Morgunblaðið - 28.12.2019, Síða 48

Morgunblaðið - 28.12.2019, Síða 48
AF MYNDLIST María Hilmarsdóttir majahilmars@gmail.com Áannarri hæð í Breska safninuí London er til sýnis málverkaf einu mest hrífandi andliti sem ég hef augum litið. Dökkbrún augun eru blikandi og full af lífi, vel lagaðar varir lyftast svolítið upp á við og hárið er greitt í fallega báru- lagaða lokka samkvæmt hátísku tím- ans og eru sem mjúkur rammi um andlit þessarar gullfallegu konu. Hún er í vönduðum hágæða klæðn- aði, skrýdd dýrindis hálsfesti og eyrnalokkum sem málarinn nær að kalla fram með léttum strokum og greinilegt er að konan er af efnuðum ættum. Verkið er málað með vaxlit- um á lindivið og er líklegast frá 2. öld e.Kr. Það tilheyrir því klassíska tím- anum og er frá Egyptalandi og mál- að í grísk-rómverskum stíl. Málverk frá klassíska tíma- bilinu eru mjög fágæt. Mun minna hefur varðveist af málaralist en höggmyndum frá tímum Forn- grikkja og Rómverja. Fornminj- arnar við Napolíflóa hafa þó sýnt að veggir í rómverskum bæjum og borgum voru skreyttir hinum ýmsu myndum bæði að innan sem að utan. Verslunareigendur og sölufólk sýndu veggjamyndir af vörum sínum. Á mörgum veggjum efnaðra heimila voru myndir sem oft sóttu efnivið úr vinsælum goðsögnum. Val á efnivið og listgæðin sjálf voru góð dæmi um stéttarskipun samfélags- ins og endurspegluðu menntun og kunnáttu húseigenda. Greftrunarlist Málverk hafa einnig fundist við uppgröft á grafhýsum og gröfum. Í Paestum á Ítalíu er grafhýsismynd af ungum manni að dýfa sér til sunds. Sú mynd er talin einstök forngrísk veggjamynd frá 5. öld f.Kr. Etrúskarnir á Ítalíu byggðu einnig heilmikla grafreiti sem voru eins og borgir fyrir fráfallna ætt- ingja þar sem mörg grafhýsi, upp- sett sem heimili fyrir eftirlífið, voru skreytt fallegum og litmiklum veggjamyndum. Þau málverk sem virka eins og spegill inn í fortíðina og færa áhorf- endum nútímans sterk tengsl við fólkið sem lifði á klassíska tímabilinu eru eflaust flokkur af portrettum frá Egyptalandi. Þessar fornminjar eru vinsælar meðal safngesta og draga að mikla aðsókn þegar þær hafa ver- ið á sérsýningum í hinum ýmsu söfn- um eins og sýndi sig á hinum vel virtu sýningum í Breska safninu (1997) og Metropolitan-safninu (2000). Að gefa sér tíma til að skoða þessi portrett er að horfast í augu við andlit fortíðarinnar. Andlitin eru svo lifandi og eðlileg. Fólkið er klætt sínum fínustu fötum og vel til haft. Þau sýna venjulegt fólk á ýmsum aldri. Augun titra, ljós og skuggar leika um andlit þeirra og klæðnað, hárið er glansandi og fallegir skart- gripir blika. Þau birtast eins og ljós- lifandi fyrir framan áhorfandann. Portrettin eru auðvitað af mismun- andi gæðum og gerðum, en öll eiga þau það sameiginlegt að sýna hin ýmsu andlit venjulegs fólks af grísk- um og rómverskum ættum, sem lifði Andlit fortíðar – múmíuportrett frá klassíska tímabilinu Ljósmynd/British Museum Smurð Múmía með viðarportrett af ungum manni, rómversk, um 80- 100 e.Kr. Fundin á Fayum-svæðinu. Er í Metropolitan Museum. og dó í Egyptalandi á klassíska tím- anum. Þessi myndverk eru kennd við Fayum-svæðið í Egyptalandi því þaðan hafa flest verkin uppruna sinn og eru múmíumyndir. Þetta er flokkur portretta sem tilheyrir greftrunarlist og greftrunarsiðum frá Fayum-svæðinu og nágrenni þar sem fólk af forngrískum og róm- verskum ættum settist að á Ptóle- mea (helleníska) og rómverska tíma- bilinu. Myndirnar voru málaðar á hörvafninga eða á viðarplötur með vax- eða temperamálningu og settar þar sem andlit þeirra látnu lágu und- ir hörumbúðunum og bundnar sam- an við múmíuvafningana. Þær eru því mikilvægur partur af múmíu- greftrunarlist og greftrunarsiðum síns tíma en ekki gerðar sem einstök portrett til þess að skreyta veggi heimila venjulegs fólks. Einstakar hefðir Á þessum tíma í Egyptalandi, þegar Grikkir og síðan Rómverjar höfðu yfirráð, blönduðust oft saman menning og trúarsiðir innfæddra og nýbúa. Það er einmitt svona sérstök blanda sem er á bak við gerð og notkun þessara múmíuportretta. Áherslurnar á mynd af andliti ein- staklingsins eftir dauða og í eftirlíf- inu eru meira í ætt við helleníska og rómverska siði en egypska. En hér blandast þó saman á einstakan hátt klassískar og egypskar hefðir; sér- staklega hellenískur liststíll og feg- urðarmat, rómverskar hugmyndir um aukið raunsæi og áherslur á meiri einstaklingsbundna fegurð og fornir egypskir múmíu-greftrunar- siðir. En í dag á flestum lista- og minjasöfnum þar sem múmíuport- rett eru til sýnis hafa þau verið klippt frá múmíunni sem þær fylgdu upprunalega og eru sýnd sem sjálf- »Dökkbrún auguneru blikandi og full af lífi, vel lagaðar varir lyftast svolítið upp á við og hárið er greitt í fal- lega bárulagaða lokka samkvæmt hátísku tím- ans og eru sem mjúkur rammi um andlit þess- arar gullfallegu konu. Vel varðveitt Múmíuportrett af konu (enn saman við hörvafning), um 100-110 e.Kr. Fundin á Fayum-svæðinu. Eignuð Isidora-meistaranum. Vax- litir á tré (encaustic), gylling og hör. J. Paul Getty Museum í LA. Ásjóna Múmíuportrett af ungri konu, frá um 2. öld e.Kr. Fundið í Rubaiyat. Linditré, vaxmálning (en- caustic) og gylling. British Museum. 48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019 Hver segir að lífið sé ein-falt, er oft spurt þegarvandamál steðja að ogunnið er að lausn mála. Þessi spurning vaknar eftir að hafa lesið Endurfundina eftir sænsku mæðg- urnar Camillu og Vivecu Sten, óvenjulega spennusögu sem segir svo margt í frekar stuttu en hnitmiðuðu máli. Vinátta mynd- ast gjarnan í skóla en svo er undir hælinn lagt hvort hún endist eða ekki. Þar kemur margt til og ekki er á vísan að róa í því efni. Bókin Endurfundirnir fjallar um fimm konur sem hafa verið í litlu Mæðgur Viveca og Camilla Sten Geymt en ekki gleymt Spennusaga Endurfundirnir mn Eftir Camillu Sten og Vivecu Sten. Elín Guðmundsdóttir þýddi. Ugla 2019. Kilja. 160 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR SKILLBIKE er nýtt byltingarkenntæfingarhjól frá Technogym, búið gírskiptingum eins og í venjulegu götuhjóli sem byggt er á nýrri tækni Multidrive™. SKILLBIKE er hannað til líkja semmest eftir raun- verulegumhjólreiðum en hjólið hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir hönnun og nýsköpun. Skoðaðu hjólið í sýningarsal okkar, hjá Holmris Síðumúla 35 NÝTT BYLTINGARKENNT ÆFINGAHJÓL Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.