Morgunblaðið - 28.12.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 28.12.2019, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Pelosi, for-seti full-trúadeild- ar bandaríska þingsins, var aug- ljóslega mjög hik- andi við að hoppa út í það fen sem glannaleg ákæra gegn for- setanum til embættismissis gæti leitt hana og flokk hennar í. En hún hikaði of lengi, missti loks allt vald á stöðunni. Það varð henni mikið áfall að hún fékk eng- an af tæplega tvö hundruð þingmönnum repúblikana í deildinni til að styðja ákær- una (the impeachment) við atkvæðagreiðsluna, en „lek- ar“ gengu um að það kynni að gerast í allstórum stíl. Ekki batnaði það þegar það kom í ljós að fáeinir flokks- menn hennar hlupu undan merkjum og einn þeirra sagði sig úr flokknum og gekk til liðs við flokk repú- blikana. Það hefur ekki orðið til að bæta úr illa tefldri skák þingforsetans, að hún hefur enn ekki treyst sér til þess að senda ákæruna sína yfir í öldungadeild þingsins, sem samkvæmt fyrirmælum í stjórnarskrá fer með dóms- málið sem hún hefur stofnað til. Nú lætur Pelosi eins og deildin sem dæma skal í mál- inu fái ekki ákæruna til með- ferðar nema hún, Pelosi, fái að ráða málsmeðferðinni í þeirri deild! Öldungadeildin hefur ekki verið að biðja um þessa delluákæru og Pelosi hefur ekki meiri lögsögu yfir öld- ungadeildinni en hún hefur yfir hreppsnefnd á Íslandi. Skoðanakannanir benda nú ótvírætt til þess að almenn- ingur, og á þessum árstíma heitir hann tilvonandi kjós- endur, hafi sífellt verri bifur á þessum skrípaleik. Ekki batnaði það þegar þingforsetinn sagði á fundi með blaðamönnum að það væri fráleitt að málatilbún- aður hennar og flokks henn- ar væri í skötulíki. Hún sagði að þvert á móti væri hann mjög vel unninn, enda hefðu hún og hennar félagar unnið að ákærunni í tvö og hálft ár! Þarna datt frúin á hálu svell- inu. Sennilega verið búin að gleyma því að ákæran snýst ekki lengur um slitna spun- ann um samsæri sem þeir Pútín og Trump áttu að hafa staðið fyrir í þeim tilgangi að hafa sigurinn í forsetakjör- inu síðast af Hillary Clinton, sem var að mati demókrata þing- lýsur sigurvegari frá því að hún bauð sig fram. Rússagald- urinn sá er fyrir löngu gufaður upp og reyndar til umfangs- mikillar lögreglurannsóknar og ákæran nú er vegna sím- tals sem forsetinn átti við starfsbróður sinn í Kiev fyr- ir aðeins sex mánuðum. Þegar „litli símamað- urinn“ hafði upplýst demó- krata um að hann hefði það eftir manni sem segðist hafa það eftir öruggum heim- ildum að Trump hefði sagt eitthvað hræðilegt við kollegann í síma fór ákæran í gang. Tilkynnt var að Trump yrði ákærður til embættis- missis fyrir landaráð, mútur og fyrir að þvælast fyrir „rannsókn demókrata“ á þingi. Eftir málsmeðferð í full- trúadeildinni voru smámálin tvö, landráð og mútur, ekki lengur með. Eftir stóð þá að- eins sá hroðalegi glæpur að Trump hefði neitað, með vís- un í þrígreiningu valdsins, að heimila að starfsmenn hans sætu tugum saman í yfirheyrslum um ekkert í þinginu, og neyddust til að kosta til þess hver maður milljónum eða tugmilljónum í lögfræðiaðstoð úr eigin vasa. Enda væri beiðnin um slíkar yfirheyrslur eins og hver önnur vitleysa. Allt þetta fólk átti að yfirheyra um hvað hefði falist í samtal- inu. Það hefði jú verið ríkis- leyndarmál og vitnisburður því eina leiðin til að nálgast innihald þess. En vandinn fyrir demókrata í þessum efnum er sá, að Trump lét skrifa upp hið fræga samtal frá orði til orðs og sendi demókrötum það! Botninn er því dottinn úr kröfunni um yfirheyrslur og illa rifin leik- tjöldin hanga ein eftir. Nú situr Pelosi með ákær- una sína í fanginu og neitar að afhenda hana þeim sem samkvæmt stjórnarskránni á að fjalla um hana, undir fundarstjórn sjálfs forseta Hæstaréttar Bandaríkjanna. Og kjósendur úr hennar eig- inn ranni kunna henni ekki lengur neinar þakkir. Vonandi rætist þó úr þessu og þá helst ekki seinna en 26. mars nk. en þá ætlar Pelosi að halda upp á áttræðisafmæli sitt. Símtalsákæran á hendur Trump gerir nú demó- krötum minna en ekkert gagn} Búmerang á bakaleið F yrir sex hundruð árum orti Skáld Sveinn í Heimsósóma: „Peningur veitir völd en minnkar náðir“. Það er ekki nýtt að á auðlegð séu tvær hliðar. Veraldlegur auður veitir sjaldnast sælu. Megas sagði í fallegu lagi: „Jú, ég veit vel að ókeypis er allt það sem er best, en svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst.“ Samt er það löngunin í peninga sem drífur samfélagið áfram. Flestir vilja meira og meira, helst meira en hinir. Fáir eru þó jafn hreinskilnir og bandaríski rithöfundurinn Gore Vidal sem sagði eitthvað á þessa leið: „Í hvert skipti sem vini mínum gengur vel deyr eitthvað inni í mér.“ Ekkert er jafn hræðilegt og að vera „skilinn eftir“ meðan aðrir njóta velgengni, jafnvel þó að maður hafi það ágætt. Og það er vissulega átakanlegt að sjá auðnuleysingja sem búa í sárri örbyrgð eða neyð. Fólk sem á ekki fyrir mat, lifir á beiningum og á hvergi höfði sínu að halla. Við segjum að hver sé sinnar gæfu smiður, en samt finnum við til þegar við sjáum tötrasveina, eins og þegar Einar skáld Benediktsson rétti betlara smápening sem var „gnótt í hans hönd, en aska í minni“. Margir tala um fátækt á Íslandi og hér eiga vissulega ýmsir erfitt. En þeir hafa þó nauðþurftir, hér þarf eng- inn að svelta eða sofa á víðavangi. Enn þann dag í dag búa hundruð milljóna manna við sára fátækt; fá hvorki vatn né rafmagn. Milli fátæktar og sárafátæktar er breið gjá. Þrátt fyrir misskiptingu auðs fækkar þó stöðugt í hópi þeirra sem líða sáran skort. Þróun- araðstoð menntar og eykur jafnrétti milli kynja. Frelsi og jafnrétti eru óaðskiljanleg, en við þurfum líka að rækta bræðralagið. Á jólum sendu margir vinum og ættingjum kveðju í korti. Mér finnst það fallegur siður, en sé að æ fleiri telja hann allt of dýran og tímafrekan. Og það er rétt. Það er tímafrekt að rækta vináttu, þó að það sé bara gert með einu korti eða símtali. En er tímanum betur varið í Netflix eða tölvuleik? Er ekki ráð að taka öðru hvoru upp símann eða bregða sér í heimsókn til frænda og vina? Lífið er svolítið eins og spegill. Ef maður brosir framan í það, brosir það á móti. Margir leita hamingjunnar í frægð, völdum eða auðlegð. Krónur og aurar kaupa fast- eignir og hlutabréf, en vinátta, virðing og traust verða ekki keypt eða metin til fjár. Verðmætustu endurminningarnar eru sjaldnast um dýra hluti. Nei, sælan er í leik við börn, kaffibolla við eldhúsborð for- eldra eða frændfólks, gönguferð í rigningunni eða sól- setri í sveitinni. Í gömlu handriti segir: „Hinn góði maður, þótt hann þjóni öðrum, er hann þó frjáls. En hinn illi maður, þótt hann hafi konungsríki er hann þó þræll fastur á fótum, eigi sem eins manns sé, heldur jafnmargra drottna sem hann á löstu marga.“ Minnumst þessa og verum frjáls á nýju ári. Benedikt Jóhannesson Pistill Sitt er hvað, auður og auðna Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Það voru tvö banaslys á þessuári. Það er ekki algengt aðþað gerist,“ segir ÞorkellÁgústsson, verkfræðingur og rannsóknarstjóri flugsviðs rann- sóknarnefndar samgönguslysa (RNSA), í samtali við Morgunblaðið um árið sem senn er liðið. Eins og Þorkell nefnir hefur ár- ið 2019 verið óvenju sorglegt í sögu- legu samhengi hvað flugslys varðar en á árinu hafa alls fjórir látist í tveimur flugslysum hér á landi. Til viðmiðunar létust engir í flugslysum hérlendis á árunum 2016-2018. Fjórir létust Hinn 9. júní létust þrír í alvar- legu flugslysi við flugvöllinn við Múlakot í Fljótshlíð. Fólkið var um borð í lítilli tveggja hreyfla einka- flugvél en hún hrapaði til jarðar um kílómetra frá flugbrautinni í Múla- koti. Skömmu áður en slysið varð hafði flugmaður flugvélarinnar æft snertilendingar á vellinum. Þeir sem létust voru hjón og sonur þeirra. Auk þeirra voru í vélinni annar sonur hjónanna og ung kona sem slösuðust mikið. Rúmum mánuði síðar varð ann- að banaslys ársins þegar flugvél hlekktist á í flugtaki á Haukadals- flugvelli á Rangárvöllum hinn 27. júlí. Sá sem lést var íslenskur karl- maður á sjötugsaldri. Stöðvaðist á hvolfi Einungis tveimur dögum áður hafði átt sér stað slys á sama flug- velli, Haukadalsflugvelli á Rangár- völlum, en þá hlekktist flugvél á í lendingu. Vélin snerist í lendingunni og við það hvolfdi henni og hún stöðvaðist á hvolfi. Flugmaðurinn var einn um borð og komst út ómeiddur. Hinn 20. júlí hlekktist lítilli fis- vél á í flugtaki á Rifi á Snæfellsnesi. Var vélin komin nokkra metra upp í loft þegar hún missti afl og brotlenti. Tveir voru í vélinni og hlaut annar minni háttar áverka. Þá varð slys á Svefneyjum á Breiðafirði hinn 15. ágúst þegar lítilli flugvél hlekktist á í flugtaki. Tveir voru um borð sem komust út óslas- aðir. Einnig varð slys 17. september þegar lítil eins hreyfils flugvél brot- lenti á Skálafelli. Flugmaðurinn var einn í vélinni og var fluttur á bráða- móttöku Landspítalans til aðhlynn- ingar. Átta flugslys í ár Frá slysinu á Skálafelli í sept- ember hafa engin bæst í hóp þeirra sem RNSA skilgreinir sem flugslys. Alls eru flugslysin árið 2019 orðin átta talsins en í fyrra urðu engin slys. Spurður um þetta segir Þorkell: „Ár- ið í fyrra var svolítið sérstakt fyrir þær sakir að þá var ekkert skráð slys hjá okkur. Það hafði ekki gerst í 49 ár.“ Hann segir töluna sem nú liggur fyrir, átta slys, þó ekki vera neitt sér- staklega háa. „Það að það séu átta slys núna er kannski í meira lagi, en það er ekkert alveg á skjön við með- altalið. Það hafa kannski verið um sex eða sjö á ári. Þetta er svo lítið úr- tak.“ Spurður frekar um málið segir hann að ekki sé að merkja neina sér- staka ástæðu fyrir því að í fyrra hafi ekkert slys orðið en í ár átta. Þar ráði í raun tilviljun ein. „Við erum í raun ekkert óvön því að hér séu á bilinu sex til átta slys.“ Frekar sé óvenju- legt að hér verði engin flugslys. Hann nefnir þó aftur að það sé óvenjulegt að tvö banaslys eigi sér stað á sama ári. Tvö banaslys í flugi óvenjulega mikið Morgunblaðið/Hari Á Skálafelli Frá rannsókn RNSA á vettvangi 17. september síðastliðinn. Er það síðasta flugslys sem orðið hefur og verður vonandi það síðasta í ár. Auk hinna átta flugslysa sem hafa orðið á árinu hefur fjöldi til- vika, sem eru skilgreind sem al- varleg flugatvik, komið til rann- sóknar hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa. Í gær stóð fjöldi „alvarlegra flugatvika“ í 15. Þorkell segir að almennt megi segja að það teljist alvarlegt flugatvik, en ekki flugslys, þegar „það er tilviljun að ekki varð slys“. Í reglugerð um störf rann- sóknarnefndar samgönguslysa eru nefnd dæmi um tilvik sem talin eru dæmigerð fyrir alvarleg flugatvik. Þar er sem dæmi nefnt þegar naumlega var komið í veg fyrir að flogið væri í jörð undir fullri stjórn, þegar lent er á lok- aðri eða upptekinni flugbraut, þegar nauðsynlegt var að flug- áhöfn gripi til súrefnis í neyð eða þegar flugliðar verða ófærir um að gegna störfum sínum í flugi. Tilviljun að ekki varð slys 15 ALVARLEG FLUGATVIK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.