Morgunblaðið - 31.12.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 31.12.2019, Síða 2
Ljósmynd/Margeir Ingólfsson Aðgerðir Rússneskir ferðamenn voru í smárútunni, sem lenti utan vegar eftir áreksturinn. Tveir þeirra fóru með þyrlu á sjúkrahús. Fjölmennt lið björgunarfólks bar að, enda gáfu fyrstu upplýsingar sem bárust tilefni til slíkt. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Þrír voru fluttir með þyrlu frá Landhelgisgæslunni á bráðamót- töku í Reykjavík eftir harðan árekstur tveggja bifreiða við bæinn Brú í Biskupstungum, milli Gull- foss og Geysis, síðdegis í gær. Þar skullu saman smárúta og jeppi sem í voru samtals þrettán manns. Tveir Rússar úr rútunni fóru með þyrlunni í bæinn og Kínverji úr jeppanum, en meiðsli þeirra voru ekki alvarleg. Aðrir úr bílunum voru minna slasaðir en fóru til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. „Það er mikil mildi að ekki fór verr,“ sagði Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi. Upphafleg ætlun var að senda fjórða farþegann úr bíln- um til aðhlynningar í Reykjavík, en ekki reyndist þörf á því. Að sögn fólks á vettvangi voru ágætar aðstæður þegar slysið varð; vegurinn auður og enn bjart. Eftir áreksturinn og meðan beðið var hjálparliða mynduðust síðan þau skilyrði að glerhált varð á veginum. Var vægt frost og rigning þannig að glæra varð um alla jörð. Hjálparstöð í skólabíl Félagar í björgunarsveitinni Ey- vindi á Flúðum voru fyrstu bráðalið- ar á vettvang og fljótlega bar að lög- reglu og sjúkrabíla frá Selfossi. Einnig veittu nærstaddir hjálp, svo sem fólk á ferðinni og heimamenn. Komið var með skólabíl frá næsta bæ sem gegndi hlutverki eins konar hjálparstöðvar á fyrstu stundum. „Fólk var eðlilega í nokkru áfalli eft- ir áreksturinn en þetta virðist hafa farið betur en útlit var fyrir í fyrstu,“ segir Margeir Ingólfsson á Brú, sem var á vettvangi. Veginn á þessum slóðum segir hann vera mjó- an og fjölfarinn og úrbóta sé þörf. Harður árekstur en meiðsli fólksins lítil  Tveir bílar skullu saman nærri Geysi  Þyrlan sótti þrjá Ljósmynd/Margeir Ingólfsson Skemmdir Bílarnir tveir skullu mjög harkalega saman og framendi jeppans er illa farinn. Olíuvökvi lak úr vélinni niður á veg eins og hér sést á mynd. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2019 Við þráum að eignast barn – en þurfum á aðstoð að halda. Ert þú 20 til 30 ára heilbrigð kona sem ert tilbúin að hjálpa okkur með því að gefa okkur egg? Ef svo er langar okkur endilega að komast í samband við þig í gegnum netfangið; draumurumbarn@gmail.com Við greiðum auðvitað allan kostnað vegna tíma og fyrirhafnar sem þessu ferli fylgir. Fullum trúnaði er að sjálfsögðu heitið. draumurumbarn@gmail.com MorgunblaðiðHádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóraSigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is FréttirGuðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfssonmenning@mbl.is ViðskiptiStefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Loftslagsbreytingar, náttúruham- farir, almennar samfélagsbreytingar og skipulögð glæpastarfsemi eru þættir sem horft er til í starfsum- hverfi löggæslu á Íslandi á árunum 2020 til 2024. Þetta kemur fram í nýrri greiningarskýrslu Ríkislög- reglustjóra sem birt var í gær. Frá 2007 hafa reglulega verið gerðar stefnumiðaðar greiningar með mati á samfélagsógnir næstu missera. Nú eru hins vegar fimm ár undir. Loftslagsbreytingar munu eink- um hafa félagsleg áhrif á Íslandi, segir í skýrslu ríkislögreglustjóra. „Hugmyndafræðileg átök tengd um- hverfisvernd og loftslagsbreytingum kunna að blossa upp á Vesturlöndum með litlum fyrirvara. Verði raunin sú kann ólga í samfélögum að reynast vaxandi áskorun fyrir löggæsluna,“ segir í greiningunni. Náttúruhamfarir eru sagðar geta kallað á krefjandi lögregluaðgerðir, því oft sé fjöldi ferðamanna á ham- farasvæðum. Þá segir einnig í skýrslunni að tækni og upplýsingar hafi breytt íslensku samfélagi hrað- ar en áður hafi gerst. Heimurinn hafi minnkað í ýmsu tilliti og samskipti við erlendar þjóðir aukist. Nefnt er að viðskipti við Kína og hugsanlega fleiri Asíuþjóðir muni aukast, eink- um innflutningur frá þessum ríkjum, sem geti verið áhrifaþáttur á sam- félagsbreytingar. Búast megi við að fólki á Íslandi fjölgi um minnst 20 þúsund næstu fimm árin. Því fylgi margvíslegar áskoranir fyrir lögregluna, sem eigi takmarkaðan aðgang að samfélögum innflytjenda á Íslandi. Fjölgun ferðamanna getur sömu- leiðis haft áhrif í tilteknum brota- flokkum, svo sem umferðarmálum. Aukin umsvif þjónustu við ferða- menn geti sömuleiðis haft áhrif á brot eins og peningaþvætti og svarta starfsemi. sbs@mbl.is Löggæslustörfin að breytast  Samfélag í þró- un og nýjar ógnir, segir skýrsla RLS Morgunblaðið/Eggert Lögreglan Ýmsar áskoranir bíða lögreglunnar á næstu árum. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Dregið hefur úr meðalökuhraða yfir sumartímann á hringvegi sam- kvæmt skýrslu umferðardeildar Vegagerðarinnar á ökuhraða á þjóð- vegum 2004-2018. Mældist hann 92,6 km/klst árið 2018 sem er lægsta tala frá upphafi mælinga 2004. Meðaltal V85-hraða, þ.e. þess hraða sem 85% ökumanna halda sig innan við, virðist einnig fara lækk- andi og er nú einnig með því lægsta sem mælst hefur. Þetta staðfestir Auður Þóra Árnadóttir, forstöðu- maður umferðardeildar Vegagerðar- innar, en hún segir að ekki sé hægt að fullyrða hver skýringin á lækk- uninni sé og telur hana vera samspil margra þátta. Telur hún þó líklegt að aukið myndavélaeftirlit lögreglu sé einn áhrifaþáttanna. „Það skiptir miklu máli að þó að lækkunin sé lítil þá getur þetta haft mjög jákvæð áhrif á umferðar- öryggi,“ segir Auður. Hún segir að spennandi verði að skoða tölur frá 2019 og sjá hvort þær sýni fram á áframhaldandi lækkun meðalhraða. Býst hún við að sjálf- virkt meðalhraðaeftirlit sem á að taka í notkun á nýju ári muni hafa meiri áhrif á umferðaröryggi. Hlutfall ökumanna á hringvegi sem aka á meira en 30 km/klst yfir leyfilegum ökuhraða hefur einnig lækkað úr 2% árið 2017 í 1,64% 2018 en hlutfallið var 3,9% við upphaf mælinga 2004 samkvæmt skýslu Vegagerðarinnar. Þetta segir Auður ákaflega jákvæða þróun. „Það er auðvitað hræðilegt að svona margir skuli samt keyra alltof hratt en það er rosalega gott að þetta hlutfall sé að lækka,“ segir hún. Dregið hefur úr ökuhraða  Aukið eftirlit hugsanlegur áhrifaþáttur Meðalökuhraði á hringvegi að sumarlagi Meðaltal á 10 stöðum á hringvegi 2004-2018 110 105 100 95 90 85 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 km/klst. Meðalökuhraði Meðaltal V85 hraða* 108,6 102,5 97,0 92,6 *Sá hraði sem 85% ökumanna halda sig innan við Heimild: Umferðardeild Vegagerðarinnar Nær 300 björgunarsveitarmenn leit- uðu í gærkvöldi að karlmanni sem saknað var á sunnanverðu Snæfells- nesi. Á takmörkuðum upplýsingum var að byggja en í fyrstu var svipast um við sunnanverðan Haffjarðar- múla í Hnappadal sem er nærri veg- inum yfir Heydal. Lögreglan á Vesturlandi óskaði eftir aðstoð björgunarsveita um klukkan sex í gærkvöldi – og fór mannskapur af nærliggjandi svæð- um þá á staðinn. Þegar leið á kvöldið var meiri þungi settur í málið og björgunarsveitir norðan úr Húna- vatnssýslum, af höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi ræstar út. Talið var í gærkvöldi að maðurinn sem leitað var að, og er staðkunn- ugur á svæðinu, hefði farið í fjall- göngu en ekki skilað sér. Spor- hundar taka þátt í leitinni. Umfangsmikil leit við Haffjarðarmúla  300 björgunarmenn í Hnappadal

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.