Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 49
stæð málverk gerð fyrir veggi frekar en verk gerð sem grafarlist. Þar af leiðandi er í raun lítið vitað um upp- runaleg hlutverk þessara málverka og þá greftrunarsiði sem þau til- heyrðu. Oft vantar nánari upplýs- ingar um einstaka fundarstaði og enn hvílir nokkur óvissa um dag- setningar á þessum portrettum. En samkvæmt nýlegum rannsóknum á hárgreiðslu, klæðnaði og áletrunum virðast þessar myndir tilheyra tíma- bilinu frá síðari hluta 1. aldar f.Kr., með mikinn hluta af myndum mál- uðum á 1. og 2. öld e.Kr. og alveg fram á 3. öld e.Kr., en þá virðist hafa dregið úr gerð múmíumynda. Lík- legt er að með komu kristinnar trúar hafi orðið breytingar á greftrunar- siðum á þessu svæði og múmíu- greftrunum fækkað. Höfundur er listfræðingur og háskólakennari við Belmont- háskóla í Nashville. Forn fegurð Múmíuportrett af konu frá um 2. öld e.Kr. Fundin á Fayum- svæðinu. Vaxmálning á tré (encaustic). Frá Museum of Scotland. MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019 eða engu sambandi í tuttugu ár en ákveða að hittast í húsi einnar þeirra á skíðasvæði í Åre í Sví- þjóð. Eftir því sem þær fá sér meira áfengi verður þeim liðugra um málbeinið, og áður en nokkur fær rönd við reist er allt komið í bál og brand. Þegar grannt er skoðað eru konurnar, sem virtust vera óaðskiljanlegar í skóla, mjög ólík- ar, auk þess sem þær eiga flestar við vandamál að stríða, vandamál sem þær hafa sópað undir teppið en koma nú upp á yfirborðið af miklum þunga og með ófyrirsjáan- legum afleiðingum. Ágreiningsmálin eru mörg og í grunninn virðast peningar vera undirrótin að misklíðinni, öfund- inni, skilningsleysinu. Konurnar eru líka uppteknar af útlitinu, það er eigin útliti, en þar er líka pott- ur brotinn, rétt eins og á öðrum sviðum. Í raun má segja að Endurfund- irnir sé saga menntaðs nútíma- fólks í hnotskurn. jafnvel alls fólks, sem á sér óskir og þrár og höndlar hamingjuna með mis- jöfnum hætti og árangri. Ekki er á allt kosið í lífinu og eftir stendur að hver er sinnar gæfu smiður. Bók sem vekur lesandann til um- hugsunar um lífið og tilveruna. Eftir að hafa verið opið í meira en áratug mun fréttasafninu New- seum í Washington-borg verða lok- að nú um áramótin. Safninu var ætlar að vera kyndilberi hugsjóna og upplýsinga um frjálsa og fram- úrskarandi fjölmiðlun en í því mátti fræðast um fjölmiðla og skoða margt merkilegra gripa og sögu- lega umfjöllun um ýmis merkismál. Þrátt fyrir að hafa hlotið lofsam- lega umfjöllun, og vera í nágrenni við þinghúsið og önnur helstu söfn í borginni, hefur safnið glímt við um- talsverðan fjárskort. Í umfjöllun bandarískra miðla um lokun safnsins er hún sögð táknræn fyrir stöðu dagblaða og ört dvínandi traust á sjálfstæðri fjölmiðlun vestanhafs en fjölmiðlar hafa meðal annars legið undir árás- um stjórnmálaleiðtoga, þeirra á meðal Trumps forseta. Á síðasta áratug hefur blaðamönnum í land- inu fækkað um fjórðung alls og þar af um nær helming á dagblöðum. Fréttasafninu í Washington lokað AFP Loka Gestir í Newseum skoða leifar loftnets sem var á öðrum Tvíburaturnanna í New York. Norski rithöfundurinn og mynd- listarmaðurinn Ari Behn svipti sig lífi á jólunum. Behn, sem var 47 ára, var giftur Märtha Louise Noregs- prinsessu á árunum 2002-2016 og eignuðust þau þrjár dætur sem eru á aldrinum 11 til 16 ára. Behn vakti fyrst athygli sem rithöfundur 1999 með smásagnasafninu Trist som fan og með eiginkonu sinni fyrrverandi skrifaði hann bókina Från hjärta till hjärta. Í fyrra sendi hann frá sér bókina Inferno þar sem hann fjallar opinskátt um andlega vanlíðan sína og þunglyndi ásamt því að lýsa and- láti sínu. Norska hirðin harmar frá- fall Behn. Rétt er að geta þess að hringja má í hjálparsíma Rauða krossins, 1717, ef fólki líður illa. AFP Märtha Louise og Ari Behn Ari Behn látinn fasteignir Selfoss Austurvegur 64a 5709840 Hella Suðurlandsvegur 4 5709870 Hvolsvöllur Ormsvöllur 2 5709850 Nýjungar í hestafóðrun Fóðurblandan hefur hafið samstarf með Saracen horse feeds frá Englandi. Fóðrið er samsett í samvinnu við Kentucky Equine Research frá Bandaríkjunum, sem er leiðandi stofnun í rannsóknum á fóðrun hrossa. Skoðaðu nánar innihald og virkni á vefsíðu okkar www.fodur.is kassagerd.is kassagerd@kassagerd.is Klettháls 1, 110 Reykjavík +354 545 2800 Vandaðar vörur þurfa hágæða umbúðir til að komast ferskar í hendur kröfuharðra kaupenda. Hver sem varan þín er þá höfum við umbúðirnar sem henta henni. Áralöng reynsla og sérþekking okkar tryggir að við finnum bestu lausnina sem hentar fyrir þinn rekstur, hratt og örugglega. Við bjóðum breitt úrval umbúða frá traustum og öflugum samstarfsaðilum. Þannig getum við tryggt þér lausnir sem auka árangur þinn í rekstri, í sátt við umhverfi og náttúru. Ef þú hefur spurningar varðandi umbúðir þá höfum við svörin. Hafðu samband eða kíktu í kaffi og leyfðu okkur að hjálpa þér að finna lausnirnar sem henta þínum þörfum. Spjöllum um umbúðir. UmBúÐiR eRu oKkAr fAg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.