Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019 Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐ ÞÉR AÐ KOSTNAÐAR- LAUSU Ertu að byggja eða þarf að endurnýja gamla glerið? Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem reynist vel við íslenskar aðstæður. Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS 28. desember 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 121.83 122.41 122.12 Sterlingspund 158.23 158.99 158.61 Kanadadalur 92.61 93.15 92.88 Dönsk króna 18.068 18.174 18.121 Norsk króna 13.594 13.674 13.634 Sænsk króna 12.928 13.004 12.966 Svissn. franki 124.17 124.87 124.52 Japanskt jen 1.1131 1.1197 1.1164 SDR 167.64 168.64 168.14 Evra 135.02 135.78 135.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.545 Hrávöruverð Gull 1490.85 ($/únsa) Ál 1790.0 ($/tonn) LME Hráolía 67.27 ($/fatið) Brent ● Allir fulltrúar peningastefnu- nefndar Seðla- banka Íslands studdu tillögu Ás- geirs Jónssonar seðlabankastjóra um að halda stýri- vöxtum óbreyttum í desember. Þetta kemur fram í fund- argerð nefnd- arinnar sem birt hefur verið á vef Seðlabankans en nefndin fundaði um vaxtaákvörðunina 9. og 10. desember síðastliðinn. Ákvörðun nefndarinnar leiðir til þess að vextir á sjö daga bundnum innlánum haldast í 3% fram á nýtt ár. Í fundargerðinni kemur fram að nefndin hafi talið rétt að staldra við en hún hefur lækkað vexti um 1,5 pró- sentur á árinu 2019. Nú hafi verið ástæða til að sjá hver áhrifin af þeim hækkunum verði á komandi vikum, enda slaki í þjóðfélaginu „tiltölulega lítill“. Ásamt seðlabankastjóra eiga sæti í peningastefnunefnd þau Rannveig Sig- urðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræð- ingur bankans, Gylfi Zoëga prófessor og Katrín Ólafsdóttir lektor. Allir nefndarmenn studdu tillöguna Ásgeir Jónsson STUTT vitnar að minnsta kosti um áhugaleysi á því sviði.“ Hugsað í þágu neytenda Arnar segir að fyrirliggjandi frum- varp dómsmálaráðherra um að heim- ila íslenskum innflytjendum að selja vín beint til neytenda muni í sjálfu sér ekki breyta öllu fyrir Sante eða önnur fyrirtæki í sama geira. „Ég veit ekki hversu miklu þetta breytir fyrir mig en það er heldur ekki það sem máli skiptir. Það sem þetta mun gera fyrir viðskiptavinina er miklu áhugaverðara. Það er tvennt. Verðið mun lækka og úrvalið aukast. Það er loforð.“ Af hverju mun verðið lækka? „Það er vegna þess að þá fækkar milliliðunum. Það er ekki flókið.“ En munu innflytjendurnir ekki ein- faldlega taka þann mismun til sín? „Ég á erfitt með að sjá það fyrir mér. Þegar heilbrigð samkeppni virk- ar þá held ég að menn skili þessari lækkun til neytenda. Stutta svarið er því nei.“ Gæti þetta þá orðið lækkun upp á 15 til 18 prósent eins og maður hefur heyrt skrafað um? „Já, jafnvel meira. Vegna þess að menn þurfa ekki annað en að sjá verð á sumu víni hjá Costco sem er sömu gerðar og verið er að bjóða í ÁTVR. Vissulega hefur Costco nú þegar haft þau áhrif að verð á víni í Fríhöfninni og í ÁTVR hefur lækkað en það yrði enn meira afgerandi með netverslun- inni. Ég nefni sem dæmi að eitt ónefnt lúxuskampavín var hér áður selt á tveir-fyrir-einn-tilboði í ÁTVR. Þú borgaðir fyrir tvær flöskur en fékkst eina. Þegar Costco kom inn á mark- aðinn var þetta vín boðið á rúmlega 16 þúsund krónur þar en þá var verð- miðinn ríflega 30 þúsund í ÁTVR. Nú er verðið komið í 22.999 krónur.“ „Verðið mun lækka og úr- valið aukast – það er loforð“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vínmenning Arnar Sigurðsson flytur nú inn kampavín frá þremur framleiðendum og áhuginn vex sífellt.  Netverslun með áfengi mun koma neytendum vel  Breytti kampavínsmarkaðnum VIÐTAL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Nái frumvarp dómsmálaráðherra um heimild til handa íslenskum vínsölum til sölu á vörum sínum á netinu fram að ganga mun það lækka áfengisverð til muna og auka úrval. Þetta segir Arnar Sigurðsson, eigandi Sante, en hann hefur á síðustu árum sérhæft sig í innflutningi á gæðavíni frá Búrgúndí og Champagne í Frakklandi. Fyrir nokkrum árum fékk Arnar eigendur veitingastaðarins Snaps í lið mér sér og tóku þeir að bjóða kampa- vín frá fjölskyldufyrirtækinu Drap- pier á mun lægra verði en þekktist á veitingahúsum hér á landi á þeim tíma. Nú er það breytt. Salan tók við sér og nú flytur Sante á bilinu átta og tíu þúsund flöskur frá Drappier til landsins á ári hverju. Arnar segir að fyrrnefnd laga- breyting gæti enn breytt menning- unni kringum kampavínsneyslu hér á landi. Spurður út í ástæður þess að svo lít- ið úrval sé af kampavíni í verslunum ÁTVR segir Arnar að fyrir því séu ýmsar ástæður og ekki aðeins við ÁTVR að sakast í þeim efnum. „Hefðbundið verslunarrými býður bara upp á að mest seldu vörurnar séu á boðstólum. Það veldur því að úrvalið er jafn hræðilegt og raun ber vitni. Það má rifja upp að þegar Costco hóf sölu á áfengi hér á landi svaraði að- stoðarforstjóri einokunarfyrirtækis- ins ÁTVR því til að fyrirtækið skipti sér ekki af verðlagningu vörunnar, það væri ákveðið af innflytjendum. Líklega er sama viðhorf uppi þegar kemur að fjölbreytni í vöruvali, eða hvað? Viðhorf aðstoðarforstjórans Íslenska fyrirtækið IS Seafood, sem sérhæfir sig í sölu íslenskra sjávar- afurða í Kína, hefur ásamt markaðs- setningarfyrirtækinu Acorn Fresh gert samning við JD.com, risa í kínverskri net- sölu, um stofnun íslenskrar net- verslunar með sjávarafurðir í Kína. Íslenski skál- inn (e. Iceland Fresh Pavilion) á vef JD.com mun á kínverska markaðnum selja atlantshafslax, bleikju, lúðu, skarkola, krabba og rækju sem er veidd eða unnin af ís- lenskum framleiðendum, að því er fram kemur í umfjöllun Under- current News (UN). Þar segir að vörurnar verði seldar í stykkjatali, meðal annars í gjafaöskjum. Þá munu gjafaöskjurnar kosta á bilinu 599 til 999 kínversk yuan eða því sem nemur um 10.400 til 17.400 ís- lenskar krónur. Er blaðamaður leitaði viðbragða Birgis Stefánssonar, framkvæmda- stjóra og stofnanda IS Seafood, vildi hann ekkert segja um málið og sagð- ist ekki vilja tjá sig í fjölmiðlum um viðskipti sín. JD.com er fyrirferðarmikið fyrir- tæki í Kína og nam velta fyrirtækis- ins um átta þúsund milljörðum króna í fyrra. Þá hefur meðal annars Google fjárfest 550 milljónum bandaríkjadala í fyrirtækinu jafn- virði 67 milljarða króna. Hefur UN eftir Gunnari Snorra Gunnarssyni, sendiherra Íslands í Kína, að hann fagni samningnum og að hann hlakki til að sjá fleiri ís- lenskar vörur í kínverskri netversl- un. Ísland undirritaði fríverslunar- samning við Kína árið 2013 og var fyrsta sending með tollfrjálsan ferskan fisk send af stað í september síðastliðnum. Þá var lax frá Arctic Fish sendur til landsins. gso@mbl.is Íslenskur fiskur hjá kínverskum netrisa  Samningur um íslenskan söluskála Birgir Stefánsson Skjáskot/JD.com Skálinn Netverslunin í gagnið.  Áskrifendur Morgunblaðsins geta nálgast ítarlegra viðtal við Arnar Sigurðsson um kampavíns- markaðinn á mbl.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.