Morgunblaðið - 09.12.2019, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2019
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingar
Bygginga verktaki.
Tökum að okkur :
Nýbyggingar
Breytinga
Viðhald húsa
Byggingarstjórn 1,2,3.
Ástandsskoðun húsa.
Tilboð ,tímavinna.
Upplýsingar í síma 893-5374
nybyggd@gmail.com
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Hreyfisalur-
inn er opinn kl. 9.30-11.30. Kraftur í KR kl.10.30, rútan fer frá Vestur-
götu kl.10.10, Grandavegi 47 kl.10.15 og Aflagranda kl.10.20. Félags-
vist kl. 13. Myndlist kl. 13. Jólabíó kl.13, Holiday. Kaffi kl. 14.30-15.
Nánari upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir.
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9-12. Opin
handavinnuhópur kl. 12-16. Boccia með Guðmundi kl. 10.
Göngubretti, æfingarhjól m/leiðb. kl. 12.30. Félagsvist með vinning-
um kl. 12.45. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffi-
sala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535 2700.
Dalbraut 18-20 Brids í borðsal kl. 13. Myndlist á vinnustofu kl. 9.30-
11.30.
Dalbraut 27 Fylgt í sundleikfimi í Laugardalslaug, lagt af stað kl.
8.30 frá Dalbraut 27. Óli og Embla verða í setustofunni kl. 11.
Píla í parketsal kl. 14.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Við hringborðið kl.
8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-12. Ganga ef veður leyfir kl. 10. Byrjen-
danámskeið í Línudansi kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistar-
námskeið kl. 12.30. Félagsvist kl. 13. Handavinnuhornið kl. 13.
Foreldrastund kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri.
Nánari upplýsingar í síma 411 2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30. Hjúkrunarfræðingur
kl. 10. Núvitund kl. 10.30. Silkimálun kl. 12.30. Göngutúr um hverfið kl.
13. Handaband kl. 13. Bridge kl. 13. Bókabíllinn á svæðinu kl. 13.10-
13.30. Skák kl. 14. Jólatónleikar Tónmenntaskóla Reykjavíkur kl. 14.30.
Handavinnuhópur hittist kl. 15.30. Verið öll hjartanlega velkomin.
Nánari upplýsingar í síma 411 9450.
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl.
13. Vatnsleikf. Sjál kl. 7.10/7.50/15.15. Kvennaleikf Sjál. kl. 9:30. Kvenna-
leikf. Ásg. kl. 11. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Jólafrí Zumba.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofan kl. 8.30-16.
Útskurður m/leiðb. kl. 9-16. Qigong kl. 10-11. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-
11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 Boccia, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9. Jóga kl. 9.30 og 17. Handavinna og
Bridge kl. 13. Félagsvist kl. 20.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-14. Jóga kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30.
Sögustund kl. 12.30-14. Prjónaklúbbur kl. 14-16.
Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl 8-12. Kl. 9 myndmennt, kl.
11 Gaflarakórinn, kl. 13 Félagsvist.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8.30-10.30. Jólapeysur er
þeman þessa vikuna í morgunkaffinu. Jóga með Carynu kl. 8.30.
Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Jóga með Ragnheiði kl. 11.10. Jóga með
Ragnheiði kl. 12.05. Tálgun – opinn hópur kl. 13-16. Frjáls spilamenn-
ska kl. 13. Stólaleikfimi kl. 13.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga með Ingibjörgu kl. 9 í Borgum,
ganga kl. 10 frá Grafarvogskirkju, Borgum og inni í Egilshöll. Dans í
Borgum kl. 11. Prjónað til góðs í listasmiðju Korpúlfa í Borgum kl. 13
og félagsvist í Borgum kl. 13. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum í umsjón
Gylfa kl. 13 í dag og kóræfing Korpusystkina kl. 16 í dag í Borgum í
umsjón Kristínar kórstjóra. Allir hjartanlega velkomnir.
Seltjarnarnes Gler á neðri hæð félagsheimilisins við Suðurströnd kl.
9 og 13. Leir, Skólabraut kl. 9. Billjard, Selinu kl. 10. Krossgátur og
kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga í salnum Skólabraut kl. 11. Handavinna,
föndur og mini markaður í salnum á Skólabraut í dag kl. 13-16. Hand-
verk og ýmislegt fleira. Allir velkomnir. Karlakaffi í safnaðarheimili
kirkjunnar kl. 14.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík ZUMBA Gold byrjendur kl. 9.20.
ZUMBA Gold framhald kl. 10.30. STERK OG LIÐUG leikfimi fyrir
dömur og herra kl. 11.30, umsjón Tanya.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Færir þér
fréttirnar
mbl.is
✝ Sigurvin Gest-ur Gunnarsson
fæddist 27. mars
1945 í Gíslabæ á
Hellnum. Hann lést
á Landspítalanum
Fossvogi 27. nóv-
ember 2019.
Foreldrar Sig-
urvins voru Mál-
fríður Einarsdóttir
frá Þóroddsstöðum
í Ölfusi, f. 30. mars
1900, d. 12. apríl 1971, og
Gunnar Ingólfur Kristófersson
frá Skjaldatröð á Snæfellsnesi,
f. 28. júní 1901, d. 17. júlí 1987.
Systkini Sigurvins eru:
Einar V. Sigurðsson, f. 9.
febrúar 1930, d. 7. febrúar
2003. Hermann Á. Gunnarsson,
húsum í Kaupmannahöfn, Sviss
og Austurríki. Á árunum 1972-
1980 var Sigurvin mat-
reiðslumeistari á Hótel Sögu en
næstu 2 ár þar á eftir vann
hann sem matreiðslumaður á
Cock-pit inn í Lúxemborg. Sig-
urvin rak ásamt vini sínum
Agli Egilssyni veitingahúsið
Stillholt á Akranesi frá 1982-
1988. Hann kenndi á þessum
tíma einnig í Matreiðsluskól-
anum okkar hjá Hilmari B.
Jónssyni.
Sigurvin vann tvívegis til
gullverðlauna í alþjóðlegum
matreiðslukeppnum og var
einn af meðlimum fyrsta
kokkalandsliðs okkar árið
1978.
Hann var einn af stofnendum
Klúbbs matreiðslumeistara og
var um tíma forseti hans. Sig-
urvin var virkur í starfi klúbbs-
ins allt fram á síðasta dag.
Útför Sigurvins fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 9.
desember 2019, klukkan 13.
f. 15. september
1934. Sigvaldi H.
Gunnarsson, f. 15.
september 1934, d.
29. mars 2016.
Hjálmar Gunn-
arsson, f. 23. sept-
ember 1937. Krist-
ófer Gunnarsson, f.
24. september
1937. Magnea
Gunnarsdóttir, f. 2.
maí 1940. Hinrik
Eiríksson, uppeldisbróðir, f. 30.
september 1921, d. 15. október
1992.
Sigurvin lærði matreiðslu í
Kaupmannahöfn á árunum
1963-1967. Að námi loknu vann
hann sem matreiðslumeistari á
Gullfossi og ýmsum veitinga-
Það er ósköp erfitt að hugsa
til þess að jarðneskri tilveru
elsku frænda míns sé lokið, jafn-
vel þótt innst inni hafi ég vitað að
það styttist í ferðalagið langa.
Söknuðurinn er mikill en fallegar
minningar streyma fram í hug-
ann. Sem barn man ég ekki eftir
að hafa borðað ís öðruvísi en að
hræra vel í honum fyrst og kall-
aðist sú aðferð „að hræra sósu
fyrir Sigurvin“. Jafnvel fyrstu
minningarnar sýna Sigurvin svo
skýrt í tvíhneppta hvíta jakkan-
um, með kokkahúfu og vel snyrt
yfirvaraskeggið enda einkennis-
búningur hans í þessu lífi.
Sigurvin frændi fór ungur til
Kaupmannahafnar þar sem hann
stundaði matreiðslunám en að
námi loknu lágu leiðir hans víða.
Hann átti langan og farsælan
feril sem matreiðslumeistari og
sinnti starfinu af lífi og sál. Þau
voru allnokkur símtölin sem und-
irrituð hringdi frá Ameríku til að
leita ráða hjá meistaranum þeg-
ar undirbúa þurfti matarboð,
ekki síst þegar amerískum gest-
um var boðið upp á íslenskt
lambakjöt. Sigurvin frændi var
sérfræðingurinn þegar kom að
þjóðlegum réttum úr íslensku
hráefni og hann hafði gríðarleg-
an áhuga á gömlum matarhefð-
um Íslendinga. Eftir að við hjón-
in fluttum aftur til Íslands fyrir
fjórum árum höfum við ætíð
fagnað því þegar Sigurvin gaf
sér tíma til að kíkja í kaffi til
okkar og við erum sérstaklega
þakklát fyrir stundirnar sem við
áttum með honum síðustu mán-
uðina. Það er ekki langt síðan
hann sat í sófanum hjá okkur og
sagði frá tímanum á Gullfossi og
hvernig það kom til að hann hóf
matreiðslunám í Kaupmanna-
höfn. Hann hafði gaman af því að
rifja upp gamla tíma og alltaf var
stutt í glettnina. Í veikindum
hans fékk ég það hlutverk að
fylgjast með blóðsykrinum hjá
honum og hringdi hann reglu-
lega í mig til að gefa upp nýjustu
tölur. Ef ég varð fyrri til að
hringja þá heilsaði hann jafnan
með orðunum: „Komdu nú sæl
og blessuð“ og í hjarta mínu
hljómar þessi kveðja enn.
Elsku frændi, þín verður ætíð
sárt saknað. Ég er þakklát fyrir
allar ljúfu minningarnar sem þú
gafst mér og veit að þær munu
ylja mér um ókomin ár.
Erla Kristófersdóttir.
Elsku frændi.
Við vorum svo dugleg að skrif-
ast á er þú bjóst í Lúxemborg –
ég var Imba frænka og þú Venni
vinur. En svo varð ég fullorðin,
eignaðist börn og fór sjálf að
ferðast út um allan heim líkt og
þú hafðir gert stóran hluta af
þínu lífi og samskiptin urðu æ
minni. Við skrifuðum hvort öðru
þó alltaf jólakort og hittumst í
öllum veislum hjá fjöllunni.
Ég er afskaplega þakklát fyrir
að hafa verið hjá þér er þú
kvaddir þennan heim og trúi að
þú sért nú kominn á annan stað
og í annað eldhús, þar sem þú
reiðir fram flotta rétti fyrir nýja
vini, ömmu og afa og aðra ætt-
ingja sem frá eru fallnir.
Við undirbúning útfarar þinn-
ar hef ég farið í gegnum svo
margar greinar sem þú hafðir
skrifað í gegnum árin og skoðað
svo margar myndir af þér frá ár-
unum í Kaupmannahöfn, Sviss
og Austurríki. Þvílíkur „húmor-
isti“ sem þú hefur verið, elsku
frændi, og mikið vildi ég að við
hefðum skoðað þetta saman en
hver veit, kannski eigum við eftir
að hlæja að þeim saman seinna.
Ég geymi minningu þína og
kveð þig með þessu litla ljóði
sem ég fann.
Þótt sólin nú skíni á grænni grundu,
er hjarta mitt þungt sem blý.
Því burt varst þú kallaður á
örskammri stundu,
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins
göfuga og góða,
svo gestrisinn, einlægur og hlýr.
En örlög þín ráðin - mig setur
hljóða,
við hittumst ei framar á ný.
Megi algóður Guð þína sálu nú
geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár.
Þó komin sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Sigríður Hörn Lárusdóttir)
Ingibjörg
Kristófersdóttir.
Góður vinur og félagi til u.þ.b.
50 ára er fallinn frá, maður
hringir ekki lengur í hann og
leitar upplýsinga eða leiðbein-
inga. Kynni okkar Venna, eins og
hann var oft kallaður, leiddu til
þess að fyrir um 30 árum var
mér falið að kynna honum hug-
mynd frá Toro; að búa til ís-
lenska kjötsúpu í pakka. Ég var
svolítið ragur við að spyrja mat-
reiðslumeistarann hvort hann
vildi gera þetta. Venni tók hug-
myndinni ágætlega en sagði að
hver og einn hefði sína skoðun á
hvernig íslensk kjötsúpa ætti að
vera. Hann hófst handa ásamt
mönnum frá Toro við bragðpróf-
anir og þess háttar er þarf að
gera þar til tilbúin vara kemur í
verslanir. Kjötsúpan kom í versl-
anir og seldist strax vel og gerir
enn. Ég kveð góðan og gegnan
vin og félaga.
Jóhann G.
Guðjónsson.
Sigurvin Gunnarsson mat-
reiðslumeistari er látinn.
Sigurvin var einn besti og
traustasti félagi Klúbbs mat-
reiðslumeistara og einn af mátt-
arstólpum hans.
Starfaði hann alla tíð óslitið í
klúbbnum, tók þátt í Norður-
landastarfsemi á hans vegum og
fór á heimsþing matreiðslu-
manna. Sat hann í mörgum
nefndum og var ávallt boðinn og
búinn í hin ýmsu verkefni eins og
hátíðarkvöldverðinn og margt
fleira. Þá var Sigurvin einn af
þeim fyrstu sem kepptu í mat-
reiðslukeppnum erlendis við góð-
an orðstír. Ruddi hann brautina
á margan hátt.
Lét hann sér mjög annt um
veg og virðingu Klúbbs mat-
reiðslumeistara og matreiðsluna
í heild sinni. Minnisstæð er ferð
sem hópur félaga fór á heims-
þing matreiðslumanna í Melbo-
urne í Ástralíu og var Sigurvin
að sjálfsögðu með í för. Haldin
var matreiðslukeppni en Sigur-
vin var þjálfari eins keppandans
og tók hann það hlutverk alvar-
lega. Að þinginu loknu var för-
inni heitið til Balí þar sem Sig-
urvin hélt upp á
fimmtugsafmælið sitt. Bauð
hann öllum hópnum út að borða í
tilefni dagsins og varð úr
ógleymanlegt kvöld með ýmsum
uppákomum þar sem Sigurvin
var maður kvöldsins.
Sigurvin var yfirmatreiðslu-
meistari á Hótel Sögu um tíma.
Hafði hann mikinn áhuga á
gömlum hefðum í íslenskri mat-
argerð og stóð vörð um þann
þátt matreiðslunnar og gaf út
matreiðslubók tengda því efni.
Skrifaði hann margar greinar
um fagið, meðal annars merki-
lega grein um líf og störf mat-
reiðslumanna á þeim fræga Ms
Gullfossi þar sem hann sjálfur
steig sín fyrstu skref í matreiðsl-
unni. Hann fór um landið á síðari
árum, heimsótti veitingastaði og
skrifaði um þá. Sigurvin var mik-
ill viskubrunnur.
Sigurvin var virkur félagi
fram á síðasta dag, hann tók þátt
í að elda fyrir 80 manna veislu
fyrir nokkrum vikum með eldri
félögum úr Klúbbi matreiðslu-
meistara þar sem hefðir frá
Sögu-árunum voru í heiðri hafð-
ar.
Þá lét hann sig ekki vanta í
skemmti- og fræðsluferð sem
farin var fyrir stuttu. Naut hann
þess, var samur við sig, sagði
brandara, hafði skoðanir og var
kátur, þá kom hann einnig á nóv-
emberfund Klúbbs matreiðslu-
meistara.
Margs er að minnast eftir ára-
tuga félagsstarf sem væri of
langt að telja upp hér og nú, en
víst er að mikill missir er að Sig-
urvin og verður hans minnst sem
góðs, skemmtilegs og trausts fé-
laga í Klúbbi matreiðslumeist-
ara.
Sigurvin átti langan og farsæl-
an feril sem góður fagmaður og
matreiðslumeistari og verður
hans saknað af félögum hans í
Klúbbi matreiðslumeistara.
Við sendum aðstandendum og
vinum Sigurvins samúðarkveðj-
ur.
Fyrir hönd félaga í Klúbbi
matreiðslumeistara og Lávarða-
deildar,
Jakob H.
Magnússon.
Sólarknerri svifar fjær
um sæinn rauðan.
Þegar degi þyngist róður
þreyttum verður svefninn góður.
Seinna þegar sekkur far
í svalar unnir
er sem helgiljómi lesi
landið hér á Snæfellsnesi.
(Helgi Sæmundsson)
Hjúkrunarheimilið Sólvangur
í Hafnarfirði hefur í gegnum sína
gengnu áratugi státað af einvala
starfsfólki. Fann þetta glöggt
þegar ég hóf þar störf árið 1992.
Virðing, hlýja og gleði svifu þar
yfir vötnum ásamt formfestu frá
þeim eldri. Inn í þetta andrúms-
loft kom Sigurvin til starfa sem
matreiðslumeistari heimilisins.
Margverðlaunaður reynslubolti í
sínu fagi en búinn að fá nóg af
öllu atinu sem því fylgdi. Vildi
starf sem hentaði hækkandi aldri
eins og hann sagði mér. Þetta
var mikið gæfuspor á báða bóga.
Listakokkur var hann og eftir
því útsjónarsamur. Trúlega sá
fyrsti sem tölvuvæddi eldhús á
hjúkrunarheimili, þannig að allt
lá þar ljóst fyrir. Uppskriftir,
matseðlar, birgðabókhald og
annar rekstur. En ólíkt hefur
þetta verið fyrir hann sem hafði
lifað og hrærst í veitingahúsa-
geiranum öll sín starfsár. Það
tók smátíma að finna taktinn en
síðan rann allt ljúft áfram enda
hafði Sigurvin einstakar konur
með sér í eldhúsinu. Það ríkti
mikil samheldni á Sólvangi, öll
reyndum við eftir bestu getu að
þjóna heimilisfólkinu sem best,
hafa fagmennsku og gleði
ríkjandi, gera þannig Sólvang að
framúrskarandi vinnustað.
Skemmtikvöldin, tískusýning-
arnar, dansleikirnir, allt sjálf-
boðavinna á kvöldin. Vorboðinn
var í maí þegar kór eldri borgara
í Reykjavík kom í rútu til okkar
með tónleika en áður var alltaf
tískusýning sem Lóa stjórnaði.
Kvöldið einkenndist af fortíð-
arþrá því þarna svifu starfsstúlk-
ur um í fínum fötum er rifjuðu
upp minningar hjá öllum. Eins
og sannri tískusýningu hæfir var
ávallt brúðarpar í lokin og Sig-
urvin var auðvitað brúðguminn.
Ég var kynnirinn, í þvílíkri mún-
deringu sem Magga og Helga
saumuðu. Sama var uppi á ten-
ingnum á þorrablótinu, þá fórum
við Sigurvin ásamt föður mínum
en síðar kór eldri Þrasta á hverja
hæð með söng og söngvatn.
Sumargrillin voru þegar veður
leyfði og maturinn – já hann var
frábær og ávallt vinátta og hlýja
fyrir heimilisfólkið. Starfs-
mannafélagið var duglegt að
standa fyrir uppákomum. Ferð-
irnar á Sólbakka, hús Sólvangs í
Hveragerði, gleymast seint, eða
berjaferðin vestur í Dali. Hæst
reis Sigurvin eftir að hann veikt-
ist, aldrei æðruorð en mætti allt-
af á samveruna okkar og leyfði
okkur að fylgjast með. Sigurvin
var sá er boðaði og sá um hópinn
meðan stætt var. Það er búið að
höggva stórt skarð í hópinn í
haust, við göngum því hnípin inn
í aðventuna en minningarnar
lifa.
Fjölskyldunni eru sendar inni-
legar samúðarkveðjur.
Hvíl í friði, kæri Sigurvin, og
hjartans þakkir fyrir okkar sam-
starf ásamt vinarþeli gagnvart
mági mínum.
Sigþrúður Ingimundardóttir
Sigurvin Gestur
Gunnarsson
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Minningargreinar