Morgunblaðið - 31.12.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2019
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Skrautlegir flugeldar, háværar kökur
og umhverfisvæn rótarskot verða til
sölu víða um land til klukkan 16.00 í
dag en flugeldavertíðin nær yfirleitt
hámarki seinnipartinn 30. desember
og fyrri part gamlársdags. Jón Ingi
Sigvaldason, markaðs- og sölustjóri
Slysavarnafélagsins Landsbjargar,
staðfesti þetta í samtali við Morgun-
blaðið í gær, en hann segir sölu hafa
gengið vel frá fyrsta degi flugelda-
sölu, 28. desember, og telur sölumenn
bjartsýna á framhaldið.
„Þetta er aðeins meira en í fyrra.
Ég held að það snúist dálítið um að
veðurspáin er að skána. Fólk er orðið
bjartsýnna,“ segir Jón Ingi og bætir
við: Þetta gerist nú alltaf. Veðrið
verður alltaf skárra um áramótin en
búist er við.“
Segir hann sölu svokallaðra rótar-
skota, þ.e. umhverfisvænnar leiðar
sem gefur af sér tré sem plantað er í
nafni kaupandans með stuðningi
skógræktarfélaga, hafa gengið vel.
Er þetta í annað sinn sem Lands-
björg býður upp á rótarskot við góðar
undirtektir, en rótarskotin sem eru
seld að þessu sinni munu leiða til
trjáa sem verða gróðursett á að
minnsta kosti 18 stöðum á landinu.
Margir á villigötum
Þegar Jón Ingi er spurður um álit á
umræðu um umhverfisáhrif flugelda
segist hann telja marga vera á villi-
götum varðandi það hversu mikið
flugeldar menga.
„Við gerum okkur alveg grein fyrir
því að flugeldar valda svifryki en það
er mengun sem stendur vanalega yfir
í tvo eða í mesta lagi þrjá tíma frá
11.30. Svo er það liðið hjá. Þannig að
þegar fólk vaknar eru loftgæðin vana-
lega orðin mikil aftur,“ segir Jón Ingi.
Hann bætir við að mikil áhersla hafi
verið lögð á að minnka óæskileg efni í
flugeldum Landsbjargar, sem hann
bendir á að séu vottaðir af evrópsku
vottunarfyrirtæki.
Oddur Þórarinsson, sölustjóri og
sveitarforingi hjá Hjálparsveit skáta í
Reykjavík, tekur undir með Jóni
Inga og segir að flugeldar Lands-
bjargar séu nú mun hreinni og lausari
við eiturefni en áður.
Hann segir mengun flugelda lítið
hafa borið á góma í sölunni þó að allt-
af sé einn og einn sem minnist á hana.
Hann bendir þó á að rótarskotin hafi
selst gríðarlega vel.
Í samtali við Morgunblaðið rétt
fyrir fimmleytið í gær sagði Oddur
söluna almennt hafa gengið mjög vel
þó að hún hefði farið hægt af stað.
„Það er alltaf gaman að finna vel-
viljann frá almenningi í okkar garð,“
sagði hann.
Mikil stemning var á stærsta flug-
eldasöludegi ársins hjá Íþróttafélagi
Reykjavíkur í gær að sögn Auðar
Ólafsdóttur, leikmanni í meistara-
flokki kvenna hjá ÍR, en íþrótta-
félagið hélt sem áður flugeldasýningu
í gærkvöldi. Auður staðfesti að ÍR
væri einnig með hugann við um-
hverfismálin en félagið býður nú í
fyrsta sinn upp á umhverfisvænni leið
en flugelda í samstarfi við Skóg-
ræktarfélag Íslands, mörgum til mik-
illar gleði.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugeldasala Ylfa Garpsdóttir stóð vaktina hjá flugeldasölu björgunarsveitanna þegar ljósmyndara bar að garði.
Veðrið á áramótum alltaf
skárra en búist er við
Flugeldar ekki jafn mengandi og margir halda, segir Jón
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is.
Nú er ljóst að nýtt úrkomumet fyrir
desember mun líta dagsins ljós á
Akureyri í þessum mánuði.
Úrkoman til þessa hefur mælst
um 180 millimetrar í mánuðinum.
Fyrra met var 158 millimetrar frá
árinu 2014. Þess-
ar upplýsingar
veitir Trausti
Jónsson veður-
fræðingur.
Hann bætir við
að stór hluti úr-
komunnar sé
snjór. Hins vegar
hafi snjódýpt áð-
ur mælst meiri á
Akureyri í des-
ember en nú. Samfelldar úrkomu-
mælingar á Akureyri ná meira en 90
ár aftur í tímann, eða til ársins 1927.
Segja má að úrkoman á Akureyri
hafi farið öfganna á milli því nóv-
ember 2019 var næstþurrasti nóv-
embermánuður frá upphafi sam-
felldra úrkomumælinga þar í bæ.
Úrkoma mældist aðeins 4,6 milli-
metrar, sem eru tæp 10% af meðal-
úrkomu áranna 1961 til 1990.
Úrkoman í Reykjavík á árinu 2019
er í rétt tæpu meðallagi síðustu tíu
ára, en í ríflegu meðallagi áranna
1961-1990
Sólskinsstundafjöldi sýnist
Trausta verða sá þriðji mesti frá
upphafi mælinga í Reykjavík en lítið
vantaði þó upp á að annað sætið
næðist. Á Akureyri er sólskins-
stundafjöldinn nærri meðallagi eða
rétt ofan þess, en úrkoma á árinu vel
ofan þess, ámóta og í fyrra.
Á bloggi sínu Hungurdiskum á
Moggablogginu hefur Trausti skoð-
að hitafar ársins 2019.
„Tíðarfar var talsvert ólíkt því
sem var í fyrra (2018) – þótt bæði ár-
in teljist í langtímasamhengi hlý. Að
þessu sinni voru hlýindin meiri um
landið suðvestanvert en eystra, al-
veg öfugt við það sem var í fyrra,“
segir Trausti.
Hann segir að svo virðist sem
meðalhitinn í Reykjavík sé sá sjö-
undi hæsti frá upphafi samfelldra
mælinga (1871) og á Akureyri við
25. sæti (af 139). Í Stykkishólmi virð-
ist ársmeðalhitinn ætla að enda í 13.
efsta, eða þar um bil, af 174. Endan-
leg skipan í sæti verði þó ekki ljós
fyrr en síðustu dagar ársins 2019
eru liðnir.
Þetta er 24. árið í röð sem hiti er
yfir meðallagi áranna 1961-1990 í
Reykjavík. Svo virðist sem meðal-
hitinn þar endi í 5,7 stigum eða þar
um bil og í um það bil 4,3 stigum á
Akureyri, segir Trausti.
Lokauppgjörið komi í tíðaryfirliti
Veðurstofunnar á nýju ári.
Úrkomumetið á
Akureyri slegið
allhressilega
Árið 2019 telst til hinna hlýrri frá
upphafi mælinga Árið er sólríkt
Morgunblaðið/Þorgeir
Sjálfa Ferðamenn smella af sér
mynd við gatnamót á Akureyri.
Trausti Jónsson
Jón Pétur Jónsson
Sigurður Bogi Sævarsson
Þór Steinarsson
Fjórar konur hafa nú tilkynnt lög-
reglu um meint kynferðisbrot Krist-
jáns Gunnars Valdimarssonar, lekt-
ors við Háskóla Íslands. Þrjár konur
höfðu þegar greint frá sinni hlið
mála og í fréttum Stöðvar 2 í gær-
kvöldi kom fram að nú hefði sú
fjórða, sem nú er stödd erlendis,
stigið fram og óskað eftir að koma á
lögreglustöð og gefa skýrslu.
Framlengingu hafnað
Um hádegisbil í gær var Kristjáni
Gunnari Valdimarssyni sleppt úr
haldi lögreglu eftir að Héraðsdómur
Reykjavíkur hafnaði ósk lögreglunn-
ar um áframhaldandi gæsluvarðhald
yfir honum. Sá úrskurður hefur ver-
ið kærður til Landsréttar en ólíklegt
er að málið verði tekið til umfjöll-
unar þar fyrr en eftir áramótin.
Farið hafði verið fram á fjögurra
vikna varðhald vegna rannsóknar á
meintum frelsissviptingum, líkams-
árásum og kynferðisbrotum. Byggð-
ist krafan á rannsóknarhagsmunum
og því að hætta væri á að sakborn-
ingur héldi uppteknum hætti.
Karl Steinar Valsson, yfirlög-
regluþjónn rannsóknardeildar Lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
vildi í samtali við mbl.is í gær ekki tjá
sig um hvort niðurstaða héraðsdóms
um að hafna kröfu um áframhald-
andi gæsluvarðhaldi hefði komið sér
á óvart. Að niðurstaðan væri kærð til
Landsréttar segði þó sitt. Hann
sagði rannsókn í fullum gangi. Það
hvort lögregla þyrfti að ræða meira
og ítarlegar við Kristján Gunnar réð-
ist af því hvað kæmi út úr yfir-
heyrslum yfir öðrum sem málinu
tengdust.
Fjórða konan
gefur skýrslu
Úrskurðar Landsréttar er beðið
Morgunblaðið/Golli
Lögreglan Mál sem tengjast Krist-
jáni Gunnari eru í rannsókn.