Morgunblaðið - 31.12.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2019
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Nú eru 52 Íslendingar 100 ára eða
eldri og hafa þeir aðeins einu sinni
verið fleiri. Þeir voru 53 í júní árið
2018, samkvæmt
upplýsingum frá
Jónasi Ragnars-
syni ritstjóra, sem
heldur úti síðunni
Langlífi á Face-
book. Fyrir fimm-
tíu árum voru
fimm Íslendingar
á lífi hundrað ára
eða eldri, fyrir
tuttugu árum
voru þeir 25 og því
er spáð að þeir verði 100 eftir tuttugu
ár.
Á árinu sem nú er að líða náðu 26
Íslendingar 100 ára aldri. Allir nema
fimm þeirra eru á lífi í lok ársins. Um
þrjátíu geta náð þessum áfanga á
næsta ári og má búast við heldur fleiri
næstu ár þar á eftir.
„Mun fleiri ná nú háum aldri en á
árum áður og þar með verða fleiri 100
ára. Það eru margar ástæður fyrir
því. Þær stærstu eru bættar aðstæð-
ur og lífsskilyrði fólks, betri næring í
æsku og að mikið hefur dregið úr
ungbarnadauða. Einnig lifir fólk nú af
ýmsa algenga sjúkdóma, meðal ann-
ars þá sem sem er bólusett fyrir, og
vegna sýklalyfja. Auk þess eru betri
aðstæður á fullorðinsárum varðandi
vinnu og ýmislegt fleira,“ segir Ólafur
Helgi Samúelsson, formaður Félags
íslenskra öldrunarlækna. Hann bend-
ir á að lífsstíll skipti máli og einnig
erfðir en einungis að litlum hluta.
Ólafur segir að aldraðir, það er hópur
þeirra sem eru 80-85 ára og eldri, sé
sá aldurshópur þjóðarinnar sem vex
hvað örast. Þetta eigi ekki einungis
við um Ísland heldur gæti sömu þró-
unar víða um heim.
„Margir ná því nú að komast á full-
orðinsár. Þeir sem ná því að verða 85
ára nú eiga enn meiri líkur á því að
verða 100 ára en voru þegar þeir
fæddust,“ sagði Ólafur. Hann segir að
fólk sem fær langvinna sjúkdóma á
miðjum aldri, eins og t.d. hjartasjúk-
dóma, lifi frekar af en áður vegna
bættrar meðferðar.
„Gríðarstórir árgangar á næstu
tveimur til þremur áratugum verða
háaldraðir, ef allt fer sem horfir,“
segir Ólafur. Hann segir að margir í
þessum hópi verði við góða heilsu
þrátt fyrir háan aldur. Þetta séu að
mörgu leyti jákvæðar fréttir. „Við
getum áfram nýtt okkur reynslu kyn-
slóðanna og vonandi borið gæfu til
þess að líta á þetta æviskeið sem hluta
af samfélaginu.“
Öldungum mun fjölga á næstu árum
Morgunblaðið/RAX
Framtíðin Þegar horft er fram á veg er ljóst að öldruðum mun fjölga mikið.
Nú eru 52 Íslendingar 100 ára eða eldri Því er spáð að eitt hundrað Íslendingar verði 100 ára og
eldri eftir 20 ár Margar ástæður eru fyrir því hve margir ná háum aldri nú, að sögn öldrunarlæknis
Elst núlifandi
Íslendinga
» Dóra Ólafsdóttir í Reykja-
vík er elst Íslendinga, 107
ára.
» Lárus Sigfússon í Reykja-
vík er næstelstur, 104 ára.
» Nanna Franklínsdóttir á
Siglufirði er í þriðja sæti,
103 ára.
» Stefán Þorleifsson í Nes-
kaupstað er fjórði elsti Ís-
lendingurinn, 103 ára.
» Hildur Pálsdóttir í Reykja-
vík er í fimmta sæti, 103 ára.
Ólafur Helgi
Samúelsson
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta
Kátt var á hjalla í Vesturbæjarlauginni í gærkvöldi þegar hið árlega
stjörnuljósasund sunddeildar KR fór þar fram, en nokkur hefð hefur skap-
ast fyrir því. Fengu iðkendur í sunddeildinni sem og aðrir gestir laugar-
innar afhent KR-stjörnuljós á sundlaugarbakkanum og undu þeir sér svo
við ljósadýrðina í lauginni. Fóru líklega allir gestir heim uppfullir af anda
jóla og nýárs, enda heilla neistarnir frá stjörnuljósum unga sem aldna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stjörnuljósadýrð í Vesturbæjarlauginni
Hið árlega stjörnuljósasund sunddeildar KR
Hópbílar buðu lægst í sérhæfða akst-
ursþjónustu í Hafnarfirði, sem nær til
þjónustu við fatlað fólk og eldri borg-
ara á árunum 2020 til 2024. Fimm
buðu og voru tilboð opnuð 13. desem-
ber. Lægst buðu Hópbílar hf. og
hljóðaði tilboð þeirra upp á
820.986.900 krónur, eða 420.623.100
krónum undir kostnaðaráætlun, sem
var upp á 1.241.610.000 krónur. Eitt
tilboð var yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti
19. desember að hefja viðræður við
Hópbíla. Bærinn ákvað á liðnu vori að
hverfa frá samstarfi við önnur sveitar-
félög innan SSH, að Kópavogi undan-
skildum, um sérhæfða akstursþjón-
ustu. Var stefnt að skilvirkari og betri
þjónustu með auknu sjálfræði not-
enda, lengri þjónustutíma og meira ör-
yggi fyrir farþega, að því er segir í
fréttatilkynningu. Hafnarfjörður hafði
yfirumsjón með þjónustunni í mörg ár
áður en ákveðið var að fara í samstarf
um verkefnið árið 2014. „Ákveðin
tækifæri eru fólgin í því fyrir sveitar-
félagið og samfélagið í heild sinni að
sinna þessari mikilvægu þjónustu sjálf
og það í öflugu og góðu notenda-
samráði og samstarfi við viðeigandi
ráð innan sveitarfélagsins,“ segir í til-
kynningunni. gudni@mbl.is
Hópbílar hf.
buðu lægst
Fimm buðu í akst-
ur í Hafnarfirði