Morgunblaðið - 28.12.2019, Síða 42

Morgunblaðið - 28.12.2019, Síða 42
42 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019 40 ára Atli ólst upp á Seltjarnarnesi en býr í Hafnarfirði. Hann er menntaður leikari frá Listaháskóla Íslands. Atli er markaðsstjóri Þjóðleikhússins, skemmtikraftur, út- varpsmaður og kennari við Bjórskólann. Hann er nýhættur í stjórn Barnaheilla þar sem hann sat í þrjú ár. Maki: Guðný Ósk Sigurgeirsdóttir, f. 1982, fasteignasali. Börn: Ásmundur, f. 1999, Þórdís, f. 2006, Maríanna, f. 2009, og Óskar Þór, f. 2017. Foreldrar: Jóna Ágústa Ragnheiðar- dóttir, f. 1957, búsett í Hafnarfirði, og Albert Klemenzson, f. 1957, búsettur í Kópavogi. Atli Þór Albertsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Gættu þín á því að láta engan mis- nota tilfinningar þínar hvort heldur um er að ræða vini og vandamenn eða aðra aðila. Stundum er best að segja sem minnst. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er ekki allt gull sem glóir og margt fyrirheitið fer fyrir lítið þegar til kast- anna kemur. Gefðu þér tíma til þess að sinna skrokknum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Samskipti þín við vini þína gætu gengið eitthvað stirðlega í dag. Draumar þínir eru fallegir og því getur líf þitt hæg- lega tekið jákvæða stefni á næstunni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Hinn tilfinningalegi titringur sem þú skynjar er ekki bara í höfðinu á þér. Láttu þér ekki til hugar koma að framkvæma hluti, sem þú ert innst inni alfarið á móti. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú vilt alls ekki troða neinum um tær, en stundum neyðist þú til þess. Fólk gerir sér allt of oft ekki grein fyrir því hvað litlu hlutirnir í lífinu skipta miklu máli. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Breytingar sem þú gerir á heimilinu núna leiða hugsanlega til hagnaðar í fram- tíðinni. Næsta ár verður þér gjöfult. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þörf þín fyrir að breyta til og taka þér frí frá vinnu eykst. Bíddu til morguns með að svara spurningu sem þú færð. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Varastu að gagnrýna aðra um of því þú ert nú svo sem fullkomin/n heldur. Reyndu að sjá það góða í öðrum og hældu fólki oftar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Láttu ekki aðra stela hug- myndum þínum því þær eiga eftir að fleyta þér langt. Einhver biður um ráð og þú ættir að valda svarið. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þótt þú sért full/ur af krafti og viljir drífa í hlutunum geturðu ekki ætlast til þess að aðrir séu alltaf sama sinnis. Láttu reyna á skipulagshæfileika þína. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þig dreymir stóra drauma um að ganga frá samningum, en þegar kemur að því þá eru þeir framar öllum vonum. Frændfólk þitt kemur þér á óvart. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ef þú segir meiningu þína máttu eiga von á að einhver valdabarátta gjósi upp á vinnustað. Góður vinur hlustar og dæmir ekki. leikari. Má nefna Orion og Sigrúnu Harðardóttur, Hljómsveit Hauks Morthens, Lúdó sexett og Stefán en einna eftirminnilegast finnst honum samstarfið við Ragnar Bjarnason en Hljóðfæraleikur hefur verið aukabúgrein hjá Stefáni í um 50 ár og hefur hann leikið með ýmsum danshljómsveitum, ýmist sem trommuleikari eða hljómborðs- S tefán Jökulsson fæddist í Reykjavík 28. desember 1949 og voru æskuslóð- irnar í Norðurmýrinni og fyrsti skólinn Ísaksskóli. „Ísak bjó skammt frá okkur og stundum urðum við samferða yfir Klambratúnið í skólann hans í Hlíð- unum. Það þótti mér upphefð.“ Stefán lauk stúdentsprófi frá KÍ 1972 og stundaði þar kennslurétt- indanám. Svo tók við nám í ensku og sagnfræði við HÍ en MA-prófi í fjöl- miðlafræði lauk hann við Leicester- háskóla í Englandi árið 2000. „Ég varð snemma grunnskólakennari og kenndi íslensku og ensku í rúman áratug, fyrst í Breiðholtsskóla, svo á Hallormsstað og loks í Austurbæj- arskóla. Á þessum árum öðlaðist ég dýrmæta reynslu sem átti eftir að koma sér vel í háskólakennslu síðar.“ Árið 1984 urðu kaflaskil hjá Stef- áni. Hann varð dagskrárgerðar- maður á Rás 1 og næstu sex árin var hann umsjónarmaður fjölmargra þátta og þáttaraða, stjórnandi morgunútvarps og leiðbeinandi á námskeiðum fyrir starfsfólk. Nám- skeiðin tengdust starfsnámi Stefáns hjá BBC í London 1985 en þar lærði hann dagskrárgerð fyrir útvarp og lauk prófi sem snerist um stjórn og rekstur útvarpsstöðva. „Ég held að ég hafi aldrei lært eins mikið á stutt- um tíma og ég gerði á nokkrum mánuðum hjá BBC.“ Í tæpan áratug starfaði Stefán á auglýsingastofum, lengst á Auglýs- ingastofu Kristínar, AUK, þar sem hann starfaði sem hugmynda- og textasmiður. Hann var fyrsti rit- stjóri Nýrra menntamála, fagtíma- rits tvennra samtaka kennara, og fékkst lengi við þýðingar hjá Ríkis- sjónvarpinu. Svo hefur hann þýtt tíu bækur, einkum fyrir bókaútgáfuna Örn & Örlyg. „Þekktust þessara bóka er líklega kynlífsbókin Sjafnaryndi. Sumum félögum mín- um fannst gaman að segja öðrum frá því, grafalvarlegir, að ég hefði ekki aðeins þýtt bókina heldur hefði ég þurft að prófa sjálfur allt sem fjallað væri um í henni svo þýðingin yrði trúverðug.“ þeir tveir skemmtu gestum Mímis- bars á Hótel Sögu um árabil. Árið 2003 var Stefán ráðinn lektor á sviði miðlalæsis við KHÍ sem nú er Menntavísindasvið HÍ. Miðlalæsi snýst ekki aðeins um prent heldur einnig um myndir og hljóð, og sam- virkni allra þeirra mála eða tákn- kerfa sem koma við sögu í marg- miðlun samtímans. „Markmiðið er að við verðum vakandi og gagnrýnin varðandi efni sem við notum eða njótum og lærum að beita nýrri tækni við að búa til alls konar efni. Stafrænir miðlar hafa auðgað og auðveldað starf kennara og nem- endur hafa fengið öflug verkfæri í hendur.“ Í upphafi starfs síns í HÍ kom Stefán fyrsta námskeiðinu um miðlalæsi á laggirnar og síðan hefur það verið mikilvægur þráður í kenn- aramenntuninni þar. Fjölskylda Dóttir Stefáns og Elínar Thor- arensen hárgreiðslukonu, f. 30.6. Stefán Jökulsson, kennari, útvarpsmaður og músíkant – 70 ára Annar í jólum Stefán ásamt börnum og barnabörnum, frá vinstri: Ingibjörg, Stefán Jökull með Sigurbjörgu Sóleyju, Stefán með Áróru Snædísi, Ásta Lilja, Finnbogi Jökull, Sara Snædís og Elín. Sköpun og miðlun í forgrunni Samstarfsfélagar Ragnar og Stefán. Afmælisbarnið Stefán. 30 ára Kristinn ólst upp í Bamberg í Bæjaralandi og í Laugardalnum í Reykjavík og býr þar. Hann er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Há- skóla Íslands og er rekstrarstjóri hugbún- aðarfyrirtækisins Gagnverk. Hann er einnig stofnandi nýsköpunarvefsins Northstack og rekur það. Kristinn situr í stjórn Holl- vinasambands MH. Maki: Sunna Karen Einarsdóttir, f. 1993, kórstjóri í Langholtskirkju og Kársnesskóla. Foreldrar: Sveinbjörg Katrín Pálsdóttir, f. 1961, sjúkrahúsprestur og Hróbjartur Árnason, f. 1960, lektor á mennta- vísindasviði HÍ. Þau eru búsett í Hafnar- firði. Kristinn Árni Lár Hróbjartsson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.