Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 44
44 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019
England
Wolves – Manchester City ...................... 3:2
Staðan:
Liverpool 18 17 1 0 46:14 52
Leicester 19 12 3 4 41:18 39
Manch.City 19 12 2 5 52:23 38
Chelsea 19 10 2 7 33:27 32
Wolves 19 7 9 3 29:24 30
Tottenham 19 8 5 6 34:27 29
Sheffield Utd 19 7 8 4 23:17 29
Manch.Utd 19 7 7 5 30:23 28
Crystal Palace 19 7 5 7 17:21 26
Newcastle 19 7 4 8 19:28 25
Arsenal 19 5 9 5 25:28 24
Burnley 19 7 3 9 23:30 24
Everton 19 6 4 9 21:29 22
Southampton 19 6 3 10 23:37 21
Brighton 19 5 5 9 22:28 20
Bournemouth 19 5 5 9 20:26 20
West Ham 18 5 4 9 20:30 19
Aston Villa 19 5 3 11 25:33 18
Watford 19 2 7 10 12:33 13
Norwich 19 3 3 13 19:38 12
Belgía
Charleroi – Oostende .............................. 5:0
Ari Freyr Skúlason lék ekki með Oost-
ende vegna meiðsla.
KNATTSPYRNA
Enski boltinn á Síminn Sport
Brighton – Bournemouth.................. L12.30
Newcastle – Everton................ (mbl.is) L15
Norwich – Tottenham ....................... L17.30
Burnley – Manchester United.......... L19.45
Arsenal – Chelsea .............................. S14.00
Liverpool – Wolves ............................ S16.30
UM HELGINA!
HANDBOLTI
Þýskaland
Göppingen – Leverkusen ................... 28:29
Hildigunnur Einarsdóttir var ekki í leik-
mannahópi Leverkusen.
Blomberg-Lippe – Neckarsulmer ..... 33:29
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði fjögur
mörk fyrir Neckarsulmer.
Dortmund 16, Bietigheim 15, Blomberg-
Lippe 14, Thüringer 12, Metzingen 12,
Leverkusen 10, Bensheim 8, Oldenburg 7,
Buxtehuder 6, Neckarsulmer 4, Bad Wild-
ungen 2, Göppingen 2, Kurpfalz 2, Mainz 2.
Rússland
Enisey – UNICS Kazan....................... 95:93
Haukur Helgi Pálsson skoraði þrjú stig
fyrir Kazan og tók þrjú fráköst en hann lék
í 15 mínútur.
Efstu lið: Khimki Moskva 11/1, CSKA
Moskva 9/3, Lokomotiv Kuban 7/4, Enisey
6/4, UNICS Kazan 6/5, N. Novgorod 5/6.
Svíþjóð
Djurgården – Borås ................... (frl.) 92:95
Elvar Már Friðriksson skoraði 12 stig
fyrir Borås, tók sex fráköst og gaf níu stoð-
sendingar en hann spilaði 30 mínútur.
Efstu lið: Borås 15/3, Köping Stars 14/3,
Luleå 13/5, Södertälje 11/7, Wetterbygden
Stars 11/6.
NBA-deildin
Detroit – Washington....................... 132:102
Brooklyn – New York .......................... 82:94
Dallas – San Antonio .......................... 102:98
Oklahoma City – Memphis ................ 97:110
Sacramento – Minnesota ....... (2frl) 104:105
Utah – Portland ................................ 121:115
Staðan í Austurdeild:
Milwaukee 27/5, Boston 21/7, Miami 22/8,
Philadelphia 23/10, Indiana 21/10, Toronto
21/10, Brooklyn 16/14, Orlando 13/17,
Charlotte 13/20, Chicago 12/20, Detroit 12/
20, Cleveland 9/21, Washington 9/21, New
York 8/24, Atlanta 6/25.
Staðan í Vesturdeild:
LA Lakers 24/7, Denver 21/9, LA Clippers
23/10, Houston 21/10, Dallas 20/10, Utah
19/12, Oklahoma City 15/15, Portland 14/
18, San Antonio 12/18, Sacramento 12/19,
Memphis 12/20, Phoenix 11/19, Minnesota
11/19, New Orleans 9/23, Golden State 8/24.
KÖRFUBOLTI
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Samtök íþróttafréttamanna hafa
kosið íþróttamann ársins í 64. skipti
og opinbera niðurstöðuna í hófi í
Hörpu í Reykjavík í kvöld. Bein út-
sending frá kjörinu hefst á RÚV
klukkan 19.40. Um leið verða birt úr-
slit í kjöri samtakanna á þjálfara árs-
ins og liði ársins en kynnt var á Þor-
láksmessumorgun hverjir hefðu
orðið í efstu sætunum án þess að
endanleg röð þeirra hefði verið birt.
Vilhjálmur Einarsson var kjörinn
fyrstur árið 1956, eftir að hann hlaut
silfurverðlaunin í þrístökki á Ólymp-
íuleikunum í Melbourne það ár.
Hann hefur jafnframt verið kjörinn
oftast allra.
Samtök íþróttafréttamanna voru
stofnuð í kringum kjörið árið 1956 af
þeim fjórum sem þá höfðu atvinnu af
því að skrifa um íþróttir en það voru
Atli Steinarsson, Frímann Helgason,
Hallur Símonarson og Sigurður Sig-
urðsson. Í ár höfðu 28 meðlimir í SÍ
atkvæðisrétt en hver þeirra valdi tíu
einstaklinga á sinn lista og þeir fá frá
einu og upp í tuttugu stig í kosning-
unni.
Íþróttafólkið sem er í tíu efstu
sætunum í ár er eftirtalið, í stafrófs-
röð:
Anton Sveinn McKee (sund), Arn-
ar Davíð Jónsson (keila), Aron
Pálmarsson (handbolti), Glódís
Perla Viggósdóttir (knattspyrna),
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir (frjáls-
íþróttir), Guðmundur Ágúst Krist-
jánsson (golf), Gylfi Þór Sigurðsson
(knattspyrna), Júlían J.K. Jóhanns-
son (kraftlyftingar), Martin Her-
mannsson (körfubolti), Sara Björk
Gunnarsdóttir (knattspyrna).
Í kjörinu á þjálfara ársins eru eft-
irtaldir í efstu sætunum: Alfreð
Gíslason (handbolti), Óskar Hrafn
Þorvaldsson (knattspyrna), Patrek-
ur Jóhannesson (handbolti).
Í kjörinu á liði ársins eru það
karlalið Selfoss í handbolta, kvenna-
lið Vals í körfubolta og kvennalið
Vals í handbolta sem eru í efstu sæt-
unum.
Í þau 63 skipti sem kjörið hefur
farið fram hefur frjálsíþróttafólk oft-
ast verið kosið, eða í 21 skipti. Hand-
bolti og knattspyrna hafa fengið tit-
ilinn 12 sinnum hvor grein og sund 9
sinnum.
Aðrar greinar sem hafa átt
íþróttamann ársins eru kraftlyft-
ingar (3), körfubolti (2), júdó, hesta-
íþróttir, þolfimi og golf.
Karlar hafa í 56 skipti orðið fyrir
valinu en 7 konur hafa verið kjörnar
íþróttamenn ársins. Þrjár þeirra á
síðustu fjórum árum.
Vilhjálmur Einarsson hefur oft-
ast verið kjörinn íþróttamaður árs-
ins, fimm sinnum, og Ólafur Stef-
ánsson kemur næstur með fjögur
skipti.
Sara Björk Gunnarsdóttir er
núverandi handhafi titilsins en hún
var kjörin íþróttamaður ársins 2018.
Alls hafa 43 íþróttamenn hreppt
titilinn á þessum 63 árum og það eru
eftirtaldir:
5 – Vilhjálmur Einarsson, frjáls-
íþróttir (1956, 1957, 1958, 1960, 1961).
4 – Ólafur Stefánsson, handbolti
(2002, 2003, 2008, 2009).
3 – Hreinn Halldórsson, frjáls-
íþróttir (1976, 1977, 1979).
3 – Einar Vilhjálmsson, frjáls-
íþróttir (1983, 1985, 1988).
3 – Örn Arnarson, sund (1998,
1999, 2001).
2 – Valbjörn Þorláksson, frjáls-
íþróttir (1959, 1965).
2 – Guðmundur Gíslason, sund
(1962, 1969).
2 – Ásgeir Sigurvinsson, knatt-
spyrna (1974, 1984).
2 – Skúli Óskarsson, kraftlyftingar
(1978, 1980).
2 – Jón Arnar Magnússon, frjáls-
íþróttir (1995, 1996).
2 – Eiður Smári Guðjohnsen,
knattspyrna (2004, 2005).
2 – Gylfi Þór Sigurðsson, knatt-
spyrna (2013, 2016).
1 – Jón Þ. Ólafsson, frjálsíþróttir
(1963), Sigríður Sigurðardóttir,
handbolti (1964), Kolbeinn Pálsson,
körfubolti (1966), Guðmundur Her-
mannsson, frjálsíþróttir (1967), Geir
Hallsteinsson, handbolti (1968), Er-
lendur Valdimarsson, frjálsíþróttir
(1970), Hjalti Einarsson, handbolti
(1971), Guðjón Guðmundsson, sund
(1972), Guðni Kjartansson, knatt-
spyrna (1973), Jóhannes Eðvaldsson,
knattspyrna (1975), Jón Páll Sig-
marsson, kraftlyftingar (1981), Óskar
Jakobsson, frjálsíþróttir (1982), Eð-
varð Þór Eðvarðsson, sund (1986),
Arnór Guðjohnsen, knattspyrna
(1987), Alfreð Gíslason, handbolti
(1989), Bjarni Friðriksson, júdó
(1990), Ragnheiður Runólfsdóttir,
sund (1991), Sigurður Einarsson,
frjálsíþróttir (1992), Sigurbjörn
Bárðarson, hestaíþróttir (1993),
Magnús Scheving, þolfimi (1994),
Geir Sveinsson, handbolti (1997),
Vala Flosadóttir, frjálsíþróttir (2000),
Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti
(2006), Margrét Lára Viðarsdóttir,
knattspyrna (2007), Alexander Pet-
ersson, handbolti (2010), Heiðar
Helguson, knattspyrna (2011), Aron
Pálmarsson, handbolti (2012), Jón
Arnór Stefánsson, körfubolti (2014),
Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund
(2015), Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,
golf (2017), Sara Björk Gunn-
arsdóttir, knattspyrna (2018).
Kjöri SÍ lýst
í 64. skipti
í kvöld
Vilhjálmur kjörinn oftast allra
Sara er handhafi titilsins frá 2018
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kjörið Atli Steinarsson, fyrsti formaður SÍ, og Vilhjálmur Einarsson, sem
fyrstur var kjörinn, með verðlaunagripinn sem hann tók við fimm sinnum.
Wolves vann ótrúlegan 3:2-sigur á
Manchester City í ensku úrvalsdeild-
inni í fótbolta í gærkvöldi. City
komst í 2:0 snemma í seinni hálfleik,
en Wolves neitaði að gefast upp og
svaraði með þremur mörkum.
Vendipunktur leiksins kom strax á
12. mínútu, en þá fékk Ederson,
markmaður City, rautt spjald. Að
lokum réðu tíu leikmenn City ekki
við ellefu úlfa. Wolves er nú í fimmta
sæti með 30 stig, tveimur stigum frá
Chelsea í fjórða sæti. City er í þriðja
sæti, 14 stigum á eftir toppliði Liver-
pool, sem á auk þess leik til góða.
Úlfarnir bitu
meistarana
AFP
Sigur Raúl Jimenéz skoraði eitt og
lagði upp annað í gær.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta
skipað leikmönnum 18 ára og yngri
vann öruggan 29:21-sigur á Sviss í
fyrsta leik sínum á Sparkassen-
bikarnum sem fram fer í Þýska-
landi. Staðan í hálfleik var 19:10 og
sigldi íslenska liðið sigrinum af ör-
yggi í höfn í seinni hálfleik.
Kristófer Máni Jónasson skoraði
sex mörk fyrir Ísland og Benedikt
Gunnar Óskarsson fimm. Brynjar
Vignir Sigurjónsson varði sex skot í
markinu. Ísland leikur tvo leiki á
mótinu í dag; annars vegar gegn
Þýskalandi og hins vegar Ítalíu.
Sannfærandi
sigur í fyrsta leik
Ljósmynd/HSÍ
Ísland Leikmenn Íslands voru kátir
eftir öruggan sigur á Sviss.
Sænska knattspyrnufélagið Helsingborg tilkynnti í gær
að gengið hefði verið frá þriggja ára samningi við fær-
eyska landsliðsmanninn Brand Olsen sem hefur leikið
með FH undanfarin tvö ár, og að samkomulag hefði
náðst við FH um félagaskiptin.
Brandur, sem varð 24 ára í þessum mánuði, kom til
FH frá Randers í Danmörku og skoraði 13 mörk í 39
leikjum með Hafnarfjarðarliðinu í úrvalsdeildinni. Hann
á að baki 32 A-landsleiki fyrir Færeyjar og 21 leik með
yngri landsliðum þjóðar sinnar.
Meðal samherja Brands hjá Helsingborg er akur-
eyrski miðjumaðurinn Daníel Hafsteinsson sem sænska
félagið keypti af KA í sumar. Liðið endaði í tíunda sæti af sextán liðum í úr-
valsdeildinni 2019. vs@mbl.is
Brandur fer til Svíþjóðar
Brandur
Olsen
Áföllin dynja á norska karlalandsliðinu í handbolta.
Bjarte Myrhol, fyrirliði liðsins, verður ekki með á EM í
janúar vegna veikinda og þá missir Kent Robin Tønn-
essen af mótinu vegna meiðsla.
Magnus Rød, sem var valinn besti ungi leikmaður
heims í sumar, er svo tæpur fyrir mótið, en hann varð
fyrir meiðslum í leik með Flensburg í vikunni.
„Ég lenti á mjöðminni í gær og ég finn fyrir miklum
sársauka. Ég þarf að fara í myndatöku og sjá hvað
kemur út úr henni,“ sagði Rød í samtali við Verdens
Gang.
„Ég vona að ég geti verið með, en ég verð að hugsa
um félagsliðið mitt líka. Þeir vilja ekki að ég spili á mótinu ef meiðslin
eru alvarleg,“ bætti hann við.
Lykilmenn Noregs úr leik
Magnus
Rød
Borås vann sinn sjötta sigur í röð í
sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í
gærkvöld, eftir framlengda spennu
við Djurgården á útivelli, 95:92. Elv-
ar Már Friðriksson átti fínan leik
fyrir Borås, sem er í toppsætinu með
30 stig, tveimur meira en Köping
sem er í öðru sæti.
Elvar lék í 30 mínútur og skoraði
á þeim tólf stig, tók sex fráköst og
gaf níu stoðsendingar.
Sjötti sigur-
leikurinn í röð