Morgunblaðið - 31.12.2019, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 1. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 305. tölublað 107. árgangur
RÓMANTÍSKUR
FYRIR LAUGAR-
DALSHÖLL
SÝN STJÓRN-
MÁLAMANNA
Á ÁRIÐ 2020
HRÍFANDI SAMSPIL
SJÓNARHORNSINS
OG VERKSINS
VIÐ ÁRAMÓT 20-27 LISTASÝNINGAR ÁRSINS 37GUÐJÓN VALUR 35
Morgunblaðið/RAX
Gleðilegt nýtt ár!
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Árið 2019 var annað árið í röð með
hverfandi inngripum Seðlabankans á
gjaldeyrismarkaði. Námu þau aðeins
broti af viðskiptunum 2015-17.
Seðlabankinn getur brugðist við
gengisbreytingum með því að kaupa
eða selja erlendan gjaldeyri.
Gengi krónu hefur haldist mjög
stöðugt síðan í byrjun nóvember
2018. Gengið gaf eftir haustið 2018
en óvissa var þá í ferðaþjónustu.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
segir gjaldeyrismarkaðinn hafa
verið í góðu jafnvægi síðustu tvö ár.
Það bendi aftur til að gengi krónu sé
í jafnvægi. Hún sé hvorki sterk né
veik heldur hæfileg. Útlit sé fyrir að
gengið verði stöðugt á næstunni.
Þá bendir Ásgeir á að töluverð að-
lögun hafi orðið í íslenska hagkerfinu
í kjölfar samdráttar í ferðaþjónustu.
Á móti minni útflutningi þjónustu
komi mun minni innflutningur.
Reikna áfram með jafnvægi
Jón Bjarki Bentsson, aðalhag-
fræðingur Íslandsbanka, segir að
þrátt fyrir samdrátt í ferðaþjónustu
sé ekki útlit fyrir veikingu krónu
næsta kastið. Flest bendi til að geng-
ið haldist stöðugt. Markaðurinn telji
að áfram verði jafnvægi í gjaldeyris-
flæði. Afgangur af vöruviðskiptum
við útlönd sé talsvert umfram spár.
Yngvi Harðarson hagfræðingur
segir litla veltu á gjaldeyrismarkaði
síðustu tvö ár til merkis um lítið um-
fang viðskipta með krónur. Árin
2015 til 2017 hafi Seðlabankinn hins
vegar safnað erlendum gjaldeyri.
Yngvi segir óvenjulegt að gengi
krónu haldist svo stöðugt í niður-
sveiflu. Heimsmarkaðsverð á olíu
hækkaði um tæpan þriðjung í ár.
Vegna hækkana undanfarið kunni
útsöluverð á olíu að hækka á Íslandi í
byrjun árs. Sama þróun geti orðið í
öðrum hrávörum, t.d. hveiti og kaffi.
Stöðugleiki er í kortunum
Seðlabankastjóri segir gengi krónunnar endurspegla að hún sé nú í jafnvægi
Lítil inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði Óvenjuleg staða í niðursveiflu
Gjaldeyrisviðskipti
Seðlabankans
2015-2019 í
milljörðum króna
Kaup á erlendum
gjaldeyri fyrir krónur
Sala á gjaldeyri
2015 2016 2017 2018 2019
0 0 6,4 3,3 11,9
2,40,4
76,7
386,2
272,4
Heimild: SÍ
Betolvex
Fæst án
lyfseðils
1mg (cyanocobalamin) filmuhúðaðar töflur
Betolvex inniheldur 1 mg af cyanocobalamin
(B12-vítamíni). Betolvex er gefið við B12-vítamínskorti
og þegar hætta er á slíkum skorti. Viðhaldsskammtar/
fyrirbyggjandi meðferð: Venjulega 1 tafla á dag.
Töflurnar skal helst taka á fastandi maga. Lesið
vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli
fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfja-
fræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upp-
lýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
B-12
A
c
ta
v
is
9
1
4
0
3
2
Ármúli 8 I 108 Reykjavík I Sími 516 0600 I www.birgisson.is
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum
gleðilegrar hátíðar með þökk fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
Gleðilegahátíð
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllu
gleðilegrar hátíðar með þökk fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.