Morgunblaðið - 31.12.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 31.12.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2019 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Toyota á Íslandi mun hefja sölu á bílatryggingum, fyrst bílaumboða á Íslandi, í byrjun janúar. Verkefnið er unnið í samstarfi við TM, sem vá- tryggir bílana. Eins og fram kemur í tilkynningu frá Toyota þá eru Toyota- og Lexustryggingar hefð- bundnar ökutækjatryggingar og bjóðast með nýjum og notuðum Toyota- og Lexusbílum hjá viður- kenndum seljendum. Þá segir að nú- verandi eigendum Toyota- og Lex- usbíla bjóðist innan tíðar að kaupa ökutækjatryggingar í gegnum sjálf- virka lausn á heimasíðum Toyota og Lexus. Við sölu trygginganna verður byggt á hugmyndafræði trygginga- félags Toyota á heimsvísu, Toyota Insurance Management (TIM), sem er eitt stærsta tryggingafélag heims. Hugarró í boði Kjartan Vilhjálmsson, fram- kvæmdastjóri einstaklingsráðgjafar og markaðsmála hjá TM, segir að ástæðan fyrir því að fyrirtækin tvö efni til samstarfs í þessum efnum sé meðal annars sú að mikill sam- hljómur sé með fyrirtækjunum, einkum hvað varðar mikla áherslu beggja félaga á þjónustu. „Bæði fyrirtækin leggja mikla áherslu á að bjóða við- skiptavinum upp á hugarró,“ segir Kjartan. Þá bendir hann á að ein helsta for- senda þess að hægt var að bjóða þessa nýju þjónustu sé sterk staða TM á sviði stafrænna lausna. „Við höfum sett okkur metnaðarfullt markmið um að vera í forystu í staf- rænum lausnum og þær gera okkur kleift að fara í þetta samstarf. Það er mjög ánægjulegt.“ Eins og Kjartan útskýrir getur sölumaður sem er að ganga frá sölu á Toyota- eða Lexusbíl til viðskipta- vinar gengið frá tryggingamálunum samhliða, milliliðalaust. Viðskipta- vinur fær sendan hlekk í símann og lýkur við tryggingakaupin á staðn- um með notkun rafrænna skilríkja. Tíðkast víða erlendis Þó að sala bílatrygginga sé nýjung hér á landi hjá bílaumboði er slíkt farið að tíðkast víða erlendis. Spurður hvort hann búist við að fleiri umboð og tryggingafélög fylgi fordæmi TM og Toyota hér á landi segir Kjartan að verkefnið muni tví- mælalaust vekja aðra á markaðnum til umhugsunar. „Það kæmi ekki á óvart ef svona þjónusta yrði í boði í ríkari mæli á markaðnum í fram- haldinu.“ Er TM með þessu að reyna að laða fólk til sín með allar sínar trygg- ingar? „Þessi hugsunarháttur sem verið hefur ríkjandi hér á landi, að fólk sé með allar sínar tryggingar á einum stað, er smátt og smátt að rofna, og þetta er dæmi um það. Fólk er meira farið að kaupa sértækar tryggingar sem tengjast þeim vörum og þjón- ustu sem verið er að kaupa í það og það skiptið, eins og ferðalögum eða heimilistækjum, til dæmis. Nú erum við að færa þetta yfir á ökutæki.“ Kjartan segir að ekki sé keppt í verði, heldur virðisauka sem tengist fyrrnefndri hugarró. Toyota- og Lexuseigendur fái með tryggingun- um bíl að láni allan þann tíma sem bíll er í viðgerð í kaskótjóni en ekki eingöngu þá fimm daga sem í dag tíðkast. Tryggingarnar miðast að sögn Kjartans við að viðgerðir séu framkvæmdar á vegum viður- kenndra þjónustuaðila Toyota á Ís- landi og tryggt verður að hans sögn að viðurkenndir Toyota- og Lexus- varahlutir séu notaðir í allar viðgerð- ir. Þá fá Lexusbílar til dæmis alþrif áður en þeim er skilað eftir viðgerð. Aukin þjónusta Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi, segir í tilkynningu fyrirtækisins að Toyota búi yfir gríð- armikilli reynslu og þekkingu á sviði trygginga í gegnum samstarf og eignarhlut sinn í einu stærsta tryggingarfélagi í heimi, MS & AD Insurance Group í Japan. Þá segir hann að TIM sem er í eigu trygg- ingaarms Toyota í Evrópu – Aioi Nissay Dowa Europe – veiti sam- starfinu á Íslandi ráðgjöf og stuðn- ing. „Með Toyota- og Lexustrygg- ingum erum við enn að auka þjónustu okkar við eigendur Toyota- og Lexusbifreiða. Við teljum við- skiptavinum okkar til hagsbóta að geta gengið frá tryggingum hjá sama fyrirtæki og þeir kaupa bílinn og sækja þjónustu fyrir hann,“ segir Úlfar. Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, segir í tilkynningunni að TM sé stolt af því að Toyota hafi leitað eftir sam- starfi við TM þegar ákveðið var að bjóða upp á Toyota- og Lexustrygg- ingar á Íslandi. Fyrst með bílatryggingar Morgunblaðið/Kristinn Afgreiðsla Hægt verður að ganga frá tryggingunni samhliða bílakaupunum.  Tryggðir Toyota- og Lexuseigendur fá bíl að láni allan tímann á meðan viðgerð stendur yfir  TM vátryggir  Fá stuðning frá Toyota Insurance Management Klesst’ann » Auglýsingaherferð Toyta- trygginga mun ganga undir yfirskriftinni Klesst’ann – ekki bílinn samt. » Varan er einungis í boði hjá Toyota, TM selur vöruna ekki. » Allir núverandi Toyota/ Lexuseigendur munu einnig geta keypt Toyota/Lexus- ökutækjatryggingu á netinu. Kjartan Vilhjálmsson Úlfar Steindórsson Sigurður Viðarsson 31. desember 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 121.45 122.03 121.74 Sterlingspund 158.7 159.48 159.09 Kanadadalur 92.71 93.25 92.98 Dönsk króna 18.102 18.208 18.155 Norsk króna 13.692 13.772 13.732 Sænsk króna 12.944 13.02 12.982 Svissn. franki 124.3 125.0 124.65 Japanskt jen 1.108 1.1144 1.1112 SDR 167.47 168.47 167.97 Evra 135.25 136.01 135.63 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.819 Hrávöruverð Gull 1510.6 ($/únsa) Ál 1788.0 ($/tonn) LME Hráolía 67.91 ($/fatið) Brent Vestmannaeyjabær hefur ákveðið að áfrýja ekki dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem höfðað var vegna endurgjalds til fyrrverandi stofn- fjáreigenda Sparisjóðs Vestmanna- eyja vegna samruna sjóðsins og Landsbankans. Árið 2018 höfðuðu Vestmanna- eyjabær, Vinnslustöðin hf. og Líf- eyrissjóður Vestmannaeyja mál á hendur Landsbankanum til að krefjast hærra endurgjalds til fyrr- verandi stofnfjáreigenda Sparisjóðs Vestmannaeyja (SPV) vegna sam- runa sparisjóðsins og Landsbank- ans. Vorið 2015 var SPV yfirtekinn af Landsbankanum hf. en upp höfðu komið eiginfjárerfiðleikar hjá SPV og veitti Fjármálaeftirlitið stjórnendum SPV fimm daga frest til þess að setja fram tillögur um ráðstafanir vegna eiginfjárvandans. Við yfirtökuna byggðist endurgjald stofnfjáreigenda SPV á samkomu- lagi Landsbankans og stjórnar SPV sem stofnfjáreigendur greiddu aldr- ei atkvæði um að því er fram kem- ur í fundargerðinni. Samkvæmt samkomulaginu fengu þeir hluti í Landsbankanum sem endurgjald og var ákveðið að verðmæti alls stofn- fjár yrði 332 milljónir króna. Í fundargerðinni segir að forsendur þeirrar verðákvörðunar liggi ekki enn fyrir. Í niðurstöðu bæjarráðs lýsir það vonbrigðum með niðurstöðu Hér- aðsdóms Reykjavíkur og að dóm- urinn taki „ekki til greina niður- stöðu dómskvaddra matsmanna á raunvirði stofnbréfanna, sem var umtalsvert hærra en það sem bank- inn greiddi fyrir hlutina“, og því hafi ríkisbankinn hagnast á kostnað stofnfjáreigenda í SPV. Í fundar- gerðinni segir að niðurstaða máls- ins sé þó sú að ekki standi efni til að áfrýja málinu til æðra dómstigs. Vestmanna- eyjabær áfrýjar ekki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.