Morgunblaðið - 28.12.2019, Side 4

Morgunblaðið - 28.12.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019 Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Hreint loft - betri heilsa Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð við myglu-gróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. Verð kr. 18.890 Verð kr. 49.920 Verð kr. 35.850 Verð kr. 15.960 TÆKNI A FYRIR H TVINNUMANNSIN E I www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi LauraStar er létt og meðfærilegt og þú ert fljótari að strauja en nokkru sinni fyrr. eftir að einkaaðilar séu farnir að auglýsa sína flugelda betur. „En mér sýnist íþróttafélögum vera að fækka í þessu. Það eru meira einkaaðilarnir sem eru í allt öðrum viðskiptum þess á milli,“ seg- ir Jón Ingi. Hann staðfestir þó að Landsbjörg finni enn fyrir mikilli tryggð hjá landsmönnum og kveðst vera bjart- sýnn á flugeldavertíðina. Atli Guðjónsson, stjórnarmaður hjá Íþróttafélagi Reykjavíkur, tekur undir með Jóni og segist nokkuð bjartsýnn á flugeldasöluna í ár en ÍR hefur sölu flugelda á morgun. Hann viðurkennir þó að markaður- inn sé erfiður og samkeppnin mikil. „Það minnkar alltaf arðbærnin á þessu á hverju ári. Innkaupaverðið hækkar alltaf og skatturinn en sölu- verðið er alltaf mjög svipað þannig að þetta skilar alltaf minna og minna,“ segir Atli. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Sala flugelda hefst í dag og hefst þar með flugeldavertíð björg- unarsveita, íþróttafélaga og einka- aðila sem hafa staðið í ströngu við undirbúning vertíðarinnar upp á síðkastið. Er markaðurinn þekktur fyrir að vera erfiður enda sam- keppni mikil og heimilaður sölutími stuttur en heimilt er að selja flug- elda frá 28. desember til 6. janúar ár hvert. Nokkuð hefur komið upp í orð- ræðu manna upp á síðkastið, sér í lagi á samfélagsmiðlum, að fólk sé hvatt til að styrkja björgunarsveitir landsins með því að kaupa flugelda af þeim fremur en af einkaaðilum sem selji flugelda í hagnaðarskyni. Einhver „fussar“ á hverju ári Einar Ólafsson, sem rekur flug- eldasöluna Alvöru flugeldar, segist hafa orðið var við slíka orðræðu. „Það er á hverju einasta ári sem einhver „fussar“. Á Facebook er einhver lítill, hávær hópur. En það er ekkert sem kemur mér úr jafn- vægi,“ segir Einar í samtali við Morgunblaðið. „Það er alveg sama í hverju það er. Það eru alltaf einhverjir sem hafa einhverjar skoðanir og þurfa að láta þær í ljós með einhverjum hávaða. Þannig er bara lífið,“ bætir hann við. „Það er einhver ástæða fyrir því að menn fara til einkaaðila og kaupa af þeim. Mig grunar að það sé verð- lagið,“ segir Einar. „Kúnninn hlýtur að ráða því hvort hann tekur þátt í björgunarsveita- starfi með því að kaupa þar eða hvort hann kýs að gera það sjálfur einhvers staðar annars staðar,“ seg- ir hann. Þrátt fyrir að staðfesta að sam- keppni sé mikil á flugeldamark- aðnum segist Einar finna fyrir að flugeldasölum fari fækkandi með ár- unum og kveðst sjálfur vera farinn að minnka sína sölu hægt og rólega. Verðmunur ástæðan Aðspurður hvort einkaaðilar eigi erfitt uppdráttar vegna vinsælda flugelda björgunarsveitanna svarar hann: „Það hefur alla tíð verið þann- ig að það er minnihlutahópur sem kaupir af einkaaðilum. Verðmunur er ástæðan fyrir því að þessi hópur er til.“ Jón Ingi Sigvaldason, markaðs- og sölustjóri hjá Landsbjörg, segist í samtali við Morgunblaðið telja samkeppnina í ár afar svipaða og undanfarin ár þó að hann hafi tekið Kúnninn ræður hvar hann kaupir flugelda  Flugeldasala hefst í dag  Erfiður markaður fyrir marga Morgunblaðið/Árni Sæberg Flugeldasala Félagar í björgunarsveitunum í óðaönn í gær að undirbúa flugeldasöluna. Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur verið stærsti inn- flutningsaðili flugelda hér á landi árum saman en flug- eldasala er helsta fjáröflun björgunarsveita. Fjöldi íþróttafélaga um land allt selur einnig flug- elda á ári hverju til fjáröflunar fyrir félögin og fjár- magnar salan oft á tíðum barna- og unglingastörf þeirra. Meðal íþróttafélaga sem bjóða upp á flugelda eru ÍR, KR, Leiknir, Víkingur og Knattspyrnudeild Sel- foss. Ýmsir einkasöluaðilar hafa einnig selt flugelda um árabil en meðal þeirra eru flugeldasölurnar Alvöru flugeldar, Púðurkerlingin og Stjörnuljós. Fjölbreyttar flugeldasölur FLUGELDAR FÁST VÍÐA Í ÁR Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Við höfum verið að reyna að skila um 1,5-1,6 milljörðum til okkar eig- enda. Mér sýnist að það muni ganga eftir á þessu ári,“ segir Stefán S. Konráðsson, framkvæmdastjóri Ís- lenskrar getspár, í samtali við Morgunblaðið. Spurður um árið sem er að líða segir hann að flest sé óbreytt hvað varðar venjur Íslendinga í kaupum lottómiða. Íslendingar séu, líkt og aðrir Norðurlandabúar, „stórpotta- sækin þjóð“, og fleiri spili þegar mikið er undir. Þá sækir yngra fólk frekar í Eurojackpot og eldra fólk í Lottó og Viking-Lottó. Tugþúsundir í hverri viku Stefán segir aðspurður að sam- anborið við árið í fyrra sé um að ræða lítilsháttar aukningu í sölu. „Það voru stórir pottar sem komu á árinu og það voru gríðarlega marg- ir Íslendingar sem fengu vinninga. Heilt yfir rekstrarárið erum við að greiða um 2,8 milljarða í vinninga,“ bætir hann við, og heldur áfram: „Það eru tugþúsundir Íslendinga sem fá vinninga hjá okkur í hverri viku.“ Fólk meðvitaðara eftir hrun Spurður hvort margir vinningar séu enn ósóttir svarar Stefán: „Nei. Eftir að fleiri fóru að spila rafrænt eru afar fáir ósóttir vinningar. Hér fyrir mörgum árum stöfluðust upp tugir milljóna í ósóttum vinningum. Nú komum við langflestum vinn- ingum út og erum mjög sátt með það. Það skiptir miklu máli fyrir rekstur eins og okkar að vinning- arnir fari út til eigendanna.“ Segir hann að ósóttir vinningar yfir árið séu kannski nokkrar milljónir, sem teljist afar lítið miðað við stærð rekstrarins sem um ræðir. Auk rafrænnar spilunar nefnir Stefán þó einnig í þessu tilliti: „Eft- ir efnahagshrunið er fólk miklu meðvitaðara um miðana sína og fylgist betur með.“ 2,8 milljarðar í vinninga í ár  Lítil breyting í lottómiðakaupum Morgunblaðið/Kristinn Lottómaðurinn Stefán segir Íslend- inga vera stórpottasækna þjóð. Talið er að barn foreldra sem hand- teknir voru í aðgerðum lögreglu í heimahúsi í Norðlingaholti í Reykja- vík á jóladag hafi orðið fyrir eitrun tengdri fíkniefnum. Barnið var flutt á spítala og hefur ástand þess verið talið alvarlegt, seg- ir Karl Steinar Valsson, yfir- lögregluþjónn hjá lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is í gær. Barnaverndaryfirvöld hafa komið að þessu máli og hefur lögregla verið þeim til aðstoðar. „Af- skipti okkar komu til vegna þess að það er grunur um að barnið hafi orð- ið fyrir einhvers konar eitrun tengdri fíkniefnum. Barnið var flutt í alvarlegu ástandi á spítala,“ sagði Karl Steinar. Umsátur var um heim- ilið í Norðlingaholti á jóladag og sér- sveit ríkislögreglustjóra á staðnum enda hafði á fyrri stigum verið til- kynnt um ólöglegt skotvopn þar inni. Eftir að aðgerðum lauk var fólkið sem var handtekið flutt í fangaklefa. Ekki var óskað gæsluvarðhalds en faðirinn var með dóm á bakinu og hefur nú hafið afplánun hans. Barn talið hafa orðið fyrir fíkniefnaeitrun  Flutt í alvarlegu ástandi á sjúkrahús Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærmorgun þrjá karl- menn sem grunaðir eru um að hafa stungið af eftir að hafa ekið á fimm bifreiðir í miðbænum á sjöunda tímanum í gærmorgun. Samkvæmt tilkynningu frá lög- reglu var tilkynnt að menn í ann- arlegu ástandi hefðu gengið í burtu frá árekstrinum, en þeir voru handteknir í heimahúsi skömmu síðar. Eru þeir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og að hafa stungið af eftir ákeyrsluna á bifreiðirnar og voru vistaðir í fangageymslu. Handteknir eftir að hafa ekið á fimm bíla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.