræðu. En við Íslend- ingar keyrum eins og vitlausir menn stundum! Spyrja má: Hvað eru co- untry boys að skipta sér af Sælu- borginni? Svarið er einfalt: Ísland er land okkar allra. Hagsmunir landsbyggðar og borgar eru sam- tvinnaðir hvað sem hver segir. Er aldrei komið nóg af steypu, malbiki og sköttum? Tugum þúsunda of margir bílar aka fram fram fylking um götur Reykjavíkur dag hvern. Og bíða og bíða og bíða. Það er kaos, neyðar- ástand. Þetta vita allir. Borgin er stífluð af mannavöldum, eins og þú nefnir. En ráðið við því skal vera að byggja fleiri stokka og steina úr sementi þar sem þrælahaldi með er- lendu verkafólki er haldið uppi, meira malbik, stál og gler. Borgast með himinháum sköttum. Er aldrei komið nóg af slíku? Til að þóknast einhverjum sem þurfa að græða meira. Af hverju má ekki fækka bíl- um á götum okkar sælu borgar með einföldu samkomulagi við bílaeig- endur? Snarfækka ökutækjum í um- ferðinni strax með snjöllum sam- göngusáttmála. Þá væri tekið á raunverulegri orsök vandans. Menn tala og tala, segir Greta okkar Thunberg, en gera ekkert. Jú víst! Meiri steinsteypu, malbik, járn og gler. Það virðist eina svarið. Fái greitt fyrir minni akstur í stað steypu og malbiks Okkar geggjuðu tillögur hljóða upp á að ríkissjóður borgi mönnum fyrir að minnka akstur einkabíla eða aka þeim alls ekki. Þessir peningar myndu fara beint út í hagkerfið í stað þess að festast í steypu, stáli og malbiki og öllu því tilheyrandi. Þetta eru hráar hugmyndir. Má ekki skoða þær, Guðni? Sérfræðingar segja: Umferðar- slysin á þessu ári kosta 50-60 millj- arða. Umferðartafir munu kosta 15 milljarða. Bygging sprengjuheldra bílakjallara kannski 10 milljarða. Var einhver að tala um bensín, olíu, viðhald og fleira og fleira? Þjóðhagslegur sparnaður yrði væntanlega gífurlegur af slíkum að- gerðum. Eiga ekki stjórnvöld alltaf að hafa það sem forgangsmál? Al- menningur fengi peninga í stað hrikalega kostnaðarsamra umferð- armannvirkja. En viðhald núverandi vega hefði forgang. Hliðarráðstafanir: 1. Ókeypis í strætó fyrir alla. Þá myndu allir fara í strætó! Heldurðu að það yrði munur eða sjá stundum örfáa eða engan farþega! 2. Borg og ríki í sameiningu hefðu samvinnu um að gera leigubíla eins ódýran og hagkvæman kost og hægt er svo almenningur sjái sér hag í að nota þá. Ekki bara eftir böll! 3. Allir sem vettlingi geta valdið út að hjóla. Svo er annað, Guðni. Við vitum að það þýðir ekki að banna Íslending- um neitt. Það gera landnáms- mannagenin. En ætli það fari ekki að styttast í að unga fólkið segi hingað og ekki lengra: Hver fjöl- skylda fái að aka ákveðinn kíló- metrafjölda á ári. Búið á punktum. En engan eftirlitsiðnað. Fólkið sjálft hefði eftirlitið með höndum. Flestar fjölskyldur myndu trúlega virða þetta með mórölsku eftirliti ung- dómsins. Sjálfsagt munu einhverjir svindla í þessu sem öðru. Það væri vitið meira ef þetta yrði strax á morgun. Allt myndi gjörbreytast. Rúsínurnar í pylsuendanum eru ekki nefndar hér. Hverjar skyldu þær vera, Guðni? Hér er allt gott að frétta. Tíðarfar hefur verið mjög gott. Flestir vegir færir. Búið að smala. Enn eru þó kindur í fjöllum. Til dæmis sex ær með lömbum á Urðarhlíð utan Dynjanda. Nokkrir farnir að taka fé á gjöf. Fiddi á Eyri keypti sér úlpu- byrði í kaupfélaginu um daginn. Ás- lákur í Skarði og Anna í Hlíð eru hætt að vera saman. Það beiddu all- ir að heilsa. Áslákur í Skarði og Anna í Hlíð eru hætt að vera saman Eftir Hallgrím Sveinsson, Guðmund Ingvarsson og Bjarna G. Einarsson Hallgrímur Sveinsson Hallgrímur er bókaútgefandi, Guðmundur fyrrverandi stöðvarstjóri Pósts og síma á Þingeyri og Bjarni fyrrverandi útgerðarstjóri KD á Þingeyri. Guðmundur Ingvarsson Bjarni Georg Einarsson » Opið bréf úr sveit- inni til Guðna Ágústssonar: Ætli það fari ekki að styttast í að unga fólkið segi hingað og ekki lengra. Hver fjölskylda fái að aka ákveðinn kílómetra- fjölda á ári. Fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.