Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 28.12.2019, Qupperneq 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019 Gjald hugsunar Þótt mikill munur sé á mann- tegundum eiga þær allar nokkur sameiginleg einkenni. Óvenjustór heili í samanburði við önnur dýr er þar mest áberandi. Sextíu kílóa spendýr hefur að meðaltali 196 rúmsentimetra stóran heila. Heili fyrstu karlanna og kvennanna fyr- ir 2,5 milljónum ára var um það bil 590 rúmsentimetrar. Sapiens nútímans hafa að meðaltali 1196- 1393 rúmsenti- metra heilabú. Heilar Neander- dalsmanna voru ennþá stærri. Okkur finnst óþarfi að brjóta heilann um það hvers vegna stærri heilar hafi orðið ofan á í þróunarúrvalinu. Við erum svo heilluð af miklum gáfum okkar að við göngum út frá því að stærð heilans skipti meginmáli. En ef svo væri myndi kattaættin líka eiga afsprengi sem réði við flókna stærðfræði og froskar væru nú þegar komnir með geimferða- áætlun. Hvers vegna eru risastór- ir heilar svona sjaldgæfir í dýra- ríkinu? Staðreyndin er sú að risaheili er gríðarleg byrði á líkamanum. Það er ekki auðvelt að rogast með hann, ekki síst þegar hann er um- lukinn þykkri höfuðkúpu. Það er ennþá erfiðara að sjá honum fyrir eldsneyti. Hjá Homo sapiens er heilinn um 2-3 prósent af heild- arþyngd líkamans en neytir fjórð- ungs allrar orku hans þegar lík- aminn er í hvíld. Til samanburðar þarf heili annarra apa ekki nema átta prósent orkunnar í hvíld. Forsögulegir menn greiddu tvenns konar gjald fyrir stóra heilann sinn. Í fyrsta lagi vörðu þeir meiri tíma í matarleit. Í öðru lagi rýrn- uðu vöðvar þeirra. Líkt og ríkis- stjórn sem beinir fé frá vörnum til menntunar beindu menn orku frá upphandleggsvöðvum til taugunga. Það er varla sjálfgefið að slíkt auki lífslíkur á gresjunni. Simp- ansi getur ekki farið með sigur af hólmi í rökræðum við Homo sapi- ens en apinn getur aftur á móti slitið manninn í sundur eins og tuskudúkku. Í dag skilar stóri heilinn okkur sínu því að við getum framleitt bíla og byssur sem gera okkur kleift að hreyfa okkur miklu hrað- ar en simpansar og skjóta þá úr öruggu færi í stað þess að slást við þá. Bílar og byssur eru hins vegar nýleg fyrirbæri. Í meira en tvær milljónir ára hélt tauganet mannsins áfram að vaxa og vaxa en að frátöldum nokkrum tinnu- hnífum og oddmjóum prikum virt- ust mennirnir harla lítið græða á því. Hvað var það þá sem knúði áfram þróun þessa gríðarmikla mannsheila í þessar tvær milljónir ára? Við vitum það satt að segja ekki. Annað séreinkenni okkar mann- fólksins er að við göngum upprétt á tveimur fótum. Sá sem stendur uppréttur á auðveldara með að skyggnast yfir gresjuna eftir veiðibráð eða óvinum, og hand- leggi sem ekki þarf til að komast úr stað má nota til annars, svo sem til að fleygja steinum eða gefa merki. Því meira sem lausu hendurnar gátu gert, þeim mun betur vegnaði eigendum þeirra, og því beindist þróunarþrýstingurinn að meiri samþjöppun tauga og fín- stilltra vöðva í lófum og fingrum. Af því leiðir að manneskjur geta leyst afar flókin verkefni með höndunum. Einkum geta þær búið til og notað margbrotin áhöld. Fyrstu dæmin um áhaldagerð eru frá því fyrir um 2,5 milljónum ára og framleiðsla og notkun áhalda er viðmiðið sem fornleifafræðingar nota til að bera kennsl á forna menn. Það hefur þó vissa ókosti að ganga uppréttur. Beinagrind prí- matanna, forfeðra okkar, þróaðist í milljónir ára til að bera uppi dýr sem gekk á fjórum fótum og hafði tiltölulega lítinn haus. Það tók því talsvert á að aðlagast uppréttri stöðu, ekki síst þegar stoðirnar þurftu að halda uppi sérlega stórri hauskúpu. Mannkynið galt fyrir sína háleitu sýn og iðnu hendur með bakverkjum og stirðum hálsi. Konur greiddu enn hærra gjald. Til að geta gengið uppréttar þurfti mjórri mjaðmir, sem þrengdi að fæðingarveginum – og það einmitt þegar höfuð barna stækkuðu sí- fellt. Dauði af barnsförum varð ein helsta hættan sem steðjaði að konum. Þeim sem fæddu fyrir tím- ann, meðan heili og höfuð ung- barnsins voru enn tiltölulega lítil og eftirgefanleg, vegnaði betur, þær héldu lífi og eignuðust fleiri börn. Þar af leiðandi ýtti nátt- úruvalið undir skemmri meðgöngutíma. Og í samanburði við aðrar dýrategundir fæðast mannabörn vissulega fyrir tímann, á meðan mörg líffærakerfi eru enn óþroskuð. Folald getur skokkað um skömmu eftir fæðingu; kett- lingur fer frá móður sinni og leit- ar sér sjálfur að æti aðeins nokk- urra vikna gamall. Mannabörn eru hjálparvana og árum saman háð sér eldra fólki um næringu, vernd og menntun. Þetta hefur átt ríkan þátt jafnt í óvenju mikilli félagslegri færni mannkynsins sem einstökum fé- lagslegum vandamálum þess. Ein- stæðar mæður áttu bágt með að sjá afkvæmum sínum og sjálfum sér fyrir nógu mikilli fæðu með þurftarfrek börn í eftirdragi. Til að ala upp börn þurfti stöðugt hjálp frá öðrum fjölskyldu- meðlimum og nágrönnum. Það þarf ættbálk til að ala upp mann- eskju. Þess vegna var þróunin vil- holl þeim sem gátu myndað sterk félagsleg tengsl. Þar sem menn- irnir fæðast vanþroska er auk þess hægt að kenna þeim og auka félagsfærni þeirra mun meira en nokkurra annarra dýra. Flest spendýr koma úr móðurkviði eins og glerjað leirker úr brennsluofni – allar tilraunir til meiri mótunar myndu bara rispa þau eða brjóta. Manneskjur koma úr móðurkviði eins og bráðið gler úr bræðsluofni. Þá er hægt að spinna, teygja og móta furðu frjálslega. Þess vegna getum við á okkar dögum kennt börnunum okkar að verða kristin eða búddistar, kapítalistar eða sósíalistar, herská eða friðelsk- andi. Við gefum okkur að stór heili, notkun áhalda, yfirburðanámsgeta og margþætt samfélagsbygging veiti okkur mikið forskot. Við telj- um augljóst að þetta hafi gert mannkynið að máttugasta dýri á jörðinni. Samt naut mannkynið allra þessara kosta í tvær milljónir ára en var þrátt fyrir það veikburða og jaðarsett skepna. Þrátt fyrir stóran heila og egghvöss áhöld lifðu mennirnir sem voru uppi fyr- ir milljón árum í stöðugum ótta við rándýr, veiddu sjaldnast stór veiðidýr og héldu aðallega í sér lífinu með því að tína plöntur, krækja sér í skordýr, elta uppi smádýr og éta hræ sem aðrar afl- meiri kjötætur höfðu skilið eftir. Eitt algengasta hlutverk fyrstu steináhaldanna var að brjóta bein til að komast að mergnum. Sumir fræðimenn telja að það hafi verið okkar upprunalega sérstaða. Líkt og spætur sérhæfa sig í að ná skordýrum úr trjábol hafi fyrstu mennirnir sérhæft sig í að ná merg úr beinum. Af hverju merg? Nú, segjum sem svo að við sjáum ljónahóp fella gíraffa og éta hann. Við bíðum þolinmóð þangað til þau hafa étið nægju sína. En röðin er ekki enn komin að okkur því að fyrst koma hýenur og sjakalar – og við þorum ekki að kássast upp á þau – og rífa í sig leifarnar. Það er ekki fyrr en þá sem við í veiði- hópnum okkar þorum að nálgast hræið, skimum varkár til allra átta – og köstum okkur yfir allt ætilegt sem eftir er. Þetta er lykillinn að því að skilja sögu okkar og sálarlíf. Sess ættkvíslarinnar Homo í fæðukeðj- unni var, þar til mjög nýlega, tryggilega í miðjunni. Í milljónir ára veiddu mennirnir lítil dýr og söfnuðu því sem þeir gátu á með- an stærri rándýr veiddu þá. Það var ekki fyrr en fyrir 400.000 ár- um að nokkrar tegundir manna tóku að veiða reglulega stærri bráð og ekki fyrr en síðustu 100.000 árin – með tilkomu Homo sapiens – sem maðurinn stökk upp á topp fæðupíramídans. Svona feiknarlegt stökk frá miðju upp á topp hafði gríðar- miklar afleiðingar. Önnur dýr á toppi píramídans, eins og ljón og hákarlar, þróuðust smám saman upp í þá stöðu um margra milljón ára skeið. Við það gafst vistkerf- inu færi á að koma upp gátkerfi til að tryggja að ljón og hákarlar yllu ekki of miklum spjöllum. Eftir því sem ljónin urðu skeinuhættari þróuðust gasellur upp í að hlaupa hraðar, hýenur fóru að vinna bet- ur saman og flóðhestar urðu skap- styggari. Ólíkt þeim stökk mann- kynið svo hratt upp á tindinn að vistkerfið fékk engan tíma til að- lögunar. Mannkyninu sjálfu mis- tókst líka að aðlagast þessu. Flest helstu rándýr jarðar eru tignar- legar skepnur. Margra milljóna ára yfirráð hafa fyllt þau af sjálfs- öryggi. Í samanburði við þau erum við líkari einræðisherra banana- lýðveldis. Svo skammt er liðið frá því að við vorum minnimáttar á gresjunni að við erum full af ótta og áhyggjum af stöðu okkar og verðum fyrir vikið helmingi grimmari og hættulegri. Margar hörmungar sögunnar, allt frá mannskæðum styrjöldum til vist- fræðilegra hamfara, stafa af þessu fljótræðisstökki. Fljótræðisstökk mannkynsins Bókarkafli | Í bókinni Sapiens fer sagnfræði- prófessorinn Yuval Noah Harari yfir mannkyns- söguna, frá árdögum til nútímans, og notar meðal annars líffræði, mannfræði, fornleifafræði og umhverfisfræði til að sýna hvernig sagan hefur mótað manninn og maðurinn söguna. Magnea J. Matthíasdóttir þýddi, JPV gefur út. Þróunarþrýstingur Sagnfræðingurinn Yuval Noah Harari hefur skrifað um þróun mannkyns í þremur bókum. Sapiens er fyrsta bókin í þríleiknum, hefur komið út í 49 löndum og selst í meira en fimm milljónum eintaka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.