Morgunblaðið - 09.12.2019, Page 21

Morgunblaðið - 09.12.2019, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019 ✝ ÁgústínaSveinsdóttir fæddist í Dal í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi 22. febrúar 1919. Hún andaðist á Hrafn- istu í Reykjavík 16. nóvember 2019. Foreldrar henn- ar voru Sveinn Þórðarson, bóndi á Fossi í Staðarsveit á Snæfellsnesi, fæddur í Álft- ártungu í Mýrasýslu 1893, dá- inn í Reykjavík 1979, og kona hans, Pálína Svanhvít Guð- brandsdóttir, fædd í Ólafsvík 1893, dáin í Reykjavík 1950. Ágústína var elst fimm systk- ina. Guðbrandur var næstur enda í Skorradal og eignuðust þau fjögur börn, Birgi, Björgu, Ágúst Þór og Þórdísi. Þau skildu. Síðari maður Svanlaug- ar var Kristján Sigurðsson húsasmíðameistari í Hafnar- firði, dáinn 2015. 2) Halldór kennari, fæddur 12. janúar 1944. Hann er giftur Guðrúnu Gísladóttur kennara. Börn þeirra eru Þórður Dór og Gísli Darri. 3) Sveinn kennari, fædd- ur 18. september 1947. Elst barna hans er Davíð Ágúst, barnsmóðir Bergljót Aradóttir. Kona Sveins er Guðbjörg Ás- laug Magnúsdóttir sjúkraliði og eru börn þeirra Þórður, Guð- rún og Ágústa. Langömmu- börnin eru sautján. Ágústína vann lengi við saumaskap í Sjóklæðagerðinni og gluggatjaldadeild Últímu, starfaði síðan um skeið á Hótel Sögu og síðast í eldhúsi á skrif- stofu ríkisspítalanna. Útför Ágústínu hefur farið fram í kyrrþey. henni í aldri, fædd- ur 1920, dáinn 2010. Anna Sess- elja var fædd 1923, dáin 2018. Sama ár andaðist Guðbjörg Elín, fædd 1932. Næstyngstur systkinanna var Þórður, fæddur 1927. Hinn 19. október 1940 gekk Ágúst- ína að eiga Þórð Halldórsson bókbindara í Borgarnesi, síðar skrifstofu- og verslunarmann í Reykjavík. Börn þeirra eru: 1) Svanlaug Ragna sjúkraliði, fædd 6. desember 1941. Fyrri maður hennar var Haukur Engilbertsson bóndi á Vatns- Hún birtist úr hliðargötu og gekk inn í sólargeislann eins og himnesk vera. „Hver getur trúað því að hún sé að verða fimm- tug?“ hvíslaði vinkona mín. Þetta var árið sem ég uppgötv- aði Bítlana og vor lífs míns var rétt að byrja. Þarna á Hofsvalla- götunni sá ég hana fyrst – tengdamóður mína. Ágústína Sveinsdóttir sleit barnsskónum á Snæfellsnesi í nábýli við hamraborgir, fagrar hlíðar og dulúð jökulsins. Líf hennar spannaði heila öld og á þeim tíma upplifði hún meiri þjóðfélagsbreytingar en margur annar. Lífsbaráttan var hörð hjá foreldrum hennar og þegar Ágústína var fimm ára gömul var hún send í tímabundið fóstur til föðurömmu sinnar og afa í Borgarholti í Miklaholtshreppi. Í æviminningum sr. Árna Þórarinsson „Hjá vondu fólki“ sem skráðar voru af Þórbergi Þórðarsyni segir m.a. um Borg- arholtshjónin Þórð Pálsson og Önnu Sesselju Jónsdóttur: „Í Borgarholti bjuggu hjón sem höfðu svo mikið að gera, að þau höfðu ekki tíma til að syndga. Þau eignuðust sextán börn sem ólust upp í fátækt en aldrei var leitað hjálpar annarra manna. Þar ríkti gleði, friður, stjórnsemi og einlæg trú.“ Tíminn í Borgarholti hafði djúp áhrif á Ágústínu. Ekki var það atlætinu um að kenna held- ur saknaði hún foreldra sinna. Daglega gekk hún upp á borg- arhamarinn til að gá að pabba sínum en dagarnir liðu og urðu að tveimur árum. Níutíu árum seinna gat hún enn rifjað upp endurfundina þegar hún sá pabba sinn koma ríðandi ofan hamarinn, minningin ljóslifandi og hafði aldrei farið frá henni. Í blómlegri Staðarsveitinni, þar sem fagrar hlíðar renna saman við víðáttumikil tún, er bærinn Foss. Enginn staður var henni hjartfólgnari. Þar samein- aðist fjölskyldan og þaðan átti hún dýrmætustu minningarnar – í túninu heima. Sem elsta barn tók Ágústína fljótt að sér ýmsar skyldur, hún gætti yngri systkina sinna en þrjú þeirra áttu henni lífsbjörg að þakka. Átta ára gömul gætti hún eldsins á bænum, mikið ábyrgðarstarf sem nútímamað- urinn skilur varla í hverju fólst enda flestir aldir upp við hita- veitu. Ágústína fékk góðar gjafir í vöggugjöf en sumar voru sveip- aðar dulúð jökulsins. Þar kom til meðfædd hógværð og óendanleg seigla. Allt lék í höndunum á henni og þar skipaði hverskonar handavinna stóran sess. Hún var víðlesin og hafði góða söngrödd, mikil fjölskyldukona en umfram allt góð ættmóðir. Hún var heið- arleg, sjálfstæð, trú sinni sann- færingu og pínulítið sérvitur, borðaði t.d. aldrei kjúkling og lét alltaf 3 skeiðar af sykri í kaffið sitt. Ég stríddi henni stundum á því að þessi sérviska væri líkast til lykillinn að langlífi hennar. Hún kímdi með mér. Ágústína var heilsuhraust fram á efri ár og bjó heima þar til fyrir tveimur árum að hún fór á Hrafnistu í Reykjavík. Þar hafði hún útsýni til Snæfellsjök- uls og fylgdist vel með hvítum haddinum. Daginn sem hún kvaddi var einstaklega bjart yfir honum og hún gekk inn í birt- una. Ég þakka elskulegri tengda- móður minni samfylgdina. Minn- ingin lifir áfram og vináttan vermir sem fyrr. Guðrún Gísladóttir. Amma Gústa er látin rúmlega 100 ára að aldri. Hún var fædd og uppalin á Snæfellsnesinu sem henni þótti svo vænt um. Þar var jökullinn hennar eins og hún sagði, fallegasti jökull landsins, og var hún með málverk af hon- um á Hrafnistu þar sem hún dvaldi tvö síðustu æviárin. Í mínum huga mun amma alltaf eiga meira í Snæfellsjökli en aðrir landsmenn. Hún naut þess að rifja upp ljúfar æskuminn- ingar og hreinlega ljómaði þegar hún talaði um æskuárin. Aug- ljóst var að þau systkinin voru náin og foreldrarnir ástríkir. Lífbaráttan var hins vegar hörð og frá fimm til sjö ára ald- urs var ömmu komið fyrir hjá föðurforeldrum sínum í Borgar- holti meðan foreldrarnir unnu að því að fá jarðnæði. Hún hitti þá ekki á þessi tvö ár og saknaði þeirra mjög. Lýsti hún því eitt sinn fyrir mér hvernig hún hefði reglulega farið upp á klapparás- inn við bæinn til þess að athuga hvort pabbi hennar væri að koma að sækja hana. En svona var lífið í þá daga. Amma var einn mesti nagli sem ég hef kynnst. Hún tókst á við fleiri erfið verkefni í lífinu en afi lést árið 1971 af slysförum. Eftir það bjó hún lengst af ein og vann úti. Hún var hlý og góð, flíkaði ekki tilfinningum sínum, var hörð af sér og sjálfri sér nóg. Hún var afar heilsuhraust, bjó ein í Bólstaðarhlíðinni til 98 ára aldurs og keyrði bíl fram yf- ir nírætt. Hún fór ekki á elli- heimili fyrr en það var óumflýj- anlegt. Það var vel hugsað um hana á Hrafnistu en ég held að henni hafi aldrei þótt hún eiga þar heima. Það var einfaldlega ekki í eðli hennar að láta hugsa um sig. Hún reddaði sér sjálf. Í raun fannst mér amma aldr- ei neitt gömul nema undir það allra síðasta þegar fór að halla undan fæti hjá henni líkamlega. Eitt skipti er ég kom í heimsókn til hennar í Bólstaðarhlíðina með Svein Hjalta nokkra mánaða skellti ég honum í fangið á henni því að ég hafði gleymt töskunni úti í bíl. Þegar ég var komin hálfa leið niður fór ég að hugsa um að þetta væri ekki lagi, að skella litlu barni í fangið á 94 ára gamalli konu og hlaupa út. Ég spretti því úr spori. Þegar ég kom inn aftur skildi amma ekk- ert hvaða asi þetta væri á mér. Allt var í stakasta lagi og Sveinn Hjalti hinn ánægðasti hjá lang- ömmu sinni. Amma var mikil handavinnu- kona og eftir hana liggur fjöldi fallegra útsaumaðra mynda og púða. Hún las mikið og verður skrýtið að velja ekki bók handa henni þessi jólin. Hún var afar tónelsk og gladdist að heyra hvað Ása Laufey var dugleg í tónlistarskólanum. Það var svo notalegt að koma til ömmu. Frá því ég var lítil heilsuðumst við amma og kvödd- umst alltaf á sama hátt, með tveimur kossum á sömu kinn. Amma var gestrisin og alltaf með drekkhlaðið kaffiborð í Ból- staðarhlíðinni og dót fyrir krakkana. Á Hrafnistu kom eng- inn án þess að fá konfektmola. Krökkunum mínum fannst amma hálfgerð ofurhetja og þau voru mjög montin af því að eiga 100 ára gamla ömmu. Ég er svo þakklát fyrir að þau fengu að kynnast henni. Það sem hún var glæsileg í 100 ára afmælinu sínu í febrúar síðastliðnum. Blessuð sé minning ömmu Gústu. Guðrún Sveinsdóttir. Fallin er nú frá hún amma Gústa sem svo lengi hefur verið órjúfanlegur þáttur í tilverunni. Þegar ég minnist hennar er rauði þráðurinn sá hversu mikil myndarkona hún var og hversu mjög henni var umhugað um að sinna sínum nánustu vel. Stað- föst var hún og hikaði ekki við að taka sér fyrir hendur það sem hugurinn stóð til. Ein mín fyrsta minning um hana er einmitt sú að hafa verið farþegi í bíl sem hún ók en aðeins skömmu áður hafði hún tekið bílpróf, komin á sjötugsaldur. Síðan hlaðast minningarnar upp og má þar nefna fjölskylduboðin í lok jóla í íbúðinni hennar í Bólstaðarhlíð- inni, þar sem rætt var saman um daginn og veginn, og sömuleiðis samverustundirnar í eldhúsinu þegar mamma og pabbi litu inn hjá henni og höfðu okkur krakk- ana með. Þá bar hún kex og kök- ur á borð, lagaði kaffi og svo var tekið upp notalegt spjall. Svona tók amma á móti gest- um í Bólstaðarhlíðinni allt þar til fyrir um tveimur árum. Sem fyrr hafði hún alltaf heitt á könnunni og eitthvað með kaffinu og sem fyrr var sest við eldhúsborðið og skrafað saman. Þegar ég kom til hennar á kvöldin vorum við vön að setjast svo inn í stofu, horfa á fréttirnar og halda rabbinu áfram. Ýmis- legt bar á góma. Oft ræddum við um málefni líðandi stundar og það sem efst var á baugi hverju sinni en einnig um liðna tíma. Fyrir kom að ég fór að glugga í myndaalbúm og skoða myndir, oft frá því löngu fyrir mína tíð, og leit amma einatt á myndirnar og fór yfir hvaða fólk var á þeim og minningar sínar um það. Meðal þess sem hún rifjaði þá upp voru æskuárin á Snæfells- nesi en henni þótti vænt um þann landshluta og helsta kenni- leiti hans, jökulinn. Að því kom að amma flutti úr íbúðinni í Bólstaðarhlíðinni í herbergi á Hrafnistu en síðan fluttist hún yfir í annað herbergi á sama stað. Svo vildi til að það herbergi sneri í átt að Snæfells- jökli og barst iðulega í tal hvort hann sæist ekki þegar skyggni var gott. Þá barst talið oft að allra yngstu barnabarnabörnun- um en þau þótti ömmu gaman að fá í heimsókn. Fylgdist hún eftir föngum með uppvexti þeirra og þroska en hún var skýr og minn- ug allt þar til hún kvaddi þennan heim. Nú þegar hún amma Gústa er öll kveðjum við hana með þakk- læti fyrir allar þær stundir sem við höfum átt með henni. Minn- ingarnar um hana geymum við í hugskoti okkar. Hvíl í friði, elsku amma. Þórður Sveinsson. Ég hef notið forréttinda. Þeirra forréttinda að hafa ömmu mína í mínu lífi í langan tíma. Amma, amma mín, amma í Reykjavík, amma Gústa var sú kona. Glæsileg kona og minning- arnar eru margar. Bólstaðarhlíðin var minn uppáhaldsstaður og Bólstaðar- hlíðin var ömmu staður. Ég man að koma þar sem barn. Ég man að koma í Bólstaðarhlíðina þeg- ar afi var þar enn við hlið ömmu. Það var allt gott í Bólstaðarhlíð- inni. Fallega heimilið hennar ömmu. Að fá að gista þar og hlusta á umferðarniðinn á kvöld- in og telja bílana sem óku framhjá á daginn. Ekki var síðra í barnæskunni að heimsækja ömmu í vinnuna. Í Últíma í Kjörgarði, þar sem ýmislegt merkilegt bar fyrir barnsaugað eins og fyrsta rúllustigann á Ís- landi. Rúllustiginn heillaði en amma varaði við honum því hún vissi að hann var ekki hættulaus fyrir lítið fólk. Best var þó að sjá hvað amma mín var að gera og fá innsýn í hennar starf en í Úl- tíma saumaði hún dýrindis gluggatjöld. Í Reykjavíkurferðum æsk- unnar var farið úr Bólstaðarhlíð- inni í bæinn með strætó og labb- að Laugaveg og Austurstræti. Það var farið á Hressingarskál- ann að fá ís í stálskál með jarð- arberjasósu og það var farið á söfn og í heimsóknir til ættingja. Allt minningar sem mótuðu barnæskuna og út í lífið. En amma kom líka í heimsókn í sveitina og það var ljúf tilhlökk- un í minningunni frá því þegar beðið var eftir að amma kæmi. Þetta var ekkert flókið í barn- æskunni. Eftir því sem árin liðu og barnæskan leið hjá og ég flutti sjálf til Reykjavíkur sem ung- lingur urðu samverustundirnar með ömmu fleiri og ég fékk tækifæri til að fylgjast meira með því sem hún var að gera í sínu lífi og starfi. Hannyrðirnar hennar, útsaumuðu myndirnar, hekluðu dúkarnir og fallega flos- aða rósin. Amma mín ferðaðist nokkuð um heiminn eftir að afi dó og naut þess að fara til ýmissa landa í góðum félagsskap og sjá nýja hluti. Hún var víðsýn kona. Það var gaman að spjalla við ömmu. Við gátum spjallað um daginn og veginn, sögurnar hennar úr æskunni og alls konar mál í langan tíma, hvort sem var í síma eða þegar ég fór til henn- ar í kaffi í Bólstaðarhlíðina. Það voru góðar stundir. Fleiri góðar stundir áttum við á Hrafnistu þar sem hún dvaldi síðustu tvö æviárin sín. En nú við brotthvarf ömmu Gústu eru tímamót hjá fjölskyld- unni og minningar frá jólum eru ofarlega í huga um þessar mundir. Jólaboðin í Bólstaðar- hlíðinni, samveran með ömmu á jólum og um síðustu jól sem voru hennar eitthundruðustu jól. Eins ylja minningar frá stóraf- mælum hennar og öðrum ekki síður minni afmælum síðustu ára, 90 ára afmælið, 95 ára af- mælið og nú síðast 100 ára af- mæli hennar fyrr á þessu ári. Margs er að minnast þegar sam- veran er löng. Dætur mínar hafa líka verið lánsamar að hafa notið þeirra forréttinda að hafa langömmu sína í sínu lífi í langan tíma. Ömmu Gústu er sárt saknað en eftir rúmlega 100 ára ævi- skeið er komið að kveðjustund og hvíld fyrir hana. Amma var einstök kona. Hvíl í friði, elsku amma, og takk fyrir allt. Björg Hauksdóttir. Nú ríkir kyrrð í djúpum dal, þótt duni foss í gljúfrasal, í hreiðrum fuglar hvíla rótt, þeir hafa boðið góða nótt. Nú saman leggja blómin blöð, er breiddu faðm mót sólu glöð, í brekkum fjalla hvíla hljótt, þau hafa boðið góða nótt. Nú hverfur sól við segulskaut og signir geisli hæð og laut, er aftanskinið hverfur hljótt, það hefur boðið góða nótt. (Magnús Gíslason) Elsku amma Gústa, minning þín lifir í hjörtum okkar. Klara Rós og Svana Fanney. Ágústína Sveinsdóttir „Sæll viiiiiinur.“ Svona var það þeg- ar vinur minn Haf- þór Viðar Gunnars- son, eða Haffi eins og við öll kölluðum hann, heilsaði mér. Það er sárt að hugsa til þess að eiga aldrei eftir að heyra þessa kveðju frá honum aftur, virki- lega sárt. Við Haffi kynntumst árið 1972 á Eyrinni en þar dvaldi hann oft um helgar hjá afa sín- um og ömmu í Eiðsvallagötu 1 og ég í næsta húsi norðan við. Þannig að við Haffi vorum búnir að vera vinir í 47 ár sem er Hafþór Viðar Gunnarsson ✝ Hafþór ViðarGunnarsson fæddist 6. mars 1963. Hann lést 23. nóvember 2019. Út- för Hafþórs fór fram 5. desember 2019. mestöll ævi okkar beggja þegar hann lést 56 ára að aldri. Það var ýmislegt brallað á Eyrinni í gamla daga og eru það ótal ljúfar minningar sem rifj- ast upp. Í Eiðsvallagöt- unni hjá afa hans og ömmu var betri stofa, það var for- boðinn staður fyrir pjakka eins okkur. Þar hins vegar vissum við um læstan skáp þar sem var geymt útlenskt nammi sem Nonni frændi hans kom gjarnan með úr siglingum. Í skápinn skyldum við komast og að sjálf- sögðu tókst það og maður minn, hvílíkar gersemar. Þarna voru útlenskar bolsíur, súkkulaði og svo ekki sé minnst á Toblerone, ekkert af þessu fékkst í Eyr- arbúðinni. Í nokkur skipti gæddum við okkur á þessum kræsingum án þess að nokkur vissi. En svo kom að því, við vorum gripnir glóðvolgir með úttroðinn munn eins og jórtur- dýr, af sælgæti og súkkulaði út á kinnar. Við vorum samt alsak- lausir í andlitinu. Okkur var fyr- irgefið. Á unglingsárum flutti ég úr hverfinu og hittumst við æ sjaldnar, vegalengdirnar þá voru bara lengri en í dag en vin- áttan hvarf aldrei. Hafþór fór að búa og ég eignaðist kærustu. Árið 1989 urðu svo skemmtilegir endurfundir þegar við báðir skráðum okkur á 25 ára afmæl- ismót SjóAk án þess að vita hvor af öðrum og vorum settir í sömu sveit. Til að því sé haldið til haga þá unnum við sveita- keppnina. Upp frá þessu varð sjóstöngin aðaláhugamálið okkar beggja og héldum við Haffi upp á 30 ára veiðiafmæli okkar á móti okkar SjóAk-manna í ágúst sl. og höfum alltaf verið saman í sveit. Við Haffi sátum síðan saman í stjórn SjóAk í á annan áratug. Árið 1998 kynnist Haffi svo Önnu sinni og verður með okkur Guðrúnu konu minni mikill vin- skapur sem snerist um sjóstöng- ina. Öll sjóstangaveiðimótin sem við fórum á vítt og breitt um landið og sveitin okkar gjarnan kölluð „hjónabandið alræmda“, mótin í Grímsey sem urðu vel á annan tug, utanlandsferðirnar til Prag, Mallorca og London, spilakvöldin og allar þær ynd- islegu samverustundir sem við áttum saman hjónin, fjölskyldur okkar og fleiri góðir vinir í sjós- tönginni. En nú er höggvið stórt skarð í vinahópinn en Haffi vinur okk- ar varð að lúta í lægra haldi fyr- ir illvígum sjúkdómi eftir mjög erfið veikindi, skarð sem er vart hægt að fylla. Við Guðrún og börnin okkar eigum eftir að sakna Haffa okkar, galsagangs- ins, samverustundanna og sjó- stangaveiðimótanna. Nú ertu kominn í aðra sveit, vinur. Við Guðrún og börnin okkar viljum votta Önnu, Helga Má, Ragnari Mána, Úlfari, Guðrúnu, Kristínu og fjölskyldum okkar dýpstu og innilegustu samúð. Megi Haffi okkar hvíla í friði á nýjum veiðistöðum. Sigfús, Guðrún og börn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SVAVA ÞÓRDÍS BALDVINSDÓTTIR, Siglufirði, lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar miðvikudaginn 4. desember. Útför hennar verður frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 14. desember kl. 13.30. Baldvin Júlíusson Margrét Sveinbergsdóttir Theodór Júlíusson Guðrún Stefánsdóttir Hörður Júlíusson Sigurlaug J. Hauksdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.